Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1977, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1977, Qupperneq 6
Bolli Gústafsson í Laufási ræðir við HEIÐREK GUÐMUNDSSON skáld á Akureyri Enn var komið vor og þrestir sungu fjörlega í görðum á Oddeyri viö Eyja- fjörö. Reynitré, sem Heiörekur skáld haföi forðum gróðursett við hús sitt og löngu eru vaxin þvt upp yfir bak, voru senn allaufguð. Þá vaknaði sú hugmynd eins og þegar brumhnappur springur, hvort sumt af þvi, sem hafði borið á góma á fundum okkar, bæði heima hjá honum i húsinu við Eyrarveg og úti í Laufási alllöngu fyrir sauðburðinn, mætti ekki sem hægast festa á blað. — Siðla dags sátum við í stofu skáldsins. Þar inni ber allt þekkan svip hógværðar og smekkvísi. Ég undraðist þessa síðdeg- isstund, hve kyrrlátt var í kaupstaðnum. En þannig er Akureyri. Það er líkast þvi sem limmiklir trjágarðar hennar dragi úr hverskyns þys, hvort heldur er véla- gnýr eða veðurdynur, og hún búi í hag- inn fyrir þá, sem æskja næðis. Þar er oftast veður til að skapa. En lindin hans Heiðreks kom upp við jaðar Aðaldals- hrauns, sú „eina djúpa æð, sem ekki hefur lokast nokkru sinni“, og því hygg ég að hann líti öðrum þræði á sig sem gest á Akureyri. Hún fúnar seint taugin, er knýtir skáldið við Sand og gengin spor um föðurtún við hraunsins jaðar. Um- hverfið er þar gætt fegurð, sem ekki verður iýst eða skilgreind með hvers- dagslegum orðum. Jafnvel Skjálfanda- fljótið býr yfir fegurð, sem flestum gest- um er hulin. ,,Að minun dómi ertu fallegt fljót, þó fegurð þinni skáldin lítið hrósi“. En munurinn er sá, að Heiðrekur Guð- mundsson átti fljótið að vini frá því hann mundi fyrst eftir sér. Auðskýrð var almannahylli Laxár, sem var fjær í bernskuheimi drengsins, og þvi segir skáldið nú í kvæði sínu Við fljótið: „Þó mundi verða metin fegurð þín, ef mikill afli bærist hér að landi. En gott er enn að una við þinn straum, þó ekki gíni lax við hverri flugu. Á bökkum þínum sat ég tiðum tæpt, er tíbrá dansinn sté á kvikum sandi.“ Þó er fyrrgreind taug ekkert tjóður- band; skáldið Iætur hana ekki hefta sig né heldur felur það sig undir askloki heimalningsháttar. Þótt Heiðrekur sé enginn heimshornaflakkari fer næmur hugur hans í langferðir og ekkert fer framhjá án þess að snerta hann. Og Akureyri er skáldmæltum gestum sínum góð, hvort heldur þeir koma frá Skógum í Þorskafirði, Fagraskógi á Galmaströnd, Djúpalæk í Skeggjastaðahreppi, Litlu Laugum í Reykjadal, Hvammi i Langa- dal eða Sandi í Aðaldal. Um þessar mundir reyna menn að mæla alla hluti og samanburðar er leitað. Við vitum hvar i heiminum menn ná hæstum aldri, hvar þeir drekka mest brennivín og hvar flest börn deyja úr hungri. Ég hygg, að ef hægt væri að bregða mælitækjum á fsland, til þess að sjá, hvar mest hafi verið ort á þessari öld, þá myndi Akur- eyri ekki vera neðarlega á blaði. En það skiftir raunar engu máli. Hitt er meira um vert, að þar hafa verið ort Ijóð mikil að gæðum og gildi og mun engum dylj- ast, hve veigamikinn þátt Heiðrekur Guðmundsson á í því sannmæli. — Nú sitjum við þarna í stofunni og ég hefi hlýtt á skáldió segja frá strangri glímu við hugsanir og orð, sem kviknuðu af efa. Án þess uppnáms, er efinn vekur, verður kvæöið andlaust eins og væng- stífður fugl. Og jafnframt vék það að þeirri uppgjöf margra skálda, er þeim varð ofviða að fella hugsanir í meitlað form látlausra orða og þau urðu að hefja sig á loft í óskiljanlegar geimferðir há- fleygra iýsinga og torræðra orða, sem aldrei verða skýrð og vekja grun um, að glitið sé froða. Skyndilega réttir Heiðrekur sig í sæti, bregður lófa yfir hvirfilinn og segir: — Ertu nú viss um, að ástæða sé til þess, að festa þetta skraf okkar á blað? Hvað hef ég að segja? Ekkert, nema það, sem ótalmargir eru margsinnis búnir að segja áður. Og þótt ég hefði eitthvað nýtt í pokahorninu, nennir þá nokkur að lesa það? Leikur fólki ekki mest forvitni á einkalífi manna. Þar kemur þú að tóm- um kofanum hjá mér. Ég vísa til ljóða minna. Þar eiga flest þeirra upptök sin að meira eða minna leyti. En kannske eru þau ort á dulmáli. Og þá er að ráða það. Ég minntist áðan á annríkið og tímaskortinn. Það koma mörg blöð út á íslandi daglega, með löngum greinum og viðtölum. Flestir lesendur þurfa að flýta sér. Fyrirsagnir eru lesnar, fyrst og fremst. Stundum finnum við forvitni- lega grein, leggjum blaðið til hliðar og ætlum að lesa hana siðar. En þá er nýtt blað komið, greinin gleymist og lendir í ruslakörfunni að lokum, ólesin. Utvarpið malar sautján stundir á dag, sjónvarpið sex kvöld i viku og síminn hringir þar að auki. Hefur nokkuð næði til að hugsa eða muna það, sem hann les eða heyrir, stundinni lengur. Sumir ákafamenn lita yfir blöðin á kvöldin með öðru auganu og horfa á sjónvarpið með hinu eða hlusta á sjönvarpsþulinn með hinu. Get- ur heili okkar þolað slíkt álag án þess að bíða tjón af? Er minni okkar ekki farið að sljóvgast? Þegar ég var í barnaskóla í sveitinni, þá setti gamli kennarinn okk- ur fyrir námsefni, sem við áttum að lesa rækilega. Þeir næmustu þurftu þess ekki nema tvisvar sinnum, en gátu þó þulið upp úr sér heilu kaflana næsta dag, orði til orðs, án þess að líta á bókina. Og þótti engum mikið. En líklega hef- ur skilningurinn verið í samræmi við það. — Þegar Kristinn E. Andrésson sendi frá sér rit um (slenzkar nútíma- bókmenntir 1918 — 1947, þá ertu ungur maður, Heiðrekur, og hefur aðeins sent frá þér eina Ijóðabók, ARF ÖREIGANS, enda segir sá glöggi maður, að þú hafir ekki enn smfðað þau vopn, sem hæfi vilja þfnum og skapgerð. Sfðan hefur þú sent frá þér fjórar Ijóðabækur á þrem áratugum. Sfst af öllu er hægt að ætlast til þess, að þú svarir spurningu um framför og þroska, en ekkert sakar þótt ég spyrji þig um aldur þinn. — Það er ekki hægt lengur að leyna aldri sinum. Þjóðskráin sér um það. En ég- þekkti einu sinni konu, sem lækkaði aldur sinn um 10 ár áður en hún náði fimmtugu og breytti einnig um nafn. Svo fluttist hún i nýtt umhverfi og vann þar síðan vel og lengi i þjónustu góðs fyrir- tækis. En þá var farið að glugga í þjóð- skrána og konunni var sagt upp störfum fyrirvaralaust, enda var hún þá orðin 77 ára gömul. En það er ekki öllum jafn illa við það að eldast. Ég spurði góðkunn- ingja minn að því fyrir nokkrum árum, til hvers hann hlakkaði mest. „Að kom- ast á ellilaun“, svaraði hann, „þá get ég átt góða. og náðuga daga.“ Og þegar sá draumur var orðinn að veruleika, þá spurði ég, hver h'eitasta ósk hans væri nú. „Að mega starfa áfram,“ svaraði hann. Og þá er vist mál til komið, að ég svari spurningu þinni. Það eru bráðum 67 ár síðan ég fæddist í þennan heim, svo ellilaunin eru nú skammt undan. Við erum alltaf að keppa að þvi að ná settu marki og þegar því er náð, þá er annað nýtt í sjónmáli, ef ekki framundan, þá fyrir aftan okkur. — Þegar ég huga að verkum skálda á Akureyri, þá virðist mér þú eina skáldið, sem ekki hefur birt neitt af lausu máli, a.m.k. ekki sögur eða leikrit. Nú þegar nær sjö áratugir eru að baki sýnist ekki fráleitt að þú farir að undirbúa ritun æfiminninga. — Nei, ég held ekki. Hjá mér hefur ekk- ert gerst, sem i frásögur sé færandi og æviminningar sínar skrifar liklega á næstu árum annar hver maður á Islandi, ef ekki um sjálfan sig, þá um aðra, sem getur stundum orðið dulbúin sjálfsævi- saga, ef höfundinn langar til að vera mikið i sviðsljósinu. Svo þar er ekkert nýtt svið óplægt handa mér. Og þó svo væri, þá má helst ekkert við því hreyfa. Það skoplega, hversdagslega og mann- lega verður að liggja í þagnargildi. Myndin verður að vera fögur og galla- laus, helzt glansmynd, séð frá einni hlið. Annars rísa upp vinir og vandamenn þeirra, sem um er fjallað og mótmæla. Þeir þekktu fólkið, komu sem gestir um helgar eða í sumarfríum. Og allir hafa auðvitað rétt fyrir sér, því lífið er fjöl- breytilegt og margvislegar myndir hægt að draga upp af hverjum einstaklingi. Það þekkir þú, sem ert dráttlistarmaður. En það eru ekki jól nema bara einu sinni á ári. Það er nú meinið. Þó hafa verið — og eru enn — skrifaðar ágætar ævisögur á tslandi, og margar þeirra les ég mér til fróðleiks og ánægju. Að öllu verður þó að fara með gát. Sérstaklega verða skáld og bréfritarar að vera vel á verði, ef allt skyldi verða birt, er i ruslakistunni ligg- ur, strax eftir jarðarför þeirra. Góðskáld- in hafa stundum orðið illa fyrir barðinu á þvi, einnig bréfritarar. Þeir skrifuðu ekki bréf sin í þvi augnamiði, að þau kæmu fyrir almenningssjónir. Þetta voru kunningjabréf, vinarbréf, jafnvel trúnaðarbréf. Og enginn skyldi misnota trúnað vina sinna. „Ekki skal ég á þessu níðast og engu öðru því, sem mér er til trúað,“ lætur höfundur Njálu Kolskegg segja endur fyrir löngu. En nú er ég kominn nálægt skáldskaparsviðinu og ég mátti svo sem vita, að þangað mundir þú leiða mig. En i framhaldi af þvi, sem ég sagði um birtingu sendibréfa og ófull- gerðra handrita, sem finnast i fórum látinna höfunda, vil ég bæta við: Þess vegna lágu þau þar, að höfundarnir vissu sjálfir manna bezt, að þau voru ekki fullfrágengin og þeir vildu ekki láta þau þannig frá sér fara. Hvi skyldu þá aðrir leyfa sér að gera það á móti vilja þeirra. Sama gildir um einkabréf látinna manna. Það verður að vega það og meta vandlega, hvort bréf-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.