Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1974, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1974, Side 4
SOGU OLIUNNAR Efíir Kai Hermann. Annar hluti Skótfur olíuborturua í ÖhiöfyJkÍ fyrir aþ.h. hundrað árum. Þriðji nóvember árið 1863 var mikill merkisdagur í Cleveland. Fyrsta járnbrautarlestin rann inn á nýju brautarstöðina, blómum skrýdd. Veizlan, sem verzlunar- ráðið héltaðkomnum heiðursgest- um þá um kvöldið, var stórfeng- leg. Á matseðlinum voru ekki færri en níu kjötréttir, fjórtán fisktegundir og fimmtán eftirrétt- ir, sem velja mátti um. Hinn tutt- ugu og fjögurra ára gamli kaup- maður, John D. Rockefeller, var aðeins áhorfandi að dýrðinni í þetta sinn. Engu að siður var þetta merkur dagur í lifi hans. Sonur skottulæknisins lét sér fátt um finnast um hið glæsilega veizluborð, þvi að honum var meinilla við bruðl af hvaða tagi, sem var. Það voru hagrænar af- leiðingar atburðarins, sem vöktu áhuga hans. Cleveland var nú kominn i beint samband við New York auk vatnaleiðarinnar út í Atlantshaf. Og tæpa hundrað og sextíu kílómetra frá borginni voru hinar fyrstu olíulindir ný- fundnar. Unga manninum virtist tími til kominn, að hann hæfi afskipti af olíuverzluninni. Ásamt verzlunar- félaga sínum, Maurice Clark, keypti hann því oliuhreinsunar- stöð. Tóku þeir þriðja mann í félag við sig, olíuhreinsunarsér- fræðing að nafni Sam Andrews, en hann var heima í nýjustu kola- og olíuvinnsluaðferðum evrópsk- um. Olíuverð var hátt, því að um þetta leyti geisaði þrælastríðið milli norður- og suðurríkjanna af meiri fólsku en nokkurn annan tima. Hinn ættjarðarholli norður- ríkjamaður hældi bróður sínum á hvert reipi fyrir kjark og ættjarð- arást, þegar sá hinn sami hélt á vígstöðvarnar — en hann var sextán ára. Rockefeller borgaði sjálfur vigbúnað hans og fleiri © fátækra manna, sem vildu í stríð- ið, og sjálfur keypti hann tvö risa- stór Iandabréf fyrir tuttugu og fimm dollara og hengdi upp hjá sér. Inn á þau merkti hann allar orrustur, umsátur- og nýja mark- aði. Þrátt fyrir upphaflegar efa- semdir Rockefellers var útlitið hið bezta i olíuiðnaðinum. John taldi sig nú orðinn mann til þess að líta oftar en áður inn til gam- allar vinkonu sinnar, sem hann hafði lengi haft augastað á. Hún lét Laura Celestia Spelman. Það spillti raunar ekki fyrirLauru, að faðir hennar, sem var verzlunar- maður, hafði orðið ríkur á fáum árum og þó aldrei fallið niður hjá honum kirkjuferð. Þetta var mað- ur að skapi Rockefellers. Rockefeller flanaði ekki að neinu. Hann hugsaði sig vel og lengi um áður en hann ákvað að biðja Lauru. Laura var fallegasta stúlka, og hafði verið kennslu- kona. Ti 1 eru af henni margar myndir, þar sem hún situr í silki og pelli, með hvítan kraga, hárinu vandlega skipt í miðju, augun blíðleg, en hakan ber vott um viljastyrk og dugnað. Hún var miklu menntaðri en maður henn- ar og hafði farið vfða. Þar á móti kom, að hann var orðinn virtur borgari í Cleveland. Hann hafði tamið sér afar virðulega fram- komu, sem stakk í stúf við fremur meinleysislegan andlitssvip hans; gekk á lafafrakka og gljáburstuð- um lakkskóm, með silkihatt. BRÚÐKAUPSFERÐ AÐ NIAGARAFOSSUM Þau voru gefin saman í hjóna- band hinn 8. september árið 1864. Það er ósatt, sem segir í þjóðsög- unni, að Rockefeller hafi eytt brúðkaupsnóttinni í skrifstofu sinni. Hann bauð starfsfólki sínu í mat og þegar timi var kominn til að halda til kirkju sagði hann að skilnaði við skrifstofustjórann þessi fleygu orð: „Líttu eftir því, Sam, að fólkið vinni, en biddu engan að gera það ókeypis." Svo lögðu þau af stað í brúð- kaupsferðina. Það var þá tízka og er raunar enn í Bandaríkjunum að fara brúðkaupsferðir að Niagarafossunum. Og þangað fóru Laura og John Rockefeller líka. Hjónaband þeirra varð hið gæfuríkasta, ef trúamá ævisagna- riturum. Á kvöldin rakti hinn ungi athafnamaður viðburði dags- ins fyrir eiginkonu sinni. Hún var svo viti borin, að hún lét sér nægja að hlusta. Annars rækti hún áfram sín eigin áhugamál og lét mann sinn ekki segja sér fyrir verkum eins og margir aðrir, sem báru nánast óttablandna lotn- ingu fyrir honum, enda var hún sennilega eina manneskjan, sem hann bar verulega virðingu fyrir. Á sunnudögum fóru þau saman til kirkju og í sunnudagaskólann. Þar komst hinn velmetni ný- lenduvörukaupmaður og olíusali til nýrrar virðingar á skömmum tíma: hann varð forstöðumaður sunnudagaskólans og studdi hann upp frá þvf bæði með ráðum og fé. Rockefeller, sem var aðeins tuttugu og fimm ára, þegar hér var komið, gekk nú næstur sóknarprestinum að áhrifum i hinum áhrifamikla babtistasöfn- uði Clevelandborgar. Og Rockefeller lét víðar til sin taka í þjóðþrifa- og framfaramál- um. Hann var stjórnarmaður í sjó- mannavinafélaginu, en varafor- setar þess voru valdamestu bankastjórar borgarinnar, þeir T. P. Handy og Dan P. Eels.Laura lá heldur ekki áliði sinu og stofnaði K.F.U.K. deíld. Og bæði voru þau virkir félagar „Hreyfingarinnar fyrir hófsömu liferni og algeru bindindi". Á meðan blómstraði olíu- verzlunin. Andrew bætti sífellt hreinsunaraðferðirnar og Rocke- feller lá yfir bókunum, sparaði útgjöld eins og unnt var og brugg- aði ráð til þess að auka gróðann. Þeir nýttu olíuna til hins ítrasta og hirtu og seldu það, sem keppi- nautar þeirra köstuðu. Rockefell- er framleiddi olíutunnur með ódýrum hætti i eigin verkstæði og keypti jafnvel skóga til þess að þurfa ekki að kaupa við af öðrum. Að rúmum tveimur árum liðnum var oliuhreinsunarstöð hans stærst allra í Ohiofylki. En árið 1865 dró blikur á loft. Var ekki annað að sjá um tíma en fyrirtækið mundi leysast upp í frumhluta sína. Þeir félagar Clark og Rockefeller höfðu oft- lega karpað um leiðir og markmið áður, en nú sauð uppúr. Rocke- feller laumaði þá frétt um það i eitt borgarblaðanna, að til stæði að leysa fyrirtækið upp. Clark ímyndaði sér, að félagi sinn ætlaði að draga sig í hlé og bauð honum að taka við hans hluta ásamt fjórum öðrum gegn sínum hluta í nýlenduvöruverzluninni og einhverri fjárupphæð að auki. Rockefeller lagði hins vegar til, að sá hreppti olíuverzlunina, sem hæst byði, Var nú fenginn uppboðshaldari Og uppboðið hófst. Clark var alveg grunlaus. Hann bauð fyrst- ur — 500 dollara. Rockefeller tvö- faldaði. Hann sötraði ávaxtasafa hinn rólegasti og bauð stöðugt, Clark hafði umboð félagasinna til þess að bjóða allt að fjörutíu þús- und. Það reyndist ekki duga. Clark hélt þá sjálfur áfram og æstist leikurinn, þegar komið var upp i fimmtíu þúsund. EnRocke- feller lét engan bilbug á sér finna. Þegar komið var í sjötíu þúsund bað Clark um smáhlé. Er hann kom inn aftur bauð hann sitt síðasta boð — sjötiu og tvö þúsund. Rockefeller svaraði jafn rólega og endranær: „Sjötíu og tvö þúsund og fímm hundruð." Þá gafst Clark upp. Hann rétti Rockefeller höndina og sagði: „Fyrirtækið er þitt, John. Þú þarft ekki að skrifa ávísun. Borg- aðu bara, þegar þú getur.“ Síðar meir sagðist Rockefeller svo frá: „Þetta var örlagaríkasti dagur ævi minnar.Eg fann glöggt mikilleik þessarar stundar, en samt var ég sallarólegur.“ Enda hafði þetta ekki verið honum neitt fjárhættuspil Hann hafði undirbúið sig vel, reiknað nákvæmlega út.möguleika fyrir- tækisins — og komizt að raun um, að sannvirði þesS' var tvöfalt meira en hæsta boðið reyndist. Vissulega var olíuverzlunin áhættusöm. Verðið fylgdi lögmál- um framboðs og eftirspurnar. En undan því lögmáli hugðist Rocke- feller einmitt losna. Hann var orð- inn stórlax í oliuviðskiptum og nú tók hann að knésetja félitla keppinauta sína og kaupa eignir þeirra. Það var ekki furða, þótt Cleve- landbúar skildu sízt, hvar tuttugu og sex ára gamall maður hefði náð í sjötiu og tvö þúsund og fimm hundruð dollara, sem voru þá geysileg auðæfi. Að sjálfsögðu leitaði Rockefeller til bankanna. Og hann átti marga vini, sem reyndust honum hjálplegir, trú- bræður og bindindisfélaga. Og svona trúræknum, traustum og happadrjúgum ungum manni hlaut að vera óhætt að treysta. Þau borguðu sig sem sé kvöldin, sem Rockefeller eyddi með veslings skipbrotsmönnunum. En til þess að færa verulega út kvíarnar vantaði Rockefeller ann- an viðskiptafélaga. Og hann

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.