Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1977, Blaðsíða 11
VARSTU SWO A1IRILU
KLAUF/ AÐ þú FéKKST
AÐEtNS EtNU 6/NNt
A£> i/ERA A/IEÐ?
MANSTU
HVERNI&
ÞAE>
KOM
'TIL'?
1//P l/ORU/U 'A
L/ELL/NUM■ þA£>
l/AR 80/P AÐ
KJOSA ALLA NEMA
M/6- É6 STÓP E/W
EFT/K- T/L HL/0AR
V/£> VÖLL/NN- EN
VARALVE& FAST-
'AKVEpUZN AP VERA
ME£>„ MWU'
L/€>/."
NIA
é& VERA
MEE>?
• <' . " 'i
Bréf
að sunnan
Framhald af bls 11
dimdi upp úr klukkan sex. Hér
var enn lesbjart klukkan langt
gengin nfu. Aldeilis útilokað
virtist að komast að á matsölu-
stað. Allir virtust borða
standandi upp á endann og allt
var svo yfirfullt af unglingum
sem mynduðu langar biðraðir
allstaðar. Við höfðum litla
löngun til þess að nærast á
þennan máta og stungum okkur
út f hliðargötu og fundum að
lokum matsölu við okkar hæfi,
með dæmigerðum spönskum
mat. Tvö borð voru laus, en á
þeim stðrt spjald sem á stóð
Riservado (frátekið). Við lituð-
umst um eftir einhverju sem
ekki var frátekið en f sömu
svifum birtist þjónn sem svifti
merkinu af borðinu og bauð
okkur sæti með mikilii handa-
sveiflu. Þar sem matseðillinn
var eingöngu á spönsku var úr
vöndu að ráða þvf spönsku-
kunnáttan er ekki á marga
fiska. Vandinn leystist þannig
að við vorum leidd að löngu
borði með úrvalinu á. Mjög
girnilegt kjöt var á einu fatinu
og nú var eftir að vita hvers-
konar kjöt væri um að ræða. Ég
baulaði lágt til þess að vekja
ekki of mikla athygli á fávizku
minni. „No, Senor, no, no,“ og
svo kom feikna orðaflaumur
sem ég græddi lftið á. Ég
jarmaði. „A, Si, Si, cordero,
Senor.“ Þá veit maður það að
lamb heitir cordero. Kjötið
smakkaðist frábærlega vel.
Gott var að koma inn úr
kuldanum þetta kvöld. Kannski
voru það viðbrigðin frá Kanarf
en heima verður manni ekki
svona kalt f 8 stiga hita. Hér
stóð andgufan út úr hverjum
manni eins og f frosti heima.
Morguninn eftir var rigningar-
suddi en við fengum okkur
smágöngu og nú var
mannmergðin ekki eins ofboðs-
leg og kvöldið áður. Fólkið er
mjög nýtfzkulega klætt og vel
tilhaft. Unglingarnir sérlega
smekklegir og viðburður að sjá
druslulega unglinga.
Héðan er ferðinni heitið til
Santander, sem er borg á
norðurströnd Spánar. Okkur er
tjáð að flugvöllurinn þar sé
lokaður vegna breytinga og að
næsti flugvöllur sé Bilbao f
rösklega 120 km fjarlægð. Við
bókuðum sæti á flug sem átti að
fara frá Madrid kl. 16.20, yfir-
gáfum hótelið kl. 12 á hádegi,
að við héldum, sögðum að við
mundum sækja farangurinn kl.
14.00 og fórum út að borða.
Náðum f leigubfl og sóttum
farangurinn og héldum út á
flugvöll. Nú kom tfmaskekkjan
sér vel fyrir okkur þótt við viss-
um það ekki fyrr en sfðar um
daginn. Flug IB612 var að fara
og við sáum enga ástæðu til
þess að hanga eftir næstu vél og
ákváðum að fara með 612. Það
stóðst á endum að þegar allir
höfðu komið sér fyrir f sætum,
var tilkynnt að vegna veðurs
væri fluginu frestað um eina
klst. Biðum við f hálfa aðra
klukkustund og var tvfvegis
búið að breyta brottfarartfma,
er allt f einu var kallað út.
Gekk nú allt að óskum og var
lent f Bilbao f ágætisveðri,
logní en skýuðu. Meðan við bið-
um eftir ferð f bæinn, var til-
kynnt að fluginu sem við höfð-
um upprunalega ætlað með,
hefði verið aflýst.
Þriðjudaginn, 7. desember,
sóttu vinir okkar okkur til
Bilbao. Sólskin og hitu u.þ.b. 16
stig f skugga. Ekið var um frið-
sæl landbúnaðarhéruð þar sem
kýr voru á beit og bændur stóðu
við slátt og notuðu orf og ljá.
Grasið er hvanngrænt, eins og
eftir gróðurskúr f júlf heima og
tré enn með laufi. Ströndin er
tignarleg, klettótt með hvftum
sandvfkum og við eina slfka er
Laredo. Hér má enn kaupa fbúð
á skikkanlegu verði en þó er
bærinn á hraðri leið með að
verða túristabær, enda fögur
borg á fögrum stað.
Santander er þekkt hafnar-
borg á norður Spáni og héðan
ganga hraðskreiðar ferjur til
Southampton á Bretlandi og
eru 8 klst. á leiðinn. A vfðáttu-
maklum, hvftum sandfjörum
stunda unglingarnir knatt-
spyrnu og einn mann sá ég
stinga sér f sjóinn. Um
hálftfma akstur frá Santander,
er okkur sýnt þorp sem varð-
veitt ér óbreytt frá 13. öld.
CoIIegiada de Dantillada. Allar
götur eru hellulagðar og á torg-
inu er brynningarþró fyrir
hesta og nautgripi. Við fengum
okkur öl á kránni, sem ekki
hefir breytt svip f árhundruð
og gólfborðan eru hin uppruna-
legu, enda standa kvistirnir
langt upp úr viðnum sem mýkri
er. Hvert einasta hús skartar
merki ættarinnar og maður
kemst f sérkennilega
stemningu og heyrir fyrir sér
hófaskelli á steinunum og
skrölt vagnhjólanna. Vegna
þess að bærinn er f eigu og
umsjá hins opinbera, er mun
ódýrara að búa hér en annars-
staðar og það væri sannarlega
þess virði að dvelja á þorsps-
hótelinu um mánaðartfma,
orna sér við opinn eld f kránni,
yfir öli sem borið er fram I 600
ára gamalli krús.
Við kveðjum vini okkar og
höldum ferðinni áfram til
næsta áfanga sem er Barcelóna.
Briet
Bjarnhéðinsdóttir
Framhald af bls. 6
Fjallkonan:
Kvenfrelsi 2. árg. 1. tbl. Palladómur um
þingmenn 2. árg. 16. tbl.
Gísli Jónsson:
Um kosningarétt og kjörgengi Islenskra
kvenna. Lesbók Mbl. 40. og 41. tbl. 1971 og 1.
— II. tbl. 1972.
Ingibjörg Benediktsdóttir:
Brfet Bjamhéðinsdóttir fædd 27. sept. dáin
16. mars 1940. Þjóóviljinn V. árg. 73. tbl.
lsafold:
Fyrirlestur kvenmanns um kvenfrelsi XV.
árg. 1. tbl.
Laufey Vilhjálmsdóttir:
Hallveigarstaðir, hvar á húsið ad standa.
Vlsir 20. árg. 88. tbl.
Marfa J. Knudsen:
Brfet Bjarnhéóinsdóttir minningarorð.
Tfmarit Máls og menningar 2. hefti 1940.
Matthfas Jochumsson:
Um réttindi kvenna. Fjallkonan V. árg. 23.
tbl.
Morgunblaðið:
Frá aðalfundi h.f. kvennaheimilið Halk
veigarstaðir. Agrip af skýrslu formanns 18.
árg. 223. tbl.
Valtýr Guðmundsson:
lslensk hringsjá. Eimreiðin XI bls. 235.
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson:
Brfet Bjarnhéðinsdóttir áttræð á morgun.
Hún er fyrsta fslenska konan sem haldið
hefur opinberan fyrirlestur og jafnframt
fyrsti kvenritstjóri á landinu. Alþýðublaðið
17. árg. 218. tbl.
ÞjóðÓlfur:
40. árg. 1. tbl.
Þorsteinn Gfslason:
Frú Bríet Bjarnhéðinsdóttir sjötfu og
fimm ára afmæli 27. september 1931.
Morgunblaðið 18. árg. 223. tbl.
Auk þess ýmsar smágreinar í dagblöðum,
Kvennablaðið 1895 — 1915 og tslenskar ævi-
skrár Páls Eggerts Ólasonar, Rvfk 1948 —
1952.
Munnlegar heimildir:
Birgir Möller, forsetaritari
Brfet Héðinsdóttir, leikkona.
//