Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.1974, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.1974, Blaðsíða 5
enginn mark á mér. — Svo er ég nú lítiö fyrir að gera langtíma- áætlanir. Ég einbeiti mér aö því, sem ég er aö gera, og læt þaö duga. — Eina langtímaáætlunin, sem ég hef gert, var, þegar ég kvæntíst konunni minni, — segir hann, — og lítur kankvíslega til hennar, — en hún slær hann út af laginu meö þvf að segja, að þessi litla reynsla af langtimaáætlun- um hljóti að hafa verið slæm, fyrst hann hafi ekki lagt út i þær fleiri. Blaðamaöur spyr, hvaða augum hún líti á nám bóndans, og hún kveðst mjög ánægð með, að hann hafi fengið tækifæri til að sinna þessu áhugamáli. Sjálf hefur hún engan áhuga á námi. Hún starfar i Kjötbúðinni Borg og unir hag sínum vel. Dóttir þeirra hjóna er i þann veginn að fara að heiman, þannig aö hjónin verða ein eftir á heimilinu. Umræðurnar hneigjast aftur að skólamálum, og Jóhannes kveðst álita, að þjóðfélagið leggi alltof mikið upp úr langskólanámi. — Of miklum fjármunum er varið til langskólamenntunar, — segir hann, — og það er þjóðhagslega óhagkvæmt. Að sjálfsögðu ber að aðstoða námsmenn, sem þurfa þess með, en þá aðstoð á skilyrðis- laust að miða við námsárangur. Ég er algerlega andvígur því að ausa stórfé i að mennta hina og þessa slæpingja og veita þeim rif- leg námslán og svo gera þeir ekki annað en hanga í skólum, enguin til gagns, og án þess að ljúka tilskildum prófum. Þetta fólk á bara að fara að vinna. Við höfum alltaf þörf fyrir fólk, sem getur unnið. En það er eins og allir vilji koma sér undan likamlegri áreynslu. Fólk vill komast í þægi- lega stóla og sitja þar, kaupa sér tíma i badminton til að halda sér í formi, en nennir svo ekki að ganga út í næstu búð. Heldurðu, að þaö sé eitthvað um það, að íslendingar hafi skömm á likamlegri vinnu? Ekki hef ég orðið var við það beinlinis, en fólk er bara orðið svo latt og værukært. Það vill ekkert hafa fyrir hlutunum. En nú eru sumir sem segja, að við íslendingar vinnum alltof mikið. — Það hefur sjálfsagt átt við einhvern tímann, en ekki núna, þegar vinnuvikan er komin niður í 40 stundir. Margir leggja að vísu á sig aukavinnu, en hún er nauð- synleg, ef fólk á að geta veitt sér eitt og annað. Enginn hefur illt af því að vinna, hitt er miklu óhollara að vinna ekki. Tökum til dæmis vinnufæra menn um sjötugt, sem sagt er upp störfum vegna aldurs. Þeir veslast bara upp og lífið verður tilgangslaust. — Finnst þér ekki of litið gert af því að hvetja fólk til að fara út i undirstöðuatvinnugreinarnar? — Jú, það má segja, að kerfið, — ef hægt er að nota þetta út- jaskaða orð — hafi ýtt undir frainleiðslu á slæpingjum. Menn eru hvattir til náms og starfa, sem þeir hafa enga hæfileika til að sinna, en miklu minna hugsað um nauðsynleg störf i þjóðfélaginu. Eg er viss um, að eftir 100 ár fæst enginn til að sinna erfiðisvinnu. Þá verður enginn verkamaður til, en hver á þá að vinna störfin? Og þrátt fyrir þá ánægju, sem Jóhannes hefur af líkamlegu erfiði, virðist hann ekki siður fail- inn til að stunda andleg störf. Þó að hann segði þaó ekki sjálfur, höfðum við spurnir af, að hann hefði hlotið hæstu einkunn í sinni grein í vetur, eða 9.38, þó að hann hespaði af þremur bekkjum á einum vetri. Ef til vill er farið rangt að með þvi að leggja aðal- áherzluna á menntun æskunnar, eða hvað? IONESCO SAGA FYRIR BÖRN YNGRIEN ÞRIGGJA Steingnmur Gautur Kristjánsson þýddi Jósefína er orðin stór stúlka. Hún er þrjátíu og þriggja mánaSa. Morgun einn trítlar hún að herbergisdyrum foreldra sinna.enþað gerir hún á hverjum morgni. Hún reynir að ýta upp hurðinni, rétt eins og lítill hundur. Hún missir þolinmæðina og fer að kalla. Við það vakna foreldrarnir, en þau láta eins og þau heyri ekki. í þetta skipti eru pabbi og mamma þreytt. Kvöldið áður höfðu þau farið í leikhús, síðan á veitingahús og eftir það í brúðuleikhús, og nú eru þau þreytt. Það er ekki gott fyrir foreldrana. Vinnukonan missir líka þolinmæðina. Hún opnar dyrnar að svefnherbergi foreldranna og segir: Góðan dag. Hér er Morgunblaðið. Hér eru póstkortin, sem þið hafið fengið. Hér er morgun- kaffið ykkar, ávaxtasafinn, snúðarnir, ristaða brauðið, glóaldinmaukið, spæleggið, svinið og telpukornið ykkar. Foreldrunum var óglatt af því að ég fleymdi að segja, að eftir brúðuleikhúsið fóru þau aftur í veitingahúsið. Foreldrarnir vilja ekki drekka kaffið sitt, þau vilja ekki ristaða brauðið, þau vilja ekki snúðana, þau vilja ekki svínið, þau vilja ekki eggið, þau vilja ekki glóaldinmauk- ið, þau vilja ekki ávaxta- safann og þau vilja ekki kirsuberjamaukið (meira að segja var það ekki kirsuberja- mauk, heldur glóaldinmauk). Gefið Jósefínu það allt saman, segir pabbi við vinnu- konuna og komið svo með hana aftur þegar hún er búin. Vinnukonan tekur litlu stúlkuna i fangið. Jósefína gólar, en af því að hún er matargat lætur hún huggast yfir krásunum í eldhúsinu: Glóaldinmaukinu hennar mömmu, jarðarberjamaukinu hans pabba og snúðunum þeirra beggja. Hún drekkur ávaxtasafann. Dæmalaust átvagl, segir vinnukonan. Og til að litla stúlkan verði ekki veik, drekkur vinnukonan kaffi foreldranna og borðar eggið, svínið og grjónagraut- inn frá kvöldinu áður. Á með- an hafa pabbi og mamma sofnað aftur. Þau hrjóta, en ekki lengi. Vinnukonan fer með Jósefínu inn í svefnher- bergi foreldranna. — Pabbi,. . . segir, Jakobína (það heitir vinnu- konan) Jakobína hefur étið svínið þitt. — Það er allt í lagi, segir pabbi. Pabbi, segir Jósefína, segðu mér sögu. Og meðan mamma sefur af því að hún er of þreytt af að hafa skemmt sér of mikið, segir pabbi Jósefínu sögu. — Einu sinni var lítil stúlka, sem hét Jakobína. — Eins og Jakobina? spyr Jósefína. — Já, segir pabbi, en það varekki Jakobína. Jakobína var lítil stúlka. Mamma hennar hét Jakobína. Pabbi Jakobínu hét Jakobína. Jakobína átti tvær systur sem báðar hétu Jakobina og tvo frændur, sem hétu Jakobína og tvær frænkur, sem hétu Jakobína og föður- systur og föðurbróður, sem hétu Jakobína. Föðurbróðir- inn og föðursystirin, sem hétu Jakobína, áttu vini sem hétu bæði Jakobína, og þau áttu litla dóttur, sem hét Jakobína, og litinn dreng Framhald á bls. 14. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.