Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1975, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1975, Blaðsíða 15
Tfrmm SÆKJA tíANA. , BÝRNénRETTHJ^A vY/-K . ■—> - aftur. Og þvi er nú sá rétti timi upprunninn að ég fari burt frá ykkur. Spyrjið ekki hvert. Eftir öralangan tíma, þegar sól og máni skina ekki framar og gleðin I heiminum er horfin, mun ég koma aftur. Þangað til skil ég kanteluna mína eftir hjá ykkur. Hún má aldrei þagna. Þegar söngur og strengjaspil helzt frá einni kynslóð til annarrar inn í fjarlæga framtið, mun æskan verða hamingjusöm og ellin njóta huggunar." Vainámoinen steig út í bát. Vindurinn blés I seglin, og Vainámoinen hélt i vesturátt, móti hnígandi sól. Djúpsnortnir af máli Vainámoinens stóðu Kalevalar á ströndinni. Enginn mælti orð af vörum. Þeir horfðu á eftir bátnum, þar sem Váina- moinen stóð uppréttur. Hvitt hár hans ljómaði í skini kvöldsólar- innar, og skegg hans blakti í vindinum. Þegar báturinn hvarf út í óendanleika hafsins, dó aftan- roðinn á himninum og nætur skuggarnir féllu yfir jörðina. Úr bókinni „Die schönsten Sagen des Abendlandes". Sígurjón Guðjónsson þýddi. Stýrir veitinga- húsi Framhald af bls. 4 hóteli i Bandaríkjunum. Til þess að svo mætti verða, skorti þó at- vinnuleyfi og þau hjónin héldu heim til Islands til þess að útvega leyfið og Þráinn kvaðst hafa verið bæði sár og reiður yfir þvf að menn virtust ekki vilja notfæra sér starfskrafta hans á tslandi. En um þessar mundir var talsvert atvinnuleysi * hjá hótela- og veitingamönnum í Bandarfkjun- um og leyfið fékkst ekki, þótt sterkir menn eins og Valdemar Björnsson, fjármálaráðherra í Minnesotaf.vlki og fleiri, reyndu að koma þvf f kring. Þegar það lá fyrir, hafnaði Þráinn tilboði bandaríska hótelsins, enda ekki annars kostur. Þá var það að fyrrgreindur Dan Schmaltz frétti af málalokum og lét sér ekki muna um að hringja hvað eftir annað til íslands. Hann var þá kominn með skemmtilega hugmynd um veitingahús á teikniborðið; það skyldi rfsa f Winnipeg, vera f cnskum Tudor- stíl og Þráinn gat fengið þriðjungs eignarhluta, ef hann kæmi strax og tæki að sér að koma húsinu á laggirnar og reka það sfðan. Þetta boð var of freistandi til þess að hægt væri að hafna þvf eins og á stóð. Fyrst f stað hélt Þráinn einn utan; ferðaðist um l'tfífíandl: H.f. Arvakur, Rcykjavík Framkv.slj.: IlaraldurSvvinsson Ritsljórar: Matthias Johannossvn Styrmir (iunnarsson Ritstj.fltr.: (ílsli Si^urðsson AuKlýsinuar: Arni (iarðar Kristinsson Ritstjórn: Aðalstræli 6. Slmi 10100 hálfs árs skcið um Bandarfkin og kynnti sér ástand f veitinga- rnálum og gerði rannsókn á þvf, hversu hagkvæmt gæti talizt að hefja veitingahúsarekstur f hin- um og þessum borgum. Þetta var sumarið 1973. Fjöl- skyldan kom utan þá um sumarið og Þráinn fylgdist með smfði hússins við annan mann. The Round Table var opnað f október- mánuði þá um haustið og Þráinn hefur rekið það við mikinn orð- stýr sfðan. Auk hans er tveir eig- endur og sfðan þetta samstarf hófst, hefur tveimur nýjum veitingahusum verið bætt við f Sioux Falls f Suður-Dakota og Bismark f Norður-Dakota. Þráinn er hinsvegar aðeins meðeigandi í fyrsta húsinu, þar sem hann starf- ar. I Round Table geta 125 manns setið að snæðingi f einu f fimm sölum og auk þess eru barir. Mikil og jöfn aðsókn er á sunirin, en meiri um helgar að vetrinum. En glæsibragurinn f rekstrinum er ekki tekinn út með sældinni. Framundir þetta hefur Þráinn unnið svo að segja hverja einustu helgi; hann fer snemma og æði oft er hann þar Iangt frameftir kvöldi. Hvert einasta smáatriði er undir árvökulu eftirliti hans. Þau Edda og Þráinn festu kaup á tveggja hæða, nýlegu einbýlis- húsi f suðurhluta Winnipegborg- ar og búa þar ásamt börnum sfn- um, Önnu, sem er á fermingar- aldri og Kristjáni, og Vfkingi sem eru yngri. Húsið er alls um 240 fermetrar og kostaði sem svarar 6,5 milljónum fslenskra króna , eða þvf sem næst helming af þvf sem sam- bærilcgt hús mundi kosta hér. Þau létu vel af þvf að búa f Winnipeg, en eru fslenzkir rfkis- borgarar, og hafa mikinn áhuga á framvindu mála á íslandi. Ennþá hefuf Edda ekki unnið utan heimilisins, en þar eins og ann- arsstaðar hefur það farið mjög f vöxt að húsmæður leiti út á vinnumarkaðinn. Um tón- stundaiðkan eða sport hefur ekki verið að ræða hjá Þráni; hann hefur þurft að vera heils hugar við reksturinn hingað til og ekki haft tfma til annars. Þó er fyrirhuguð Islandsferð á jólun- um, — ekki núna, heldur þeim næstu. P” þu GETURNU EKKI. NEITA-D PVI.AÐ ÞER F/NNST EMÁFRÍÐUR. piun mmr GALLVASKII í útlendingahersveitinni

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.