Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1982, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1982, Qupperneq 9
Svo lá þetta nú niöri um skeið þegar fjárhagur sjónvarpsins versnaði, en hann hefur eitthvað batnað, og nú standa vonir til, að myndin veröi sýnd með vorinu. — Hvað þýðir það í peningum, að sjón- varpið taki myndina til sýninga? Stendur það undir kostnaöi hennar? — Nei, því miður. Eins og samningum kvikmyndagerðarmanna við sjónvarp er háttað nú, greiðir sjónvarpið um 40% af sannanlegum kostnaöi við gerð kvikmynd- ar, sm það kaupir af kvikmyndageröar- mönnum utan stofnunarinnar, og þá að því tilskyldu að um frumsýningu myndar sé að ræða. Kvikmyndagerðarmenn sitja eftir sem áður með 60% kostnaöarins á sínum herðum. En ef sjónvarpiö kaupir myndina á annað borð, er ef til vill möguleiki á að hún verði höfð í skiptum fyrir aðrar myndir frá hinum Norðurlöndunum, og við höfum frekar trú á þvi aö svo verði. Og þá horfir strax betur að minnsta kosti peningalega. En eins og þetta dæmi blasir við, þá er það Ijóst að það tekur langan tíma aö ná endum saman, og það eina, sem er í raun- inni hægt að gera, er að bíða eftir því að myndin nái smám saman út, til íslenska sjónvarpins, til erlendra sjónvarpsstöðva; og greiöslur koma því vonandi smátt og smátt. En auðvitað er þetta mikil óvissa, sem ræður ríkjum. — En er þá í raun nokkur grundvöllur fyrir íslenska kvikmyndageröarmenn aö gera stuttar leiknar kvikmyndir upp á þessi býtti? — Ef íslenska sjónvarpið er opið fyrir því aö versla við einkaaöila í kvikmynda- gerö, þá er auövitaö grundvöllur fyrir styttri myndum. En þaö gildir auövitað í þessu sem öðru, að nauðsynlegt reynist að sníöa stakkinn eftir vextinum. Meira að segja þeir, sem hafa gert íslensku stórmyndirnar á undanförnum árum, eru að verða ragir við að legja í fleiri slíkar. Það sjónarmið hefur komið fram, að markaðurinn sé mett- aöur í bili, og að aðsókn að annarri stór- mynd á borö viö Útlagann myndi bregöast. Þá er auövitaö grundvöllur fyrir styttri myndum, sem ekki er kostað eins mikiö til og hentar þeim aöilum sem hafa ekki mikið fjármagn á bak við sig. — Hvernig finnst ykkur þá að ættí að standa að uppbyggngu íslenskrar kvik- myndagerðar? — Það er ákveöin stefnumótun í gangi um þessar mundir. Það er verið að undir- búa kvikmyndalöggjöf, og í undirbúnings- nefndinni á sæti meðal annarra fulltrúi kvikmyndagerðarmanna. Það hlýtur að veröa ofan á hér, einsog hjá öllum öðrum þjóöum sem meta kvlk- myndagerð einhvers, aö þeir sem glíma við kvikmyndagerö hafi aðgang að sjóðum og hagstæöum lánum til aö fjármagna gerð sinna mynda. Vandinn var aö búa til tekju- Rætt viö Ernst Kettler og Pál Steingrímsson í Kvik um tilurö myndarinnar og um kvikmyndagerö almennt hér á landi. ir ekki aö standa að í eigin nafni, en gæti hins vegar frekar keypt. Svo et því auðvitað ekki að leyna, að ef íslensk kvikmyndagerð ætti vísa markaöi á hinum Norðurlöndunum, í Evrópu og jafn- vel Kanada, þá mætti gera hér hvaða kvikmynd sem vera skal. En þaö er auövit- að mikiö happdrætti, hvort svo veröur, og hvort hægt sé að treysta á eitthvað þess- háttar í öllum tilvikum. — Þið segið aö kvikmyndagerðarmenn geti fengist við myndir, sem sjónvarpiö geti ekki eða þori ekki aö gera. Hvaö eig- iö þiö þar viö? Þýöir eitthvað fyrir kvik- myndagerðarmenn aö fást viö þaö, sem sjónvarpið leggur ekki nafn sitt viö? — Jú, einmitt þess vegna. Þarna er opinn stórmarkaður fyrir íslenska kvik- myndagerð. Við höfum núna íslenska sjón- varpið annars vegar, og hins vegar eru stóru kvikmyndirnar, 35 mm kvikmyndirn- ar, sem sýndar eru í kvikmyndahúsunum. Þetta er auðvitað tvennt ólíkt. En það er hægt að gera margs konar myndir, skemmtilegar jafnt og alvarlegar, á stuttum tíma og með minni tilkostnaöi en gengur og gerist. Styrkur slíkra mynda gæti til dæmis verið aö þær tækju fyrir dægurmál eða eitthvað í þeim dúr — og þá er ekki ónýtt að hafa myndbandavæöing- una í huga. — Og gera þá kannski revíur, sem yröu seldar í myndbandakerfin? — Til dæmis, já. — En svo viö víkjum aftur að „Sess- elju“: Eruð þiö ánægöir með árangurinn? — Já, að minnsta kosti vorum við ánægðir þegar við sáum árangurinn í heild sinni í fyrsta sinn, og við erum ekki orðnir leiðir á að skoða hana aftur og aftur, eins og við höfum gert býsna oft. Við erum heldur ekki frá því, að þeir sem stóðu að myndinni með okkur séu ánægðir með árangurinn. Þetta er að visu ekki venjuleg mynd i þeim skilningi að menn geti slappað af viö að horfa á hana; hún býður ekki upp á hraða atburðarás eða eitthvað í þeim dúr. En þeir sem nenna aö fylgjast meö þessum tveimur persónum, sem myndin segir frá og hlusta á það, sem þær segja, fá trúlega nokkuö mikiiö fyrir sinn snúð. — Jsj SJÁ NÆSTU SÍÐU í fjörunni viö Festarfjall. Þorsteinn og selurinn, sem þarna kemur viö sögu. stofn, sem stæði undir stórum hluta kostn- aöarins, en það mun hafa orðiö ofan á aö taka vissan hluta af verði hvers aögöngu- miöa aö kvikmyndahúsum. Þannig ætti aö nást það markmið, sem stefnt er að: aö lána til kvikmyndagerðar helming þess kostnaðar, sem gert er ráö fyrir i upphafi, og halda að auki opnum frekari lánmögu- leikum. Með þessu yrði auövitað stór hluti vandans leystur, því styrkveitingar hingaö til hafa eingöngu verið sparðatíningur, og numiö kannski 5% endanlegs kostnaðar. — Hvaö teljiö þiö að markaöurinn hér geti tekið margar íslenskar kvikmyndir? Er aösókn nægilega mikil til aö meirihluti kvikmynda, sem hér eru sýndar, gæti ver- iö íslenskar? — Það er ótrúlegur fjandi, hvaö íslend- ingar eru sólgnir í islenskar myndir. Við erum ekki nema 230.000 manna þjóðfélag, en samt eru seldir 80.000 aðgöngumiöar á Land ,og syni. Og þótt megi vissulega merkja einhvern afturkipp í aðgöngumiða- sölu, þá er hún engu að síður gríöarlega mikil, þegar íslenskar myndir eru annars vegar. Aðsóknin á áreiöanlega eftir aö jafna sig aðeins út meö tímanum — og þá er mikils um vert aö gleyma ekki styttri myndunum. Það er ábyggilega mikil framtíö í því aö gera stuttar skemmtimyndir, t.d. fljótunnar og ódýrar. Sjálfstæðir kvikmyndagerðar- menn geta fengist viö myndir, sem íslenska sjónvarpið annað hvort getur ekki eöa þor- Leikstjórinn bregður sér á bak við kvikmyndatökuvélina. Beðið eftir að allt veröi klárt til töku, en þótt sumar sé, getur orðiö napurt undir Festarfjalli. 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.