Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.1974, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.1974, Blaðsíða 12
UR SÖGU SKÁKLISTARINNAR Eftir Jón Þ. Þór hefur orðio að sam- kop, . cgi, að undirritaður taki i.3 sér að skrifa stutta skákþætti ( Lesbók Mbl., sem bera munu yfirskrift- ina „Af spjöldum skáksög- unnar". Ekki mega les- endur vænta þess, að hér verði skáksagan rakin ná- kvæmlega i timaröð og allra afreksmanna hennar getið. Þvert á móti. í þátt- unum mun ég taka fyrir einstök mót, atburði eða meistara, allt valið af handahófi. Hverjum þætti mun svo fylgja ein skák frá því móti, eða eftir þann meistara, sem um er rætt, og munu þær alla jafna verða birtar án athuga- semda. í fyrsta þættinum skul- um við ræða stuttlega um mikið skákmót, sem háð var í Semering árið 1926. Til mótsins var boðið ýmsum sterkustu skák- meisturum veraldar, m.a. Aljekín, Vidmar, Nimzo- vitsch, Tartakower, Rubin- stein, Tarrasch, Réti og Griinfeld. Fiestir munu hafa spáð því að sigurinn félli einhverjum þessara meistara i skaut og þá helzt Aljekín, sem árið eftir sigraði Capablanca í ein- vígi um heimsmeistaratit- ilinn. Svo fór þó ekki. Sigurvegari varð stór- meista'-inn Rudolf Spiel- mann, einhver skemmti- legasti sóknarskákmaður allra tíma. Spir' ia in hlaut 13 v. af 17, i:uj iTi aðeins fyrir Rubinstein. í 2. sæti varð Aljekín með 12Vi v. og Vidmar þriðji með 12. í dag munu til- tölulega fáir kannast við nafn Spielmanns, en hann var sem fyrr segir einn skæðasti sók’iarskák- maður sinnar samtfðar. Spielmann kunni hins veg- ar ekki sérlega vel við sig í þunglamalegri stöðubar- áttu eða endatöflum og því varð óþolinmæðin honum oft að falli. Allir óttuðust hann hins vegar og þess má geta til gamans, að hann var einn þeirra örfáu, sem tókst að sigra Capa- blanca tvisvar. Sigurinn f Semering var vafalaust bezti árangur Spielmanns og nú skulum við Ifta á eina af skákunum, sem hann tefldi í mótinu. Hvftt: R. Spielmann Svart Janovsky Sikileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — e6, 6. Be3 — Bb4, 7. Bd3 — d5, 8. Rxc6 — bxc6, 9. e5 — Rd7, 10. Dg4 — Bf8, 11. f4 — Hab8, 12. Rd1 — Ba6, 13. 0—0 — Bxd3, 14. cxd3 — c5, 15. b3 — g6, 16. Rb2 — Da5, 17. De2 — Be7, 18. Df2 — 0—0, 19. Ra4 — Hbc8, 20. Hac1 — Hc6, 21. Hc2 — Hfc8, 22. Hfc1 — Db5! 23. Dd2 — Rb6, 24. Rxb6 — axb6, 25. h3 — Da6, 26. a4 — Db7, 27. Kh2 — Dd7, 28. De2 — d4?, 29. Bf2 — Dd5, 30. Hc4 — f6, 31. Bh4 — Dd8, 32. b4 — fxe5, 33. Bxe7 — Dxe7, 34. Dxe5 Hd6, 35. bxc5 Hd5, 36. cxb6H — Hxc4, 37. b7! — Hxel, 38. b8D+ — Hd8, 39. Dbb6 — Kf7, 40. a5 — Hcc8, 41. f5 — gxf5, 42. a6 — Hd5, 43. Df4 Hd7, 44. Db3 — Ke8?, 45. De5 Hd5, 46. Dh8+ — Kd7, 47. Db7 + — Hc7, 48. Dhc8+ — Kd6, 49. Db6+ — gefið. Birgir Bjarnason ATHUGA- SEMD VEGM UMMÆLA Vegna greina F Lesbók Morgun- blaSsins 2. og 9. júni sl., þar sem fjallaS var um dulræn efni og trúar- reynslu og vikið var að félögum Guð- spekifélagsins, óska ég að eftirfar- andi komi fram. Strax verður að taka það fram, að þessar athugasemdir eru eingöngu mínar, en ekki tilorðnar fyrir samráð við aðra eða með annarra vitneskju. Þau ummæli, sem aðallega eru höfð i huga, komu fram I viðtali við Þorstein Guðjónsson og eru, að „guðspekingar haldi þvi fram . . .", og að .........sumir (þeirra) trúa þvi. . .". Ekki sýnist vera mikilvægt að gera neinar athugasemdir sé ekki meira en þetta athugavert. En þetta er mikilvægt, þar sem hér er komið inn á frelsi félagsins. 1) Tökum fyrst fyrir orðið „guð- spekingur". Ég geri ekki ráð fyrir, að nokkurt félag manna vilji, að það eða félagar þess séu kallaðir öðrum nöfnum en þeim eru geðfelld. Ég geri ekki ráð fyrir, að Nýalssinnar vilji láta kalla sig Nýalstrúarmenn, sam- bandstrúarmenn, lifssambandsmenn eða lifspekinga, eða öðrum nöfnum, sem þeir nota ekki sjálfir. Sama gildir sjálfsagt um aðra hópa manna. „Guðspekingar" eru einfaldlega fé- lagar Guðspekifélagsins (óheppilegt orð), venjulegt fólk, sem er i þessu tiltekna félagi. Það er ekki meiri spekingar en fólk almennt. 2) Guðspekifélagið erekki trúfélag og þess vegna halda félagar þess ekki neinu fram einum rómi eða trúa á eitthvað sameiginlega. Þetta verð- ur aldrei nógu oft endurtekið. Vera má að Þorsteini sé þetta Ijóst og hann hafi átt við, að sumir félagar héldu einhverju fram eða tryðu, en vegna lesenda, sem ekki til þekkja, eru þessar athugasemdir fram born- ar. Annars er ekki undarlegt, að þessi misskilningur — ef þetta er misskilningur hjá Þorsteini — komi fram. Félögum Guðspekifélagsins hefur reynzt erfitt að fóta sig á þessum frjálsa grunni. Hvernig get ég þá fullyrt nokkuð um þetta umfram aðra félaga? Ég get það ekki, þeir eru í sinum fulla rétti til að halda fram hverju, sem þeir vilja, hvort sem það snertir fé- lagið eða viðfangsefni félaga þess. En ég get byggt á þeím orðum, sem félagið starfar eftir — stefnuskrá þess. f stefnuskrá Guðspekifélagsins eða lögum er hvergi á minnzt, að félagar skuli trúa einhverju frekar er brýnt fyrir þeim að forðast þá fall- gryfju. Stefnuskráin er hið eina, sem félagarnir byggja á. 3) Fyrst þetta blessað Guðspekifé- lag er ekki trúfélag, hvað er það þá? Það er, eða leitast við að vera, alþjóðlegt bræðralagsfélag „leit- andi" manna. Að öðru leyti visast til þeirra orða, sem eru prentuð innan á kápusiðu Ganglera. SUNNUDAGSMATURINN Klúbbur matreiöslu- meistara sér um þöttinn. I þetta sinn: Haukur Hjaltason Vínbergssniglar I hvít- laukssmjöri fyrir 6 manns. Fást væntanlega niður- soðnir seinni hluta sum- ars. 3 tylftir af vínbergssnigl- um, 3 hvítlauksgeirar, 300 g smjör, 2 msk. söxuð steinselja, 1 lítill laukur, 1 tsk. salt, pipar á hnífsoddi, sama magn af muskati. Hellið soðinu af sniglunum og setjið þá I meðfylgjandi skeljar. Hitið sniglana I ofni. Sósan er löguð á eftirfarandi hátt: Smjörið er brætt F skaftpotti, laukur sett- ur út i ásamt hvitlauk og stein- selju. Salti, pipar og muskati bætt i. Sniglarnir eru settir á diska og sósunni hellt yfir. Athug- ið að soðið er ekki notað. Framreitt með ristuðu brauði. Aðalréttur er 3svar X stærri Blandaður kjötrétt- ur á teini með hrís- grjónum fyrir 5 manns. 5X100 g nautafille, 5x 100 g grísafille, 5 stk. lambakótilettur, 5 stk. kokkteilpylsur, 5 "tk. baconskífur, 5 s>ik. lambanýru. Raðið á grilltein (Brochette): Nautafille, kokkteilpylsu, lamba- kótilettu. baconskifu, lambanýra og siðast grisafille. Grillsteikt á kolagrilli. Kryddað með salti og pipar. Framreitt með hrisgrjón- um, grillsteiktum tómötum og sitrónuskifu, sem á er lögð sneið af kryddsmjöri. Þennan rétt má einnig framreiða með frönskum kartöflum og fersku salati. Blandaðir skelfisk- réttir með karrýsósu fyrir 5 manns. 200 g humar, 200 g rækjur, 200 g hörpuskelfiskur, 200 g Hvalfjarðar-muslingur (tínið sjálf!) eða niðursoðinn danskur, 200 g nýir sveppir, 1 dl rjómi, 5 kúlur sultaður engifer, ananas í bitum, salt, karrý, sítrónusafi. Suðunni er hleypt upp á sjávar- réttunum, hverjum fyrir sig. Sveppir látnir krauma i smjöri, kryddað vel með karrý og sitrónu- safa. Humar- og rækjusoði bætt út i, löguð sósa og soðin stutta stund. Sósan er bragðbætt með karrý, salti og sitrónusafa; skel- fiskurinn settur út í og bætt með rjóma. Framreitt i skál með hrisgrjón- um (Pilaw). Engifersneiðar og steiktir ananasbitar settir yfir. Franskt brauð(Fluté) borið með. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.