Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1988, Blaðsíða 17
Steinn í glöðum hópi á ferðakaupstefnunni í London í desember síðastliðnum. Talið frá vinstri:
Jóhann D. Jónasson, Óiafur Egilsson sendiherra íslands í Bretlandi, Anna Margrét Jónsdóttir
ungfrú ísland, Birgir Þorgilsson frá Ferðamálaráði ís!ands,Tómas Karlsson utanríkisþjónustu
og fyrir miðju er Steinn Lárusson.
Handbók finnska Ferðamála-
ráðsins
nátta út á veiðar í gegnum ís, í
febrúar-mars.
í Noregi og Svíþjóð er mest
aukning í helgarferðum. Fólk sem
fer í helgarferð eyðir margfalt
meira á dag en fólk sem ætlar
sér lengri tíma. Eins til tveggja
daga farþegar borga sig best —
kaupa ailt á einni nóttu. Við erum
líka farin að fá gesti á litlar ráð-
stefnur í miðri viku sem er mjög
góð þróun.
En það þarf að byggja upp
helgar- og ráðstefnuhópferðir frá
Bretlandi líka. Við eigum að byrja
á að ná helgarferðum og fá fólk
í framhaldi af þeim tii að ferðast
í miðri viku. Gistingin í Reykjavík
yrði nýtt mest til að byija með,
en umferðin gæti færst smám
saman út á landsbyggðina, austur
fyrir fjall, upp í Borgames og
áfram.
— Ertu ekki hræddur við
síðustu verðhækkanir?
— Tuttugu prósent verðhækk-.
un og þar yfír er skelfileg fyrir
markaðinn og setur beyg í alla
sem eru að vinna að íslenskum
ferðamálum. Svona verðhækkanir
bitna oft á samgönguaðilanum
sem liggur fyrstur við höggi er-
lendis. Hann er píndur meira,
bæði til að koma inn í auglýs-
ingaáróður og til að halda niðri
verði. En hækkanimar eru mestar
innanlands, bæði á fæði og gist-
ingu, rútum og bflaleigum. Það
er aðeins gert ráð fyrir um 5-6%
hækkun á flugfargjöldum.
— Vantar Island ekki sterka
ímynd — sterkt auglýsingaslag-
orð sambærilegt við finnska
slagorðið - efst á hnettinum?
— Útflutningsráð var að veita
verðlaun fyrir orðtakið - íslenskt
veit á gott - sem er óþýðanlegt
yfir á alþjóðlegt mál. Vissulega
vantar okkur sterkt auglýsinga-
slagorð sem nær yfir allt íslenskt
og alla markaðssetningu okkar —
landbúnaðarafurðir — landslag —
veðurfar — viðmót fólksins — fisk-
inn — þjónustu. ímyndin þarf að
höfða til ferskleika, tærleika og
mengunarleysis. Mér dettur í hug
enska orðið „crystalclear".
Hvað viltu segja um væntan-
legt flug SAS til Islands?
— SAS-menn telja sig ekki
nógu stóra til að standast sam-
keppni í framtíðinni og em að
leita að samstarfi við flugfélög
út um allan heim. Þetta hlýtur
að vekja okkur Flugleiðamenn til
umhugsunar um hvaða möguleika
við höfum, ef flugfélag sem er
tuttugu sinnum stærra, telur sig
of lítið.
Nú er ljóst að SAS mun hefja
flug til íslands í vor. Sagt hefur
verið í grini, þar sem SAS innrit-
ar alla okkar farþega, að þeir
fylgist nákvæmlega með samsetn-
ingu á farþegum í hverri vél. Þeir
vita hvað margir farþegar fara
frá Bergen, frá Osló og hafa fylgst
með síbatnandi sætanýtingu.
Önnur flugfélög á Norðurlöndum
em líka á höttunum eftir svona
flugleiðum sem SAS nýtir sér
ekki. Þegar þetta tvennt er skoðað
í samhengi er ekki skrítið þó að
þeir hafi ákveðið að hefja íslands-
flug aftur.
Stærsta vandamál Flugleiða
em seinkanir á Atlantshafsflug-
inu. Áætlun vélanna er svo þétt
að ekkert má út af bera. En við
emm að bæta við flugvélakostinn
og reynum alltaf að bæta okkar
þjónustu. Ferðafjöldinn miili Evr-
ópu og íslands er samt okkar
sterkasta vopn. Það hefur sýnt
sig í flugsamkeppni nútímans að
fjöldi ferða hefur gífurlega mikið
að segja. Tíðni í ferðum er það
sem gildir.
Aukíð ferðafrelsi milli Ung-
verjalands og Austurríkis
— stuðlar að ódýrari tannviðgerðum og fótboltaleikjum
Ungverjar tikynntu
í ársbyijun að
mörgum höftum
og bönnum yrði
aflétt af landa-
mærum til Austurríkis, til að
auðvelda ferðamannastraum.
Um 2,5 milgónir Austurríkis-
manna heimsækja Ungveija-
land árlega og um 400.000
Ungveijar fara yfir landamær-
in, en hvorugt landið hefur
krafist vegabréfs yfir landa-
mærin. Ungveijar hafa aðeins
verið heftir vegna skorts á
gjaldmiðli.
En Ungveijaland eins og önnur
Austur-Evrópulönd er ekki með
skiptanlega mynt. Austurrískir
bankar hafa samt skipt ungversk-
um forínum, þó það sé ólöglegt.
Upp á síðkastið hefur bilið breikk-
að mikið á milli opinbers gengis
í Ungverjalandi og gengis í aust-
urrískum bönkum. Ungveijar eiga
því auðveldara með að skipta í
Austurríki og Austurríkismenn
kaupa forínur heima áður en þeir
fara yfír landamærín. Miðað við
þann mikla fjölda sem fer yfír
landamærin er afar ólíklegt að
ferðamaður sé gripinn þar með
fulla vasa af ólöglegum gjaldmiðli.
Þjónusta við ferðamenn er mjög
ódýr í Ungvetjalandi. Hægt er að
fá tveggja manna herbergi fyrir
um 300 krónur. Staðgóð þriggja
rétta máltíð með fljótandi víni
kostar um 180 krónur. Tann-
viðgerðir sem myndu kosta rúmar
2.000 krónur í Vín kosta helmingi
minna í Búdapest og borgum við
landamærin, sérstaklega ef greitt
er fyrir þær með austurrískri eða
bandarískri mynt.
Ungveijar og Austurríkismenn
byggja á sameiginlegum siðvenj-
um og hefðum í gegnum Habs-
borgara. Landamæraþorpin
beggja vegna landamæranna
halda hátíðir saman. En félags-
andinn kemur kannski einna best
fram í fótboltanum. Löndin skipt-
ast á að senda lið yfir landamærin.
Stjómandi fótboltaliðs í litlu, aust-
urrísku þorpi við landamærin
sagðist borga ungverska knatt-
spymusambandinu í kringum
180.000 krónur til að hafa rétt
til að velja góða keppnismenn.
Austurríska liðið fær þannig alltaf
fyrsta flokks knattspymumenn
frá Ungveijalandi til að spreyta
sig á. Aðspurður, hvort það væri
ekki nokkuð dýrt fyrir lítið félag,
sagði stjómandinn: „Þeir skora
flest sigurmörkin svo það er ekki
nema eðlilegt að við borgum þeim
fyrir það.“
:i 1 Pakk I iii
Blizzardskíði Blizzardskíði
70-90 cm .kr. 2.580,- i30-150cm ...kr. 3.760,-
Geze Look
skíðabindingar... .kr. 1.580,- skíðabindingar.. ...kr. 1.820,-
Blizzard Blizzard
skíðastafir • kr. 420,- skíðastafir ...kr. 420,-
Nordica Nordica
skíðaskór ..kr. 2.270,- skíðaskór ...kr. 2.580,-
kr. 6.850,- |{r. 8.630,-
Pakki II Pakki IV
Blizzardskíði Blizzardskíði
100-120 ..kr. 2.930,- 160-175 ...kr. 4.270,-
Geze Look
skíðabindingar... ..kr. 1.580,- skíðabindingar. ...kr. 1.820,-
Blizzard Blizzard
skíðastafir ..kr. 420,- skíðastafir ....kr. 470,-
Nordica Nordica
skíðaskór ..kr. 2.270,- skíðaskór ....kr. 3.600,-
kr. 7.200,- kr. 10.160,-
:ULLORÐINSSKÍÐAPAKKAR
Pakkl I Pakki II
f ■ byrjendur f. dömur
Blizzard skíði Blizzard Vice
160-185 cm ...kr. 4.550,- 160-185 cm ...kr. 6.100,-
Look Look
skíðabindingar. ...kr. 1.950,- skíðabindingar.. ...kr. 1.950,-
Blizzard Blizzard
skíðastafir ...kr. 890,- skíðastafir ...kr. 890,-
Nordica Nordica
skíðaskór ...kr. 3.810,- skíðaskór ...kr. 3.810,-
kr. 10.900,- kr. 12.450,-
akki III f. herra
Blizzard Aluflex 170-195.... kr. 6.100,-
Look skíðabindingar.........................kr. 1.950,-
Blizzard skíðastafir..................... kr. 890,-
Nordica skíðaskór...........................kr. 3.810,-
kr. 12.450,-
Póstsendum um allt land.
ÚTILÍF
Glæsibæ, sími 82922.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 6. FEBRÚAR 1988 21