Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1983, Page 7
Það virðist hiutskipti æði margra í nútímanum að búa í blokkum,
hvort heldur það er á íslandi eða í Ulan Bator, borg í Mongólíu, sem
hér sést yfir.
Á íjarlægum og framandi slóðum, þar sem vfðsýnið skín eins og á
íslandi: Hér er komið útí Gobi-eyðimörkina þar sem kameldýrið er
þarfasti þjónninn, en bændafólkið er klætt á hefðbundinn hátt.
„Fénaður dreifir sér um græna haga“ við útjaðar Gobi-
eyðimerkurinnar, en það eru ekki lagðprúðar sauðkind-
ur sem hér eru reknar, heldur geitahjörð.
Af Mongólíubúum eru 10% Múhameðstrúar og virðast fá að iðka trú
sína. Hér er bænasamkoma í Ulan Bator.
1
4
I
I
;
4
i
<
4
4
i
i
i
ur voru skoðaðar. í Helsingfors
hafði ég í hálfgerðu hugsunar-
leysi keypt njósnasögu eftir
Helen Mclnnes. Þegar ég fór að
lesa hana komst ég að því, að
þar var vikið lítillega að ein-
hverjum illverkum Rússa. Auð-
vitað var þessi bók skoðuð sér-
staklega. Ég sagði, að þeir
mættu eiga hana. Hún gekk frá
einum til annars. Loks komst
hún í hendur einhvers, sem
kunni eitthvað í ensku og hann
rétti mér hana með velþóknun.
Heppni ef vatn
kom úr krana
Mongólía var hápunktur ferð-
arinnar. Við flugum frá Irkutsk
til Ulan Bator. Heiti höfuðborg-
arinnar þýðir Rauða hetjan,
kölluð eftir Sukhe Bator (sukhe
þýðir hetja), sem leiddi þjóðina
úr niðurlægingu til kommún-
isma og nútímans árið 1924.
Ulan Bator er eftirlíking af
borg, eins og verða vill þegar til-
teknu þróunarstigi efnahagslífs
er náð. Þar er rafmagn framleitt
úr kolum, sem mikið er af í
landinu. Þar eru reisulegar
byggingar og verksmiðjur. Fólk
á götunum er í vestrænum föt-
um, og umferðin er mikil. Ég
hlýt að dást að því hverju Mong-
ólíumenn hafa komið til leiðar,
en þetta er fremur land framtíð-
ar en nútíðar. Byggingar eru
jafnvel óvandaðri en í Sovétríkj-
unum. Það mátti kallast heppni
ef vatn kom úr krönunum, og
lyfturnar gengu ekki. Matsalur-
inn var gríðarstór og skraut-
laus. Á litlu sviði var risastór
plötuspilari og frá honum hellt-
ist yfir mann rokkmúsík strax
við morgunverðarborðið. And-
stætt því, sem tíðkaðist í Rúss-
landi, var þjónustan lipur og vel
skipulögð. Hinir fjölmörgu
ferðamenn frá Evrópu, Sovét-
ríkjunum og Ameríku hlutu
góða umönnun.
Mongólía er þrisvar sinnum
stærri en Frakkland (1.565.000
ferkílómetrar). Þar eru 25 millj-
ónir hrossa, sauðfjár, úlfalda,
geita og nautgripa, en íbúarnir
eru aðeins 1,6 milljónir. Mong-
ólía er á miðju hina mikla meg-
inlandi og liggur að meðaltali
l. 580 metra yfir sjó. Þar er því
fremur kalt. Meðalhitinn í Ulan
Bator er undir frostmarki.
í janúar fer frostið í Gobi
niður í -i-50 gráður C. Þar getur
l:ka verið 40 gráðu hiti á sumr-
in. Veðurfar í Mongólíu er þurrt.
Meðalársúrkoman er 200—220
mm. Sólskinsdagar eru 260 á ári
hverju.
Saga Mongólíu er löng, og
stundum snertir hún Evrópu-
söguna. Elztu minjar mannvist-
ar þar eru frá því um 8000 f.Kr.
Ymsar þjóðir hafa farið þar um,
m. a. Húnar sem á velmektar-
dögum sínum á stjórnarárum
Atla Húnakóngs á fimmtu öld
réðust inn í Ítalíu. Um árið 500
að voru tímatali breiddist búdd-
ismi og kristindómur til Mong-
ólíu, og þar var tekið upp forn-
mongólskt eða armajiskt ritmál.
Árið 1206 beygði hinn mikli kon-
ungur, Djengis Khan, marga
ættbálka undir sig og mongólsk-
ir herir lögðu undir sig og eyddu
löndum allt til Þýzkalands. „Hin
leynda saga Mongólanna" lýsir
þessum blóðugu átökum. Þar
segir: „Stjörnuhimnarnir hrynja
þegar þjóðirnar mola hver
aðra ... Sleppur nokkur við .
pest stríðsins?" Kublai Khan
var ættfaðir Yuan-konungsætt-
arinnar í Kína og flutti höfuð-
borgina til Beijing (Peking).
Þangað kom Marco Polo
(1275—1292). Síðar hnignaði
veldi Mongóla og frá 1691 til
1911 hnepptu Mansjúar Mong-
óla í hálfgildings þrældóm.
Hrun mansjúveldisins og aðstoð
Rússakeisara og síðar kommún-
ista hjálpaði Mongólum til að
stofna kommúnískt lýðveldi.
Flókatjöld
og neonljós
Það var dagsferð í áætlunar-
bíl til Terelj. Leiðin lá yfir grasi
vaxnar hæðir með trjám með-
fram ánum. Terelj var skoplegt
sambland af fornlegum flóka-
tjöldum (jurt) og gríðarmiklum
neonljósum með nafni bæjarins.
Flókatjaldið, eða ger eins og það
kallast á mongólsku, er mesta
völundarsmíð. Það samanstend-
ur af rimlagrind, sem fest er
kringum kringlótt trégólf.
Dyrnar eru málaðar í björtum
litum. Sperrur halda þakinu
uppi, og skýli yfir dyrunum, sem
fest er á tvær stengur. Þykkar
flókamottur eru festar utan á
rimlana og bæði að utan og að
innan er tjaldað hvítu bómull-
arteppi. Á dögum Djengis
Khans var silki notað í innri
tjöldin. Öll er þessi bygging
mjög stöðug í stormi, og þar sem
allt tjaldið vegur aðeins 240 kg
er hægt að koma því öllu á einn
úlfalda. Hægt er að setja slíkt
tjald upp á 30—60 mínútum. í
miðju tjaldinu er borð, og fjögur
rúmstæði eru við veggi þess. Þar
eru fleiri húsgögn. Það var
rúmgott í þessum tjöldum og
nægilegt rými til að ganga um
gólf og teygja úr sér. Þegar kalt
var hitaði ofn í miðju tjaldinu
upp.
Framh. á bls. 15.
7