Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1988, Blaðsíða 22

Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1988, Blaðsíða 22
. /' >tól-ANBUl.'-'- 'Ly BlífeíA* • ANKARA \ .•it*ÖRGÖ!* '" ‘ S • KONYA s-'T'~ H>x *ANTAf-VA/-' ' fc. ' <n* U. ' 7 Svíana eins og fyrir Bretana, Þjóðveijana og fleiri, þar sem íslandsferðir eru á boðstólum. Við megum ekki verða undir í verðsamkeppninni. En það er líka mjög dýrt fyrir íslendinga að fara til Svíþjóðar. Engar „pakkaferðir“ eru í boði til Svíþjóðar og ódýrasta fargjald þangað, svonefndur pex-flug- miði, kostar 23.710 krónur. Eng- in hótel í Stokkhólmi bjóða upp á afsláttarverð fyrir Islendinga. Norræna félagið mun bjóða upp á tilboðsverð næsta sumar sem verður eitthvað ódýrara en ódýr- asti apex-flugmiði. Istanbul — dulræn borg með austurlenskt yfirbragð. Hver hefur ekki heyrt talað um íslenskar ullarpeysur. . I I I I FmTÆKI 0G FÉLAGASmÖK v B m Sll 1 CR GÓÐUR STABUR FYRIR RÁDSTEFm 0G FUNDAHALD KOMIQ OGNJÓTIÐ GÓÐRA STUNVA FYRIR ÓTRULEG A LÁGT VERÐ GERUM VERÐTILBOÐ FYRIR HOPA Feróaskrifstofa Akureyrarhf. Ráðhústorg 3 - SÍMI (96)25000 Úrvalsferðir í allar áttir Islendingar eru farnir að skipuleggja sum- arfrí sín miklu fyrr en áður. Ferðaskrif- stofur eru flestar búnar að gefa út ferðatilboð næsta sumars pökkuð inn í litríka, freistandi bæklinga. Kynningarritin liggja fyrir framan okkur og efst í bunkan- um liggur ejnn sem ber yfir- skriftina — Úrvalsferðir í allar áttir. Við byrjum að fletta í gegnum hann, en tökum næst „Útsýn til allra átta“ og „Sumar- fríið 88“ frá Samvinnuferðum- Landsýn. Á forsíðunni liggja nokkrar mjmdir, á bláum grunni neðst sem teygir sig upp í dumbrauðan sólar- lit út frá hvítum eldhnetti. Lítil stelpa í sundfötum brosir til okk- ar, hvílandi á vindsæng á bláum öldum. Við hlið hennar er mynd af frelsisstyttu Bandaríkjanna. Kannski táknrænt fyrir frelsi til ferðalaga og fyrir allt sem stuðlar að því að gera þau auðveldari. Hið danska Jótland. Meðal nýjunga í Úrvalsferðum er beint leiguflug einu sinni í viku til Billund á Jótlandi, dvöl í sumar- húsum þar og bíll til ráðstöfunar. { Billund er bæði Legoland- skemmmtigarðurinn og stór dýra- garður sem hægt er að keyra í gegnum, þar sem dýrin eru ekki geymd í búrum. Einnig er hægt að fá sumarhús niðri við ströndina í gamla bænum Ebeltoft á austur- strönd Jótlands og í sumarleyfis- baénum Ringköbing á vestur- ströndinni. Danmörk er vinsælt hjólreiðaland og ferðamenn sem fara þangað ættu að taka sér hjól á leigu. TilFjarlægra, FramandiLanda 3. júní býður Úrval upp á rúm- lega tveggja vikna ferð til Perú, Inkalandsins í Suður-Ameríku þar sem búa 18 milljónir manna. Flog- ið verður til Perú með millilendingu á Flórída. Höfuðborgin Lima er skoðuð og flogið suður til Cusco sem var höfuðborg Inkaríksins. Inkavígið, Machu Picchu í 2.300 metra hæð, er heimsótt, þar sem Inkamir földu sig fyrir Spánveij- um. Borgin er svo vel falin í fjall- lendi Perú að hún fannst ekki fyrr en 1911. Lífríki Amazonsvæðisins verður skoðað bæði í sjón og tón- um. Nýlenduborg og fjallavatn í 4.000 metra hæð eru líka á dag- skrá í þessari forvitnilegu ferð Úrvals. Indland. 20. september hefst 18 daga Indlandsferð. í upphafi ferðar og í ferðalok er gist í Nýju Ðelhi, en aðaláhersla er lögð á útiveru og Unnið við handiðnað í Perú. göngu um Himalajafjöll. Flogið er í gegnum London til Nýju Delhi. Borgin er skoðuð og síðan haldið upp í Himalajafjöll. Margir heilag- ir staðir hindúa eru heimsóttir, til dæmis Gangotri sem er musteri gyðjunnar Ganga. Gist er í 3 næt- ur við rætur Shivling, sem er talið eitt fegursta fjall Himalaja, og komið við í tíbeskum flóttamanna- búðum. Heilaga borgin, Saint Ris- hikesh, er skoðuð, en þangað fóru Bítlarnir til að stunda hugleiðslu. Fararstjóri er kunnur göngugarp- ur, Helgi Benediktsson. Thailand. 25. október hefst þriggja vikna ferð til Thailands. Ferðin er byggð þannig upp að þátttakendur fái sem víðsýnasta mynd af landi og þjóð. Flogið er til Bangkok í gegn- um Kaupmannahöfn. Borgin er skoðuð, konungshöllin og siglt um Chao Phya-ána sem er fljótandi markaðstorg heimamanna. Sögu- fræg musteri eru skoðuð í fyrstu höfuðborg Thailands, Chiang Mai. Safírnámur heimsóttar við Chanta- bury, menntasetur búddamunka í Frá Lúxemborg liggja leiðir til allra átta. 22

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.