Lesbók Morgunblaðsins - 29.08.1981, Side 8
Horft yfir U-ið á milli blokkanna tveggja og raðhúsanna. Myndin er tekin daginn
sem sumarhátíðin var haldin og mannskapurinn er að gæða sér á pylsum og öðru
góðgæti handan við sandkassann.
LEIK-
Spröngukaðallinn og áhuga-
maður um sprang.
Björn Kristleifsson arkitekt, einn íbú-
anna, hefur verið einn helsti forgöngumað-
ur um framkvæmdir og hannaði þetta
sameiginlega leiksvæöi. Hann var beðinn
að rekja nokkuð gang mála og segja frá því
hvernig aö þessu verki var staðið, ef vera
mætti öðrum viö líkar aðstæður til eftir-
breytni.
„Byggingaframkvæmdir hófust við húsin
hér í u-inu árið 1974. Samkvæmt skipu-
lagsskilmálum áttu húsbyggjendur hér að
standa saman aö bílhýsi og þessari lóð
sem myndaöist milli húsanna. Auk húsfé-
lags sem stofnað var í hverju fjölbýlishús-
anna samkvæmt landslögum var líka
komið á laggirnar húsfélagi fyrir öll húsin
og í stjórn þess er einn fulltrúi úr hverju
húsi. Bílhýsið var vegna legu fyrst gert
fokhelt en því var ætlaður neðri kjallari
annars fjölbýlishússins. Síðan hefur frá-
gangur þess og framkvæmdir við sameig-
inlegu lóöina potast áfram samhliða.
Varðandi lóðina má segja að strax hafi
tekist mjög góð samstaða meðal íbúanna
og jákvæö afstaða til sameiginlegrar vinnu.
Fyrst í stað var fenginn garð-hönnuður til
að gera tillögur um lóðina. Hann skilaöi
sínum tillögum þar sem gert var ráö fyrir
gróðurreitum með hefðbundnum leiktækj-
um á milli. íbúunum á þessum „harðbýla"
stað þótti hins vegar vænlegra að koma til
gróðri á einkalóðum við húsin og að ekki
veitti af sameiginlegu leiksvæði sem þyldi
mikinn ágang fyrir alla aldurshópa. Því var
ný tillaga samin þar sem skilgreindar voru
sérstaklega þarfir allra aldurshópa, hún var
síðan samþykkt og framkvæmdir hófust
fljótlega.
Þeim var þannig skipt:
A. Malbikaður var völlur fyrir boltaleiki og
komiö fyrir tækjum: körfum og mörk-
um, og ráðgert að nota völlinn fyrir
skautaíþróttir á vetrum. Þeirri hliö sem
að umferðargötunni snýr, var lokað
Ilér er sprangað eins og í Vestmannaeyjum. Rennibrautin til vinstri. Sandkassinn í
forgrunni.
FYRIR
ALLA
Breiðholtshverfin hafa veriö hálfgert
olnbogabarn í hugum fólks á undanförnum
árum hvað umhverfi varðar — þau eldri
hafa þó tekiö miklum stakkaskiptum víða
upp á síðkastið og sums staðar hefur veriö
gert verulegt átak við frágang utanhúss,
bæði viö einbýlis- og fjölbýlishús. Sömu-
leiðis hefur töluvert verið gróðursett af
trjám á vegum garðyrkjustjóra borgarinn-
ar, en slíkt gefur öllu umhverfi hlýlegri og
menningarlegri blæ.
Minna hefur þó farið fyrir því að hugsað
væri fyrir útileiksvæði barna en skyldi.
Menn mega aka þar lengi um götur án þess
að nokkuð slíkt beri fyrir augu. Afgirtir
gæsluvellir fyrir ung börn eru þó nokkrir og
gera sitt gagn en lítt eða ekkert hugsaö
fyrir opnum leiksvæðum fyrir eldri börn og
unglinga ef frá eru taldir nokkrir illa hirtir
sparkvellir.
Það vekur því athygli vegfarenda sem
leið eiga um Engjasel þar sem við augum
blasir sérlega vandað og af hugvitssemi
hannað útileiksvæöi við fjölbýlis- og raðhús
nr. 52.—68. Þar hafa íbúarnir staðið aö
myndarlegum framkvæmdum og sést þar,
hverju koma má til leiðar með góðum
undirbúningi, hnitmiðaðri skipulagningu og
jákvæðri samstöðu íbúa.
Þarna er um að ræða tvö tveggja ganga
fjölbýlishús og fimm íbúða raðhús, 29
íbúðir í allt. Þessi hús eru þannig niður sett
að á milli þeirra verður u-myndað opið
svæði sem er sameign íbúöanna allra en
auk þess tilheyrir hverju húsanna dágóö
einkalóð.
Og íslenski fáninn blaktir við hún.
ALDURSHÓPA
SVÆÐI
8