Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1977, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1977, Blaðsíða 7
Það þykir ekki lengur i frásögur færandi þött landinn bregði sér til sðlarlanda, Costa Brava, Costa del Sol, Mallorca að sumrinu, Gran Canaria eða Tenerife að vetranum og fáir eru partfhæfir nema þeir geti taiað af mikiili þekkingu um einhvern þessara staða og flest- ir eiga einhvern uppáhaldsstað og eitt hvert uppáhaldsferða- félag og finna öllu öðru allt til foráttu. Þeir eru aftur á möti færri sem hafa stigið skrefið á sjömflnaskóm og skilið bú og börn eftir heima f heilan vetur, að sjálfsögðu við mikla hneykslun þorra manna, en þetta erum við hjónin ákveðin f að gera nú. Ég hefi verk að vinna sem krefst næðis sem ég hefi ekki fundið heima á fróni og þegar mér bauðst þægilegt húsnæði á eyju Chopins, Mallorca, fyrir viðráðanlegt gjald, héit fjölskyldan fund og var málið rætt af mikilii einurð, fram og aftur. Börnin okkar, 16 ára snót og 18 ára piltur, ákváðu að gefa foreldrunum þetta tækifæri og sjá um heimilið og stunda sinn skóla eftir bestu getu og þar sem traustið hefir ávallt verið gagnkvæmt innan fjölskyld- unnar, var ákveðið með ölium greiddum atkvæðum að tæki- færið skyldi gripið og ævintýrið gert að veruleika. Með góðri aðstoð vina og veiunnara var öllum aðkallandi fjármálum komið á hreint og brottför ákveðin 10. október með Arnarflugi, á vegum ferða- skrifstofunnar Sunnu. Þetta flug var sfðasta flug til Mallorca, tómflug til þess að sækja sfðustu farþega Sunnu til Palma. Vegna anna komst ég engan veginn með þessu flugi og var ákveðið að fara um Kanarfeyjar hinn 27. nóvem- ber. En þá var eftir að komast til Mallorca sem er dágóður spotti, og þar sem helmingur f jölskyldunnar hefir aldrei áhyggjur af morgundeginum var hikiaust pakkað niður og mætt til Kanariflugs, laugar- daginn 27. 11. með tvær fata- töskur, slangur af myndavél- um, eina ritvél og gnægð af pappfr. Flugið var eins og búast mátti við með Arngrfm f vinstra sæti, Gunnar i þvf hægra, tvo flugvéiastjóra og önund að kfkja á sólarhæðina annað slagið. Þægileg rödd Arngrfms verkar vel á farþegana og hann sér um að þeir viti nákvæmlega hvað er um að vera, hvar þeir eru staddir og hvers sé að vænta. Fimm klukkustunda flug er þreytandi og margir halla sér, aðrir eru vel vakandi, hafa fengið sér eldsneyti f frfhöfn- inni og eru kátir og hláturmild- ir alla leiðina og einn og einn innbyrðir einum um of og þarf á stuðningi að halda við ferða- lok. Hitabreytingin er ofboðsleg. Frá frostinu sem var f Keflavfk og f 27 gráðurnar sem eru hér f skugganum er mikill munur og það verkar eins og högg á mann að koma út úr vélinni. Fólkið, sem var kuldaklætt við brott- för, stynur og dæsir undan hitanum en sem betur fer eru fararstjórar Sunnu snöggir að koma fólkinu f bflana og inn á hótel og fbúðir. Best er að fara varlega f sólina til að byrja nieð og betra að fá sér gönguferð um nágrennið. Það er segin saga að eftir hverja flugvélakomu spfgspora bleiknefir f tugatali um Kasbah og Cita og láta haf a af sér fé vegna þess að þeim er ekki ljós verzlunarmáti Ara- banna og kunna ekki að prútta. Þeir sem hafa verið hér áður láta að sjálfsögðu ekki plata sig, kunna á kerfið og miðla hinum þekkingarsnauðu af reynslu sinni. Við eyðum einni viku á ensku ströndinni, látum kuldann fjara úr kroppnum, hlustum á fslenzkan f jöldasöng á kvöldin og finnum hangi- kjötslyktina breiðast um hótel- ið; annaðhvert kvöld. Flug IB 004 frá Las Palmas til Madrid var ekki nema 45 mfnútum á eftir áætlun. Farið f loftið f steikjandi hita og heiðrfkju en eftir stutta stund var flogið inn yfir kakkþykkann skýjaflóka sem virtist ná yf ir mestan hluta Spánar. Sáum þó strönd Afrfku um stund. Einhver hafði sagt okkur að tveggja tfma munur væri á klukkunni f Madrid og á Kanarfeyjum og flýtti ég minni klukku, þegar grfðarstór klukka f flughöfninni staðfesti þetta. Klukkan sú reyndist biluð og þessi vitleysa átti eftir að hafa talsverð áhrif á dvöl okkar f Madrid. Þar sem við vorum ekki með neytt tollskylt f farangrinum ætluðum við rak- leiðis um græna hliðið, en það gekk nú ekki. Kanarfeyjar eru frfhöfn og Spánverjar sem koma þaðan, eiga það til að kaupa sér myndáVélar, útvarps- tæki og annað sem er hátolla- vara á meginlandinu. Eld- gömul og skorpin kona, með óteljandi smápinkla varð fyrir talsverðum töfum en mikii ös var við tollskoðunarbþrðið. Einn tollvörður stóð við út- göngudyrnar og sneri miskunnarlaust öilum við sem ekki voru búnir að fá D krltað á hverja tösku og hvern pakka. Til þess að fá þetta eftirsótta D varð að fara að borði, ekki stóru en fyrir innan það stóð einn maður sem leitaði og merkti með krft hverja tösku sem f lagi reyndist. Eins og gefur að skilja var óhemju ös við borðið, þvf hver einasti farþegi úr Las Palmas- vélinni varð að fara þangað, ásamt fjölda manns úr öðrum vélum. Sú gamla potaði sér að borðinu með fyrstu ferðina af pökkunum, sumt hnýtt með snærum, sem langan tfma tók að leysa og hnýta á ný og lengi vel varð einn og einn böggull- inn útundan þegar krftað var. Sú gamla var miskunnarlaust rekin til baka ef D-ið vantaði á einhvern pakkann, en með til- litsemi og spanskri rósemi hafðist þetta að lokum og sam- farþegar þeirrar gömlu hand- lönguðu alla pinklasúpuna á eftir henni. Einn mann skorti þó sýnilega þolinmæði, eða fannst sér misboðið með þvf að þurfa að fá krftarmerkið á leðurtöskuna sfna. Ct komst hann ekki án þess, þrátt fyrir óskaplegan orðaflaum og á endanum gerði hann bókstaf- lega árás á biðröðina, hrinti mönnum til hliðar og henti bókstaflega tösku sinni f toll- vörðinn. Hann fékk krftar- merkið og nokkur vel valin orð á fslenzku og fleiri málum. Þegar loks kom að okkur vandaðist málið. Hvað var maður að gera við gamla ritvél, útvarp með brotið eitt hornið, nokkrar gamlar myndavélar af öllum stærðum, sem betur fer er tollmerki á kvikmyndavél- inni, bunka af pappfr og vetrar- klæðnað? Eg skildi að maður- inn vildi fá að vita hvert ég væri að fara og hve lengi við yrðum. Ég reyndi: Habla Usted Inglés? Nei ekki orð f ensku. Þá varð ég að reyna betur: Madrid un dia, Bilbao y Santander dos dias, Barcelona un dia y Mallorca cinco mesas“. Maðururinn varð hæstánægður með þetta og ég ennþá ánægðari yfir að geta sett þetta saman. Krftarmerkin komu á töskurnar og passað að enginn yrði útundan, jafnvel bjútfbox- ið f ékk D. Mikil voru viðbrigðin að koma úr 35 stiga hita á Kanarf og f 8 stig f Madrid. Ilótelið stóð rétt við breiðgötuna La Princesa sem nú skartaði jðla- skreytingum f hverjum búðar- glugga. Mannfjöldinn á göt- unni var slfkur að ég hefi ekki áður séð þvflfkt, ekki einu sinni þegar Oxford Street f London er sem verst. Við þrengdum okkur f áttina að Plaza de Espana og ef að veðrið skreytingar I sói og bltðu t Barcelona. Neðst: Á Plaza Espana t Madrid. hefði verið betra, hefði verið indælt að setjast niður og horfa f kringum sig. Flóðlýstar stór- byggingar umkringja torgið og upplýstir gosbrunnar og minnismerki blöstu við. Það er að segja, þegar við sáum eitt- * hvað fyrir mannhafinu. Þarna fór að bera á tfmaskekkjunni hjá okkur, en okkur fannst furðulegt hve seint dimmdi og værum við þó talsvert norðar en á Kanarfeyjum og þar snar- Framhald á bls. 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.