Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1980, Page 10
Hjá Nínu Gautadóttur í París:
Hefur sent verölauna-
verk til Islands með
tilliti til þess að taka
þátt í samsýningum
þar — en þeim var
umsvifalaust hafnað.
segja — og þótti Svíar svo leiöinlegir aö
hún kom sér þaðan í burtu meö fyrra
fallinu.
Nína hélt fljótlega aftur til Parísar. Og
nú var svo fyrir henni komið, aö þaö var
ekki bara hjúkrun, sem fyrir henni vakti.
Enda þótt hún hefði ekki í farangrinum
minnstu undirstöðumenntun í myndlist,
reyndi hún á þessum tímamótum að
komast inn í listaskóla í París. En hún var
of sein á feröinni. Hún lét líða ár; skellti
sér í inntökuþróf aö hausti og flaug inn í
Fagurlistaskólann, sem heitir annars
Ecole National Suþiereur de Beaux Arts.
Þar var Nína um tveggja ára skeið í
almennu listnámi og haföi þá komizt á
snoöir um, aö þaö var í rauninni veflist,
sem átti hug hennar. Hún lauk samt þrófi
í málaralist; lærði meira aö segja aö mála
meö tækni gömlu meistaranna, segir hún.
Tilhögunin var þannig innan veggja þess-
arar stofnunar, aö maður valdi sér bara
kennara — og þarmeð vinnustofu. Og
Nína kaus að mála afstrakt. Námslán að
heiman gerði henni kleift aö halda óslitið
áfram og úr veflistardeildinni útskrifaöist
hún 1976. Hún fór annars á hverju ári
heim til íslands á þessu tímabili og tók
þar upp þráöinn; vann viö hjúkrun og hélt
sér viö í þeirri grein. Raunar er ekki
lengra síöan en í haust, að Nína greip í
hjúkrun úti í París en fannst þá sem hún
væri byrjuö að ryöga í faginu. En síöast
kom hún til íslands fyrir tveimur árum, —
og einnig þá vann hún um tíma á
sjúkrahúsi.
En það var bersýnilegt hvert stefndi.
Veflistin varö smám saman fyrirferöar-
meiri í lífi hennar og áhugaefni númer eitt,
— náttúrlega að eiginmanninum undan-
skildum, sem hún sá fyrst fyrir liölega ári,
á gamlárskvöld, þegar áriö 1979 gekk í
garö. Nína segir að hann sé engan veginn
dæmigerður Fransari, hávaxinn, bláeygur
og skolhærður. Hann er verkfræöingur
aö mennt og fer á hjóli til og frá vinnu.
Nína Gautadóttir hefur átt því láni að
fagna, aö geta aö mestu helgað sig list
sinni síðastliðin þrjú ár. Enda þótt hún
megi kallast óþekkt hér, hefur hún tekiö
þátt í fjölmörgum sýningum erlendis —
„svo mörgum, aö ég nenni því ekki
lengur, aö minnsta kosti ekki í sama
mæli, því þaö er svo mikið argaþras og
vesen aö standa í því", segir Nína.
En þaö var óneitanlega uppörvun, aö
hvað eftir annaö seldust verk Nínu á
sýningum. Og það varð henni til frekari
framdráttar, aö 1974 fékk hún franskan
styrk til þess aö Ijúka námi. Seinna fékk
hún reyndar styrk frá ítalíu og fylgdi
honum sú kvöð, aö hún yrði aö koma til
ítalíu og vinna þar á meðan styrksins nyti
viö. Þegar til átti aö taka, höföu einhver
mistök oröiö í skrifstofubákninu hjá
ítölum og styrkurinn — eða hvort það
voru plöggin varöandi hann — týndust í
kerfinu. Allt var þaö þó komið í lag á
nýjan leik og Nína hefur í huga aö fara
þegar tími gefst til Feneyja og dvelja þar
og vinna á meðan hún nýtur styrksins.
Nína býr í Latínuhverfinu í París; raunar
í næstu götu viö Erró. Ekki er þaö ætlunin
aö fjölyrða um aðskiljanlega töfra Latínu-
hverfisins hér, enda geröi ég eitthvaö í þá
veru í samtalsgrein um Erró, sem birtist í
Jólablaöi Lesbókar. Gatan hennar Nínu
er ein af mjóu þvergötunum, sem liggur
útúr breiögötunni St. Germain — og svo
mjó, aö það er ekki meira en svo aö bíll
skríöi þar í gegn. Segir sig sjálft, aö
bílastæöin eru ekki útum allt í því plássi,
enda halda íbúarnir sig viö reiöhjól eöa
mótorhjól, ef þeir á annað borö eiga
sérstök farartæki. Húsin eru eins og
þunnar sneiöar, öll á hæöina og afskap-
lega gömul. Þaö er heldur ekki veriö aö
splæsa í víöáttumikla stigaganga; húsum
af þessu tagi er sameiginlegt, aö þar er
gengið upp örmjóa stiga.
Á þessum staö er Nína búin aö búa í
rúm tvö ár í gamalli og hagstæðri leigu.
Margt virðist skrýtiö í kýrhausum leigu-
samninga í Parísarborg; til dæmis kom
þaö í Ijós, aö þeir sem leigðu Nínu, höfðu
erft leigusamninginn, eöa öllu heldur;
Réttinn til þess aö leigja þetta tiltekna
hús.
Aökoman var ekki kræsileg, þegar
Nína fluttist þangaö og minnir á lýsingar
þeirra manna hérlendra, sem fyrrmeir
voru aö flytjast á eyöibýli. Sú hliö hússins,
sem aö götunni veit, haföi beinlínis
losnað frá og heföi fokið útí buskann í
meiriháttar byljum. Húshliöin hékk uppi
af gömlum vana og þegar rigndi, þá barst
regnvatniö óhindraö innum öll gólf og á
þeim var töluverö skán af aur og bleytu.
Af búskap fyrri leigjenda fara ekki sögur;
trúlega hefur þaö veriö nægjusamt fólk
og laust við kröfugerö. En Nína lét hendur
standa framúr ermum; eftir aö eigandinn
geröi við húshliöina mokaði hún út
skáninni og lét gelda uppí útvegginn og
tjasla honum í sitt rétta far, svo nú heldur
húsiö vatni og vindi.
Eins og tíökast hefur hjá Frönsurum
framundir þetta, var salernið aðeins gat í
gólfinu og þar yfir var sturtan. Nína réöi
íslenzka stúdenta í vinnu; lét setja upp
venjulegt mannsæmandi salerni meö
sturtuklefa, — lét setja upp eldhúsvask
og litla innréttingu, leggja rafmagn og
síöan var heila gilliö málaö. Nú er
sæmilega rúmgott herbergi á neöri hæö-
inni, sem hún notar fyrir stofu; einnig er
þar eldhúskrókurinn og salernið. Svefn-
herbergið er leyst á þann hátt, að
hjónarúmiö stendur uppi á dálitlum palli í
stofunni. Glugginn veit út aö þröngu
götunni og er frekar lítill; engin hlemmi-
birta veröur í þessari íbúö, en Nína hefur
haft lag á því aö gera hana hlýlega og
heimilislega. Eins og ævinlega ræöur
andi húsmóöurinnar úrslitum; hann svífur
yfir þessum vötnum framar öllu ööru og
Nína hefur til að bera svo elskulegt og
eðlilegt viömót, aö manni líður undir eins
vel í návist hennar.
Á hæðinni fyrir ofan er jafn stór stofa
og þar hefur Nína komiö fyrir öllu því
hafurtaski, sem heyrir til veflist og þar var
hún meö stórverk í uppsiglingu: Mynd,
sem var um það bil 3 metrar á breidd og
2 á hæð, — eiginlega skúlptúr eöa
þrívíddarmynd, unna úr sísal, trolltvinna
m v
Myndir Nfnu verða gjarnan efnitmiklar og töluvert þungar. Hér er hún
við vinnu og hefur sett upp andlitsgrfmu til varnar rykinu af þráðunum.
Nína viö vinnu
sína. — Fór í
framhaldsnám til
Svíþjóöar, en
Svíar voru svo
leiöinlegir, að hún
flýtti sér aftur til
Parísar.
Nína Gautadótt-
ir, ung að árum f
föðurhúsum ásamt
foreldrum sínum,
Elfnu Guðjóns-
dóttir og Gauta
Hannessyni og
bræðrum sínum,
Brynjólfi, sem
fórst í bílslyai, og
Skúla.