Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1980, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1980, Page 9
Hér er Nína við geysistóra vef- mynd, sem hangir á vinnustofu hennar og hún hefur nýlokiö við. hrynja út á götu Nína stendur hér hjé efnismikilli vefmynd, sem hún hefur gert og má vel telja einkennandi fyrir þann stíl, sem hún hefur valiö sér. Fyrir utan garn, snœri og sísal, notar hún nú einnig koparvír í vefinn, sem er á litinn eins og hár listakonunnar. og eiga heima í húsum eða höllum við Avenue Foch, sem gengur út frá Stjörnu- torgi við Sigurbogann. Hefur fólk af þessu tagi veikleika fyrir götunni a tarna og seilist til að kaupa sér íbúöir þar, jafnvel þótt það búi yfirleitt annarsstaðar svo sem Jackie Onassis, sem einusinni var Kennedy. Fransarar hafa annars ágætt heiti yfir svo mikilúðlegar gleöikon- ur, sem ganga milli olíufursta og annarra, allt eftir því hvað veskin þeirra eru bólgin. Þær eru kallaðar „Les Grandes Horisont- ales": Hinar miklu láréttu. Ætlunin var þó ekki að gera þær að umtalsefni hér en víkja að vist Nínu Gautadóttur hjá Rotschild-barónum og þeim bræörum. Ættmóðirin var nefnilega hálfpartinn komin í kör, því náttúran lætur þá sem eru svona gasalega ríkir, hrörna til jafns við hina. Þær voru þarna tvær hjúkrunarkonur viö að hjálpa þeirri gömlu, hátta hana og klæða — og hátta og klæða hundinn hennar, sem gekk pelsklæddur hvunndags. Þetta var mjög einkennilegur og mjög lokaður heimur, segir Nína, og einu sinni fór yfirþjónninn meö hjúkrunarkonurnar í smá skoðúnar- ferö gegnum stofurnar, hvar við blöstu verk eftir Goya og aöra stórmeistara listsögunnar. Það var eins og safn, en safn sem venjulegt fólk lítur aldrei augum. I þessari vist var Nína á fjóröa mánuð og tók tilhlýöilegum framförum í frönsku og fékk smjörþefinn af París. Þá var ekki annað sýnna en hún legði fyrir sig hjúkrun til frambúðar og meö sérnám í huga, brá hún sér til Svíþjóðar. En hún var búin að vera of lengi í París; komin með „blod pá tanden" eins og Danir ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.