Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1988, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1988, Blaðsíða 4
Oscar Wilde var frægur m.a. fyr- irsundurgerð íklæðaburði og bafðiyndi afþví aðhneyksla bina íhaldssömu samborgara sína. Um fangelsisvist Oscars Wilde og afleiðingar hennar 1895 voru tvö leikrit hans samtímis sýnd í London við mikla aðsókn, „An Ideal Hus- band“ og síðasta leikrit hans, „The Import- ance of Being Eamest". Leikstjórar, leikar- ar, blaðamenn og útgefendur kepptust um allt er úr penna hans kom og skáldið bað- aði sig í ljóma frægðarinnar. Listamaðurinn, heimsmaðurinn, snilling- urinn barst áfram í vímu sívaxandi álits samborgaranna, öruggur um stöðu sína og gildi. Það var sjálfsagður réttur hans og skylda við lífíð og listina að bergja hvem þann bikar í botn, er að honum var réttur. I bréfinu kemst hann svo að orði: „Guðimir höfðu gefið mér svo að segja allt, snilli, virt nafn, háa þjóðfélagsstöðu, afburðagáf- ur, vitræna dirfsku. Eg breytti listinni í heimspeki og heimspeki í list. Ég umsnéri hugmyndum manna og litrófi lífsins, öllum til undmnar. Ég gerði eina hlutlægustu list- greinina, leikritun, að svo persónulegu tján- ingarformi, að ljóði líktist, eða sonnettu um leið og ég færði út svið hennar og gæddi ríkari blæbrigðum. Harmleiki, skáldsögur, ljóð, rímuð og órímuð, samtöl að hefð- bundnum hætti eða fjarstæðukennd, hvað ég snerti, gæddi ég nýrri fegurð. Sjálfum sannleikanum gaf ég blæ lyga ekki síður en þess, sem satt er í raun, og sýndi fram á að hið sanna og ósanna em aðeins hliðar á vitrænni tilvist. Ég vakti ímyndunarafl aldarinnar og það kveikti aftur goðsagnir um mig. Ég dró saman öll kerfi í eitt orð- tak og alla tilvemna í skopkviðling. Ég lét ginnast af taumlausri gimd og hóglífi. Það kætti mig að vera spjátrungur, heimsmað- ur, sá, sem fer fyrir öðmm. Ég var í félagi við smásálir og varmenni. Ég sóaði snilli minni og fann fróun í því að spilla eilífri æsku. Leiður á vistinni á tindinum, leitaði ég af ráðnum hug í undirdjúpin eftir frek- ari nautn. Það sem þverstæðan var mér á sviði hugsunar, varð óeðlið fyrir tilfinning- alíf mitt. Ástríðan varð að iokum að sjúk- dómi, vitfírring eða hvorutveggja. Lff ann- arra skiptu mig engu. Ég naut þess, er á vegi mínum varð og hélt áfram. Ég gleymdi því, að hinir hversdagslegu atburðir daglegs „England hefur of lengi þolað manninn Oscar Wilde“ apríl og maí árið 1895 fóru fram réttarhöld í Lon- don sem mikla athygli vöktu og umtal. Þar tókust á tvær þekktar persónur úr hópi heldri manna, annarsvegar skáldið Oscar Wilde og hinsvegar Queensberry lávarður, höfuð gamallar aðalsættar og faðir ungs vinar skáldsins Lord Alfreds Douglas. ÁGÚSTA SNÆLAND þýddi Réttarhöldin hófust með því að Oscar Wilde ákærði Queensbeny lávarð fyrir per- sónuníð, vegna þrýstings frá syni hans, en gegn betri vitund. Fljótlega snérist málið þannig, að Queensberry lávarður lagði fram gagnákæru á Wilde fyrir að tæla hinn unga, saklausa son sinn og draga niður í svaðið til ósiðlegs lífemis. Svo fór að lávarðurinn var sýknaður en Oscar Wilde sekur fundinn og dæmdur í tveggja ára fangelsisvist. Strax eftir dóminn krafðist lávarðurinn greiðslu á málskostnaði af Wilde, en fjárreiður hans voru í slíkum ólestri, þrátt fyrir háar tekj- ur, að fé var ekki handbært. Lávarðurinn sá sér þá leik á borði til að greiða skáldinu rothöggið og krafðist greiðslu á 677 sterl- ingspundum tafarlaust. Wilde var lýstur gjaldþrota og heimili hans og eignir seldar. Dagblöð Lundúnaborgar réðust flest heiftar- lega á Oscar Wilde. Ritstjóri Evening News skrifar t.d. í blaðið daginn, sem dómurinn féll: „England hefur of lengi þolað manninn Oscar Wilde og aðra hans iíka. Áður en hann braut lög landsins og ofbauð mannlegu siðgæði, var hann félagslegt úrhrak, höfuðpaur vitsmunalegrar spillingar. Hann var einn af aeðstu- prestum þess hóps, er réðst á allt sem heilbrigt er og setur á stall falsguði úrkynjaðrar menningar.“ „Við getum kennt honum og hans líkum um út- breiðslu siðferðilegrar úrkynjunar með- al ungra manna, sem gáfna sinna vegna hefðu getað komið þjóð sinni að gagni.“ „Maðurinn var grófur nautnaseggur, hið ytra gljáfægður af falskri listhneigð, sem var of væmin fyrir venjulegt fólk.“ Á meðan Wilde sat í fangelsi skildi kona hans við hann og tók upp nafnið Holland, en þaðan er föðurætt Wildes upprunnin. Drengina sína, Cyril og Vyvyan, sá hann ekki framar. Gjaldþrotið á öllum sviðum lífs hans var svo algjört að ekkert verk kom frá penna þessa glæsilega ritsnillings eftir 1895 nema The Ballad of Reading Gaol og svo bréfíð, sem hér verður fjallað um. Þegar sex mánuðir vom eftir af fangelsis- vist Wildes, braut fangelsisstjórinn hinar ströngu reglur um bréfaskriftir fanga og lét afhenda honum eina pappírsörk í einu til að skrifa á. Fangavörður tók blaðið, er það var fullskrifað og kom því í vörslu á skrif- stofu fangelsisins, en færði Wilde annað í staðinn. Blöðin öll, 80 blaðsíður, fékk hann við brottför úr fangelsinu, en afhenti þau vini sínum, Robert Ross, til varðveislu. Bað hann að láta gera af þeim afrit með góðu línubili til leiðréttinga, en til þess kom aldrei. Þetta ritverk, bréfíð til hins unga vinar, flallar um kynni þeirra og samband, sem urðu upphaf þess harmleiks er lagði líf skáldsins í rúst, en einnig um dýrgripi sem skáldið fann á botni djúpsins er hann hrap- aði í. Formgallar em eðlilega á því vegna aðstæðna Wildes við skriftimar og þess að bréfið er óleiðrétt. Ef til vill er það einmitt þessvegna svo hrífandi lestur fyrir þann, er áhuga hefur á lffí og örlögum manna. Það er saga um manninn í nekt sinni og vamarleysi gegn grimmum örlögum, sem hann sjálfur á þátt í að skapa sér. Hve djúpt getur hann sokkið, þegar hann telur sig ömggan — en einnig hvað í honum býr „eins og Qársjóður í jörðu“, sálarstyrk sem lyftir honum upp og útyfír stað og stund. Gefur honum nýja von, nýja sýn — þótt ekki sé nema augnablik í senn — eins og glampi á hnífsegg. Á HÁTINDIFRÆGÐARINNAR Á þeim tíma er ósköpin dundu yfír stóð Oscar Wilde á hátindi frægðar sinnar. Árið lífs byggja upp eða bijóta niður skaphöfn manns. Að það, sem hann vinnur í leynum verður um síðir úthrópað á torgunum. Loks var ég án þess að verða þess var, ekki leng- ur húsbóndi á eigin heimili, ekki stýrimaður á fleyi mínu. Ég lét þig ráða yfír mér og föður þinn skelfa mig. Eg var þræll nautna minna og lenti í hræðilegri vanvirðu. Nú er mér aðeins eitt eftir — algjör auðmýkt." „EYÐANDIHÖND ...“ Hátt var flogið — en hver var orsök falls- ins, hvað gerðist? Oscar Wilde var 38 ára er hann kynntist hinum tvítuga Alfred Dou- glas, sem þá var við nám í Magdalen- háskólanum í Oxford. Með þeim kynnum voru örlög hans ráðin. Hann segir: „Ég sé ekki einungis örlög að verki í sambandi okkar, heldur skapadóm. Dóm, sem ávallt fellur skyndilega og boðar blóðfóm. Þú kem- ur í föðurætt af kyni, sem ógnvekjandi er að tengjast í hjónabandi, hættulegt að ving- ast við, sem leggur eyðandi hönd á eigið líf og annarra." Ungi maðurinn Alfred Douglas lávarður var sonur áttunda markgreifans af Queens- berry en hann var þekkt persóna í Lundún- um á þessum tíma — að endemum — fyrir geðofsa og ruddaskap. Vinátta þeirra Wil- des og sonar hans var honum þymir í aug- um og ofsótti hann skáldið og ófrægði á þann hátt, sem honum var laginn. Hann skrifaði óþverrabréf með hótunum og skömmum sem hann sendi Wilde og vinum hans eða skildi eftir fyrir allra augum í klúbbum heldri manna. Reyndi jafnvel að svíkjast inn á frumsýningu „The Importance of Being Eamest" í því skyni að halda þar óhróðursræðu um höfundinn og kasta á hann sorpi. Sonurinn var laglegur og greind- ur. Hann fékkst við ijóðagerð þegar á skóla- ámnum og gaf út ljóðabók, sjálfsæfísögu og fleiri bækur auk greina í blöð og tíma- rit. Hann var hégómlegur, eyðslusamur og skapbráður. Hann hataði föður sinn, sem hafði leikið móður hans illa í 12 ára hjóna- bandi, skilið síðan við hana, en hélt áfram

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.