Lesbók Morgunblaðsins - 10.06.1976, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 10.06.1976, Blaðsíða 15
FNYKURINN LIGGUR í LOFTINU í útlendum blöðum, sem kryfja heimsmálin til mergjar, getur að líta, að nú séu efnahags- erfiðleikarnir afstaðnir, þeir er byrjuðu með olíukreppunni frægu. Yfirleitt er ekki tekið svo djúpt í árinni að kalla þetta kreppu, heldur samdrátt. En nú skin vorsól batans á hinn vestræna heim eftir þvi sem lesið verður í blöðunum og flest er harla gott í bili. Um stundarsakir fylltist heimurinn örvæntingu yfir þvi, að olian væri kannski að ganga til þurrðar. Nú er hinsvegar eins og öllum slíkum áhyggj- um hafi verið bægt frá og óhætt að bruðla með þennan dýrmæta orkugjafa eins og áður. Bíla- sala hefur löngum verið talin marktækur baró- meter í efnahagslífi þjóða og nú herma fregnir, að bílar seljist sem aldrei fyrr í Bandaríkjunum, einkum og sér í lagi stórir eyðsluhákar, sem menn héldu fyrir skömmu að væru einskonar dínósárusar og heyrðu til fortiðinni. Vorsól efnahagsbatans virðist þó ekki skína á okkur íslendinga að ráði. Verðbólgubálið brennur að því er virðist jafn glatt og að undanförnu, en við megum ekki gleyma einum umtalsverðum sigri: Hér hefur tekizt að bægja atvinnuleysinu frá, en ríkar þjóðir svo sem Vestur Þjóðverjar hafa haldið verðbólgunni niðri með þvi að hundruð þúsunda verkfærra manna hafa ekkert fengið að gera. Kannski er sú lausn betri frá hagfræðilegu sjónarmiði. En mannúðleg er hún ekki. Þrátt fyrir erfiðleika út á við, búa flestir íslendingar við töluverða velsæld. Yfir þessari velmegun hvilir þó dimmur skuggi, sem hefur verið að skirast á siðustu tveimur árunum og birtir okkur nú þá ægilegu staðreynd, að við lifum í þjóðfélagi þar sem glæpamenn geta vaðið uppi án þess að verulegum vörnum verði við komið. Dómsvaldið og réttargæzlan i land- inu hafa beðið ógurlegan hnekki og það hefur komið betur í Ijós en nokkru sinni áður, að ekki eru allir jaf.nir fyrir lögunum. Virðing manna fyrir lögum og rétti hefur minnkað að sama skapi, — eða hvað skal segja, þegar einn fær að halda áfram rekstri eins og ekkert hafi i skorizt þótt uppvis hafi orðið að tugmilljóna söluskattsvikum, en miskunnarlaust lokað hjá öðrum, sem skulda smámuni og alltaf hafa staðið i skilum. Grunur um að ekki væri allt með felldu læddist að mörgum fyrir um það bil tveimur árum, þegar sjálfur ríkissaksóknarinn sat fyrir svörum i sjónvarpi. Rannsóknarlögreglumaður spurði hann um margra ára gömul mál, sem virtust hafa dagað uppi hjá embættinu. Næsta fátt varð um svör; það var sem saksóknarinn sæti á glóandi járnum og viðkvæðið var, að þetta og hitt þyrfti hann bara endilega að láta athuga. Á þeim tíma sem síðan er liðinn, má telja að staðfesting hafi fengizt á því, sem áður var aðeins grunur: Opinber forsjá að þessu leyti stendur ekki i stykkinu og við það verður ekki unað. Þótt ótrúlegt megi virðast, er Geirfinns- málið enn óupplýst og virðist það þó aðeins hlekkur í ennþá stærri afbrotakeðju. Gífurlegt fjármagn hefur augljóslega verið lagt í smygl, ekki sizt á hassi og eiturlyfjum og þeirri spurn- ingu er ennþá ósvarað, hvaðan það fjármagn hefur komið. Raunar er ótal spurningum ósvar- að og allt virðist i hönk, hvort sem um er að kenna skorti á mannafla, klaufaskap eða ein- hverju ennþá verra. Oþefurinn af þessu máli liggur i loftinu og birtist meðal annars í árásargreinum dagblaðs á hendur rannsóknarlögreglumanni í Keflavik, sem hefur víst flestum framar reynt að verða að gagni í baráttunni gegn ávana- og fíkniefnum. Er ekki von að menn reki upp stór augu, þegar málgagn dómsmálaráðherrans tekur slíka af- stöðu? Svo er sagt fullum fetum, að þetta verði áreiðanlega alltsaman svæft; þræðirnir snerti sjálfa yfirstjórn dómsmálanna í landinu. Ef slikar svæfingar eiga sér stað, þá er það ósigur réttlætisins og meira áfall fyrir íslenzkt þjóðfé- lag en samdráttur i efnahagslifi og hagvexti. Gísli Sigurðsson. Krossgáta Lesbókar Morgunblaðsins Lausn á síðustu krossgátu (fac- ROUd. iPP'1 |JflLL ro«' • nn r V R A U c. A ÍL A N a U R b«e ( «i> E X ’o R. m h, L A ö, ■Clf/NAI Kíi? E h T A R »r rfr- iií A 5 K A rí>OMt PitLuí J> U N A R ?UKíJ*t a r 1 vp.ð u* V B K Ví?UR i'T’L A- N D A K Htrtt* Hvar- At K A P p A R A 1 Ö K F s flWAR AD 1 4 A N A R KiMDfl “1 5 A u Í> Á úee- Af-01 F R U fA L A- <A AlfUM Hífww H & á r U IUPL P vfl AWWf? L 4 Íi-Vj/M viteKi K A' 1 N miA K A <T A ■ F ff U ÍPN1 HlT. R L K*m ULfím j rúiKt 7' A p A «»»r K U T A H A R KvfN FUCaL V A í i A kii*n o R K A N jc*"' S A F 1 MJoí, 'A 4 Æ T f> JKétl K A R K 1 3vct- HtUD T tí R N KHR* 5 V B 1 Ni 1 'o |W£fK R K ^w r.rn N h H A SPíc A l. «<■' t> fwoim A N N A R U r A N fce S l i w IMC, K \ R. r A im NR M N T N A KyRR fnhn R ’o A 1 ÍUC.L- 1 /N M A S 5 A N MAMD- K«- UÓL$ Jt £ h K A R H- A F i n mIW Roöi bflÖRfi fJfí L 5iór- fí R r rO A S^SHI B. IfJl M út, Buí • uR £ND- L7ÓS> V/ ÚLFÍtf. It FfíL- iea- U R. KdPMIÐ \ e mgm 3 IT | FAMO£ LE IK- f/tKl Ærrfle. N/9pw ^ b VRfNÍ UNPIR - s ró'i> u n R- e/MiMí, 'ÍRLítA- facLp.í : ► cXp /?eioi STftnQ. Fi R f?UD0(í Mt'UMl 5T Í?Á K'i; PoR _ Cblt Ktáimr Stóð a mós T" AíftfiK (jfíLu.- .A/flFM S> ýR F/NOUÍ? r££K |£> IÐfí £t^O - / N SffiRF |Ð P E - I pJ Ci R TiTill fffluai 'f’t7 N HLýri? £3 fí R - i> 4. t VoNÐ' ftR fíLViD •Tflpf) MÁL- LÝTl /S|oU>- A K - íi/ídl 5RURC- £> < *r • l Ffí TH F I SþC- l 5 K. 3Ö í rT OA- FRum- EFfíl EH Kffl- Mcí RK NJALM- U«- MT 1 FlTó T 'f'o N N ■fcJhUJ IM L \|ILl- UiTA V/tTAVJ KRoPP- o, -D 4 ► O RÐ- u«.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.