Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1978, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1978, Blaðsíða 9
Ný bók um ERRÓ, sem út kemur í tilefni Listahátíðar gefur góða hugmynd um verk þessa sérstæða málara, sem einn íslenzkra myndlistarmanna hefur hlotið alþjóðlega frægð. fórn, 75x98 cm, 1976 wmm ifislfi'i Erró ásamt Vilai Permchit, sam- býliskonu sinni, sem er frá Thai- landi. New-Yorkskrif- stofan, 100x74 cm, 1976, ein af mörgum mynd- um Errós, þar sem Mao for- maður kemur við sögu. þeim öllum. Fylgdíst hann með verkinu frá upphafi, fékk skíssur af uppsetningu þegar þær lágu fyrir í upphafí og síðan bókina uppsetta í heild — og var mjög ánaegður með pað verk. Það sem ég hafði í huga var aö gefa út bók á ensku, fyrir alpjóðlegan markað. Ég lagði mikla vinnu í samband við bóka- forlög í ýmsum löndum og bauð peim samprent, p.e.a.s. útgáfur á mismunandi tungumálum. En Þegar pað komst á dagskrá að Erró sýndi hér á listahátíð 1978 varð Ijóst, að ég yrði helzt að láta bókina koma út samtímis — og var þá tíminn orðinn of naumur til pess a von væri í að ná einhverj- um árangri á erlendum markaði. Því má að sjálfsögðu bæta við að með aðsetur á íslandi er ákaflega erfitt að stofna til og viðhalda góðum samböndum við útgef- endur í meginlandslöndum — og Þarf míkinn tíma og langan til undirbúnings, ef reyna á að koma einhverri bók á framfæri á beim vettvangi. Málið próaöist hins vegar á pá lund að ég ákvað að bjóða íslenzka útgáfu af bókinni inn- lendu forlagi og fór svo aö Almenna bókafélagið, eða öllu heldur Bókaklúbbur AB keypti íslenzku útgáfuna, sem ég fram- leiði fyrir AB samtímis peirri ensku. Bókin Þróaðist Þannig í hönd- unum á mér í allri gerð og frágangi að ógerningur var að framleiða hana hérlendis vegna mikils kostnaðar, leitaði ég víða — og á endanum varö ég að gera upp á milli tveggja prentsmiðja suöur á ítalíu. Önnur peirra var ein af fjölmörgum sem erlendir kollegar mínir í útgáfubransanum höfðu bent mér á, og ég heimsótti í Þessu skyni; hin var prent- smiöja, sem Erró hafði sjálfur haft svolítíl kynni af. i trausti Þess að sú síðarnefnda legði sig fram af alúð vegna kunningsskapar við Erró, valdi ég hana. Þar voru flestar litfilmur gerðar, nokkrar höfðu verið gerðar í Hollandi áður til prufu, en vegna vaxandi kostnaðar Þar varð ég aö hætta við að framleiöa bókina í Hollandi, eins og ég hafði pó ætlað mér áður.“ Um bókina er aö öðru leyti þaö aö segja, að Bragi Ásgeirsson skrifar formála um listamanninn og er þaö vel af hendi leyst eins og allt sem Bragi lætur frá sér fara um myndlistarmálefni. Matthías Johannessen skrifar grein um Erró í bókina á þann hátt sem hönum er lagið og byggir á kynnum sínum af listamanninum sem staöiö hafa allt frá því Erró hélt sýna fyrstu sýningu í Reykja- vík. Gísli B. Björnsson og Edda Sigurðardóttir í Auglýsingastofunni h/f hafa séö um hönnun bókarinn- ar. Bæöi útlit og prentun hafa tekizt eins og bezt veröur á kosiö og af þeim sökum er bókin kjörgripur. Hún er 80 síður, tileinkuö fóstra Errós, Siggeir' á Klaustri og alls hefur hún aö geyma 59 litmyndir af verkum Errós. c.s.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.