Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1978, Side 8
Karate, 102x77 cm, 1968.
Komin er út á vegum lceland
Review vegleg myndabók um
Guðmund Guðmundsson, sem
heitir listamannsnafninu ERRÓ og
allir munu kannast við undir því.
Hér er um mikið og merkilegt
framtak að ræða og bókin veitir
glögga innsýn í heim Errós, þar
sem samtíminn er krufinn til
mergjar á eftirminnilegan hátt. Sé
það hlutverk listamanns að endur-
sþegla samtíð sína í verkum sínum
þá hefur Erró svo sannarlega
reynzt því hlutverki trúr, í verkum
hans er 20. öldin í hnotskurn með
öllum þeim ósköpum, sem yfir
mannkindina hafa dunið í samtíð
okkar. Hér er mikið skáldskapar-
mál á ferðinni; Erró er ófeiminn viö
hverskyns uppátæki, hugmynda-
flugið er gífurlegt og nákvæmni
smáatriðanna fer út á yztu nöf. Öll
útfærsla ber handbragð meistar-
ans, en að sjálfsögðu eru menn
ekki sammála um, hvort þeir vildu
hafa myndir af þessu tagi uppi á
vegg í stofunum sínum.
Bæði bókin og sýning Errós aö
Kjarvalsstöðum, kynnu að verða til
þess að hrófla við þeirri grónu
skoðun landans, að ekkert sé góö
myndlist nema löggilt landslag. Að
vísu er það gott að hafa hjá sér
myndir, sem eru blíðar og þýðar
eins og blóm í vasa eða Þingvalla-
vatn á sumarkvöldi. En þegar frá
líöur er hætt við því, að þesskonar
myndir séu ekki mikilsverður
aldarspegill; veröi ekki taldar túlka
þá skálmöld pólitískra átaka og
tæknilegra framfara, sem raun ber
vitni um.
íslendingar hafa ekki átt þess
kost að kynnast Erró og verkum
hans að marki fyrr en núna meö
sýningunni og bókinni. Þegar
eitthvað kemur upp, sem rótar við
því venjulega, hrífast sumir og
aðrir hneykslast. Þannig mun
verða raunin á, þegar myndir Errós
ber fyrir augu. Ekki er ólíklegt aö
allskonar kellingar — sumar þeirra
karlkyns — láti í sér heyra með þá
skoðun, að önnur eins bók og
önnur eins verk séu ekki í húsum
hafandi.
Bókin um Erró spannar verk
hans síðustu 20 árin; hann hefur
sjálfur valið myndirnar og þær eru
í bókinni í réttri tímaröð. Það
verður að teljast mikilsvert með.
tilliti til þess aö átta sig á
framvindunni hjá honum.
Um tilurð bókarinnar segir Har-
aldur J. Hamar, ritstjóri lceland
Review, — og nú einnig bókaút-
gefandi:
„Það eru nær tvö ár síðan ég fór
að hugleiða möguleikann á aö
lceland Review gæfi út bók um
Erró og í upphafi ráðfærði ég mig
við Matthías Johannesen, sem er
einn af fáum íslendingum sem
jafnan hefur haldið sambandi við
hann ytra — og stöku sinnum á
umliðnum árum hafa birzt greinar
eða viðtöl, sem Matthías hefur
skrifað um listamanninn. Ég setti
mig í samband við Erró og lagði
málið fyrir hann. Hann var mjög
ánægður meö framtakiö og sér-
staklega samvinnugóður, valdi
sjálfur myndirnar, setti pær í rétta
tímaröð — og útvegaöi litfilmur af
Ham, 97x64 cm, 1974.
Tethis Special, 69x97 cm, 1976.