Lesbók Morgunblaðsins - 09.11.1985, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 09.11.1985, Blaðsíða 11
Heima Helga Krabbe í gamla herberginu sínu á efri hæð bússins Tjarnargötu 40. Ókuferð í hestvagni sem tekinn var á leigu hjá Nikolai Bjarnasyni sumarið 1913. Helga Krabbe situr við blið ekils. A myndinni eru líka frú Anna Kirk og sonurhennar. Útreiðatúr sumarið 1913. Á myndinni eru frá vinstri: Anna Kirk, Knut Zim- sen, Margarethe Krabbe, N.P. Kirk verkfræðingur (bann vann við byggingu Reykjavíkurhafnar), Flora Zimsen og Georgia Björnsson. t var töluð danska Besti leikvöllur okkar krakkanna var á stóru túni á milli okkar og Ráðherrabústaðarins, milli Tjarnargötu og Suðurgötu. Það var dálítið mishæðótt og því vel fallið til vetrar- leikja, á skíðum og sleða. Betri skíðabrekka var þó á milli Ráðherrabústaðarins og Tjarnargötu 28, en þeir sem æfðastir voru á skíðum fóru upp á Hólavallatún eða suður í Öskjuhlíð. Á túninu miðju var stór og mikill timburstafli, þar sem við gátum klifrað um allt og hreiðrað um okkur með „dótið" okkar og dúkkur. Timburstaflinn stóð þar til Laxdalshús var byggt, en þá fengum við að leika okkur þar á meðan á byggingunni stóð. Við sníktum meðal annars kítti hjá málurunum og bjuggum til allskonar „fígúrur" úr því, en ekki er mér kunnugt um að nein listamennska hafi sprottið upp úr þeim tilraunum. Stóru krakkarnir voru oft í boltaleik á túninu eða á götunni á kvöldin, þegar ég fékk loks að vera með (en ég var þeirra yngst) var ég látin vera „stikkfrí" til að byrja með, þ.e.a.s. allt var talið ómark sem ég gerði og þótti mér hin mesta smán að því. Hart þótti mér líka að vera kölluð inn, að dönskum sið, á vissum tíma til að fara að hátta, en hinir krakkarnir fengu að vera eins lengi og þeir vildu. Leikfélagar mínir hófu skólagöngu á undan mér og þá leiddist mér að vera ein, en þegar þar að kom fór ég í Landakotsskólann. Það þótti manni nokkrum hin mesta óráðsía og sagði við pabba: „Hvernig dettur yður í hug að senda barnið í Landakot og borga fjórar krónur á mánuði þegar hægt er að fá ókeypis kennslu í Barnaskólanum?" Ég var í 8 ár í Landakotsskóla og var afskaplega ánægð þar og þótti vænt um nunnurnar. Ég hef fram á þennan dag haldið sambandi við skólasystur úr Landakoti, þær voru Æskuár í upphafi aldar Helga Krabbe rifjar upp gamlar Reykjavikurminningar Eftir Bergljótu Ingólfsdóttur Síðari hluti Tvær konur — tvennskonar brott- för: Helga Krabbe, ung að árum, með stúdentshúfuna sína og komin um borð í Gullfoss á leið til Kaupmanna- hafnar 28. ágúst 1924. Viðbliðhenn- ar stendur fremur sorgbitin kona, sem raunar er þarna að kveðja ísland og halda utan alfarin: ToveKjarval, eigin- kona Jóhannesar S. Kjarval. Undir handriðinu sér í ungan svein. Það er Sveinn Kjarval, sonur þeirra. flestar danskar eða norskar í að minnsta kosti aðra ættina, nú búsettar hérlendis, í Danmörku og Noregi. Pabbi lagði mikla áherslu á að ég lærði vel bæði íslensku og dönsku og blandaði ekki málunum saman. Ég hafði þó fyrst framan af dálítið takmarkaðan orðaforða á íslensku, eins og glöggt kom fram daginn sem bárust fréttir um að heimsstyrjöldin fyrri væri skollin á. Jón frændi minn, kona hans og tvö börn voru í heimsókn hjá okkur þegar þetta var, þau hjónin ásamt foreldr- um mínum voru í boði hjá Klemens Jóns- syni landritara í Tjarnargötu 22 þegar fréttatilkynning frá Morgunblaðinu var borin í hús. Á tilkynningunni voru orð eins og fregnmiði, styrjöld, safna liði o.s.frv. og ég skildi alls ekki hvað þar stóð, frænd- systkinum mínum til mikillar undrunar. Við urðum því að bíða í óþreyju eftir full- orðna fólkinu til að fá skýringu á þessu, en þau komu snemma heim vegna þessarar fréttar. Það er svo af Jóni frænda að segja, að hann flýtti för sinni heim til Danmerkur með fjölskylduna vegna stríðsins. Heima fyrir var töluð danska og áður en ég varð læs var lesið upphátt á kvöldin ýmsar sögur, amma las á dönsku og mamma á sænsku, á meðan við sátum með handavinnu. í frístundum sínum batt mamma inn bækur. Á sunnudögum fórum við oft í heimsókn- ir eða gestir komu með börn sín til okkar. Alltaf þótti mér hátíð að koma til, eða fá í heimsókn, Knud Zimsen í Gimli og leika mér við Ingibjörgu dóttur hans. Hún fór því miður í Barnaskólann en ég í Landakot, en vinskpurinn hélst alla tíð þar til hún lést skyndilega á heimili dóttur minnar í Englandi, þegar viði vorum þar í heimsókn árið 1979. Vinafólk foreldra minna bjó í Gróðrar- stöðinni við Laufásveg og það þótti heil- mikið ferðalag fyrir krakka að fara þangað í heimsókn, enda ekki komin Tjarnarbrú. Stelpur voru allar klæddar kjólum á þessum tíma og í heimaprjónaða sokka, gráa, svarta eða brúna. Skórnir voru reim- aðir eða hnepptir. Annar skófatnaður voru gúmmístígvél, sem keypt voru í Skóverslun Lárusar G. Lúðvígssonar. Ég var tvö sumur í sveit að Kiðjabergi í Grímsnesi og hafði mikla ánægju af. Landsvitarnir áttu 5-10 hesta, sem voru 1 sveit á veturna en geymdir inn við Rauð- arárstíg á sumrin hjá manni sem hét Gunnlaugur. Hann kom með hestana til okkar á sunnudögum og þeim var hleypt í túnið þangað til við fórum í reiðtúr út á LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 9. NÖVEMBER 1985 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.