Lesbók Morgunblaðsins - 24.10.1976, Side 3
Þegar ástin
verður
að kvöl
AFBRYÐI-
SEMI
Eftir Ingolf Reinholz
Afbrýðissemi er í rauninni ein
af eðiiiegum mannlegum kennd-
um. Hana þekkja allir meira eða
minna hjá sjálfum sér. Alger
skortur á hæfileika til afbrýðis-
semi bendir frekar til truflunar á
geðheilsu en hitt.
Samkvæmt kiinnuh sem gerð
hefur verið i Þýzkalandi viður-
kenna 97% kvenna þar að hafa
fundið fyrir nokkurri afbrýðis-
semi, en ekki nema 70% karla.
En verið getur að karlmenn hafi
ekki svarað eins samvizkusam-
lega eða hafa vfsvitandi ekki
viljað viðurkenna þennan „veik-
Ieika“ því afbrýðissemi er
almennt álitin neikvæð kennd-,
merki um vanþroska.
En hvað er eiginlega afbrýðis-
semi? Þeirri spurningu er vand-
svarað. Þýzka orðtakið segir
eitthvað á þá leið að afbrýði sé
ástrlða, sem menn leita uppi af
mikilli þrautseygju og bera síðan
með miklum þrautum. Rithöf-
undurinn Max Frisch segir
afbrýði stafa af „ðtta við saman-
burð“.
1 alfræðiorðabók er afbrýði
skilgreint þannig: afbrýðissemi
er ástrfðufull viðleitni til þess að
gera aðra manneskju að sinni
einkaeign, blandin sjúklegum
ótta við mögulegan sambiðil.
Hvað sem þvf lfður þá er af-
brýðissemi meðfædd kennd sem
fylgt hefur manninum um allan
aldur. Börn verða meira að segja
afbrýðissöm þegar yngri systkin
fæðast, vegna þess að þá óttast
Margur eldri maðurinn, sem kvænzt hefur
ungri og fagurri konu, hefur fyrir bragSið
orðiS að þola vltiskvalir afbrýðiseminnar. Í
þesskonar hjónaböndum dekrar maðurinn
við konuna og vill allt til vinna að halda
henni, þvl honum f innst að án hennar væri
Kfið tilgangslaust. Þannig var um Eugen
Gruber, tæplega sextugan auðkýfing frá
Múnchen I Þýzkalandi. Hann kvæntist 19
ára gamalli leikkonu, Jana Novakova. sem
óðar gerði hann frávita af afbrýðisemi. Þvl
lyktaði með harmleik; Gruber skaut fyrst
konu slna og sjálfan sig á eftir.
þau að missa ást foreldranna.
Sonur er afbrýðissamur gagnvart
föður, þvf hann vill sitja einn að
ást og umhyggju móður sinnar
(svokallað Ödipuskomplex).
Feður geta orðið afbrýðissamir
gagnvart börnum sfnum, ef þeim
finnst dálæti eiginkonunnar á sér
dvína með tilkomu barnanna.
Þessar geðshræringar geta allar
talizt eðlilegar og geta jafnvel
verkað sem góður hvati á ástina.
En afbrýðissemi fullorðinna
tekur á sig svo margar myndir
sem mennirnir eru og þvf er
ekkert allsherjar-lausnarorð við
henni til.
Saklausust er afbrýðissemin
þegar hún kemur upp á yfirborð-
ið sem stundarfyrirbrigði og
hverfur sfðan — hvort sem ástæð-
an var sú að manneskjan sem gaf
tilefnið til hennar hvarf sjónum
eða makinn breytir framkomu
sinni og afstöðu svo tilefnið til
afbrýðisseminnar er ekki lengur
fyrir hendi.
Stundum er náin sjálfsþekking
nauðsynleg til að vinna bug á
kenndinni. Þegar mönnum
verður ljóst, hversu mikils virði
þeir eru hinum elskaða maka,
hverfur afbrýðin af sjálfu sér.
Sjálfsvitundin er oft nýtasta
verkfærið.
Mörgum tekst þó ekki að ráða
bót á afbrýðissemi sinni hjálpar-
laust en þurfa læknisaðstoðar við
til að losna úr kreppunni. Verst
eru þó þau tilvik, þegar afbrýðis-
semin er orðin eins og sjúkdómur
sem gerir iffið þeim sjúka allt að
því óbærilegt.
Sjúkleg verður afbrýðissemi
hins vegar ekki nema sterkar til-
hneigingar til geðsjúkdóms hafi
verið fyrir hendi og þá frekast
hjá fólki með persónuleika- bygg-
ingu geðklofa. Það fólk getur
komið eðlilega fyrir sjónir en
þjáist þó af ranghugmyndum,
sem það losnar ekki við. 1 slfkum
tilvikum þarf oft ekki nema lftið
atvik til þess að afbrýðissemi
brjótist út með miklum ofsa.
Sjúkleg afbrýðissemi bírtist þó