Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1977, Blaðsíða 10
Útsöluœðið
Undanfarnar vikur hefur útsöluvertiðin
staðið sem hæst og hver verzlunin á fætur
annarri auglýst glæsilegan varning á niður-
settu verði, svo að munar allt að helming.
Fólk þyrpist svo á útsölurnar f þeirri von að
þarna megi gera reyfarakaup einkum í
fatnaði, og helzt fyrir árið. Það er ævintýri
líkast að fara á útsölur, einkum og sér í lagi
hjá verzlununum sem þekktar eru að þvi að
hafa á boðstólum svokallaðan tizkuvarning.
Þar má þakka fyrir að vera ekki troðin undir
og flóamarkaðsmenningin er þar f algleymi.
Hver ryðst um annan þveran og gripið er það
sem hendi er næst og siðan veifað tryllings-
lega til næsta afgreiðslumanns og hann
hraðar sér á vettvang og lætur kúnann
snarlega reiða fram féð og er eins gott að
handtök séu snör áður en viðkomandi kúnni
hefur komið til sjálfs sín aftur og áttað sig á
þvi, að þessi flik sem af hendingu var gripin,
er kannski ekki akkúrat það sem þörf var að
fá. Ég spurði nokkra viðskiptavini sem sóttu
slíkar útsölur i tízkuverzlunum hvernig kaup
þeir hefðu nú gert. Einn hafði keypt sjö pör
af gallabuxum á sig og greitt fyrir fjögur
þúsund krónur stykkið. Hann staðhæfði að
þetta væri stórkostleg kaup, þar sem galla-
buxur af þessu tagi hefðu fyrir jólin verið á
allt að átta þúsund krónum. Taldi þessi að
nú færi i hönd undursamleg tíð þar sem nóg
væri af gallabuxum og ekki þyrfti að hafa
samvizku af þvi að hafa keypt rándýrar flikur
heldur hefði þetta fengizt á kjaraprís.
Að sjálfsögðu má spyrja hvort viðkomandi
unglingur hafi virkilega haft þörf fyrir sjö pör
af gallabuxum og hvort ekki hefði verið
skynsamlegra að kaupa sér helming eða svo
af magninu. En ekki siður má spyrja hvernig
á því stendur að verzlun getur selt gallabux-
ur á fjögur þúsund krónur nú sem kostuðu
átta þúsund krónur fyrir rúmum mánuði eða
svo. Enda þótt gamalt fatadót sem lengi
hefur legið á lagerunum sé sett fram við
útsölurnar, flikur sem væntanlega hafa af-
skrifað sig sakir aldurs — létti kaupmönnum
að lækka verð á alvöru varningi, er þarna þó
um meiri mun að ræða en eðlilegt og skiljan-
legt getur talizt.
Annan hitti ég sem hafði keypt sér peysur
og nærfatnað fyrir hagstæða upphæð að
hans dómi. Hann hafði að vísu ekki aðgætt
að peysan var tveimur númerum of litil og
nærbuxurnar voru orðnar gular af elli. Það
hafði ekki sézt vegna þess þær voru i plast-
poka og auk þess hafði handagangurinn
verið svo mikill að honum hafði nú ekki
almennilega unnizt timi til að skoða þetta
rækilega.
En alténd þurfti þessi að skipta peysunni,
sem hafði verið fjarskalega ódýr að hans
dómi og ekki kostað nema á þriðja þúsund
og það þótti ekki mikið nú til dags. En sami
kom heldur lúpulegur frá afgreiðsluborðinu
aftur — eftir að hafa beðið langa stund þvi
að annrikið í þessari verzlun var svo mikið
— peysan hafði verið á útsölu og þvi var
ekki hægt að fá henni skipt. Þarna höfðu nú
tvö þúsund farið fyrir lítið. Ég er hrædd um
að enda þótt sumir telji sig gera réttlætanleg
kaup á stöku útsölu gerist einmitt það hjá
fleirum en þessum umrædda unglingi; að
peningarnir fari fyrir lítið og útsöluvarn-
ingurinn reynist þegar að er gáð og víman er
runnin af ekki eins stórkostlegur varningur
og eftir var vonazt.
Jóhanna Kristjónsdóttir.
Krossgáta
Lesbókar
Morgunblaðsins
Lausn
á síðustu krossgátu
UKV 0 é* ... t-W-. »y*f>' lirm inmea
-? á R \ ? U R T l L 1 'A H
WW L 'o R A M PR£P- f»5T X 'A L A 5 7 'A
•1 O 5 cni*. N u N N A f-cpi S / T T
j flF A.MI Pvffyn Líffí O V u m on N A nr\LL fjw* t T N A T
F Æ R l! M A R lilTI'" < T A L l N Ffí- L'AT A
aL v>' 0 S L 'o á. T ö T A N iTftuft Nó'ía K A F T
ró** m L A l V i°k* N 'o L 'O áC-T ruc.i- A o 4* il ’A A
A KAFk FKW Æ T 1 T> tUÍHfl ACt-r L £ l F A R »11tu L
rit L X 'o N Mfru* HMflLD if> K A á A R «0 - A F A T T
bi - HpI*i; S> e L T A Kvck- VVR l'nmí. 'A R L A ÍK-ÍL irK t>* A í> A \Aa- K 1
1 n A U M A ýTol?- ÍLJór »!(>* fl U N D R ft < T
5 Æ (WíMM* < £ N s> 1 N Cl U KL- AKI imun 6ui> K 'N
'A f'KK’l ✓meá n e F 'A A R Of RC-flCM IMfc. o k U R ? R. A K
S K A R N l N N ntiii- MfliB IÞ M A s Q A N N
oTetj f ux-m 1 R B UR Fm- |€> i|?aoífl NEM/JI
lencl d- RC - E/M/NIL HÆT TCL- LEá. H U s
t H/MlfZ. í>í euoiua. FU CLAK
b tíBT
^'- ' r L'tTlV BCC, TQ'to
MAMJ- NAfm ENDiUL AFKF- Æf>l JT
5TtXK- mu/\ KvfM- Dýpii) TAIP- teáG ÆPfl
KbRN
EITK- flíJuR VoKl/l Æf>f) MÍMNI fli WH- Kr fl
ftR iKHúffí STdDu Fúfi - \iAe/° - />s- EF/MI ‘prÆplR sreinu
FUC.L
A£>n J?í?cPl
ReiÐi- HlIóð FURí>fl í ia ’f) ÍDua-Lfl Hhr- 'lD/hl J
ÍN'R- JKý ÍKÁlb
i L- M)€NNl JKfNDI
glN- KÉ/JWIS íTflFie. F/SIÍAR mice«
dLr- liFUIt. Mw- æ p n
<1(112- AR £L-D - 4T/EÐI 'owmti INO < VEIi- Lfí
fNWWR FoRsem, /ANTfl
tlKðW- HLWTiPW StyoD- - 'Rórfí '1 efi0*
BÆKL- abar TURT- I M + SARDflai ; •