Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1977, Page 17
Þó samhljómurinn
sé fagur, er hópur-
inn sundurleitur.
Þeir elztu eru um
sjötugt og voru bún-
ir að leika með
útvarpshljómsveit-
inni í mörg ár, þegar
sinfóníuhljómsveitin
var stofnuð árið
1950. Þeir yngstu
eru tvítugir eða
rúmlega það, —
sumir tala ensku,
aðrir þýzku, sumir
eru af slavneskum
uppruna. Hér var
hljómsveitin að taka
upp nokkur verk til
flutnings í sjónvarpi.
Fyrst er rennt í gegn
og Páll lætur taka
aftur það, sem hon-
um þykir að betur
mætti fara.
Síðan kviknar
rauða Ijósið — og
þá gildir það.
1 öftustu röd: Básúnur og túba. Talió frá vinstri: Ole Kristian Hansen,
norskur básúnuleikari, sem leikió hefur meó hljómsveitinni síöan
1974. Arni Elfar, sem leikió hefur á básúnu síðan 1963 og meóal þeirra,
sem teikna í Lesbókina á undanförnum árum. Björn R. Einarsson,
básúnuleikari f hljómsveitinni síðan 1957 og Bjarni Guðmundsson
túbuleikari, sem verið hefur í hljómsveitinni síðan 1973.
Indriði Bogason leikur á Iágfiðlu og á langan feril að baki. Hann hóf að
leika með útvarpshljómsveitinni 1942 og sfðan með sinfónfunni eftir
1950.
Hér er vfstekkertkynsióðabil til: Indriði Bogason og Sesselja Halldórs-
dóttir leika á fiðlur. Sesselja hefur verið í hljómsveitinni sfðan 1975,
en Indriði hóf að leika rúmum 30 árum áður.
Talið frá vinstri: Jón Heimir Sigurbjörnsson á 1. flautu. Hann hefur
leikið með hijómsveitinni sfðan 1968. Kristjan Stephensen leikur á 1.
obo og hefur verið með sfðan 1965. Marian Whittow, bresk, leikur
einnig á obo og var ráðin í haust.
HHI || :
Mikil alvara á ferðinni og allt á fullu. Páli P. Pálsson stjórnar upptöku
á Schöne Galathea eftir Supé til flutnings í sjónvarpi. Páll er fastur
stjórnandi hljómsveitarinnar og stjórnar æfingum, en erlendir stjórn-
endur eru oft til kvaddir að stjórna á tónleikum. Páll hefur starfað
með hljómsveitinni frá stofnun hennar 1950.
Hluti fiðluleikaranna. Næst á myndinni fyrir miðju situr Helga Hauksdóttir, sem verið hefur í
hljómsveitinni sfðan 1968, en lengst til vinstri er Arni Arinbjarnarson, sem verið hefur í hljómsveitinni
síðan 1961, þá Rut Hermanns, Claudia Holtje, Pierre Anderson og Imogen Fletcher. A æfinguna vantaði
Guðnýju Guðmundsdóttur konsertmeistara og Þorvald Steingrfmsson.