Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1974, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1974, Blaðsíða 13
var ákveðinn í að reyna að glæða teikningarnar einhverju lífi, en vissi að hann þurfti að leggja mikið á sig til að það mætti takast. Minnugur þeirra orða, sem Brandt hafði sagt við hann, skoraði hann frostið og kuldabólg- una á hólm. Einhverju sinni var hann að teikna fyrirsætu í skólan- um og gekk þá Brandt til hans, benti á stúlkuna og sagði, „Finnst yður þetta fallegt?" Gunnlaugur játti því, honum þótti stúlkan fög- ur. „Mjög falleg meira að segja.“ bætti hann við. „Hvers vegna teiknið þér hana þá eins og hún væri eitthvert formlaust kjöt- stykki? Þér verðið að reyna bet- ur.“ Þegar þessi fyrsti vetur Gunn- laugs i Kaupmannahöfn var lið- inn, var hann peningalaus og ekki annað til úrræða en skreppa heim og og vinna fyrir sér, þvi að enga atvinnu var að fá í Höfn. Hann tók það ráð að f ara með Botniu, og þóttist góður að komast á annað farrými. Þangað kom eitt sinn drukkinn sjómaður og fór að segja farþegunum, að hann hefði lent í svo óskaplegu ofviðri á sjó, aó hann hefði „þeytzt til helvítis, eins og eldspýtnarusl, þegar ald- an reis.“ Gunnlaugur hafði gaman af krassandi likingum, þegar þær spruttu úr réttu um- hverfi. Eftir heimkomuna málaði Gunnlaugur hús í Reykjavík, en fór siðan til fósturforeldra sinna á Seyðisfirði og vann þar í tæp tvö ár við eyrarvinnu ýmis konar. Þegar hann hafði aflaó sér farar- eyris, fór hann aftur til Hafnar haustið 1925. Þá komst hann inn á Akademínuna á Charlottenborg til Einars Nielsens prófessors, sem var kennari nokkurra ís- lenzkra myndlistarmanna. Sam- tímis Gunnlaugi hjá honum var Sveinn Þórarinsson. Einar Nielsen gat verið hastur við nemendur sina. Eins og siðar er minnzt á, sagði hann einhverju sinni við Gunnlaug Scheving, sem var önnum kafinn að mála fyrir- mynd, að þegar hann sæi slíkt snilldarverk, tæki hann ofan. En annars væri það nú venja í Dan- mörku að selja svona myndir i búðum hjá koxi og kolum og þurrkuðum saltfiski og spæisild. „Og munið þér þaó, ég tek hattinn ofan.“ I annað skipti sagði hann við Gunnlaug: „Þær eru ekki svo afleitar teikningarnar yðar. Nei, hreint ekki sem verstar." í sama mund gekk einn nemandinn, ung stúlka, framhjá þeim. Kennarinxi kallaði á eftir henni og sagði: „Heyrið þér fröken, hérna eru dálitið laglegar teikningar, þér hefðuð gott af að líta á þær.“ Svo blaðaði hann í bunkanum hjá Gunnlaugi til að sýna henni eitt- hvað af þessum „laglegu teikning- um“, en fann enga. Þá leit hann á Gunnlaug og segir: „Hvernig stendur á því, að ég finn ekki neinar almenniiegar teikningar i þessu? Það voru ekki þessar teikningar sem við vorum aó skoða. Þér hljótið að hafa skipt um.“ Gunnlaugur neitaði því. Þá sagði Einar Nielsen, „Ég hef aldrei séð annað eins helvitis rusl,“ hneigði sig svo fyrir stúlk- unni og bætti við: „Ég bið yður að afsaka^þetta hefur verið misskiln- ingur.“ Prófessor Einar Nielsen gekk á skóm með þykkum sólum. Þeir höfðu verið smiðaðir sérstaklega handa honum, og það brakaði í þeim. Hann gekk í heimaunnum vaðmálsfötum, hjólbeinóttur, með arnarnef. Stundum var sterkur vínþefur af honum. Allir voru hræddir við hann. Hann hafði það fyrir sið að ganga fram og aftur um gólf, þegar hann var ekki önn- um kafinn við að skamma nem- endurna. Eitt kvöldið kom hann til Gunnlaugs og sagði: „Það er leiðinlegt að vera settur i það að sólunda peningum rikisins, borga kol, ljós, fyrirsætur, hafa prófess- or og eyða öllum þessum tima og fyrirhöfn í að kenna fólki sem ekkert kann og ekkert getur." Sem sagt: hann var snefsinn en skemmtilegur. Nokkru áður en hann hætti að kenna Gunnlaugi þennan vetur, breytti hann af- stöðu sinni til hans verulega, gat jafnvel verið vingjarnlegur. Hann fann þetta sjálfur og hafði orð á, að hann væri eitthvað skárri und- ir vorið. Eitt sinn sagði hann ill- kvittnislega, „Det er for að göre indryk lige inden man slutter," eða: Ég geri þetta vinsældanna vegna. Einar Nielsen lagói sérstaka alúð við linuna, fegurð hennar og styrk. Hann kenndi nemendum sinum að dvelja við fegurð henn- ar, gera aldrei neitt af tilviljun, hugsa og skoða hverja linu með stakri nákvæmni. Hann talaði oft um „hina löngu línu“ og „það stóra og heila“, þ.e. heildaráhrif línunnar. Hann innrætti nemend- um sínum lotningu fyrir linunni og gildi hennar, sérstaklega eins og hún kom fram I manns- líkamanum. Og hann krafðist af þeim tillitslausrar nákvæmni og samvizkusemi I verki. Með þessari hörku við nemendur sína vildi hann áreiðanlega innræta þeim að listin gerir ótakmarkaðar kröf- ur og þeir skyldu beygja sig fyrir þeim eins og náttúrulögmálum. Hann sagói við nemendurna: „Eg kenni ykkur enga list. Hana verð- ið þið að leggja til sjálf. En það sem þið lærið hjá mér, getur e.t.v. komið ykkur á sporið.“ Og svo bætti hann við; „Maður verður fyrir svo miklum vonbrigðum i lífinu, að það er nauðsynlegt að kunna að taka þeim.“ Þessi siðustu orð urðu Gunnlaugi ómetanlegt veganesti. „Ég hef aldrei gleymt þeim, og þau hafa verið mín styrkasta stoð, þegar á móti hefur blásið.“ Þegar jólafríið átti að hefjast á akademíunni keyptu nemendurn- ir flösku af vini, settust við borö í einni kennslustofunni og fóru að spjalla saman. Brátt varð mikill kliður, þó að ekki væri mikið drukkið. Þá kom Einar Nielsen þar allt i einu og sló dauðaþögn á hópinn. Einhver nemendanna herti upp hugann og spurði, hvort hann mætti ekki bjóða prófessornum að setjast við boró- ið. Hann svaraði: „Jú, ég hef alltaf haft mætur á brennivini.“ Svo var skenkt fyrir hann og þögnin hélt áfram. Þá sagði hann ertnislega: „Segið þið eitthvað.“ En það gat enginn sagt neitt, svo að hann bætti við, „Hver andskot- inn er þetta, segið þið eitthvað." Þá stendur einn nemendanna upp og tilkynnir, að hann ætli að halda ræðu fyrir minni „vores ærede Professor". Einar Nielsen spurði: „Hvað gerið þér annað en mála?“ „Ég er garðyrkjumaður," svaraði nemandinn. „Þér ættuð heldur að fara heim og gefa yður að starfi yðar,“ sagði Einar Nielsen. En nemandinn lét ekki slá sig út af laginu og byrjaði á ræðunni. Prófessorinn hlustaði á dálitla stund, en sagði svo: „Eg vil ekki hlusta á neitt bölvað slúður.“ Þá gafst nemandinn upp, tók glas- ið sitt og hellti í sig víni. Eftir stutta stund var hann orðinn augafullur og varð að fara fram og kasta upp í vaskinn i næsta herbergi. Gunnlaugur sagðist aldrei hafa gleymt Einari Nielsen, þegar hann hlustaði á nemandann kúgast yfir vaskin- um. „Eg held það hafi verið ein- asta skiptið, sem ég sá ánægjusvip á andliti hans. Svo stóð hann upp og rigsaði út.“ Einar Nielsen var i miklum metum sem listmálari og að verð- leikum, að áliti Gunnlaugs Schevings, þvi að hann var sér- stæður listamaður og mikill kunn- áttumaður. Hann var talinn i hópi fremstu listamanna Dana eftir aldamótin siðustu. Gunnlaugur dáðist að myndum hans. Oftast valdi hann sér að fyrirmyndum veikt fólk eða fátæklinga. „Það gat stundum minnt á fyrirmyndir Picassos frá líkum tima.“ í mynd- um hans er það miskunnarlausa raunsæi, sem var víða i tízku þeg- ar hann hóf listamannsferil sinn. „En hvað sem saet er um þessa gömlu menn, þá kunnu þeir sitt fag,“ bætti Gunnlaugur við. Einar Nielsen hafði lært mikið af gamaili ítalskri list, einkum flórentinskum málurum eins og Castagno og teikningar hans minntu stundum á þýzka málara eins og Holbein. Gunnlaugur kvaðst enn bera djúpa virðingu fyrir þessum kennara sinum sem listamanni. „En með sjálfum mér hef ég stundum kallað hann Ein- ar djöful og Einar andskota," bætti hann við og brosti. Gunnlaugur Scheving sagði mér þá sögu af Ásgrimi Jónssyni, að hann hefði eitt sinn komið á bóndabæ, ungur maður og byrj- andi i listinni, og farið að mála landslagið, en það þótti mikið ný- næmi i sveitinni i þá daga. Gamall vinnumaður á bænum spurði hús- bóndann, hvað þessi maður væri eiginlega að gera. Húsbóndinn sagði: „Hann hefur verið að mála jökulinn í dag.“ Þá sagði karlinn, „Og hver andskotinn, sá held ég þurfi nú málninguna." Svona var ástandið hér á landi eftir aldamótin, þegar Ásgrímur var að byrja að mála. Ragnar Jónsson segir í afmælis- Franthald á bls. 14

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.