Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1988, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1988, Page 10
í Sjálfsmynd eftir Gunnlaug Scheving Sjálfsmynd eftir Louisu Matthíasdóttur Sjálfsmyndir á Kjarvalsstöðum Fyrir viku hófst á Kjarvalsstöðum sýning á sjálfsmyndum íslenzkra myndlistarmanna, allt frá Sigurði málara á síðustu öld til yngstu kynslóðarinnar. Þetta er meira að vöxtum en við hefði mátt búast; margt vel þekkt, en sem betur fer sumt sem ekki hefur sést áður og er hnýsilegt. Hér er víða farið út fyrir þá skilgreiningu, að portret hafi þá líkingu við fyrirmyndina, að þekkjanlegt ,sé. Með öðrum orðum; sé „dókúment" varðandi útlitið á viðkomandi persónu. Hugtak- ið sjálfsmynd virðist vera mjög teygjanlegt. Listamaður gæti þessvegna lagt fram mynd af fígúru úr fantasíu eins og Helgi Þorgils Friðjónsson og sagt; Þetta er ég. Eða hann gæti málað sjálfan sig með gersamlega framandlegt og ókunnuglegt andlit. Það verður víst bara að taka því; við lifum á tímum þegar allt er leyfilegt í listinni. Því fylg- ir óhjákvæmilega, að hægt er að sleppa „billega" eins og Danir segja. _ Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson og Ásgrímur Jónsson máluðu svo frábærar sjálfsmyndir, að flest af því sem síðan hefur verið gert, fellur í skuggann. Þama er lítil og óþekkt sjálfsmynd Asgríms, framúrskarandi vel máluð, en kannski eru myndir Jóns Stefánssonar beztar; unnar með miskunnar- lausri sjálfsgagnrýni og af frábærri tilfinningu, sem óhætt er að segja að skari afskaplega mikið framúr sjálfsmjmdum hinna yngri á þessari sýningu. í svipuðum gæðaflokki, en ólíkar að vinnubrögðum, eru mörg portret Nínu Tryggvad- óttur og sjálfsmynd hennar þar á meðal. Af því sem sýnt er eftir núlifandi myndlistarfólk, er sjálfsmynd Sveins Bjömssonar eftirminnilega góð og lík höfundinum þrátt fyrir grófleikann. Bæði sú mynd og sjálfs- mynd Einars Hákonarsonar sýna verulega stílfærslu, sem „gengur upp“ og sama má að sjálfsögðu segja um mynd Louisu Matthíasdóttur. Framlag þeirra sem em undir fer- tugu gerir sýninguna flölbreyttari, en dregur meðaltalið í gæðalegu tilliti niður. Kannski er það merkasta við sýning- una, að hún brýnir myndlistarmenn til að vanrækja ekki sjálfsmyndina, sem öldum saman hefur þótt sjálfsagt við- fangseftii. Má minna á, að tímunum saman gaumgæfðu sumir afburðamenn listasögunnar einkum andlitið á sjálfum sér og skráðu ferli hnignunar og elli á miskunnarlausan hátt; einkum var Rembrandt þetta hugleikið. Með því eftir- minnilegasta frá hendi van Goghs em sjálfsmyndir hans og á þessari öld hefur Chagall verið atkvæðamikill í þessari grein, svo og Egon Schiele frá Austurríki sem túlkaði sjálf- an sig á óvenjulega miskunnarlausan hátt. Sjálfskoðun af því tagi er sjaldgæf hjá íslenzkum listarmönnum og ef hún kemur fram á sýningunni á Kjarvalsstöðum, þá er það einna heízt í sjálfsmynd Jóhönnu Kristínar Yngvadóttur. GS. 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.