Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1976, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1976, Side 13
EFTIR ÁRNA ÖLA Eitl af mestu ævintýrum lffs míns skeði rétt fvrir aldamót- in. Þá fékk ég fyrst að sjá hafskip og fara um borð f það. Þá rættust vökudraumar sem kviknað höfðu við lestur sagn- anna um feðurna frægu og frjálsræðishetjurnar góðu, er sigldu hingað glæsilegum skipum austan um hyldýpis haf. Það var eitthvað annað en litlu áraf leyturnar, sem fs- lenzkir bændur höfðu verið að gutla á um aldir. Skipið lá í Fjallahöfn og ruggaði sér hóglega á lognöldu vorsins. Það var kolsvart, með tveimur Ijósbrúnum siglu- trjám og miklum reiða og var risavaxið f augum barnsins. Nú mundi enginn maður dást að þessu skipi né furða sig á stærð þess. Þetta var verzL- unarskip selstöðuverzlunar Örum & Wulffs á Húsavfk, og ef ég man rétt, þá var það talið 80 lesta stórt, og þykir víst engum mikið. Eg hefi séð mörg stór hafskip um ævina, en ekkert þeirra hefir samt vakið hjá mér slfka aðdáun, sem þetta draumaskip mitt, sem ég sá á Fjallahöfn. Skipið hét Anna og forlög þess urðu nokkrum árum seinna að stranda á Kópaskeri og brotna f spón. Skipið hafði komið með vor- vörur til Húsavfkur. Þar var þeim skipað á land, en skipinu síðan breytt. 1 aðra lestina var raðað allskonar þungavöru, en krambúð gerð i hinni lestinni. Sfðan var skipið sent f versl- unarferð til Fjallahafnar, Kópaskers, Raufarhafnar og Þórshafnar og ef tii vill hefir það komið víðar við. Þetta mæltist vel fyrir, þvf að sam- göngur voru þá erfiðar, og man ég að Keldhverfingar fögnuðu þvf mjög að fá vör- urnar „sendar heim til sfn“. Engin byggð var f Fjallahöfn, og hefir aldrei verið, og varð að fara alllanga leið á bátum, til þess að komast út í skipið. Mig minnir að við skipið væru þá þrír bátar og einn grfðar- sitór prammi, og margir bænd- ur voru komnir um borð. Verzlunarstjóri á skipinu var séra Ludvig Knudsen, fyrr- um prestur á Þóroddsstað, en nú bókari hjá Örum & Wulff. Hann var röggsamur og stjórn- samur og lét afgreiða bændur eftir röð f lestunum til skiptis. Um leið og cinhver hafði fengið afgreiðslu, varð hann að fara með vörurnar niður í bát. Eg var niðri f krambúðinni meðan pabbi verzlaði þar. Bónda nokkrum ofbauð hvað hann keypti mikið af allskonar sápu, handsápu, stangasápu og blautasápu og hann gat ekki orða bundist: „Þú ert ekki að sparakaupin á öþarfanum." Knudsen heyrði þetta. Hann snerist snögglega á hæli að bóndanum og sagði hvatskeyt- lega: „Láttu engan mann heyra þessa vitlevsu. Nú eru það taldar mestu menningar- þjóðir í heimi, sem mestu eyða hlutfallslega af sykri og sápu.“ HREIN- LÆTI 0G ÞRIFNAÐUR FYRRUM Eg skildi þetta ekki þá, en það varð mér minnisstætt um- hugsunarefni. Mörgum árum seinna varð mér ljóst hvað Knudsen átti við viðvíkjandi sápunni. Sápan vartákn hrein- lætis. Aukin sápunotkun tákn- aði vaxandi hrcinlæti og þrifn- að. En Islendingar höfðu fengið þann vitnisburð hjá fjölda erlendra ferðamanna á undanförnum áratugum, eða öldum, að þeir væru erkisóðar, og ferðamönnunum virtist hafa orðið starsýnast á ódæma óþrifnað hvar sem þeir fóru um landið. Þetta var að nokkru Ieyti því að kenna hve lengi Islendingar höfðu verið sápu- lausir og hvað notkun hennar ruddi sér seint til rúms. Talið er, að íslenzkur almúgi hafi ekki haft nein kynni af sápu fyrr en eftir 1750, og lengi eftir það var hún al- mennt talin til óþarfa varn- ings. Frá landnámstíð höfðu menn komist af án hennar, og þóttust geta komist af án hennar um alla framtfð. Fyrst f stað var það aðeins handsápa, sem fluttist hingað. Grænsápa (blautasápa) fór ekki að sjást fyrr en á 19. öld. En hvaða hreinlætisefni hafði þjóðin þá notað frá upp- hafi vega? Það var hland — handhægur og góður þvotta- lögur og kostaði ekki neitt. Hlandinu var safnað árið um kring f sérstök ílát. Við geymsluna varð það stækt og kallaðist þá keyta, og hún var eitt allsherjar þvottaefni. Þetta mun hafa verið norrænn siður og verður þess þó eigi synjað, að fleiri efni hafi verið notuð til þvotta og hreingern- inga í Noregi, því að hér á landi reyndu menn að notast við jarðefni til slíks og er getið um leirinn í Mókollshaugi í Strandasvslu, sem ágætt þvottaefni, þvf að hann hafi gert lín snjóhvitt. Af því hefir hann líklega fengið nafn sitt og verið kallaður bleikja. Hann mun þó varla hafa komið að miklu gagni öðrum en þeim, sem áttu heima þar nær- lendis. Verður keytan þvf að teljast aðallireinlætislögur hér á landi um þúsund ár. Fornsögur geta lítið um dag- lega háttu manna og er því ekki að búast við miklum upp- lýsingum þar um hver efni voru notuð til þvotta. Að vísu er þess stundum getið að konur fóru með þvott í laugar eða læki, en þar mun vera um að ræða að skola þvottinn og ná úr honum keytunni. Nú var það eigi aðeins að kevtan væri notuð til að ná óhreinindum úr fatnaði, heldur þvoði fólk einnig höfuð sín úr keytu. Em þetta er frásögn í Heiðarvíga- sögu. Þegar Víga-Barði fór að safna saman þeim mönnum, er heitið höfðu að fara með honum suður í Borgarfjörð til bróðurhefnda, þá reið hann fyrst að Bakka fyrir utan Húnavatn. Þar var sá maður er Oddur hét, en hann var ekki ferðbúinn þegar, því að kona var að þvo hár hans og „hafði hún eigi þvegið lauður úr höfði honurn". Hcr hefir verið um keytuþvott að ræða, því að stæk keyta frevðir eins og sápa. 1 bókinni „lslenzkir þjóð- hættir" segir svo: „Ekki var fatnaður þveginn oftar en nauðsyn krafði. Skyrtur voru þvcgnar á hálfsmánaðar fresti, eða mánaðarfresti, en nærbux- ur miklu sjaldnar. Rúmföt, t. d. rekkjuvoöir, voru þvegin i hæsta lagi einu sinni eða tvisvar á ári. Allt var þvegið úr stækri keytu og má segja að óhreinindi hafi gengið vel úr henni, en lyktina báru nærföt og rúmföt með sér lengi á eftir.“ Þessi lýsing á við 18. og 19. öld, en mun þetta ekki hafa haldist lítið breytt allt frá landnámstið? Keytan var notuð til margs fleira en að þvo f henni fatnað. Hún var höfð til þess að þvo ullina í henni, og það hefir verið stærsta hlutverk hennar. Þess vegna hefir það verið bráð nauðsyn fyrir hvern bónda að safna keytu, því að óvinnandi verk hefði verið að þvo ullina, ef keytan hefði ekki verið. Og óviimandi verk hefði verið að spinna þráð úr óhreinsaðri ull. Nú var alltaf mikil ull á hverjum bæ og henni hefir allri verið „komið f fat“. Hún nægði til þess að klæða allt fólkið f landinu og á fyrstu öldum Islandsbyggðar var vaðmál helzta útflutnings- varan. Tóskapur var um langa hríð eini iðnaður hér á landi, og hvernig hefði það mátt vera, ef menn hefðu ekki getað þvegið ullina? Keytan á því, áreiðanlega sinn sess í sögu þjóðarinnar, þótt menn hafi af eintómum tepruskap ekki viljað viðurkennaþaö. Keytan mun jafnan hafa verið geymd f allskonar ílátuni innanbæjar, sennilcga vegna þess, að þvagið hefir ekki mátt frjósa. I rústum nokkurra fornaldarbæja, sem rann- sakaðar hafa verið, hafa fund- ist stór leirker, sem ég hygg að menn hafi eigi glöggvað sig á til hvers hafi verið notuð. En munu þetta hafa verið keytu- þrær. Þessi ker hafa verið gerð þannig, að fhvolf gryfja hefir verið grafin f bæjargólf og síðan smurð innan þvkku lagi af leir eða dfgulmó. Þvkir mér sennilegt, að reft hafi yfir þetta ker og sfðan þakið yfir með torfi, en áeinum stað haft op eða gluggi, og þar haf i verið hlemmur yfir. Niður um þennan glugga hafi svo þvag- inu verið skvett og sfðan höfð strympa til þess að ausa ke.vt- unni upp, þegar á henni þurfti að halda. Þarna hefir keytan geymst vel og lítinn daun lagt af henni um bæjarhúsin. Upp úr seinustu aldamótum mun það hafa verið fátftt að klæðnaður væri þveginn úr keytu, nema þá ef um mjög óhrein ytri föt eða sokkaplögg var að ræða Sápan hafði þá leyst keytuna af hólmi á þessu sviði. En henni var þó safnað enn jafnt og þétt vegna ullar- þvottanna. Og það mun hafa haldist fram yfir miðja þessa öld, að ull væri þvegin úr kevtu, eða allt þar til versl- unin fór að kaupa óþvegna ull af bændum. Fram að þeim tíma var bændum mjög annt um að keytan færi ekki for- görðum, eins og sjá má á sög- unni um einn mektarbónda, sem iét vinnukonu sina borga 50 aura „fyrir spillta keytu"; henni hafði orðið það á að glopra úr höndum sér nætur- gagni, svo að allur lögurinn fór til spillis! Frá æskuárum minnist ég gamallar konu, sem var snill- ingur að prjóna skotthúfur. Hún sagði oft, að það væri ekkert gaman að þessu lengur, því að nú hefðu konur ekki neitt hár, þær væru aðeins með dauð stri á höfðinu. „Þá var annað í mínu ungdæmi,“ sagði hún, „þá höfðu þær hárið, enda þvoðu þær sér allt- af upp úr þvagi. Þá var önnur sjón að sjá þær, hárið þvkkt og sftt niður að mitti og glóði á það vegna þess hvað það óx ört og mikill Iffskraftur var í þvf.“ Af öðrum ástæðum höfðu konur og miklar mætur á þvagi, því að þær notuðu það með jurtum til litunar og náðu þá hinum fegurstu litum á dúka sfna, hárauðum lit, fagurgulum, grasgrænum eða þá mosalit. Þær þurftu líka að nota keytu til þess að væta dúka sfna, þegar þeir skyldu þæfðir; þá þæfðust þeir jafnar Framhald á bls. 14 Q3)

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.