Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1986, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1986, Blaðsíða 3
LESBOK HDHSlSlllSBlAlliaBSIl] Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoö- arritstjóri: Björn Bjarnason. Ritstjórnarfulltr.: Gísli Sigurðsson. Auglýsingar: Baldvin Jóns- son. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 10100. Forsíðan er mynd af málverki Tolla (Þorláks Krist- inssonar) sem hann nefnir Strandir og er af útsýni norður yfir Hornbjarg. Tolli er einn af yngri kynslóðinni í myndlist og má nú segja að sagan endurtaki sig, því einmitt í árdaga íslenzkrar málaralistar leituðust menn við að mála víðfeðmt útsýni til fjalla — en þá var afstaðan rómantísk og útkoman ólík. Þessi mynd er birt í til- efni samtals við Tolla úm veru hans í Berlín og sitthvað fleira. Valsakóngurinn Robert Stolz var sá síðasti í röðinni, en var mikilvirkur og dó 95 ára. Kannski er hann ekki mjög kunnur hér persónulega, en íslendingar þekkja án efa fjölda hinna skemmtilegu laga hans. Við segj um f rá Robert Stolz í tilefni Vínarkvölds Sinfón- íunnar, þar sem leikin verður tónlist eftir hann. heyra til hitabeltinu og eru mun öflugri og hættulegri náttúrufyrirbæri en íslenzkt fárviðri, þegar veðurhæð nær 12 vindstig- um. Trausti Jónsson leiðir lesendur í allan sannleika um þessa árlegu vágesti á heit- um, suðlægum ströndum, þegar ósköpin geta fárið upp í 17 vindstig. Skjöldungar eru meðal næstu nágranna okkar, en við þekkjum næstalítið til þeirra. Skjöldungar búa við Skjöldungsfjörðinn á austanverðu Grænlandi, þar sem Guðni Þorsteinsson og fleiri voru við tilraunaveiðar og er annar hluti þeirrar frásagnar birtur hér. Fellibyljir JEVGÉNÍ JEVTÚSJENKO Skilnaður Geir Kristjánsson þýddi úr rússnesku Fótspor írökum snjó, breiðgata, fannbarinn sporvagn, lausleg snerting hanska og síðan í flýti: — Far vel! Éggeng bein tafa ugum, dofinn, þaðerlogn, og snjóflyksur svífa. Núna beygt fyrir horn, núna inngangurinn í neðanjarðarstöðina skerandi birta, og loðhúfan þiðnar. Égstend í léttum dragsúgi, horfi inn íjarðgöngin, troðfull af myrkri, snerti við marmarasúlu, finn kuldann íhendinni. Það erys, og allskonar fólk að fara — Og enn á égjafn erfitt með að skilja, að ekki varð neitt úrneinu oggat ekki orðið... (1956) Jevgéní Jevtúsjenko er fæddur 1933 og er einna þekktastur hinna yngri Sovétskálda. I hræöslubandalagi við sjálfan sig Að gefnu tilefni langar mig að segja ykkur fal- lega sögu, sem bráðum er 40 ára gömul, en hefur að vísu þann galla að hún gerðist ekki, ekki í al- vöru, nema bara fyrri hlutinnaf henni. Kosið var til Alþingis árið 1946. íslend- ingar bjuggu þá að nýlegri kjördæmabreyt- ingu. Hún hafði verið gerð fjórum árum áður, jafnaði raunar ekki til neinnar hlítar vægi atkvæða eftir kjördæmum, en með 11 uppbótarsætum dugði hún ennþá nokk- urn veginn til þess að samræma þingstyrk og kjörfylgi flokkanna yfir landið. Hinir 20 þingmenn Sjálfstæðisflokksins, 19 kjör- dæmakjörnir og einn til uppbótar, af 52 þingmönnum alls, voru t.d. í þokkalegu samræmi við 39,4% kjörfylgi flokksins yfir landið. En skugga ber á sé nánar að gætt. Um 45% kjósenda bjuggu í þremur kjördæmum suðvesturhornsins, Reykjavík, Hafnarfirði og Gullbringu- og Kjósarsýslu. Af þeim kusu nálægt 45% Sjálfstæðisflokkinn. Kjósendur hans í þessum landshluta voru með öðrum orðum um 20% kjósenda á landinu öllu og hefðu eftir réttum hlut- föllum átt að hafa 10 þingmenn. En þeir höfðu bara sex. Fjóra í Reykjavík, engan í Hafnarfirði, Ólaf Thors í Gullbringu- og Kjósarsýslu og Bjarna Benediktsson upp- bótarþingmann. Sæti Bjarna var meira að segja allt annað en tryggt. Ef Alþýðuflokk- urinn hefði verið búinn að glopra niður meirihlutanum á ísafirði — eins og hann gerði sjö árum síðar — þá hefði Sjálfstæð- isflokkurinn bætt við sig kjördæmakjörn- um manni og misst uppbótarsætið. Bjarni hefði líka verið mjög naumlega inni ef Lúðvík Jósepsson hefði ekki, aldrei slíku vant, náð kjördæmakjöri í Suður-Múla- sýslu. Þarna voru sem sagt 20% kjósenda í gjörvöllu landinu, með raunverulegan rétt til 10 þingsæta, fullt af hinum ágætustu frambjóðendum, en ekki nema 5 þingsæti örugg og hið sjötta ótryggt. Allar stöfuðu þrengingar þessar og óréttur af því meinlega ranglæti, að f lokks- systkin þessara kjósenda í öðrum lands- hlutum höfðu mjög góða atkvæðanýtingu, mikið af þingsætum í fámennum ein- menningskjördæmum og gulltryggt annað sætið í fjórum tvímenningskjördæmum, þótt Framsókn ætti þar miklu meira fylgi. Hér lýkur sögunni eins og hún gerðist, en hitt tekur við sem gerðist ekki. Auðvitað hefði Sjálfstæðisflokkurinn ekki þurft að una þessum örlögum. Hann hefði getað gert „hræðslubandalag við sjálfan sig“ eins og það er kallað nú um stundir, boðiö fram undir sérstöku nafni og bókstaf í umrædd- um þremur kjördæmum. T.d. kallað sig Sjálfstæðisflokkinn (kenndan við þingsæti handa sjálfum sér) og boðið fram undir listabókstafnum Þ (sem í hljóðfræðinni hefur sömu afstöðu til D og F hefur til B). Sjálfsætisflokkurinn hefði þá átt rétt til uppbótarsæta án tillits til atkvæðanýt- ingar Sjálfstæðisflokksins úti á landi. Og sjá, hann hefði umsvifalaust átt rétt á fjór- um uppbótarsætum í stað eins. (Kannski hefði þurft lagabreytingu til að hljóta fleiri en eitt í sama kjördæminu.) Alþýðuflokk- urinn hefði misst eitt og Sósíalistaflokkur- inn tvö. Sjálfstæðisflokkurinn úti á landi hefði einskis í misst. Hann hefði verið búinn að leysa sín vandamál á kostnað andstæðinganna (og réttlætisins, hvað varðar hlutföll flokkanna á þingi, en rétt- lætið er ekki til umræðu rétt í bili). Raunar hefði að sumu leyti verið klókast fyrir Sjálfsætisflokkinn að bjóða ekki að- eins fram á sínu eigin landshorni, heldur hefði hann átt að bjóða fram í stað gamla Sjálfstæðisflokksins í nokkrum öðrum kjör- dæmum þar sem lítil von var um þingsæti hvort eð var. T.d. Þingeyjarsýslum, Múla- sýslum, Austur-Skaftafellssýslu, Vestur- ísafjarðarsýslu, Mýrasýslu. Slík lánskjör- dæmi hefðu ekki þurft að færa honum nema rétt liðlega 1000 atkvæði alls til þess að fella annan uppbótarmann af Alþýðu- flokknum og ná fullum kvóta, tíu þingsæt- um. Sjálfstæðisflokkurinn úti á landi hefðu engu að síður haldið sínum 14 sætum (277o þingsæta út á 16 eða 17% atkvæða, en sú tegund af ranglæti er ekki til umræðu í þessum pistli). Ég hef spurst fyrir, en ekki getaö komist að því að neitt í þessa_átt hafi svo mikið sem hvarflað að forráðamönnum Sjálf- stæðisflokksins. Ekki einu sinni ungum sjálfstæðismönnum. Já, tíminn breytist og mennirnir með. HELGI SKÚLI KJARTANSSON LESBOK MORGUNBLAOSINS 11. JANÚAR 1986 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.