Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1976, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1976, Page 10
Ámi Óla Þegar mikil syfja sótti að fólki á miðjum dcgi, var sagt að nú sækti einhvcr að þvf. Það vissi á gestkomu. Sðlfrœði í íslenzkum þjöðsögum Ra'turnar að mörgu i þjóðtrú vorri verða raktar óravegu aft- ur í aldir og sumar lengra en sögur ná. Lengst mun þjóðtrúin sækja hugmyndir sínar um fram- haldslíf, eða aftur til þess tíma, er sa siður hófst, að úthúa framliðna með „nesti og nýa skö". Þessi siður sannar að þá þegar trúðu menn á framhalds- líf. Hinir framliðnu voru ekki dauðir og þeim var nauðsynlegt að hafa með sér vistir, áltöld og fjármuni yfir í annan heim. Hér verða ekki raktar þær óteljandi þjóðsögur, er fjalla um franthaldslíf og samband jarðarhúa við verur i öðrum heiini, heldur um hugsamhand innhyrðis milli manna hér á jörð. Þetta eru tvær greinar á sama meiði og styðja hvor aðra. Ilinir heiðnu lanonemar Islands voru allir Asatrúar, en í þeirri trú sagði svo frá skiipun mannsins, að Óðinn. Ilænir og l.óðurr sköpuðu fyrstu menn- ina, karl og konu. (iaf Oðinn þeim lífsanda, Ila-nir vit og mál og I.óðurr fjör og yfirbragö goða. Kemur her hið sama fram og í biblíunni, að menn voru skapaðir í likingu guðs. I Oylfa- ginningu kallar Snorri lífsand- ann ,,iind þá, er lifa skal og aldrei týnast, þótt líkaminn fúni að moldu eða brenni". A þessu má sjá, aö menn voru vissir uin eilíft líf, að þeir mundu lifa þött þeir dæi. Skilningur þeirra á dauðan- iim var þö allur annar en nú er. Þeir tiilflu að maðurinn væri skapaöur af sex efnum. Þrjú þessi efni voru andleg, eða guöagjafir. og þau burfu aftur til guðanna. Ilin þrjú efnin voru af jarðneskum uppruna, og þau urðu eftir á jiirðinni, en voru þó gædd einhverju magni svo að þau áttu sérstaka tilveru um all-langt skeiö. Þetta voru hinir svokiilluðu draugar eða afturgiingur, og trúin á tilveru þeirra hefir haldist furöanlega fram að þessu, enda þótt þessar verur hafi tekið allmiklum breytingum. Frá þvf er sagt í Kyrbyggju, að Þóroddur skattkaupandi á Fróðá forst við sjötta mann undan Olafsvíkurenni rétt fyrir jól. Var þá efnt til erfidrykkju að Fróðá og komu allir hinir drukknuðu til hennar. „Menn fögnuðu vel Þóroddi. því að þetta þótti góður fyrirburður. því að menn höfðu það fyrir satt. að þá væri mönnum vel fagnaö að Ránar, ef sjódauðir menn vitjuðu erfis síns". Kn um afturgöngur annara. vopnbitinna manna, söttdauðra eða ellidauðra.var öðru máli að gegna. Kf þeir leituðu til heim- ila sinna, þóttu þeir þar vágest- ir. Voru því reynd öll ráð að hamla því, að afturgöngur kæmi heim til sín. Þótti þá einna vænlegast að villa um fyrir þeim, svo að þær rötuðu ekki. I.ík voru því ekki borin út um venjulegar dyr, heldur voru brotnar gattir á veggi, líkin bor- in þar út og síöan hlaöið í skarö- iö aftur. Menn jtrúðu því, að afturgöngur mundu þræða liinn sama veg heim og líkin höfðu verið borin að heiman. Þess vegna komust afturgöng- urnar ekki í bæinn, að þær ráku sig á heilan vegg og gátu ekki komist í gegnum hann. Þannig var farið með lík þeirra Skallagríms og Þórólfs bægi- fóts. Synir þeirra létu brjóta gat á bæarvegg og drógu likin þar út, en síðan var gert við veggina, og þar hlutu aftur- göngurnar að staðnæmast ram- villtar. Kr sagt frá þessu á svo líkan hátt i Kglu og Kyrbyggju, að þessi varúðarsiður hlýtur að hafa verið algengur. Þótt þessi heiöni siður legðist niöur, hvarf hann þó eigi meö öllu fyr en i lok 19. aldar Kn þá höfðu lengi tiðkast aðrar varúð- ir. Þegar lík var borið úr bæ, var því snúið þrisvar sinnum fyrir dyrum úti, til þcss að villa um fyrir hinum látna, svo að hann rataði ekki inn í hæinn aftur. Til frekara öryggis var líkkistum svo snúið þrisvar sinnum fyrir kirkjudyrum og þær siðan bornar einn hring umhverfis kirkjuna. Þetta var gert til þess að villa svo um fyrir hinum látna, að hann kæmist ekki út úr kirkjugaröin- um. I heiðni var það siður að bera i hauga hjá framliðnum fjár- muni og ýmsa gripi, sem gátu komið þeim að góðu haldi hin- um megin. Sýnir þetta ljóslega, að menn 'rúðu á annað líf. Vopn vorulögði haugana handa líkamanum (draugnum) sem þar var, en fjársjóðir handa andanum, því að sú var trú, að menn þyrfti á fé að halda í öðru lífi. Sést það bezt á þvi, aö menn áttu að geta haft með sér til annars heims fjármuni, er þeir grófu í jörð í lifanda lifi. Þess vegna mun það hafa verið algengt, að menn fólu allt fé sitt, er þeir þóttust eiga skammt eftir. Þessi siður helzt þótt kristni kæmi í landið, og helzt enn að nokkru, þótt miklar breytingar hafi á orðið. Snemma var hætt að leggja vopn í grafreiti, en það helzt að hinir dauðu væri látnir hafa skotsilfur með sér og kjörgripi. Lengst mun þaö hafa haldist við, að kvensilfur og skartgripir fylgdu konum i gröfina, og mun þá hafa vakað fyrir mönnum, að þær gætu skreytt sig með því hinum meg- in. Kn þaö helzt enn við að kjörgripir séu látnir í kistu framlióinna, og síðan prentlist hófs hér á landi, munu það aðallega hafa verið guðsorða- bækur. Þess vegna eru þúsund- ir Passiusálma og saímabóka grafnar i kirkjugörðum hér á landi. Sumir segja, að þessar bækur eigi að forða því, að illir /andar komist nærri hinum framliðnu, aörir segja aö þetta sé nokkurs konar vegabréf inn á land lifenda. Kn hvort heldur sem er, þá er þetta tákn um trú á framhaldslíf. Allt frá Óðins dögum er sú trú, að hægt sé að vekja upp látna menn, en til þess þarf galdra. Uppvakningar voru ólíkir afturgöngum að því leyti, að það var ekki andi hins fram- liðna, sem fór í líkamann, held- ur var þaö illur andi. Þannig gat líkami manns gengiö aftur en sál hans lifað í eilífum friði á himnum. Vegna þessa kom upp sú ein- kennilega trú, að hægt væri að drepa drauga, eða stía sundur líkama hins framlióna og hin- um illa anda. Helzta raðið til þess var, að grafa upp líkam- ann, höggva af honum höfuðiö, ganga síöan milli bols og höf- uðs, eða setja höfuöið við þjó líkamans. Eru um þaó margar sögur. Seinast skeði þetta 1598, er Hólamenn grófu upp Cvend loka (sjá Frásagnir bls. 241 — 244). Kom þá út konungsbréf árið eftir, er hannaði að grafa lík upp. — Annað ráö til þess aó koma draugum fyrir kattarnef var að fá kraftaskald til þess að kveða þá niöur. Þriðja ráðið var, að kyrsetja líkin í gröf sinni, og var það gert með því, að reka langa járnnagla ofan i leiöið, og mun það seinast hafa verið gert norður í Eyjafirói áriö 1875. I fornöld var talið, að i hvert skipti sem barn fæddist, kæmu nornir til þess að „skapa því aldur". Segir svo frá því í Eddu er Helgi konungur Hundings- bani fæddist: Nótt varð í bæ, nornir komu, þær er öðlingi aldur of skópu; þann báðu fylki frægstan verða 'og buðlunga beztan þykja. En eigi voru fyrirbænir þeirra alltaf þessu líkar, því að nornir voru „mjög sundurborn- ar“, og til voru illar nornir, er sköpuðu mönnum ógæfu. Þetta var forlagatrúin. Allar spár nornanna komu fram, hvort sem þær voru illar eða góðar, án þess að sá, er fyrir þeim varð, gæti þar nokkru um þok- að. Þó var hér lögð líkn með þraut, því að fleiri andlegar verur komu til hvers barns. Þær höfóu ýmis nöfn, svo sem fylgja, hamingja, gifta, heill og auðna, og mega teljast til verndarvætta, bæði einstakra manna og heilla ætta. Forlagatrúin hefir haldist gegn um allar aldir sem einn liður í þjóðtrú íslendinga, því að enn í dag er talað um „gæfu- menn" og „ólansntenn". Aö vísu er langt síðan að skapa- nornirnar voru afskráðar en menn trúðu því, að gæfan væri guðsgjöf, en ólán stafaði frá illum öflum. Og fylgjur manna eru enn á sveimi, en einnig breyttar, frá því, sem áður var. Þjóðtrúin telur, aö liver mað- ur sé tvær verur, líkamleg vera og andleg vera, og sannanir fyr- ir því sækir hún langt aftur í aldir. Báðar þessar verur eru 'gæddar orku, en sín með hvoru móti. Þjóðtrúin dáist mjög að hinni jarðnesku orku, vöðvaafli líkamans, en hún stendur furðu lostin gagnvart hinni andiegu orku, hugaraflinu. Þó tíundar hún það rækilega, og verður hér nú rakið sumt af því. Víða í fornum sögum er getið um mannahugi og að þeir geti gert vart við sig i fjarska. Þetta sannar, að langt er nú siðan sú uppgötvan var gerð, að sérstak- ur kraftur fylgdi hugsunum manna. Hér var ekki um líkam- legan kraft að ræða, heldur kraft sem kom frá huga manns, andanum eða sálinni, eftir þvi hvað hinn innri maður er kall- aður. Enginn veit hvenær Hávamál voru orkt, en að allra dómi eru þau mjög gömul, og þó er lífspeki þeirra langtum eldri. Á einum stað I þeim stendur þetta: Skósmiður þú verir né skeftismiöur, nema þér sjalfum séir: skór er skapaður illa eður skaft sé rangt, þá er þér böls beðið. Hér er minnst á kraft bænar- innar, en það er hugsunarkraft- ur mannsins sem gerir bölbæn- ir að áhrinsorðum er bitna á þeim, sem þeim er stefnt að. Á sama hátt gátu fyrirbænir orðiö öðrum mönnum til blessunar, ef hinn rétti hugarkraftur fylgdi þeim. Þessi skilningur kemur ljóst fram mörgum öld- um síðar í sögu af Þorði skáldi á Strjugi: Einu sinni orkti hann bölbænavísu yfir danskt skip, er lét i haf frá Höfðakaupstað, en sá þegar eftir því og kvað aðra visu til þess aö draga úr. En veður gekk upp eigi að síöur og á Þóröur þá að hafa sagt: „Slíks var von, þvi að eg gat eigi beðið hinum dönsku hund- um góðs með eins heitum huga og eg bað þeim ills". A miðöldum þótti skáldskap- ur miklu áhrifameiri en mælt mál hvort heldur var til góðs eða ills, og mörg skáld voru svo andrík, að ekkert átti að geta Framhald á bls. 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.