Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.1974, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.1974, Blaðsíða 9
Eftir Gísla Sigurðsson FINNUR Jónsson hefur tvo um áttrætt. En hann geislar af krafti og hreysti og stendur langtfmum saman á degi hverjum við mál- verkið. Og þar er ekki heldur neinn bilbug á honum að finna. Flestir munu sammála um, að slíkt hlutskiþti sé öfundsvert og trúlega í samræmi við það, sem móðir náttúra ætlast til. En þvf miður verður oft önnur raunin á. Finnur getur horft aftur um langan veg. Hann var farinn að hugsa alvarlega um myndlist á þeim árum f byrjun aldarinnar, er menn eins og Picasso, Braque og Kandinsky sveigðu út af hinni hefðbundnu leið og formuðu þær stefnur, sem sfðan hafa haft gíf- urleg áhrif, ekki bara á myndlist- ina, heldur og ásýnd þeirra hluta, sem við höfum f kringum okkur, og umhverfið sjálft. Á undan öðr- um fslcnzkum myndlistarmönn- um — jafnvel Norðurlandamálur- um — komst Finnur f snertingu við algera nýsköpun f myndlist, sem á námsárum hans var að lifna með fámennum hópum úti f Evrópu. Þessi ungi tslendingur frá Strýtu f Hamarsfirði varð næstum því ölvaður af hrifn- ingu; hann fann, að þar var eitt- hvað, sem átti sér mótsvörun f honum sjálfum. Enda þótt íslendingar væru ekki móttækilegir fyrir þær nýj- ungar í upphafi annars áratugar- ins, er Finnur engu að sfður einn af brautryðjendunum í íslenzkri myndlist. Hann málar og sýnir óhlutlægar myndir árið 1925. Þá voru enn tveir áratugir fram til þess tíma, er abstraktstefnan náði fótfestu hér. Samt hafa brautryðj- endastörf Finns verið meira met- in annars staðar. Honum var til dæmis einum tslendinga boðið að eiga verk á yfirlitssýningunni i Strassborg fyrir nálega fjórum ár- um, sem bar heitið „Evrópa 1925“. Þátttaka Finns í þessari sýn- ingu var bæði vel við eigandi og eðlileg. Finnur upplifði sjálfur gróanda hinnar ungu listar um 1920. Nú heyrir þetta skeið sög- unni til; forgöngumennirnir komnir undir græna torfu, en verk þeirra á söfnum gersemi sem vart verður metin til fjár. Finnur þekkti persónulega suma þessara manna. Og þessvegna fannst mér forvitnilegt að heyra, hvað hann segir núna löngu síðar um kynni sín af þeim og listbyltingunni suð- ur í Evrópu. Þá er þar til máls að taka, að Finnur hóf nám í gullsmíði hér heima, jafnframt því sem hann var ákveðinn í að leggja fyrir sig málaralist. Hversvegna; gat það talizt leið að markinu? Jú, segir Finnur, gullsmíðin átti að vera einskonar baktrygging. Hann langaði ekki beinlínis til að verða gullsmiður, en hann hafði sama hagleik í fingrunum og Rfkarður bróðir hans varð frægur fyrir. Þess vegna varð þetta nám honum auðvelt. En auk þess var talið gott að kunna einhverja listræna iðn til að grípa til, ef í harðbakka slægi. Svo gallharður var Finnur í ætl- an sinni, að hann hélt utan til Kaupmannahafnar sama dag og hann tók á móti sveinsbréfinu. En hvers vegna Kaupmannahöfn? Vegna þess að hin hefðbundna leið tslendinga lá þangað: annað virðist naumast hafa komið til greina. Svo farið sé mjög fljótt fyrir sögu, nam Finnur fyrst í kvöldskóla, sem kenndur var við Teknisk Selskap. Það var stór A8 ofan: Örlagateningurinn. Olfulitir á léreft. Myndin er máluS 1925 I Dresden. A8 neSan: Baráttan vi8 gulliS. Olfa á léreft, máluS 1923 f Dresden. NeSst: Ó8ur til mánans. MáluS f Dresden og Reykjavfk 1925. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.