Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1974, Blaðsíða 22

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1974, Blaðsíða 22
Sorg og gleði hugsa sér eittkvað til að vega á móti þeirri gleði sem þarna yrði óhjákvæmileg. Þar hlyti að vera ríkjandi einskonar viska og gleði. Og er það ekki nóg? Þar er orðinn óþarfi að burðast með skáld, þvi allir eru skáld, allt er skáldskap- ur. Menn skilja og fyrirgefa, fyr- irgefa all, og þvi skyldi þá vanta sorgina? Hún (;rorðin fjarstæða. Kvað sem þessu líður þá fer listin sínar eigin leiðir, en kvort þær mundu kallast mannlegar (æðrufullar) eða ómannlegar (æðrulausar) skipti það máli? Þú heidur kannski að þú hafir eittkvað að segja? Ég trúi ekki að lífið sé svo lítilmótlegt að það leyfi mér eða þér að hafa nokkuð að segja sem eigi brýnt erindi við heiminn. Heimspekin hefur tii dæmis ekki gert neitt fyrir mann- inn nema leiða hann i þokur; kvert kerfið eftir annað bræðir úr sér. Lífið yfirgnæfir okkur alla. Það brosir að okkar smáu verkum ans börnum að leik, ef það er ekki svo hlutlaust að það nenni jafnvel ekki að glotta. Það sem iíiió getur þó einstaka sinnum ekki gagnrýnt í verki mannsins — og það má vera hugg- un hans, að manni virðist — er einkver örlítill kjarni, nokkrir stakir tónar á víð og dreif, ans gildir um nokkrar stundir lífsins, að ljómar frá þeim í vitund okkar, þótt lifið virðist kannski stundum ans lotulaus lángavitleysa. Tón- listin í þessu á hug okkar um stund, ein eða tvær nótur með skapandi hljóm. Má þá ekki segja að svo fremi sem skáldskapur er söngur sé hann undur og láta ræðuna fara lönd og leið? Eða eigum við að segja að orðinu hafi verið ætlað að segja eittkvað af viti? Að vont þýði í raun og veru vont, eða gott gott? Nei. Svona lagað gildir ekki í nokkru listaverki, þótt reynt sé að stafla i þau orðum. Ræðuefnið hefur jafnvel ekki eða naumast tímabundna þýðingu, og er því jafn hjákátlegt og síðasta baðfata- tískan í París. Hamíngjunni sé lof! Listin er óháð mennskri predikun. List okkar er svo merkileg að hún þarf jafnvel ekki á réttu né röngu að halda. Ef rángt skyldi um aldur og ævi þýða rángt væri lifið auð- virðilegra en svo að því væri lif- andi. Lífið er of þanmikið til þess að gera málin það flöt. Tvisvar sinnum Iveir eru fjórir vegna einkverra nauðþurfta dagsins, en vegna listarinnar hefur slík rök- fræði ekkert gildi. Kvað segja orð bóka minna, svo ég taki nærtækt dæmi? Þær eru hráar og subbulegar af máli sem kemur beint úr umkverfinu og þegar verst lætur síðustu tískum, og hroðinn er á floti. Ef eittkvað er lesandi i þeim, hef ég hugsað, eru það nokkrar smáslitrur. Það sem þær segja er ómerkileg ræða, en það eina sem ljómar — hinar einstöku nótur — er oft utan og handan allrar siðmætislegrar kröfu. Það er ekkert í þeim sem byggt gæti nokkurn upp að neinu, orðið neinum til gagns. En þær segja þó eittkvað, það skársta í þeim? Ekkert. Og síst af öllu það skársta, sem örugglega er þarna af blindri tilviljun. 6 Tvö eða þrjú ljóð Kormáks lifa öll ljóð af sér, svo ég tali um góðan skáldskap. Þó veit ég ekki kvers vegna hann er góður, sem kemur út á eitt. En kvað segja þau? Er það vegna þess að Kor- mákur segi eittkvað sérstakt að ljóð hans ljóma nú til manns alla leiðina híngað? Hann segir ekki orð. Þetta er mótsögnin. Ljóð hans eru bara hljómur, eða sú leiðsla sem minningin um þau skapar. Þetta er eitt dæmi þess kversu einstæðar leiðir listin heldur. Hún er algerlega sjálfstæður heimur. Hún gæti nteð sanni sagt: Ekkert líkist mér. Ekki einu sinni lífið! Er þá ekki full ástæða til að trúa á listina sem frelsara, og einmitt þá list sem þusar ekki yfir nianni eittkvað ráða um lífið? sem kannski jafngildir því að maður kverfí inn í sinn eigin hugar- heim? en sá hugarheimur er ef til vill bara draumur, ef Iffið allt er þá ekki einn draumur? Ég haga mér i lífi mfnu ans ég tryði á listina, en kannski kemur það til af klárri heimsku? Ég veit ekki kvernig ég á að koma orðum að trú minni. Eina getgátan sem ég gæti borið fram yrði eittkvað á þessa leið: Blinda mannsins styrkir trú mína á frelsisgetu list- arinnar. Ég trúi því sem sagt að saga mannsins sé blinda, á sama hátt og ég trúi því að kver maður sé blindur og öll mannanna verk sé sú fálmandi tilraun, að lifa. Þannig hljóta líf og list að haldast f hendur, ef það er ekki eitt og hið sama, eittkvað sem er svo merki- legt að verða aldrei skýrt né skil- ið. En listin hefur þenslu, þrátt fyrir blindni mannsins, og að sjálfsögðu vegna hennar. Hún þenst út í myrkrið og birtir það um leið. Þess vegna er hún frels- ari. Stærri en maðurinn sjálfur, sem skilur ekki sína eigin sköpun. Maðurinn er allt um það asni, það vitum við öll. 7 Það er ieitt að menn skuli al- mennt ekki leita meir til gleð- innar eða hika við að lejta hennar, hlálegt að þeir skuli einatt hugsa til hennar líkt og hún væri revía. En það má gjarnan sjá hana á sviðum sem ljóma í klárum svala, þar sem ekkert fliss er til, engir fánar og skrum, gleði sem verður að vera gefandi og fagnaðarrík. Ég hef jafnvel vitnað það meðal þjóða, kvernig einni er gjarnt að hlæja, og mér hefur boðið i grun að þeim hlátri væri hlegið úr maga eða æðum, grófum grunn- um hlátrum. En önnur þjóðin læt- ur sjaldan sjá sig hlæja, finnst það líklega billegt, en í þess stað brosir, og brosið er dýrt og ljómar af gáfum. Níu af kverjum tíu alvarlegra bóka í dag eru án nokkurs hjals, örfáar reka upp staka og refna hlátra, og mér virðist stundum ans við séum höggorðir líkt og víkingar voru sverðhöggir, sem er ekki til að brosa að, ans við burðuðumst með mjög fruni- stætt tilfinníngalíf. Mest er um bækur heimskrar skyn- semi, bækur sem fylgjast með öðrum bókum, og í stað þess að þora að fagna hátt og djúpt eru þær oft eittkvert málfræðilegt tikk-takk og hafa ekki nokkurt hjal að færa manninum. Skyn- semin er sál lítillar reynslu og kannþvi ekki að sýngja. Skólarnir eru fullir af henni, prestar og heimspekingar virðast ekki þurfa á reynslu að halda til að geta hraukað upp kennisetningum og formúlum, ans sagan sýnir. Skyn- semi hins málfræðilega þrifnaðar hverjar eitt menníngarríkið eftir að hafa gagntekið hugarheim annars um árabil. í stað þess að þeim skyldi ætlað að hefja manninn upp yfir amstur hans og stríð þreyta þær hann og gera hann, sem því meira gott á skilið, enn veikari til að stunda líf sitt. 8 Lífsleiðslan tekur frá byrjun stefnu til fagnaðar og bótar, og þess vegna ergleðin nánari ntann- legu æði en treginn, sem mig gfunar að einkvern tíma kynni að úreldast likt og slitið líffæri. Hún ein á tvöfalda eða margfalda eiginleika, og hún lýsir fram og aftur um hugarheiminn: Hún örf- ar sjálfa sig til að skapa sína eigin orku. Það er hið eina sem gleðinni er ætlað og fyrir þessa orku eina getur harmurinn orðið til, svo mikilvæg er hún — i stað þess að það lífsloft þreytunnar sem á okkur liggur er ládautt og þolandi og getur ekki gert annað en að lifa á sjálfu sér, eða éta sjálft sig. Yfir gleðinni er viss ljómi sem gefur innblástur, og Iiklega er æskan öll slíkur innblástur? Depurðin er aftur á móti njósnuð út um hliðarglugga ferðarinnar um lifið, ber þess vegna svip af einkverri aukagetu en fellur aldrei með afli beina leið, því hún á enga stefnu, heldur þvælist með okkur. I listinni er hún lángtum fremur en gleðin nauðþurft eða eftiröpun og sveigist eftir því um ýmsar stundlegar tiskur, þar sem aftur á móti gleðin er ávallt ný og þekkir sig ekki í neinum hefðum. Stundum leitast hugir alvarlegra skálda við að gera gleðileit mannsins lítilmótlega, bæði með lífi sínu — kve fúl eru andlit þeirra — og með því að gefa sér ekki tóm til að sleppa sér gleð- inni, sem auðvitað er lángtum ólíkari revíu en alvara þeirra sjálfra. Harmurinn. Bestur er hann þegar hann á sem dýpstar rætur að rekja til ljóssins, og hann er kvergi til nema þar. Ödipus er fallegastur eftir að hann er búinn að stínga úr sér augun. Þá fyrst kemur ljósið (á ég að segja gleð- in?) og það fellur í beina áttina fram. Yfir hreyfingunni í ljósið svífur viss tign sem gefur öllu hið dramatiska gildi. Harmur án slikrar gleði er jafn innantómur og kvert gángverk hrollvekju, eða þær púðurkerlingar sem sprínga í kríngum sexið nú til dags. Kver nennir að glápa á sænska klámmynd? Kver nennti að glápa á Ödipus konúng ef hann yrði færður upp i nútíma hrollvekju? En þetta — er það ekki meir en orð nái — að manni skuli verða á að fagna í myrkri Ödipusar! Tvœr messur Framhald af bls. 19 húsið var staðsett í hjarta borgar- tnnar á via Corso, steinsnar frá ýmsum hinum mörgu sögufrægu stöðum, sem Rómaborg er svo rík að. Hef ég víða dvalið i stórborg- um erlendis, en hvergi er saga fornaldarinnar nær manni en hér, þar sem segja má, að hver þumlungur lands sé frægur sögu- staður. Þannig var ekki nema nokkurra minútna gangur frá ný- tísku verslunarhúsum að fornum byggingum eins og t.d. Closseum og Forum Romanum, svo eitthvað sé nefnt. Er nú ekki að orðlengja það, að eftir að við komum til borgar- innar eilifu, var farið að kynna sér möguleikana á því að komast i Péturskirkjuna og ef nokkur kostur væri, að sjá páfann. Frétt- um við þá að næsta sunnudag myndi páfinn syngja hátíðamessu i Péturskirkjunni, en vonlitið væri að komast inn í kirkjuna, því slikt f jölmenni væri í borginni af erlendum pilagrímum. Frúin sem átti gistihúsið þar sem við dvöld- um, hvatti okkur eindregið til þess að fara og gaf hún okkur ýms góð ráð i því sambandi. Messan í Péturskirkjunni átti að hefjast kl. 2 siðdegis. Strax löngu fyrir hádegi var haldið af stað niður á Péturstorgið mikla fyrir frarnan kirkjuna. Var þá þegar fyrir múgur og margmenni. Var greinilegt að fjöldi þessa fólks hafði látið fyrir berast þarna á torginu um nóttina og sofið á púðum og teppableðlum, sem það hafði meðferðis. Enn voru 4—5 timar þar til kirkjan yrði opnuð. Safnaðist nú jafnt og þétt slíkur mannfjöldl saman þarna á torginu, að erfitt er fyrir islending að gera sér grein fyrir þeim óskaplega mannfjölda, sem þarna safnaðist saman. Mun láta nærri að þarna hafi verið saman komið eins mikið fjölmenni og öll islenska þjóðin var á þeim tima, því blöðin sögðu frá því að giskað hefði verið á að 120 — 130 þúsund manns hefðu verið þarna þennan dag. Mjög heitt var i veðri þrátt fyrir að almanakið segði að dagur- inn væri 1. október. Vegna þrengslanna varð mikið um hrindingar og allskonar pústra og virtist manni að munkarnir væru ekkert sérstaklega stimamjúkir við nunnurnar, þegar þeir voru að hrinda þeim í burtu og ryðja sér braut í gegnum mannþröngina. Er leið að þeim tima að kirkjan skyldi opnuð, var komið með fimm langar göngubrýr, líkastar landgöngum sem notaðir eru á skipum. Var þeim nú stillt framan við hinar ýmsu dyr kirkj- unnar, en þær voru 4 eða 5. Loks rann upp hin langþráða stund, að dyrum þessa stærsta og voldugasta musteris kristninnar skyldi upp lokið. Var þá sem óskaplegur knýr fyllti loftið er hinn mikli mannfjöldi ruddist eftir göngubrúnum upp að kirkju- dyrunum og síðast inn i hinn mikla helgidóm. Tilfinning sú er greip mann var svo æðisgengin, að ég hefi fáar slíkar stundir upp- lifað á æfinni. Helst minnti þetta mig á ofsahræðslu er greip mig á sinum tíma, er ég varð fyrir þeirri stórkostlegu lífsreynslu að vera uppí á fjalli á Islandi í snörpum jarðskjálfta. Við hjónin og dóttir okkar urðum viðskila í ruðn- ingnum inn í kirkjuna, en brátt tókst okkur að ná saman aftur er inn kom. Ég mun ekki þreyta væntanlega lesendur þessa ferðasögubrots með langorðri lýsingu á Péturs- kirkjunni. Um þetta stórkostlega listaverk sem kirkjan er, hefur verið skrifaður fjöldi bóka og væri endalaust hægt að lýsa þeim stórbrotnu listaverkum sem eru innan kirkjunnar. Nægir að nefna að þetta stærsta og voldugasta guðshús veraldar var 120 til 200 ár I smiðum. Mér varð hugsað til allra litlu sveitakirknanna heima á Islandi, og jafnvel Dómkirkjan i Reykjavik gæti staðið þarna í einum boganum, án þess að eftir henni yrói tekið. Péturskirkjan var svo troðfull af fólki, að það klifraði uppum allar súlur inn í kirkjunni og hékk hvar sem það gat hendi fest. Svitinn rann niður andlit manna, og ég minnist þess, að mér gekk erfiðlega að komast í vasann til þess að ná i vasaklút, að þurrka framan úr andliti mínu mesta svitann. Timinn sniglaðist áfram og enn var beðið eftir hinum helga föður. Okkur norðurlandabúunum komu dálitið spánskt fyrir sjónir öll sú ærsl og hamagangur, jafnvel blístur og köll inn í helgidóm- inum. Var sem okkur fyndist hér heilög jörð og fólkið margt haga sér eins og á trúðasýningu. Allar þrautir taka enda og þolinmæðin þrautir vinnur allar, segfr máltækið. Eins fór hér.. Loksins fór að heyrast hærra og hærra hrópað Papa, Papa, og um síðir opnuðust dyr hins allra helgasta og hans heilagleiki Pius páfi 12. kom, borinn í hásæti, eftir miðju kirkjugólfi. Páfi var í sínum mesta hátíðaskrúða og fylgdi honum fjöldi kardinála. Stóð páfi öðru hvoru upp á leið sinni inn eftir kirkjugólfinu og stökkti vígðu vatni út yfir mannfjöldann og blessaði hann. Þetta var ólýsanlega áhrifamikil stund og mátti sjá pilagrimana, sem komnir voru víðsvegar að frá hinum fjarlægustu löndum fórna höndum og syngja lofsöngva. Varð af þessu gífurlegur gnýr inni i kirkjunni, sem líktist helst þrumugný er hinn mikli mann- fjöldi upphöf lofsöng sinn og ákall til páfa í einum voldugum kór. Eftir að páfi hafði verið borinn upp að háaltarinu, hófst hin sögu- lega hátíðamessa, og tóku þátt í henni kardínálar frá mörgum löndum. Samtimis fór fram fjöldi annarra messa i hinum ýmsu hvelfingum og útskotum hinnar risastóru kirkju. Þegar messan hafði staðið um stund, yfirgáfum við kirkjuna, enda frelsinu fegin og munu þá hafa verið liðnir um 10 tímar frá þvi við komum á kirkjutorgið um morguninn. Frá því er sagt i gömlum bókum að Páll 3. biskup hafi ritað Jóni Arasyni Hólabiskupi bréf 8. mars 1549 eða árið áður en hann var hálshöggvinn í Skálholti. Var þetta svar við bréfi sem Jón Arason hafði ritað hans heilag- leika páf anum i Róm. Það er sagt, að þegar Jón Arason fékk sendibréf páfa, hafi hann klæðst sínum fegursta skrúða, er bréf páfans var lesið upp i Hólakirkju. Svo mikið hafði það hughreyst hann og glatt. Bréfið hefur hann fengið ári áður en hann leið píslarvættisdauðann. Það er stundum sagt að heimur- inn sé lítill, og hefi ég oft sann- reynt sannleiksgildi þessara orða á ferðum mínum erlendis, er heimsfrægir nienn, sem maður les um i heimsfréttunum, ef til vill sitja við næsta borð á einhverjum veitingastaðnum úti í heimi. Fjar- lægðir og tími hverfa þá allt í einu og maður verður ef til vill óafvitandi áhorfandi eða þátttak- andi að heimssögulegum við- burðum. Þegar ég stóð nú þarna í þessari stærstu kirkju heims innanum allan þennan aragrúa af fólki hvaðanæfa að úr heiminum, fannst mér allt í einu sem mér væri kippt 22 ár aftur í tímann, er við Mullenberg biskup tveir einir komum að minnisvarða Jóns Ara- sonar í Skalholti. Flaug mér í hug þetta erindi hans:

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.