Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1988, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1988, Blaðsíða 5
Þótt Oscar Wilde væri maður Victoríutímans, var hann miklu fremur maður allra tíma, ekki síst okkar tíma. Lávarðurinn sem kom honum í steininn lét ekki þar við sitja, heldur var Wilde einnig gerður gjaldþrota. að ofsækja hana og skaprauna. Heitasta ósk Alfreds Douglas var að koma föður sínum í fangelsi eða á geðveikrahæli og eggjaði Wilde mjög á að ákæra hann fyrir persónuníð en hann færðist undan. Hann var friðsemdarmaður og auk þess bar hann því við, að hann hefði ekki efni á þeim kostn- aði er slíku fylgdi. Douglas kvað auðuga ættingja móður sinnar fúsa að greiða þann kostnað, þeim væri það kappsmál að Que- ensberry yrði fangelsaður. Þetta varð til þess, að Wilde lét loks undan og lagði fram „þessa hlálegu ákæru“, sem hann nefndi svo í bréfínu. „GÓÐBORGARARNIR Smjatta ...“ Um kynni þeirra frá upphafí segir Wilde: „Raunverulegt upphaf vináttu okkar var það, að þú sárbændir mig í geðþekku bréfi, um að liðsinna þér í vanda, sem hver og einn, ekki síst ungur háskólanemi í Oxfod teldi sér ógnað af. Ég verð við bón þinni en það verður til þess að ég glata virðingu og vináttu Sir Georges Lewis eftir að þú misnotar nafn mitt við hann. Þegar ég missti vináttu hans, ráðgjöf og stuðning um 15 ára skeið var ég sviptur eina örygginu í lífí mínu." „Þú sendir mér snoturt ljóð til umsagnar. Ég svara með hástemmdu bréfí, líki þér við Hylas eða Hyacinth, einhvem þann, sem ljóðgyðjan hampar og heiðrar með ást sinni. í sannleika sagt, þá hefði ég svarað hvaða ungmenni sem væri, er sent hefði mér frumsamið ljóð, með slíku bréfí — í fullvissu þess að hann hefði það skopskyn og væri á því menningarstigi að hann skildi rétt hin hástemmdu orð. Skoðaðu feril þessa bréfs. Frá þér kemst það ógeðfelldum kunn- ingja þínum í hendur, þaðan í hendur fjárk- úgara. Afritum af því er dreift um London á meðal vina minna og til leikhúsanna sem sýna leikrit mín. Allt sem í því stendur er rangfært, ýkt og mistúlkað, ekkert séð í réttu ljósi. Góðborgaramir smjatta á fárán- legum gróusögum um að ég hafí þurft að greiða of fjár fyrir ósiðsamleg bréf til þín. A því byggir faðir'þinn síðan hatrömmustu árásir sínar á mig. Ég legg sjálfur bréfíð fram í réttinum til þess að sýna það eins og það er. Þar er það fordæmt af lögmanni föður þíns, sem segir það viðbjóðlega og lævíslega tilraun til að spilla sakleysingja. Að lokum er bréfíð svo gert að undirstöðu ákæm á hendur mér um siðlaust athæfi. Dómstólamir taka hana til meðferðar. Dóm- arinn notar það í niðurstöður sínar af lítilli þekkingu en mikilli siðavendni og ég fer að lokum í fangelsi vegna þess.“ Þegar Oscar Wilde i lok fangavistarinnar fær loks tækifæri til að skrifa um allt það, er eitrað hefur hug hans í einsemdarlífi fangans, skrifar hann þetta bréf til vinar síns, sem hann ennþá ann. Hann minnist atvika, sem sárt er að rifja upp. „Mundu," segir hann, „að allt það, sem veldur þér sársauka að lesa, er mér enn meiri þjáning að skrifa." „Þú verður að lesa þetta bréf frá upphafí til enda, þótt hvert orð verði þér sem logandi eldur." Honum er mikið í mun að vekja vin sinn til meðvitundar um, hve skelfilegar afleiðingar hatur þeirra feðga hefur haft. Hann þráir að hafa áhrif til góðs, að opna fyrir hinum unga manni þá sýn, er honum sjálfum hefur opnast og vara hann við því, sem hann telur hinn versta löst — yfirborðshyggju og tilfínninga- leysi gagnvart öðmm. ElNASTA LÖNGUNIN AðDeyja Wilde lýsir þeirri breytingu sem hugarfar hans sjálfs hefur tekið í fangelsinu. „A meðan ég dvaldi í Wandsworth-fangelsinu þráði ég að deyja. Það var einasta löngun mín. Þegar ég var fluttur hingað úr sjúkra- deild fangelsisins og hresstist smám saman, þá fylltist ég bræði. Ég var staðráðinn í að fremja sjálfsmorð daginn, sem ég yrði látinn laus. Eftir nokkum tíma bráði þetta af mér og ég ákvað að lifa, en að bera þunglyndið eins og konungur skikkju sína.“ „Nú er við- horf mitt gjörbreytt. Síðustu tvö skiptin sem mér var leyft að fá vini í heimsókn, reyndi ég eftir megni að vera kátur. Sýna þeim gleði mína, sem lítinn þakklætisvott fyrir þau óþægindi er þeir lögðu á sig, með því að koma alla leið úr borginni til að heim- sækja mig.“ „Ef ég hefði verið látinn laus í maímánuði síðastliðið ár eins og ég reyndi að fá framgengt, þá hefði ég yfirgefið þenn- an stað með svo mikilli andstyggð á honum og hverjum starfsmanni þar, að sú haturs- beiskja hefði eitrað líf mitt. Ég hefí verið ári lengur í fangelsi, en mannúðin hefur verið í fangelsinu með okkur öllum og nú þegar ég fer, mun ég alltaf minnast mikill- ar góðvildar sem mér hefur verið sýnd af svo að segja öllum." Nú fer æ oftar að kveða við bjartari tón í skrifum skáldsins. Hann minnist fagurra augnablika sem hann hefur átt með góðum vinum. „Ég hugsa um vini mína og hvað þeir hafa verið mér með því að veita mér hjálp, vináttu sína og samúð. Ég hugsa um hvern einasta mann, sem hefur sýnt mér vinsemd í fangelsinu, allt frá vörðunum, sem bjóða mér „góðan dag“ og „góða nótt“ án þess að það sé skylda þeirra, lögregluþjón- unum, sem á hijúfan og klunnalegan hátt, rejmdu að hugga mig á ferðum okkar til og frá réttarsalnum, þegar ég var hræðilega andlega þjáður, allt til vesalings þjófsins, sem þekkti mig, er við þrömmuðum hring eftir hring í fangelsisgarðinum og hvíslaði að mér, hásri röddu þess er þola þarf lang- ar þagnir fangavistar: „Ég fínn til með þér, það er erfiðara fyrir þína líka en fyrir okk- ur hina.“ í stað sjálfsvorkunnar og ásakana í eigin garð og vinar síns fer nú að bera á því, að Wilde álíti niðurlægingu sína og þjáningar leið til nýs þroska — nýs lífs. Hann hugleið- ir eðli þjáningarinnar og tilgang og kemst að því að auðmýktin, afsprengi hennar, sé fjársjóður sem falinn hefur verið innra með honum líkt og fé grafíð í jörðu og nú skuli notað til þess að byggja nýtt og hamingju- samt líf. „Hún er það eina sem ég á eftir," segir hann, „og það besta.“ Hefði auðmýkt- in staðið honum til boða fyrr — eða síðar, hefði hann vísað henni algjörlega á bug. Það er hún ein, sem býr yfír mætti nýs lífs fyrir hann. Undraverðast af öllu segir-hann vera það, að ekki sé hægt að gefa öðrum af þessum fjársjóði, né heldur öðlast hann nema með því að láta allt annað af hendi. Það sé aðeins hægt að vita sig eiga hann, þegar öllu öðru hafi verið glatað. Þá snýr Wilde sér að því hvemig mæta skuli Vita Nuova — hinu nýja lífi.-Til þess hjálpi honum hvorki skynsemi, trú eða sið- fræði, en hann segist skýrt sjá hvað þurfi til. Niðurlægingunni, einsemdinni, þjáning- unni í öllum sínum myndum verði hann að snúa í andleg verðmæti. Hann verður að fyrirgefa. Síðan verður hann að læra að verða hamingjusamur á ný. Hann verður af hreinskilni og án þess að fyrirverða sig að horfast í augu við það, að hann hefur setið í venjulegu fangelsi sem venjulegur fangi og afþlánað dóm fyrir afbrot. Þótt hann hafí verið saklaus af ýmsu því er hann var dæmdur fyrir hafí þar verið margt sem hann var sekur um og enn fleira sem hann hafði drýgt, en ekki ákærður fyrir. Þannig segir hann að guðimir dæmi okkur fyrir góð verk og mannúðleg jafnt og fyrir hin illu og eins geri mennimir. Þetta ætti að auðvelda okkur að skynja hvort tveggja en ofmeta hvoragt. Skilningur á Persónu Og Kenningum Krists í fangelsinu eignast Wilde Nýja Testa- mentið á grísku. Hann segist á hveijum morgni lesa nokkur vers eftir að hafa hreins- að klefa sinn og matarílát. Hann hrífst af lestrinum og sú hugsun, að þessi texti sé nær því sem Kristur talaði, en þýðingar, heillar hann. Honum fínnst hann fá djúpan skilning á persónu og kenningum Krists og þjáningin, auðmýktin og kærleikurinn verð- ur honum hugleikið umhugsunarefni. Hann segir Krist vera dæmigert, rómantískt skáld, þar sem hann leiti sálar mannsins og vilji stuðla að birtingu hennar, eins og list skálds- ins sé fólgin í að klæða sál hlutanna skáld- legu formi. Hann sýni, að með kærleikanum megi nálgast sál hins líkþráa jafnt og fót- skör Guðs. Þegar Kristur segi við unga ríka manninn „sel eigur þínar og gef fátækum" hafí hann ekki haft hina snauðu í huga heldur sál unga mannsins sem ríkidæmið kramdi. Hann hafi álitið auð og sællifnað ömurlegri en þjáningu og fátækt. Wilde hrífst einkum af afstöðu Krists til syndarans. Þar finnst honum hið rómantíska eðli koma best í ljós. Hann segir að Kristur hafí séð í syndaranum birtingu hins full- komna mannseðlis en að heimurinn hafí hinsvegar elskað heilaga menn vegna þess, að þeir nálgist helst fullkomleika Guðs. Kristur hafí ekki leitast við að bæta fólk eða losa við þjáningar, heldur að kenna því, að sálin þurfí ávallt að vera viðbúin að mæta kærleikanum í „fögram augnablik- um“, sem hann kallar svo. Það hafí María Magdalena gert, er hún braut alabasturs- baukinn dýra og smurði rykuga og þreytta fætur Krists. Eins hafí glataði sonurinn, er hann féll á kné við heimkomuna og grét yfír spilltu lífi sínu, breytt niðurlægingu sinni og misgjörðum í heilög atvik. Iðranar- augnablikið sé heilög athöfn, einskonar vígsla, sem geri það sem iðrast er, eitt með hinu „fagra augnabliki“. Wilde segir þetta vera flestum torskilið — og bætir við: „Sennilega þarf maður að fara í fangelsi til að skilja það. Sé svo, er það þess virði.“ Þegar dagur frelsisins nálgast, rennir Oscar Wilde enn augum yfir hið liðna og minnir Douglas á að lesa bréfið gaumgæfí- lega, sýna það eldri bróður sínum. Setjast með honum og ræða það, sem í því standi, horfast af einurð í augu við allt sem gerð- ist og gera sér grein fyrir því óhræddur. Fortíð, nútíð og framtíð séu sem augnablik fyrir augliti Guðs og fyrir augliti hans muni ieir þurfa að lifa. Wilde biður vin sinn nú að skrifa sér. Undrast að hafa ekki heyrt frá honum í ellefu mánuði og biður hann að skrifa sér í einlægni um sjálfan sig, líf sitt og starf. Hann segir þá enn eiga eftir að kynnast hvor öðram til fulls og vonast til, þrátt fyr- ir allt, að eiga eftir að kenna honum eitt- hvað sem máli skipti. „Þú komst á minn fund til þess að njóta gleðinnar í lífi og list. Ef til vill er mér ætlað að kenna þér það, sem er enn verðmætara — tilgang og feg- urð þjáningarinnar." Með þessu orðum lýkur bréfínu, sem Oscar Wilde skrifaði í fangelsinu. Hann af- henti það hinum trygga vini sínum, blaða- manninum Robert Ross, ásamt bréfí með fyrirmælum um, hvemig með skuli fara og tilmælum um, að Ross gerist umboðsmaður hans. í því bréfi segir m.a.: „Þar sem þú ert umboðsmaður minn, hlýtur eina plaggið, sem greinir frá furðulegri hegðun minni, að vera í þínum höndum." „Einhvemtíma verður hið sanna að koma fram — þó ekki fyrr en ég er allur.“ „Ég afsaka ekki breytni mína — ég lýsi henni.“ Á Krám Parísarborgar Robert Ross lét gera afrit af bréfinu til Douglas og sendi honum eintak, en geymdi handritið. Eftir lát Wildes freistaði Douglas jess að fá það afhent, en Ross lét innsigla handritið og kom því í vörslu British Muse- um með fyrirmælum um að innsiglið yrði ekki brotið fyrr en eftir 60 ár. Árið 1905 gaf Robert Ross síðan út hluta bréfsins undir heitinu De Profundis. Þar var sleppt öllu því, er að samskiptum þeirra Wildes og Douglas laut. Vinimir Alfred Douglas lávarður og Os- car Wilde hittust aftur í Rouen í Frakklandi og hélst vinátta þeirra þau 3 ár, sem Wilde átti ólifað. Ekki tókst skáldinu að feta þann veg, er hann í fangelsinu var svo viss um að jeiddi til hins nýja lífs. Hann náði sér aldrei til flugs á ný, en tók upp fyrri lifnaðar- hætti. Nú var öldin önnur en þegar allt lék í lyndi. Gjaldþrota skáldið rigsaði ekki lengur á milli glæsihótela Lundúna með græna nelliku í barmi og lét spakmælum og skensi rigna yfir aðdáendur um leið og hann svolgr- aði í sig lystisemdir lífsins. Nú var vettvang- urinn krámar í Parísarborg, en þjónamir þar og flækingar, kumpánar hans. Snemma á árinu 1900 var Queesberry lávarður allur. Þann 30. nóvember sama ár lést Oscar Wilde í litlu herbergi á Hótel d’Alsace í París. Er hann losnaði úr prísund- inni fór hann samstundir til Frakklands og sté ekki aftur fæti á breska grand. Alfred Douglas skrifar móður sinni í árs- lok 1897, er hann hafði hitt Wilde á ný: „Láttu þér ekki til hugar koma að afstaða mín til hans, eða til siðsemi, sé breytt. Ég elska og dái hann enn og álít hann vera píslarvott. Ég ætla ekki að hætta að skrif- ast á við hann eða að heimsækja hann í París eða annars staðar." Hann sagði við Sir Travers Humphrey, þann er skrifaði formála að bókinni Trials of Oscar Wilde, um mælskulist Wildes rúmum 30 áram eft- ir dauða hans: „Enginn sem ég hefí þekkt, kemst í námunda við hann. Hann kunni að vefa um mann álagaham. Maður sat og hlustaði agndofa á hann. Allt sem hann sagði var hrein Viska og Kraftur og Fegurð og Töfrar — það vora hreinir töfrar og ekk- ert annað." Eftir dauða Wildes orti Alfred Douglas til hans sonnettu, sem af sumum er talin með því besta, sem ort hefur verið á enska tungu, „The Dead Poet“. Árið 1911 tók Douglas kaþólska trú og fordæmdi eftir það fyrra líferni sitt. í ævisögu sinni segir hann: „Á þeim tíma elskaði ég og dáði Oscar Wilde sem vin minn og snilling og var fylli- lega sáttur við lesti hans, sem ég áleit raun- ar ekki lesti. Ég var yfírlýstur heiðingi og fyrirleit kristna siðfræði." Alfred Douglas lést árið 1945 og þar með voru aðalpersónumar í þessum harmleik Oscars Wilde horfnar af sviðinu. ÞÝÐING: ÁGÚSTA SNÆLAND Oscar Wilde: De Profundis. Þýtt á dðnsku af Marguerite Gaméi. Útg. Gyldendal 1927. Úr Djúpinu (De Profundis) eftir Oscar Wilde. Yngvi Jóhannesson fslenskaði. Útg. Gutenberg 1926. Oscar WUde: De Profundis and Other Writ- ings. Útg. Penguin Classics 1986. Trials of Oscar Wilde. H. Montgomery tók saman. Útg. WUiiam Hodge & Co. 1960. The Complete Works of Oscar WUde. Útg. Collins 1986. LESBÓK MORGUN8LAÐSINS 27. FEBRÚAR 1988 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.