Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1975, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1975, Page 2
Komin er út hjá Helgafelli ný, aukin útgáfa af ljóðasafni Magnúsar Asgeirssonar. Anna Guðmundsdóttir og Kristján Karlsson sáu um útgáfuna. Kristján ritar formála og er hann birtur hér með góð- fúslegu leyfi höfundar. Magnús Ásgeirsson UM ÞÝÐINGAR MAGNÚSAR ÁSGEIRSSONAR i Islenzkan stendur á öðru þróunarstigi en skyld og nálæg tungumál. Þótt ekki væri af öðru, eru góðar þýðingar mikil nauðsyn fyrir viðhald tungunnar; með þeim eru áhrif frá öðrum tungum virkjuð, i stað þess að annars kynnu þau fyrr eða sfðar að reynast óvið- ráðanleg, ef málið einangrast í tímanum, meðan annað breytist. Af þessum sökum er ekki óeðlilegt, að isienzkir þýðendur viti mjög af hlutverki sínu gagn- vart málinu: það er alltaf liklegt, að þeir séu fremur ihaldssamir í meðferð máls, þó að þeir hljóti engu síður að rækja þann tilgang þýðinga að stækka hug- myndaheim tungunnar. Og með því að þýðandi er sjálfráðari um efnisval sitt en skáld, sem yrkir frum- kveðið, liggur beinna við að skilja verk hans út frá tilganginum. Það er ennfremur líklegt, að skáld, sem leggur fyrir sig þýðingar, hafi sérstaka hneigð til að leiðbeina öðrum. Magnús Asgeirsson var í lifanda lífi mikill leiðbein- andi; jafnt byrjendur sem ráðsett skáld leituðu álits hans og aðstoðar. Hann var óþreytandi að laga texta, og menn báru traust til smekks hans, sem var klassísk- ur, og settu ekki fyrir sig dómhörku hans, sem var sprottin af brennandi áhuga á vel unnu verki. Ég hygg, að leiðsögn hafi verið honum ástríða: Hann sagði svo um þýðingarstarfsemi sjálfs sin: .. Hún réttlætist fyrst og fremst af þeirri von, að hún megi bera nokkurn árangur í ljóðaskáld- skap yngri kynslóðar, sem þýðingarnar hafalorkað á eða freistað til að kynna sér frumkvæðin." (Helgafell, 1942, bls. 431) Vissulega hafði hann efni á sliku litillæti, en þó að vér vitum vel, að þessi ummæli gefa takmarkaða hugmynd um afrek Magnúsar Ásgeirssonar, er ástæða til að veita þeim fulla athygli. Hvort sem oss þóknast að taka þau sem ástæðu eða afsökun, veita þau ávæn- ing um suma þá þætti í.skapgerð Magnúsar, sem lágu til þess, að hann gerði sér þýðingar að ævistarfi. Menn spyrja stundum, hvers vegna beindi skáld með gáfum Magnúsar kröftum sfnum nær einvörðungu að þýðingum? Ef spurningunni er ætlað að fá úr því skorið, hvort þýðingar séu jafn-merkileg starfsemi og að yrkja frumkveðið, er hún ekki einungis barnalega fánýt heldur skaðlega villandi. Þvi að hvaða skilning sem vér leggjum i verk þýðanda og samband þýðingar við frumtextann, er prófsteinn vor að lokum enginn annar en þessi: góð þýðing er nýtt kvæði í málinu, óvefengjanleg eign tungunnar. Hins vegar á spurn- ingin fullan rétt á sér, að því leyti sem hún kallar á viðleitni til þess að finna samhengi í æviverki Magnúsar og varpa ljósi á efnisval hans og stíl. Með öðrum orðum, einkenni hans sem sjálfstæðs skálds og fulltrúa síns tima í íslenzkum skáldskap. Vera má að hæfileikinn til að þýða sé að einhverju leyti sérstök gáfa; nokkuð er það, að góður þýðandi hlýtur að vera góður lesandi ekki síður en skáld, og þetta á jafnt við, hvort sem hann þýðir fremur eftir anda textans eða bókstaf. Ég hygg að vér litum svo á, að skáld þurfi innblásturs og vitum hvað vér eigum við, jafnvel þó að vér meinum þá eiginleika skáld- skapar, sem vér getum ekki skilgreint, nema í hæsta lagi á óbeinan hátt. Ef vér höfum mjög rómantískan smekk á skáldskap, er líklegt að vér skiljum innblást- ur sem andstæðu rökvísi og skynsemi; í klassískari og algildari skilningi er innblástur ekki siður Iifandi kjarni skáldlegrar rökvísi, skynsemi, hagsmíði, jafn- vel hófsemdar. I þýðingum Magnúsar Asgeirssonar skynjum vér einatt innblástur skáldsins sem þunga tilfinningu að baki samhengisins í kvæðunum fremur en leiftrandi hugsýnir og flug málsins, eins og það birtist f þýðingum þess skálds, sem oss hefir löngum fundizt vera handhafi innblástursins, séra Matthiasar. Og gleymum þá stundum f svip, hve nákvæmur, rökvís og ótrúlega beinskeytur hann er oft og tíðum. Þegar Matthías þýðir, virðist oss ekki skipta miklu máli, hvaða kvæði hann velur, heldur hvert hugar- ástand hans er, og það er alkunna, að hann breytti sjaldnast þýðingu til batnaðar eftir á. Um Magnús gegnir öðru máli: ef honum mistekst, finnst oss það jaínan stafa af því, að hann hafi valið skakkt kvæði, sem ekki þoldi harðneskju og fágun-skynseminnar. Gagnrýnishneigð hans hefir á einhvern hátt reynzt kvæðinu of sterk; samt er þýðing vafalaust sú tegund skáldskaparlistar, sem næst stendur hreinni gagnrýni. Hversu ólík skáld sem tveir þýðendur kunna að vera, hljóta fyrstu skref þeirra til verksins að vera hin sömu og gagnrýnandans: þeir ganga inn I texta annars höfundar af þeirri innlifun og skilningi, sem þeim er léður. Ég á engan veginn við það, að Matthías Jochumsson og Magnús Ásgeirsson voru báðir góðir ritdómarar, enda þótt það skipti vitaskuld sínu máli, heldur hitt, að sem miklir þýðendur hlutu þeir að eiga þá innlifunargáfu I sjálfar bókmenntirnar, sem er líka frumskilyrði gagnrýni. Séra Matthias frumorti og þýddi kvæði jöfnum höndum; ég hygg að rikari gagn- rýnishneigð Magnúsar Asgeirssonar hafi valdið miklu um það, að hann hélt sig að þýðingum. Þvi fer auð- vitað fjarri, að öll gagnrýni, jafnvel i þröngri og venjulegri merkingu, sé fólgin I leiðbeiningu eða útlistun; hún getur allt að einu verið sjálfstæður hugmyndaheimur, gerður sem einhvers konar hlið- stæða við skáldverkið eða einfaldlega til vegsemdar því. Þýðing sem nýtt kvæði í málinu, komið úr hug- myndaheimi annarrar tungu, ér ævinlega óbein gagn- rýni á þann skáldskap sem fyrirer. Ég leiði hjá mér, hvort segja megi, að sama gildi um öll kvæði, sem máli skipta og ort eru á tungunni; þetta er hins vegar einfaldari staðreynd, þegar þýðingar eiga í hlut, vegna annarlegs uppruna þeirra. En um leið og vér íhugum skyldur þýðanda við eigin tungu, fer ekki hjá því að ábyrgð hans gagnvart frumkvæðinu komi við sögu. Sú ábyrgð er tvenns konar: að skila ekki einungis jafngóðu kvæði heldur sama kvæði á nýtt mál. Vér getum kallað fyrra atriðið fagurfræðilega skyldu, hið siðara siðferðilega, Hversdagsleg skynsemi segir oss jafnharðan, að siðara skilyrðið verði ekki uppfyllt nema í draumi manns. Með hugtakinu rétt þýðing getum vér tæplega átt við annað en það, að efnisleg grind kvæðis haldi sér og þær hugmyndir og líkingar, sem eru holdtekt kvæðis, eru dregnar af skynjunum og eiga ekki allt undir hljómi orðanna og samböndum hljóða bæði innan kvæðisins og út fyrir það. En líkt og vér erum flestum mannlegum siðferðis- kröfum trúrri f hugsjón en reynd, er jafnvel nákvæm efnisleg þýðing fágæt og hlýtur einatt að hliðra til fyrir einföldustu skáldskaparkröfum nýrrar tungu eins og ofriki ríms eða hæfilegu burðarþoli ljóðlínu. Stundum heyrast fagnandi raddir um það, að þýð- andi hafi endurbætt frumkvæði. Af tveimur ástæðum er slik fullyrðing alltaf tortryggileg. 1 fyrsta lagi vegna þess, að ekkert er líklegra en vér séum ekki í raun og veru að bera þýðinguna saman við frumkvæðið heldur eigin stafrétta þýðingu, sem vér búum jafnharðan til i huganum. I öðru lagi megum vér því miður gera ráð fyrir, að þvi betra kvæði sem þýðingin er, þvi fjar- lægari sé hún frumtextanum, og þá horfir allur samanburður öðruvisi við. Vitaskuld er alltaf eitthvað að gerast í þýðingum, sem ætti ekki að vera hægt. Og til þess að velja ekki af verri endanum dæmi um ótraust samband fallegrar þýðingar við frumtexta, skulum vér athuga snöggvast þessar eftirminnilegu ljóðlinur Magnúsar úr ræðu Fásts i Nótt: Nei, andans hcimar opnir bfða! Þitt eigið hjarta lokað stóð! sem er þýðing á: Die Geisterwelt ist nicht verschlossen; Dein Sinn ist zu, dein Herz ist tot. þ.e. heimur andanna er ekki lokaður; hugur þinn er luktur, hjarta þitt dautt. Einföldun merkingarinnar á íslensku er of mikil til þess, að vér getum litið þýðinguna alveg réttu auga. Éinkum er „andans heimar“ mikil breyting frá „heimur andanna", því að andarnir eru persónur með mismunandi náttúrur I kvæði Goethes.* Það er ákaflega hætt við þvi, að ef vér köllum kvæði betra I þýðingu en á frummálinu, þá eigum vér ekki við annað en oss þyki fugl vor fegurri og eigin tunga betri en aðrar. II Einar Benediktsson lagði framan af ævi mikla stund á þjóðfélagslegan skáldskap, ýmist I ættjarðarljóðum (Islandsljóð) eða Iþættan sögulegu og heimspekilegu efni (Kvöld I Róm), eða I hápólitiskum kvæðum (Sólarlag). Hann fjallar um þessi efni í raunsæisstíl enda þótt sumt f þessum kvæðum liggi reyndar nær skóla expressjónismans, sem er flóknara mál frá sögu- legu sjónarmiði og verður ekki rakiö hér. Svo undar- lega brá við að kalla má, að þessir þættir skáldskapar Einars, pólitísk raunsæisstefna, hverfi sporlaust úr verkum hans með lokahendingum Signubakka I Hrönnum 1913: *Nær jafngildi textans að merkingu eru þessar ljóð- linur Einars Benediktssonar í Stakur strengur: Þá nær til jarðar himnaeldsins ylur, ef andinn finnur til og hjartað skilur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.