Lesbók Morgunblaðsins - 30.08.1980, Page 13

Lesbók Morgunblaðsins - 30.08.1980, Page 13
vilja stýröi hann viti sínu og stjórnaöi tilfinningum sínum. Þannig eiga sannmenntaöir menn að vera. Og þannig tókst þessu blásnauða bóndaskáldi aö veröa, þrátt fyrir lærdómsleysi sitt, — og jafnvel, aö því er hann sjálfur segir, vegna þess. Af þessu má mikið læra. En hvaö? í hagsæidarríkjum nútimans, eins og því þjóöfélagi, sem viö íslend- ingar búum nú viö, þykir löng skólaganga — og yfirleitt ókeypis — „Hin æðsta lífs- hamingja'er auðvitað ekki fólgin í velmeg- un og ekki einu sinni í þekkingu. Hón er fólgin í sambandi fólks, sem þykir vænt hvoru um ann- að.“ sjálfsagöur undirbúningur undir ævi- starf. En hugleiðum viö af nægilegri alvöru og einlægni, hver vera eigi ávöxtur þeirrar skólagöngu? Lögö er mikil og sívaxandi áherzla á aö gera unglingum kleift aö laga sig að þjóöfélaginu, gera þá aö nýtum þegnum, kenna þeim aö lifa í félagi viö aöra og þjálfa þá til aöhæfingar aö síbreytilegum aö- stæöum í atvinnulífi og félagslífi. Af mörgum ástæöum sæti þaö sízt á mér aö skorta skilning á því, hve örum breytingum nútímaþjóðfélag tekur og hve nauðsynlegt þaö er, að þegnarnir lagi sig aö þeim meö sem auöveldustum hætti. Engu aö síður kann hinn sívaxandi áhugi á aö gera manninn aö góöri félagsveru aö valda því, aö hitt gleymist, hve mikla nauösyn ber til, aö sérhver maöur sé sjálfum sér nægur, — geti staðið einn, veriö einn og vantað þó ekkert. Hin æösta lífshamingja er auðvit- aö ekki fólgin í velmegun og ekki einu sinni í þekkingu. Hún er fólgin í sambandi fólks, sem þykir vænt hvoru um annað. Maöur og kona öðlast hamingju, foreldrar og börn. Þau, sem þykir vænt hvoru um annaö, hjálpa hvort ööru. En allir menn veröa fyrir því í lífi sínu — ekki einu sinni, heldur oft — aö verða aö standa einir andspænis miklum vanda. Jafnvel fjölskylda og vinir geta þá enga aöstoð veitt. Þá er ekki von, að samfélagið geti þaö heldur. Nóbelsskáldiö Hermann Hesse segir í einu kvæöa sinna: Drum ist kein Wissen Noch Können so gut, Als dass man alles Schwere Alleine tut. Magnús Ásgeirsson þýddi þetta svo: Því er mest um þá þekking vert: Allt hið þyngsta er af einum gert. Því eru auðvitað takmörk sett, hvaö unnt er aö kenna í skóla. Ef til vill geta skólarnir eflt með hverjum manni þann innri styrk, er þarf til aö leysa vanda, sem enginn getur leyst nema maður sjálfur. En jafnvel þótt svo kunni aö vera, ber okkur aö hafa fullan skilning á takmörkunum okkar og gera þær ungu fólki Ijósar. Og höfum viö nægan skilning á því, hversu nauðsynlegt þaö er, aö menn þurfi ekki sífellt á hvers konar félagsskap aö halda? Höfum viö reynt aö kenna ungu fólki aö reyna að vera sjálfu sér nægt og finna í sjálfu sér þau verðmæti, sem gefa lífinu gildi? Oft er sagt, aö ungu fólki leiðist, þaö sé að leita aö tilbreytingu, einhverju nýju, ööru vísi, frumlegu. Sé þetta rétt, ef ungu fólki leiðist, þá held ég, aö hvorki skólar né þjóöfé- lagiö í heild eigi aö bregöast viö þessum leiöa meö því aö skemmta því meira en orðið er. Fremur ætti aö reyna að opna augu ungs fólks fyrir þeim sannindum, sem felast í þeim orðum Halldórs Laxness, aö „leiöin- legt er ekki neitt nema skemmta sér“. Meö þessu er auövitað ekki gert lítið úr gleöinni, lífsgleðinni. Hún er heilbrigöu og hamingjusömu lífi jafn nauðsynleg og velmegun og þekk- ing. En eigi markmiöiö aö vera, aö sérhver maður veröi hamingjusamur, er þá nóg, aö hann njóti hagsældar, aö hann lifi glööu lífi, aö hann búi yfir þekkingu, aö skólaganga hafi lagt þann grundvöll aö ævilangri sjálfs- menntun, sem hún þarf aö gera? Er slíkur einstaklingur fær um aö standa einn og sigrast á því, sem er svo erfitt, að hann einn getur þaö? Sá einstaklingur, sem getur í jafnríkum mæli eflt þroska sinn meö samvistum viö aöra og í einveru, sá einstaklingur, sem á aö geta staöiö einn í lífi og dauöa, veröur aö vera sáttur við sjálfan sig. En sá einn veröur sáttur viö sjálfan sig, sem er sáttur viö Guð. Og sá einn er sáttur viö Guö, þann Guð, sem þessi kirkja þjónar, sem í afstööu sinni til hans efast aldrei, spyr einskis, af því aö hann nýtur náöar hans, þeirrar náöar, sem Kristsmyndin hér yfir altarinu er tákn um. Ef einhver spyrði mig, hvort ég hafi orðið trúhneigður á fullorðinsár- um, þá svaraði ég, aö þaö heföi ég alltaf veriö. Þaö á ég aö þakka manni, sem aldrei talaði viö mig um trúmál, heldur kenndi mér latínu og rómverskar fornmenntir, þegar barni aö aldri. Séra Friðrik Friöriksson var nánasti vinur fööur míns á bernsku- og unglingsárum mínum. Hann lét sér mjög annt um mig og sinnti mér mikið. Ég heyrði hann og marga aðra auövitað tala um trú sina á fundum í KFUM og söng þar söngva hans. Samt held ég aö þaö hafi einkum verið hann sjálfur, meö sérhverju því, er hann sagöi og gerði, sem ósjálf- rátt beindi fótum mínum upp á þaö bjarg, sem síðan hefur ekki bifast, þaö bjarg, þar sem staðiö verður einn, í sátt viö Guö og sjálfan sig. Þáö eru greinilega háskólamenn, sem skapa Ijóðtískuna í landinu. Fyrir nokkrum vikum hóf limran fyrir alvöru innreiö sína á síður Morgunblaösins — og þar meö í þjóöarsálina. — Og nú er þaö svokallað sentó, ég breyti stafsetn- ingunni, svo aö ég geti þó eitthvaö lagt til málanna. Fyrir nokkrum árum varö Þorsteinn heitinn Valdemarsson alþjóð- lega vinsæll fyrir limrur sínar, ekki síst fyrir þá um Vilmundarvitiö. En þaö er einmitt læröur maöur af vilmundarættinni, sem nú nýlega, þegar Þorsteinn er látinn, hefur hlaupiö undir limrubaggann. Og þaö er líka hann, sem axlar sentóiö á skemmtilegan hátt. Þar er gerður rímaöur fjórtánfótungur meö þeim hætti aö raöa af smekkvís- legri hugkvæmni saman Ijóölínum eftir fjórtán skáld af klassískri gerö, sakar ekki aö þeir séu fyrir lögnu gengnir á vit feðra sinna og helst þurfa þeir aö vera háskólagengnir. En myndu nú nokkrir menn þess umkomnir aö hafa slík bókmenntaleg áhrif á íslandi á vorum dögum, sem hér um getur, ef ekki væri fyrir í landinu þó nokkurt magn af háborgaralegu klass- ísku lærdómssnobbi? Þjóöviljamenn voru fljótir aö taka við sér, þegar limrurnar komust í tísku í Mogganum. Ætli viö höfum ekki séö eitt eöa tvö sentó eftir róttæku heimilis- blaðamennina okkar, áöur en vetrar- stormarnir hefjast? Nú mega menn ekki halda, aö ég sé aö hneykslast á því, þótt andlegt samband sé á milli þeirra, sem rita í háttvísi að sitjá ekki cf lengi. Því mætti bæta viö nú, aö lögjafi gerir ekki ráö fyrir aö leikhússtjóri Þjóöleikhúss sitji lengur en átta ár í einu. Leikhússtjóri leikfélagsins í Reykjavík fór eftir þessari reglu, ennfremur hefur dagskrárstjóri sjónvarpsins hafnaö ellisetu. Ég held aö fleiri ættu aö fara aö dæmi þessarra manna, lofa nýjum og ungum mönnum aö komast aö. En þetta þarf allt aö tryggja með lagasetningu, þar sem því verður viö komiö. Menn temja sér ritkæki, og halda aö þaö sé frumleiki. Blaöamenn og fjöl- miðlaliöar eru mjög aö skreyta mál sitt meö orötækjum, en kunna ekki alltaf meö aö fara. í gær var sagt í fréttum, aö íþróttalið íslenskt, sem keppti í Dan- mörku, heföi gert garðinn frægan. Hér heföi smekkvís íslenskumaöur komist öðruvísi að oröi. Maöur fer ekki til útlanda meö garö til þess aö gera hann frægan. Þá eiga aðrar líkingar betur viö. Fyrir skömmu var verið aö segja frá refarækt og þannig komist aö oröi aö maöur gat haldið aö hægt væri að flá refina, án þess aö lóga þeim, líkt og ær eru rúnar á hausti. í annarri frétt var alltaf talaö um að pelsa í staö þess aö Hnarreist og útskeift gekk skáldið niður Skólavöróustvg hægri og vinstri blöö á islandi. Nei, slíkt ætti einmitt aö gera mönnum auöveld- ara aö skilja hvor aðra. En ég er aö auglýsa eftir örlítiö meiri frumleik í hugsun. Það er gott og blessað aö þekkja eins og sína tíu fingur alla klassíkina frá elstu skáldum frummenn- ingar til Jónasar Svafárs. En hitt er verra, að geta ekki gert sér grein fyrir því hvaöa nýjungamenn eru bullarar, leirhnoöarar og ruglukollar, hvort sem þeir ríma eöa ekki. Sumir halda, aö allt sé gott sem stendur í hljóöstaf, aörir sjá ekki neinn mun á því, sem órímað er, halda aö þaö sé stórsnjallt aö skrifa pulsa í staö pylsa og prenta & í staðinn fyrir og. I þætti fyrir skömmu fór ég nokkrum gagnrýnisoröum um æviráðna ritstjóra bókrtienntarita — og ritdómara dag- blaöa, sem kunna sér ekkert hóf í miskiiinni elskusemi viö nýgræöinga. Satt að $egja var ég meö böggum hildar, þegar ég haföi skilaö handriti. Eftir eina andvökunótt reis ég upp og ætlaöi aö milda orö mín ögn. En á leiöinni til ritstjóra Lesbókar varö ég fyrir líkamlegu áfalli, sem fylgir sjúk- dómi sem eltir mig. Þegar ég reis af beöi var allt um seinan aö breyta hljómi minna skrifuöu oröa. En þessi pistill, sem ég nú skrifa, er kannski eftirhreyt- ur, og þó öllu heldur árétting þess sem áöur er ritaö. Ég fagnaöi því þar, aö forseti vor sem þá var, skyldi sýna þá flá, sagt tæfur í staöinn fyrir læöur. En tæfa er gælunafn á tóu, án þess aö tiltekið sé kyn. Siguröur Grímsson rithöfundur sagöi oft sögur af kynnum sínum af Einari skáldi Benediktssyni, sem hann dáöi mjög, sá þó á honum hans mannlegu og stundum barnalegu hliöar. Á blaöa- mennskuárum Einars í Reykjavík var Siguröur hans hægri hönd um tíma, þá námsmaður. Skáldinu hætti til aö fá sér hressilega í staupinu, en vildi helst ekki auglýsa þann veikleika sinn meö reikulu göngulagi. Einhverju sinni, þegar Einar var þéttkenndur sagöi hann við Sigurð: Nú er ég búinn aö finna gott ráö. Ef maöur gengur bara hnarreistur og útskeifur sér þaö enginn á göngulaginu að maður sé drukkinn. — Svo reis hann úr sæti sínu og hélt niöur Skólavörðu- stíginn, bætti Siguröur viö og hló. Allir sneru sér viö og störöu á skáldiö. Þessi saga kemur mér stundum í hug, þegar ég sé rithöfunda og blaöa- menn vera meö tilgerö og látalæti í stíl og frásagnargerö. Meö tlllæröum kækj- um og mannalátum eru þeir oft aö fela vankunnáttu sína, vekja óþarfa eftirtekt á því, sem þeir helst vilja fela. Mönnum veröur starsýnt á vankanta þeirra og hafa þá aö háöi og spotti. — Þetta getur komiö fyrir stórgáfaöa og skemmtilega menn, — en líka fyrir bjána. Jón úr Vör.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.