Lesbók Morgunblaðsins - 09.11.1985, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 09.11.1985, Blaðsíða 7
magasári". Hann hefur alltaf lagt ríka áherzlu á að vinna og viðhalda hylli fjöld- ans með leikrænum tilburðum. Með báðar hendur hátt á lofti er hann alltaf með á myndinni, ekki sízt fyrir framan sjón- varpstökumyndavélina, hvort sem um er að ræða skrúðgöngur um götur borgarinn- ar og við hátíðleg tækifæri af ýmsu tagi eða þegar eitthvað hefur farið verulega úrskeiðis í stórborginni, eins og þegar víðtæk verkföll lömuðu allt samgöngukerfi borgarinnar fyrir nokkrum árum. Þá geng- ur borgarstjórinn um göturnar í fylgd fjölmiðlamanna og spyr íbúana í borginni sinni: „Hvernig lízt þér á þetta hjá mér?“ og þeir svara með viðeigandi brosi á vör: „Bara vel“. Edward Koch er sonur gyðingahjóna, sem fluttust til Bandaríkjanna frá Pól- landi. Á unga aldri vann hann fyrir sér sem skósali, áður en hann tók að hafa afskipti af stjórnmálum. Þegar hann var kjörinn borgarstjóri var hann þegar orðinn þingmaður í Washington fyrir demókrata og í þeirri stöðu fékk hann orð á sig fyrir að vera frjálslyndur í skoðunum á flestum málefnum. Sem borgarstjóri hefur hann gerzt greinilega hægrisinnaður og sparar ekki púðrið í orðatiltækjum sínum þegar hann til dæmis segir í sjálfsævisögunni (1984) álit sitt á „hinum róttækari armi“ innan Demókrataflokksins: „Þeir eru langflestir bara fávísir, illa uppfræddir, gjörsamlega bernskir að þroska, hugsunarsnauðir eða blátt áfram nautheimskir — reglulega „stúpíde“.“ í kosningunum til borgarstjórnar fyrir fjórum árum var Koch frambjóðandi bæði Demókrataflokksins og repúblikana, og gefur það nokkra hugmynd um, hve víð- tækt fylgi hans er og pólitísk ítök margvís- leg í borginni. Langminnstra vinsælda nýtur Koch meðal blökkumanna í New York, en sú óánægja hefur þó enn ekki náð að verða svo sterkt pólitískt afl, að hún sé nokkur veruleg ógnun við styrka stöðu hans. í þetta skipti hefur Edward Koch þó ekki leitað eftir því að verða einnig útnefndur frambjóðandi repúblikana til embættis borgarstjóra og á hann að minnsta kosti þremur mótframbjóðendum að mæta í kosningunum. Einn þessara frambjóðenda er forseti borgarráðs, frú Carol Bellamy, sem lengi hefur verið póli- tískur keppinautur Kochs. í bók sinni „Borgarstjórinn" lýsir hann á sinn ljúf- mannlega hátt áliti sínu á hæfileikum hennar og atgervi sem „alveg einstakri hörmung" og „skelfingar-fyrirbrigði". 300 ÞÚSUND NÝIR VlNNUSTAÐIR Þrátt fyrir góða útkomu í skoðanakönn- unum að undanförnu hefur Edward Koch eins og hans er jafnan vandi, haldið uppi harðvítugri og umfangsmikilli kosninga- baráttu. Hann leggur auðvitað framar öllu áherzlu á þann árangur, sem náðst hefur á ýmsum sviðum á því nær átta ára tíma- bili, sem hann hefur verið við völd í New York-borg. Hann bendir á þá staðreynd, að í hans stjórnartíð hafí bætzt við 300.000 nýir vinnustaðir í New York. Nýir skýjakljúfar rísa upp á Manhattan-eyju svo ótt og títt, að margir hafa áhyggjur af því síaukna álagi, sem þessi nýju háhýsi valda á samgöngukerfí miðborgarinnar, og á raf- magns- og vatnsveituna. Borgarstjórinn lítur hins vegar á þessi nýju stórhýsi, sem að mestu hafa skrifstofur og gifurlega íburðarmiklar einkaíbúðir innan sinna veggja, sem staðfestingu á þeim nýja lífs- þrótti, sem gripið hafí um sig í New York á síðustu árum. Innan byggingariðnaðar- ins nýtur Koch að sjálfsögðu hinna mestu vinsælda. I framboðsræðum sínum hefur Koch jafnan bent á, að ibúatala New York er aftur tekin að vaxa eftir langvarandi fækkun á árunum 1970 og fram til 1980, þegar um ein milljón New York-búa flutti búferlum úr borginni. Það sem mestu máli skiptir er þó sú staðreynd, að efnahagur borgarinnar stendur nú með meiri blóma og fastari fótum en verið hefur um langt skeið. „Okkur hefur tekizt að koma á jafnvægi í fjárhagsáætlunum borgarinnar um það bil einu og hálfu ári fyrr en við höfðum áður gert okkur vonir um og áætlað, og siðastliðin fimm ár hefur fjárhagsáætlunin staðizt ár hvert," segir einn af samstarfs- mönnum Kochs í borgarstjórn. „New York er orðin ein af fjárhagslega styrkustu borgunum í Bandaríkjunum eða ef til vill í öllum heiminum," bendir Koch borgarstjóri gjarnan á; og þegar kosningar standa fyrir dyrum bætir hann fúslega við: „Og við ætlum okkur að verða ennþá öflugri á fjárhagssviðinu." Nýjar aðferðir við lyfjagjafir Vísindamenn á sviði fjölliða efnafræði og lyfjafræði hafa tekið höndum saman til að reyna að leysa meiri- háttar vandamál varð- andi lyfjagjafir: Hvernig hægt sé að hafa ákveðið, fast magn af lyfi í líkam- anum, án þess að það sé gefið með vissu millibili í ákveðnu magni. Árangurinn hefur orðið vaxandi fjölbreytni, hvað snertir aðferðir við lyfjagjafir með plasttöflum, ígræðslu og plástrum, en með þeim er hægt að auka áhrifamátt lyfs, um leið og óæskilegar hliðar- verkanir minnka eða hverfa. Lyfjaframleiðendur hafa tekið hin- um nýju aðferðum með opnum örmum. Varanlega verkandi eða sívirk lyf við ferðaveiki, hjartakveisu og augnsjúk- dómnum gláku eru þegar á markaði og mörg önnur hafa verið reynd. „Ég hef aldrei vitað nýrri tækni fagnað jafn- innilega og þessari,“ segir Bonnie Burdett, talsmaður Alza í Kaliforníu, eins fyrsta fyrirtækisins, sem fram- leiddi slík lyf. Ein ástæðan til þessarar hrifningar er sú, að öruggar aðferðir við lyfjagjaf- ir af þessu tagi hafa verið lengi á leið- inni. Þeirra hefur verið beðið með óþreyju. Á meira en hundrað árum hafa litlar breytingar orðið á því, hvernig lyf hafa verið gefin. Sjúklingi hefur verið gefin skammtur af lyfi með reglulegu millibili, til dæmis á fjögurra tíma fresti. Hvað flest lyf varðar, er þessi tilhögun fullnægjandi. En í öðr- um tilfellum koma aftur á móti upp alvarleg vandamál. Skömmu eftir lyfjagjöfina eru áhrifin í hámarki, en dvína svo niður í núll. Við hámarks- áhrif geta sum lyf verið hættuleg, en skömmu síðar eru þau orðin of dauf til að gagn sé að. Hinum nýju aðferðum, sem byggðar eru á fjölliðum, er ætlað að útiloka hin- ar miklu sveiflur, sem bundnar eru við tímasettar meðalagjafir í formi taflna, hylkja, sprauta eða nefúðunar. Þannig ættu þær að draga mjög úr hliðarverk- unum ýmissa lyfja eða jafnvel að koma með öllu í veg fyrir þær. Ennfremur munu hinar nýju aðferðir koma sér- staklega vel að haldi viö inntöku lyfja, sem framleidd eru með erfðatækni. „Án þessara aðferða myndi líkaminn draga of fljótt úr áhrifamætti þessara lyfja til þess að hægt væri að nota þau fyrir sakir of mikils kostnaðar," segir Robert Langer, lífefnafræðingur hjá MIT. nálarlaus Sprautun Þó að ekki séu liðin nema um 15 ár, síðan hinar varanlegu eða sívirku með- alagjafir komu til sögunnar, hafa yfir tíu aðferðir verið reyndar og teknar í notkun, og sumum þeirra hefur þegar verið beitt við lyf, sem nú eru á mark- aði. Ein af hinum fyrstu var „Trans- derm system" frá fyrirtækinu Alza, en þar er um að ræða lyfjagjöf gegnum húðina án sprautu með þeim ókostum, sem henni fylgja, sársaukanum og sveiflukenndri verkun lyfsins. Transderm plásturinn er samsettur af ógegndræpu yzta borði, lyfjahylki, hálfgegndræpri himnu og sérstöku lími, sem ekki á að valda ofnæmi, til að festa plásturinn við húðina. Plásturinn gefur frá sér stöðugan skammt af lyfi gegnum heila húðina og beint inn í blóðrásina. Það er mikilvægur kostur við slíka aðferð sem þessa, að lyfið fer framhjá meltingarkerfinu og eina ferð um lík- amann, áður en það kemur I lifrina. Lifrin gerir mörg lyf efnafræðilega óvirk, og þess vegna verður að gefa þau í nægilega stórum skömmtum til að tryggja lækningamátt þeirra. Talsmaður Alza segir, að hina innri hálfgegndræpu himnu, sem gerð er úr fjölliða efni og bundin einkaleyfi, sé hægt að framleiða eftir þörfum, þannig að hún hleypi í gegn tilskyldu magni af hvaða lyfi sem væri stöðugt og örugg- lega. En aðrir eru ekki eins vissir um það, og sumir vísindamenn telja víst, að hvað sum lyf snerti, ráði húðin sjálf mestu um lyfjagjöfina, en ekki himnan. Deilurnar um mikilvægi hinnar hálf- gegndræpu himnu hafa þó ekki komið í veg fyrir það, að lyfjaframleiðandi, Ciba-Geigy, beitti aðferð Alza við lyf, sem nú eru á markaði, gegn hjarta- kveisu og ferðaveiki (sjó-, bíl- og flug- veiki). Transderm-Scop inniheldur scopolamine, lyf, sem lengi hefur verið þekkt sem vörn gegn ferðaveiki. í venjulegu formi getur þetta lyf haft alvarlegar hliðarverkanir, valdið áköf- um hjartslætti, rugli og ofskynjunum. En engar óhagstæðar aukaverkanir hafa komið í ljós við læknisfræðilegar tilraunir, þegar lyfið hefur verið gefið gegnum húðina með ofangreindri að- ferð. Frekari tilraunir við Stanford- háskóla í Bandaríkjunum og Ríkisspít- alann í Osló leiddu í ljós, að Trans- derm-Scop, sem aðeins fæst gegn lyf- seðli, væri áhrifameira en lyfin Dram- amine og Bonine, sem frjáls sala er á. Að auki dugar plástur bak við eyrað í þrjá daga. Áhafnir geimferjunnar nota lyfið reglulega. Sami lyfjaframleiðandi er nú að gera tilraunir m.a. méð plást- ur, sem hefur að geyma lyf gegn of háum blóðþrýtingi. Lyfjagjöf Með Ígræðslu Þar sem öll lyf komast ekki gegnum húðina, hafa R. Langer og samstarfs- menn hans við MIT og Barnaspítalann í Boston þróað töflur með varanlegri .............. verkun, sem komið er fyrir undan húð- inni, þar sem þær geta gefið frá sér ýmis lyf, svo sem insúlín, vaxtarhor- móna, interferon, blóðstorkunarlyf, hvata og jafnvel mótefni og bóluefni, í meira en ár. Það var fyrir tíu árum að R. Langer og Judah Folkman uppgötvuðu, hvernig hægt væri að nota fjölliðaefni í þessu skyni. Fjölliða (polymer) er heiti ým- issa gerviefna úr stórsameindum, sem myndazt hafa við samröðun smásam- einda af einni eða fleiri gerðum. Hinir tveir vísindamenn hafa síðan unnið að því að hagnýta þessa uppgötvun og náð svo góðum árangri, að þeir búast við, að lyfjagjafir með þessum hætti fyrir menn muni hefjast innan örfárra ára. Töflur, sem þeir hafa notað við tilraun- ir á dýrum, hafa aðeins verið á stærð við hálfa matarbaun, en getað sinnt lyfjagjöf reglulega og stöðugt um langt skeið. VENJULEG Inntaka Þótt lyfjagjafir gegnum húðina og undir henni hafi sína kosti, hafa þó flestar rannsóknir á þessu sviði miðazt við það, að hin varanlega verkandi lyf yrðu tekin inn á venjulegan hátt gegn- um munninn. Sú aðferð hefur þann kost fram yfir allar aðrar, að sjúkling- um er hún eðlilegust og þeir fella sig bezt við hana. En meginvandamál vís- indamanna, sem halda sig við þennan kost, er það, að innihald meltingarfær- anna getur haft mjög mikil áhrif á lyfjagjöfina. En vísindamenn virðast þó hafa fundið lausn á því máli, sem er mjög sérstök. Hún er byggð á þeirri staðreynd, að þótt innihald maga og þarma sé mismunandi, þá er heildar- safn jóna (fareinda) merkilega stöðugt. Telja vísindamenn því, að með tiltölu- lega einföldum jónskiptum megi byggja upp kerfi, sem tryggi stöðuga lyfjagjöf. En í hinni víðtæku og margþættu leit vísindamanna að öruggari og áhrifa- meiri lyfjum og aðferðum við lyfjagjaf- ir eru fjölliða kerfin, sem að framan hefur verið lítillega lýst, aðeins lítill kafli i mikilli sögu. Allt öðruvísi að- ferðum verður sennilega beitt gagnvart ýmsum sjúkdómum, og til að mynda má búast við ígræðanlegri insúlíndælu að minnsta kosti í sumum sykursýkis- tilfellum. En fjölliða lyfin munu vafalaust eiga stóra hlutdeild í markaðnum á næstu árum og út þennan áratug vegna þess hve þau eru einföld, ódýr og líkleg til vinsælda meðal sjúklinga. Því er spáð að væntanlega muni gífurlegur fjöldil nýrra lyfja koma á markaðinn á næstu fjórum til fimm árum. En þótt þau muni verða mismunandi áhrifamikil og útbreiðsla sumra verði takmörkuð, þá boða þau nýja áfanga á réttri leið til léttis fyrir hrjáð mannkyn. (l»ýö. SVÁ) LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 9. NÖVEMBER 1985

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.