Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.1974, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.1974, Blaðsíða 11
Verðhrunið hélt áfram að tröll- ríða Þjóðverjum og þeir sáu of- sjonum yfir þeim mikla mun, sem var á kaupgetu útlendinga í land- inu og landsmanna sjálfra. Ný tilskipun kom: útlendingar yrðu að greiða skólagjöld i gullmörk- um. Það gerbreytti aðstöðu Finns og annarra námsmanna erlendra. Nokkur tími leið frá því Finnur sá sýningu expressjónistanna í Berlin og þar til hann tók fyrstu skrefin sjálfur. Ástæðan var ein- faldlega sú, að hann hafði ekki efni á að reyna það nærri strax; Það var ekki fyrr en hann var kominn i ,,Veginn“, listaskölann í Dresden, að hann lét til skarar skríða. Og hann minnist þess nú, að það gekk undir eins vel að tileinka sér þetta sérstaka við- horf. Finnur málaði þá einkum mannamyndir svo og „fantasíur." En fyrstu abstraktmyndina mál- aði hann heima hjá sér árið 1921. Hann á þá mynd enn. Og þvi hefur verið haldið fram, að aðrir Norðurlandamálarar hafi ekki orðið á undan Finni i því. í stofunni hjá Finni Jónssyni á Kvisthaganum má sjá nokkur verk hans frá árunum 1921 — 1922. Þau eru að sjálfsögu öll unnin i Dresden og sem betur fer hefur Finni haldizt á þessum merku tímamótaverkum. Ég segi sem betur fer vegna þess, að þau eiga samleið og það fer vel á þvi að þau haldi hópinn. Elzt er portret af trúði og tvö önnur portret í sterkum litum; útlinur markaðar sverum strik- um, grænt og rautt og jafnvel blátt i andlitunum. Expressjón- istarnir voru ekki með neinn hé- gómaskap í andlitsmyndagerð; það skyldi vera málverk umfram allt annað — og sterk tjáning. 1 stofunni hjá Finni er líka mynd af sigaunahjónum, sem urðu á vegi málarans, og litil mynd af mönnum við kaffiborð, sem sver sig mjög í ætt við hin fyrri verk expressjónismans. A þessum árum þótti ekkert athuga- vert við það, að sami málarinn málaði myndir í þessum dúr; myndir af mannlífinu — og hins vegar hreinar abstraktmyndir. Kandinsky gerði það til dæmis. Finnur gerði það líka og heima hjá honum getur að líta þrjár abstraktmyndir frá árunum 1923—’25. Það eru „Örlagatening- urinn“, talsvert kunn mynd nú orðið, og „Oður til mánans”, sem eiginlega er um leið spá í þá veru, að menn mundu ganga einskonar tröppu þangað og sú þriðja er „Baráttan um gullið". Allar þessar myndir eru fremur litlar og var það einkum af sparn- aðarástæðum. Námsmenn horfðu i að leggja í stórar myndir. En hins ber líka að gæta, að þá var ekki i tizku að mála stórar mynd- ir, enda voru málarar oft mjög á faraldsfæti. En þeir fóru að mála stærri myndir, þegar þeir fengu fasta vinnustofu. Finnur kynntist persónulega nokkrum frömuðum expressjón- ismans. Hann á mjög ánægjulegar ntinningar um Osear Kokoschka, sem var kennari hans um tíma; sérstakur indælismaður, segir Finnur. Kandinsky var „aristokrat”, hann kom vel fyrir og var með myndarlegustu mönn- um, segir Finnur. Um 1925 var Kandinsky orðinn þekktur rnaöur i Þýzkalandi og raunar viðar í þeim hópum, sem fylgdust með myndlist. Á þessum fyrstu áratug- um aldarinnar streymdu rúss- neskir listamenn til Vestur- Evrópu og þeir voru margir stór- snjallir. En Kandinsky fékk ekki lengi frið í Þýzkalandi. Eins og fleiri varð hann að flýja undan ofríki nasista og settist þá að i París. Hitler og fylgismenn hans litu á expressjónismann, sem úr- kynjunarlist; þeir skildu hann ekki sjálfir, enda hafa einræðis- herrar alltaf haft einmuna íhalds- samar skoðanir á myndlist. Eins og fram kom í grein Braga Ás- geirssonar um expressjónistana í Lesbók 10. febrúar sl. efndi Göbbels áróðursráðherra til sér- stakrar sýningar á úrkynjunar- Iist, þar sem verk expressjónist- anna voru höfð til háðungar. Aður en lengra er haldið, finnst mér rétt að geta um inngöngu Finns í hin stórmerku brautryðj- endasamtök Der Sturm, (Storm- inn) vegna þess að þar kom Kandinsky við sögu. Enda voru það að mestu sömu þýzku og er- lendu listamennirnir, sem áður sýndu hjá „Brúnni“ í Dresden og „Bláa riddaranum” í Miinchen. Stormurinn myndaðist kringum forlag og sýningarsal í Berlin en gagnrýnandinn og ritstjórinn Herwarth Walden var aðal drif- fjöðrin og „direktör". Upphafió að inngöngu Finns má rekja til listaskóla Vegarins, þar sem hann hafði fengið ókeypis skólavist. Það þótti mjög eftirsóknarvert. Kokoschka tók eftir þvi, hvað Finnur var harður í frammúr- stefnunni og ráðlagði honum að komast að hjá Der Sturm. Og sjálfsagt hefur hann lagt inn gott orð með myndunum, sem Finnur sendi þangað. Kandinsky skoðaði myndir Finns lengi og gaumgæfilega og leizt vel á þær. Hann lagði áherzlu á nauðsyn þess, að málarinn léit- aði í sjálfum sér að myndefni, eigin viðhorfum og leiðum til þroska. Sjálfur málaði Kandinsky stundum alveg abstrakt, en alltaf voru rússnesku áhrifin greinileg. Finnur tók þátt í samsýningu hjá Der Sturm í maimánuði 1925. í sýningarskrá má sjá, að hann hefur átt 8 myndir á sýningunni, en auk hans sýndu þar kunnir myndlistarmenn eins og Duchamps — Villon, Kurt Schwitters og Kandinsky. Og sið- ar sýndi Finnur oftar með Der Sturm; þær sýningar fóru borg úr borg, og eitthvað af því gerðu nasistar upptækt sem óæskilega list. „Ég þótti dálítið framandleg- ur fugl þarna,“ segir Finnur — „Eg var sprottinn úr öðrum jarð- vegi en þeir og þessvegna málaði ég öðruvisi. En þarna var ekkert nart og nagg, maður var tekinn sem jafningi og mætti alúð og sanngirni." I gróanda myndlistarinnar á fyrri huta aldarinnar suður í Þýzkalandi var mikið um félög og samsteypur, sem nú heyra sög- unni til. „Brúin“ er frá 1904, Nýja myndlistarsambandið var stofnað i Miinchen 1909 og það félag, sem kannski er kunnast, Blái riddar- inn, var myndaö uppúr rnynd- listarsambandinu. Að Bláa ridd- aranum stóðu Kandinsky, August Macke, Paul Klee, Jawlensky og þrir aðrir. Þá var Finnur Jónsson ennþá heima á Strýtu i Hamars- firði og í þann veginn að fara i gullsmiðamám. En suður í Múnchen og jafnvel i smábæ við Alpafjöllin var expressjónsiminn að gerjast. En nú var ýmsum örlagaten- ingum kastað. Keisarinn heimtaði stríð til að hefna fyrir morð aust- ur i Serbíu og ungar stúlkur komu með blóm handa hermönn- unum, fallbyssufóðrinu, sem sent var með járnbrautarlestum á vígvellina. Stríð var rómantfskt, ekki slður en Olympíuleikar. En rómantikin fór af, þegar fréttir af Framhald ð bls. 14. Gísli Agúst Gunnlaugsson HAUST Þann dag hafði haustiB farið höndum um trén og gréhvit héla huldi fölnuð laufin. Ég leitaSi aS freSnum lyngmó en fann frostsprungiS asfalt og ókennileg böm að undarlogum leikjum. HVERT? Langt hef ég gengið á braut heyri vart meir fornar barnagælur og heilræðavlsur. Greini nú einungis I sjónhending traust mosahrauniS og seiSmðtt bryggjultfsins. Hvert hef ég borizt? Hvert? Er laufgaður hlátur vorstulkunnar veldur mér hugarangri þó hrylla mig nú undarlega gréar borgir og I huga mér risti ég lærdóm gamalla rúna. Sveinbjörn Beinteinsson KVEÐSKAPUR Var örkveSinn og einræSur dags bragur af dýru efni var vandgenginn vegur aS máli aS langsóttum IjóSakynnum erfislóS orSum rakin og seindreginn seimur aS hætti. KVÆÐI Alkyrra hálfbjarta óttustund orS og myndsýnir birtust komnir á nýjan fagnaSsfund fornhelgir guSir virtust. Upptök draums þessa einn ég veit ekki má leyndum svifta hér vill goSheima göf ug sveit gleymskutjaldinu lyfta. Skildist mér þá hve skáldiS kvaS skaphljóma dýrra laga lyftir hug yfir lágan staS IjóSmál úrstefi Braga. Heimdallur kallará hugarfund HjálpiS mér Freyr og NjörSur áss hinn almáttki. alla stund ókviSinn MiSgarSsvörSur. Sklni bjartara Ijós um láS llfgrös á jörSu dafni. Styrkri hendi sé stöfum skráS stefiS I ÓSins nafni. r Art Buchwald. Frakkar hafa nýlega gert samn- ing viS Saudi-Arablu um kaup á arabtskri olíu gegn greiSslu I frönskum Mirage-þotum og öSr- um vopnum af nýjustu gerS. Bret- ar eru um þaS bil aS gera hliS- stæSa samninga viS önnur Araba- riki, sem framleiSa oliu, og þar meS talin hin örsmáu furstadæmi viS persneska flóann. Sannleikurinn er nefnilega sá, aS sérhvert iSnaSarriki i dag er reiSubúiS aS láta Aröbum i té öll þau vopn, sem þeir óska sér, til þess aS tryggja sér nægilegt magn af þessum vökva. Stóra spurningin er þess vegna: ViS hve miklu meira magni af vopnum af allra nýjustu gerS geta Arabarikin tekið? Flest þessara rikja eru aS mestu leyti eySimörk, þar sem búa Bedúinar. sem hafa enn enga hugmynd um, hvernig þeir eigi aS nota þessi auSæfi, sem þeir eru allt í einu aS drukkna i. Eftir eitt eSa tvö ár er ekki ósennilegt, aS ástandiS verSi þannig: BedúinabúSir 500 kilómetra fyrir sunnan saudi-arabisku höfuSborgina Rijadh. HöfSinginn é staSnum kemur heim i splunku- nýjum brezkum, brynvörSum bil og hrópar: „Hæ, Ahmed, letinginn þinn. VaknaSu og komdu út úr tjaldinu. É0 er meS gjöf til þin frá kóngin- uml“ Furstadæmi fyrir úlfalda Ahmed stekkur út úr tjaldinu: „Hef ég fengiS úlfalda?" „Miklu betra, bróSir kær. SjáSu, hvaS ég er meS fyrir aftan bryndrekann." HöfSinginn sviptir yfirbreiðsl- unni af hlutnum, sem hann er meS I eftirdragi. „HvaS er þetta?" spyr Ahmed og glápir undrandi á hina furSu- legu vél. „Þetta er allra nýjasta gerS af frönskum herflugvélum, Phan- tom-Mirage. Hún getur fariS yfir 3000 km á klst. og boriS sex hljóSfráar eldflaugar. Hvemig lizt þér á?" „Ég vildi heldur hafa fengiO úlfalda," segir Ahmed. „Hvemig dirfist þú aS segja slikt um gjöf frá hans hátign kon- unginum?" „FyrirgefSu," segir Ahemd óttasleginn, „en ég er þegar búinn aS fá fjórar brezkar orustu- þotur, sex ameriskar Skyhawks og sjö brynvarSar þyrlur. Þetta er allt hérna á bak viS tjaldiS. ÞaS sem mig vanhagar mest um núna, er eitthvaS, sem ég get fariS á um eySimörkina og sem ekki þarf of mikiS vatn." „Ég skal gleyma þessum orSum þtnum, sem eru landráS. Hans hátign hefur heitiS þvi, aS fyrir áriS 1977 skuli sérhver þegn hans eiga tylft orustuflugvéla. Hvar á ég aS setja Miragina?" „Setta hana viS hliSina á brezka risaskriSdrekanum, sem þú komst meS I fyrri viku. Ertu viss um, aS ég eigi aS fá þrjátiu skriSdreka? ViS erum bamlaus, eins og þú veizt." HöfSinginn beitir 7. skilningar vitinu og segir: „Jú, þaS er alveg rétt. Þú átt aS fá þrjátiu skriSdreka og 2000 jarSsprengjur." „Ertu viss um, aS Hans hátign hafi ekki minnzt neitt á þaS, aS ég ætti aS fá úlfalda? ÞaS er enginn töggur lengur I þessum eina, sem ég á eftir, en ef ég fengi einn nýjan, gæti ég selt döSlur frá Wadi-vininni og fariS á markaSinn I Medina og. .." „Þegi þú, vanþakkláta mann- fýla. Þú værir vts til aS segja næst, aS þú kærSir þig ekki um kjamorkukafbát. . .?" „Einmitt. Fransmennirnir hafa fallizt á aS selja okkur 1000 kjamorkukafbáta fyrir 1000 föt af oliu. Og strax og viS erum búnir aS fá þá, færB þú einn." Ahmed stundi þungan. „Þá þaS. Allt I lagi. En ef ég get ekki fengiS úlfalda. þá gefiS mér þó aS minnsta kosti múlasna. Ég gæti létiS hann duga, þangaS til ég hef efni á þvi aS fá mér úifalda." HöfSinginn klifrar glottandi upp i bryndrekann. „HvaSa iSnaSarriki i veröldinni heldur þú aS vilji gefa okkur múlasnal?". Sveinn Ásgeirsson þýddi. J

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.