Lesbók Morgunblaðsins - 07.05.1983, Blaðsíða 14
BÍLAR
1983
Toyo-Kogyo, sem er þriðji
bílaframleiðandinn í Japan, er
einkar gott dæmi um það, á
hverju Japanir luma fyrir kom-
andi tíma. Þetta fyrirtæki býður
samtímis upp á þrjár gerðir
bílmótora, það er að segja
hefðbundinn dísilmótor, benz-
ínmótor og svo líka wankel-
mótor. Toyo-Kogyo lagði fjár-
hagslega næstum því allt í söl-
urnar í kringum 1970, þegar þeir
höfðu í hyggju að setja wankel-
mótora í alla sína Mazda-bíla, i
staðinn fyrir venjulega benz-
ínmótora. En þegar benzínverð-
ið tók að þjóta upp á árunum
1973—1974 fór Mazda, búin
benzínfrekri wankel-vél, að selj-
ast stöðugt verr og verr. Toyo
tók því aftur upp benzínmótora
af hefðbundinni gerð í allar sín-
ar gerðir af Mazda, nema í
sportbílnum Mazda RX-7, þar
sem álitið var, að aukin benzín-
notkun skipti eigendur slíkra
bíla engu máli.
Frá þessum tíma hafa komið
fram verulegar endurbætur á
wankel-mótornum, sem gerir
það að verkum, að hann eyðir
orðið þriðjungi minna benzíni
en áður. Að áliti forstjóra
Toyo-Kogyo, Kenichi Yamam-
oto, sem hefur yfirumsjón með
öllum tæknilegum endurbótum
innan fyrirtækisins, á wankel-
mótorinn eftir að verða ennþá
sparneytnari innan skamms.
í lok ágústmánaðar í fyrra
var svo stigið enn eitt mikilvægt
framfaraspor í þróun wankel-
mótorsins, þegar Toyo-Kogyo lét
setja wankel-mótor með for-
þjöppu í nýja útgáfu af 2-dyra
sportbílnum Cosmo. Þessi bíll
hefur lægsta vindstuðul af öll-
um bílum; hann kemst upp í 195
km hraða á klst., og hefur þar
með skipað Toyo-Kogyo-verk-
smiðjunum í flokk framleiðenda
hinna vönduðustu og hrað-
skreiðustu lúxusbíla.
Bandaríkin
Þeir bandarísku bílaframleið-
endur, sem flytja framleiðslu
sína út til annarra landa, eru
stöðugt á höttunum bæði eftir
landfræðilega líklegum mark-
aðssvæðum og áberandi glopp-
um í framboði þannig bílgerða
erlendis, sem bifreiðir með hin-
um einstaka ameríska gæða-
stimpli fyrir útlit, afl og end-
ingu ættu auðvelt með að fylla
upp í-
Ef American Motor Company
tekst það, sem þeir hafa í
hyggju, verða bátar, hross og
málmhýsi til sumardavlar bráð-
lega dregin hratt og örugglega
eftir þjóðvegum Evrópu með
CJ7-jeppanum frá AMC, en
Willies-jeppinn er enn við lýði og mjög vinsæll, en tilheyrir American Motors síðan 1970 og heitir AMC CJ 7,
fáanlegur með grind og blæju, eða húsi. Þrátt fyrir nýjar tegundir sambærilegra bfla hefur jeppinn tekið litlum
breytingum.
Margar gerðir
með drifi á öllum
hann er smíðaður í Bandaríkj-
unum og búinn benzínmótor frá
Renault-verksmiðj unum
frönsku.
Salan á CJ7-jeppanum frá
AMC hefur gengið það vel í
Frakklandi og í Belgíu síðastlið-
ið ár, að Ted Clare, varaforstjóri
alþjóðamarkaðsdeildarinnar hjá
AMC-verksmiðjunum, reiknar
fastlega með um það bil 50%
hlutdeild CJ7-jeppans á þessu
ári í franska og belgíska mark-
aðinum fyrir bíla með drif á öll-
um hjólum.
Clare segir þessu til frekari
skýringar: „Úr því að franskir
viðskiptavinir okkar vita af
Greinileg japönsk áhrif: Ný og minni gerð af Bronco, sem auðkennd er með
II, hefur tekið mið af Toyota Hilux og er 500 kg léttari en stóri Broncoinn.
Drif á öllum er ævinlega á Bronco II.
því að seljast illa á Evrópu-
markaðinum. Salan á þessum
bíl gekk mjög vel fyrst framan
af en féll svo næstum alveg
niður, þegar líða tók á árið,
framleiðendum til mikillar
undrunar.
Ef einhverjar breytingar
verða á hinu háa skráða gengi
bandaríska dollarans í hag-
stæðari átt fyrir bandarísk út-
flutningsfyrirtæki á þessu ári,
gera GM-verksmiðjurnar sér
góðar vonir um að salan á Cam-
aro Z28-E og Pontiac Firebird,
sem kom á markaðinn fyrir
skömmu, eigi eftir að ganga
mun betur árið 1983.
AMC-verksmiðjurnar hafa
byrjað að reyna fyrir sér á alveg
nýjum miðum með léttbyggðum
pick-up, CJ10, en hann er með
fjögurra strokka vél og er fyrsti
bíllinn, sem AMC raunverulega
hannar með alþjóðlegan markað
fyrir augum, en þessari bílgerð
er greinilega ætlað að standast
hinum allsráðandi FJ45 frá Toy-
ota fullkomlega snúning. Fram-
leiðsla CJ10 hófst á miðju síð-
asta ári, og er þessum bíl ætlað
að komast leiðar sinnar við hin
erfiðustu skilyrði, jafnt á léleg-
ustu vegum sem utan vegar,
hvort sem um er að ræða járn-
námur í Ástralíu, frumskóga á
Borneo eða aðrar álíka vegleys-
ur. En baráttan um markaðina
er AMC afar erfið, á meðan jap-
anska yenið er skráð lágt en
Bandaríkjadollari hins vegar
mjög hátt.
Útflutningsdeild General
Motors-verksmiðjanna bindur
miklar vonir við nýja smækkaða
gerð af sterkbyggðum Blazer,
sem hannaður er sérstaklega
fyrir þá, sem vilja eiga þægi-
legan bíl með drifi á öllum hjól-
um og reynist jafn þægilegur og
lipur í innanbæjarakstri og á
lélegum vegum, sem ýmist geta
verið sendnir, blautir og forugir
Sem utanvegabfll þykir Blazerinn nokkuð þunglamalegur og því hefur GM
smíðað minni útgáfu af Blazer, sem auðkennd er með S og ekki með drifi á
öllum, nema það sé pantað sérstaklega.
Fyrst nú uppá síðkastíð hafa Japanir náð því marki f bflahönnun, að svipmót-
ið er þeirra eigið og ekki hnuplað frá Ameríku eða Evrópu. Til eru japanskir
bflar, sem teljast framúrskarandi vel teiknaðir og þar er Honda Prelude í
fremstu röð.
Renault-bifreiðasölum á næsta
leiti, finnst þeim, að þeir séu
miklu öruggari með að fá góða
viðgerðaþjónustu fyrir amer-
ísku jeppana sína. Þetta atriði
hefur skipt meginmáli í sölu CJ7
í Frakklandi. Renault er einnig
byrjaður að selja CJ7-jeppann í
Bretlandi og Þýzkalandi.
Af þeim milljónum manna í
Mið-Austurlöndum, sem árlega
fara í pílagrímsför til Mekka og
Medina, aka allmargar þúsundir
í GM Suburban, en það er rúm-
góður, sterkbyggður skutbíll,
sem tekur auðveldlega níu
manns í sæti og hefur góða
loftkælingu eða hitun, eftir því
sem við á.
General Motors hafa með
65% upp í 70% markaðshlut-
deild í Mið-Austurlöndum lang-
samlega sterkustu stöðuna á
þessum slóðum, en það eru aðal-
lega GM-gerðirnar Chevrolet
Caprice, Buick Park Avenue og
Oldsmobile 98, sem eiga heið-
urinn af þeim góða árangri.
En burtséð frá þessum ljósu
punktum urðu bandarískir bif-
reiðaútflytjendur fyrir miklum
skakkaföllum síðastliðið ár, og
má að nokkru leyti rekja þann
samdrátt til óhagstæðrar skrán-
ingar bandaríska dollarans á
erlendum peningamörkuðum.
Útflutningsdeild General Mot-
ors-verksmiðjanna, NAVO, varð
að sætta sig við þetta 10% til
12% minni útflutning árið 1982,
en árið áður hafði útflutningur
fyrirtækisins aukizt allnokkuð.
Nýja GM-gerðin, Camaro
Z28-E, sem er klassískur amer-
ískur bíll með vissum endurbót-
um með tilliti til sölu á erlend-
um mörkuðum, hafði í fyrstu
hlotið hinar beztu viðtökur á al-
þjóðlegu bílasýningunni í Genf í
fyrra, en olli svo GM-verksmiðj-
unum sárum vonbrigðum með
eða hálir af snjó, brattir og
krókóttir.
John Beck, varaforstjóri út-
flutningsdeildar General Mot-
ors, hefur þetta að segja til frek-
ari skýringar á stöðu mála:
„Þetta er spurningin um það,
hvort við séum nægilega slyngir
til að koma auga á hið sérstaka
notagildi bílanna okkar á ein-
staklega mismunandi erfiðum
landsvæðum víða um heim, og
við erum stöðugt að reyna fyrir
okkur í þessum efnum. Ég held
annars, að við séum að verða
slyngari með hverjum deginum,
sem líður."