Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1978, Síða 1
Margir íslendingar munu kannast við nafnið TOVE ÓLAFS-
SON en hún var gift hérlendum myndhöggvara og var um
árabil búsett hérá Laugarnesinu. Sjálf var hún (og er)
myndhöggvari af hárri gráðu og ágætur kennari. Tove sýndi
myndir sínar með islenzkum framúrstefnulistamönnum eftir-
striðsáranna m.a. á Septembersýningunum svonefndu. Vöktu
myndir hennar jafnan mikla athygli fyrir fíngert og mann-
eskjulegt yfirbragð. Hún mun hafa átt marga aðdáendur
hérlendis er muna list hennar vel, og einn þeirra gat ekki stillt
sig um að taka mynd af tréskúlptúr þeim er prýðir forsíðu
Lesbókar, að þessu sinni.
Myndin var á sýningu „Kammeraterne" á Den Frie i
Kaupmannahöfn á sl. hausti og reyndist sú mynd minnis-
stæðust allra mynda á sýningunni fyrir viðkomandi. Einhvern
veginn finnst íslendingum að þeir eigi nokkurn skerf i þessari
listakonu, þótt aldönsk sé. Væri ekki ráð að bjóða henni að
sýna myndir sinar i Reykjavík i náinni framtið t.d. i sambandi
við Listahátíð 1980?
— Konumynd þessi er skorin út i trébút og mun vera í fullri
likamsstærð, eða því sem næst. Eins og sjá má væsir ekki um
handverkið, og auk þess er myndin gædd ýmsum þeim bestu
eðalkostum listakonunnar er við þekkjum svo vel, fágun,
blíðu og innri lifun.
Mynd og texti: Bragi Ásgeirsson.
Bílar af örgerö 1978
Núsegiraf FORD