Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1977, Blaðsíða 20

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1977, Blaðsíða 20
Maðurinn rölti í hægðum sinum ofan melinn niðurað plankabrúnni yfir ána í enginu. Dagur á förum. Bleikur haginn að hverfa inn í hálf- rökkur hausts og kviða. Brúarsmiðirn- ir hættir vinnu þennan dag. Þögnin algjör. Maðurinn steig hægt og var- færið út á brúargólfið, likt og hann óttaðist að traustleiki hennar væri ekki sem bestur. Það brakaði feigðar- lega í viðunum. Hann greip fálmandi i handriðin beggja vegna, en sleppi þeim svo aftur. Undarleg ósköp, hugsar maðurinn, að láta brúargarm- inn skjóta sér skelk í bringu, eftir allar þessar ferðir yfir hana út að Stóli. Taugarnar að láta sig? Jú, þvi ekki það. Einhverntimann kom að þvi. Svo hélt hann út með ánni eftir sléttu enginu, þangað til hann kom að veginum frá nýju brúnni út að Stóli. Hann klifraði upp brattan vegakant- inn. Sá átti nú ekki að leggjast undir fönn. Og yfirborð hans minnti á breið- götu í borg. Ég er svo aldeilis hissa, hugsaði maðurinn og slóg á lær sér. Þeir börðu nú ekki vindhöggin þegar þeir voru að fara fyrir sig, bræðurnir á Stóli. Þarna var þá vegurinn og brúin sama sem komin, fullbyggð, handa þessum eina bæ þeirra og eyðijörð- inni, sem þeir höfðu fengið á leigu sumarið áður. Systir þeirra hafði sig heldur minna í frammi og bar líka minna úr býtum. Að réttu lagi átti hún bæði jörð og búpening til jafns við þá. Hún greiddi sín opinberu gjöld til sveitar og rikis, meðan bræðurnir voru gjaldfríir ár eftir ár. En þá var það líka upptalið, aðra peninga hafði hún ekki handa á milli. Rebekka hét hún. Lengi höfðu ósýnilegir þræðir legið á milli hans og hennar. Þau vissu tæplega sjálf hvenær þeir urðu til, áleit hann. Kannski á meðan hann dvaldi þarna i fásinni daísins fyrr á árum og hirti skepnur. Og ekki var margra kosta völ. Svo skildu leiðir eins og gengur og bæði hugsuðu ráð sitt. En siðan hafði hún þraukað í hug mannsins af sjaldgæfum stöðugleika þótt heiðar og ár skildu á milli og fleiri konur sýndu á sér andlitið. Hann gat vel hugsað sér samleið með henni eftir einhverjum vegi og þurfti ekki að vera breiður. Þau höfðu spjallað um þetta sín á milli bæði i gamni og alvöru, en alltaf rekið sig á sömu hindrunina: hagsmuni þeirra bræðra, beggja ógiftra. Enn varð honum litið heim að eyðibýlinu, sem nú varað baki og kirkjunni þar, þessari jörð sem guð hafði gert góða handa prest- um sínum. Þegar guðsmaðurinn flutti burtu eins og Ijúfur draumur með orf sitt og bækur, hafði manninum flogið í hug, að þetta prestsetur væri gott undir bú fyrirsig og Rebekku. Hlæj- andí ástúð prestsins mundi áreiðan- lega fylgja þeim og staðnum eins og guðsblessun og hvað var þá að ótt- ast? Hann hafði gengið á fund kirkju- yfirvalda og beðið um hana til ábúð- ar, og fengið loforð um velviljaða athugun. Nokkra mánuði hvildi þögn yfir málinu. Svo bárust þau tíðindi, að annar bróðirinn á Stóli hefði fengið staðinn og nú var þar enginn maður. Jörðin sem í svefni, bíðandi eftir þolanlegu fólki með fórnfúsar hendur til að leysa sig úrálögum. Rökkrið þyngdist og myrkvaðist. Maðurinn þokaðist gleðilaust út veg- inn frá brúnni. Húsið á Stóli bar nú fyrir sjónir. Það kom ekki á móti honum útúr myrkri sinu og þögn fremur en þeir bræður. Nei. Stóð bara þarna og spyrnti í jörð sína, dökkt og grafið eins og fjöllin fyrir ofan, og hýrnaði sjaldan við komur hans. En hvað var nú þetta, hugsaði maðurinn og staðnæmdist. Vélarhljóð og Ijósagangur niður á túni rauf nú allt í einu þögn og myrkur dalsins. Já og önnur vél með einhverri glætu rétt fyrirofan bæinn. Naumast, að véla- menningin hafði lent i þjónustu staðarins. Gesturinn fylltist áhuga og spurn. Allur tómleiki hvarf. Hann hraðaði sér heim að bænum og gerði vart við sig með þremur höggum á útidyrahurð, eins og siður var. Nokkr- ar mínútur beið hann i ofvæni eftir að lokið yrði upp. En það kom enginn til dyra og ekkert hljóð barst að innan. Hvar var Rebekka? Og hvar í djöflin- um voru bræðurnir? Höfðu þeir kannski hundskast eitthvað frá bæn- um undir kvöldið i öllum umsvifun- um, þannig að þau Rebekka gætu talað fáein orð saman, án þess þeir væru á hælum þeirra með allar hlustir opnar upp á gátt. Skítt með það. Best að ganga niður á túnið og heyra hvað ýtumaðurinn hefurað segja. Hin vélin, — graftól- ið, var með ferlega tenntum kjafti að róta til, rétt við bæjarvegginn. Éld þeim bræðrum segi fyrir með alla hægðina og aðburðaleysið, ályktar hann á leiðinni niður túnið. Stórt þúfnastykki var komið þar i flag. Svo þeir þurftu þá aðra jörð undir rassgat- ið til að koma sér á stað með að bylta þessum þúfum hugsar gesturinn og hlær. Ýtumaðurinn stöðvaði vélina, þeg- ar gestinn bar i Ijósgeislann. Öll tross- an, vélin, herfið og grindin stóðu kyrr. Ýtumaðurinn steig út á beltið með skrúflykil í hendi og hálfreykta sígarettu í munnviki. — Sæll, hreytti hann út úr sér. — Sæll, svaraði gesturinn. Hérer mikið um að vera, þykir mér. — Mikið um að vera. Ekki and- skoti. Þetta ersvosem ekki neitt. Einn af þessari sortinni, hugsaði gesturinn. Lætursér fátt um alla hluti nema sjálfan sig. — Hvar er fólkið, spyr hann loks? — Fólkið! Það voru einhverjar hræðurað riða upp í rétt þegar dimmdi. Annars varðar mig ekki um það. Mér finnst það skipta ósköp litlu máli, fái ég matinn á réttum tima og kaupið mitt þegar ég fer. — Það veit ég, svaraði gesturinn og spurði ekki um fleira. — Hvaðan ert þú annars, lagsi, spurði þá ýtumaðurinn og skirpti 0 • • sigarettustubbnum ofan í moldina. — Ég gekk yfir fjöllin sjö, sagði gesturinn og snéri frá til að ganga heim að bænum. — Hvar eru þessi sjö fjöll Þú ert líklega farinn að slæpast, heyrði hann kallað á eftir sér frá vélinni. Nokkrum augnablikum seinna skrölti trossan af stað. O, jæja, greyið. Ætli vélar- skömmin sé ekki búin að gleypa úr honum sálina. 2 Rebekka stóð i dyrunum þegar gesturinn kom heim að húsinu. — Þú kominn eftir allan þennan langa tíma. Hvar hefurðu verið, vin- ur? — Sæl, Rebekka min, sagði gesturinn og kyssti hana einn koss á munninn. Vandræðaleg þögn. — Eru bræðurnir heima, spurði gesturinn loks. — Þeir voru upp við rétt, en koma bráðum heim. Það var svo sem auðvitað hugsaði gesturinn. Komur hans hingað, til að finna Rebekku, höfðu fæstar orðið honum til ánægju, eða vakið hjá honum mikla bjartsýni. Bræðurnir, annarhver eða báðir lasnir og Reb- ekka á þönum i kringum þá að veita þeim einhverja þjónustu. En hvað veikir sem þeir voru og niðurdrepnir, — eftir því sem þeir sjálfir sögðu, — gátu þeir samt fylgt þeim eftir með hnýsnum augum og fótum. skref fyrir skref, hvarsem þau leituðu i hvarf með stundarlangt afdrep. — Þú verður i nótt, vinur, sagði Rebekka. — Ætli það hafi mikið upp á sig. Ég er farinn að þekkja næðið hérna á Stóli. — Við skulum koma i bæinn og sjá hverju fram vindur. Hann tyllti sér í sóffann í stofunni en hún tendraði Ijós á lampanum. Nýmóðins húsgögn og allt fágað og prýtt. — Hvar eru bræðurnir veikir í V.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.