Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1988, Síða 19
Klakksvík, önnur stærsta borg Færeyja.
Háskólinn, Þjóðminjasafnið og Þjóðarbókasafnið í Færeyjum.
strönd Færeyja. Þau urðu því að
steindröngum við nyrstu kletta-
strönd Færeyja — steindrangar
sem vísa í áttina til íslands.
íslenskir ferða-
menn í Færeyjum
Koma íslenskir ferðamenn
mikið til Færeyja?
Flestir íslendingar eiga tveggja
daga viðkomu í Þórshöfn, þegar
þeir eru á heimleið úr Evrópuferð
með Norröna. íslenskir ferðamenn
eru eina þjóðin sem kaupir lúxus-
vöru í Færeyjum. Meginlandsbúar
kaupa nær eingöngu minjagripi
og pijónavörur, en íslendingar
kaupa sjónvörp, myndbandstæki
og fatnað. Tollur hjá okkur er
ekki eins hár og hér, en vöruverð
í Færeyjum er samt hærra en á
meginlandinu.
Hvað kostar vikudvöl í Fær-
eyjum með flugi fram og til
baka frá Reykjavík?
„Apex" miði gefur um 40% af-
slátt og eins gott að panta með
góðum fyrirvara bæði flug og
gistingu. Ég giska á 45.000
íslenskar krónur, þegar allt er
innifalið.
Er erfitt að fá gistingu á
hótelum yfir aðal ferðamannat-
imann?
Hótelgistingu í Þórshöfn er
vissara að panta með allt að
þriggja mánaða fyrirvara, en gist-
ingu 1 nágrenni Þórshafnar —
svipuð flarlægð og til úthverfa frá
miðbæ Reykjavíkur — er yfirleitt
auðvelt að fá. Við erum með mik-
ið af góðri einkagistingu, sem er
tiltölulega ódýr. Um 20 hótel eru
á Færeyjum, af mismunandi
stærðum og gæðum. Mikið hefur
byggst upp af minni hótelum á
smærri stöðunum, en við erum
með 5 nokkuð stór hótel með öll-
um nýtísku þægindum — Hótel
Borg í Þórshöfn er stærst með
100 tveggja manna herbergi og
8„svítur“.
Hvað er að sjá og gera fyrir
ferðamann í Færeyjum?
Mjög vinsælt er að sigla á milli
eyjanna með bílferjum, sem fara
' allt að 12 sinnum daglega í styttri
ferðir. Skipulagðar skoðunarferð-
ir eru Iíka með bátum, einu til
tvisvar í viku, bæði frá Þórshöfn
og Vestmanna — siglt er meðfram
klettunum og sjófuglaríkið skoð-
að. En það verður að vera gott
veður í slíkar siglingar og þess
vegna er ferðamönnum ráðlagt
að hafa daglegt samband við upp-
lýsingamiðstöðvar ferðamanna og
ferðaskrifstofu Færeyja. Áætlun-
arbílar ganga líka á milli bæja
og sveitar um 13 sinnum á dag.
Einnig er hægt að panta sér far
með þyrlum, sem taka 14 farþega
tii minni eyjanna.
Þórshöfn
Höfuðborgin með 15.000 íbúa,
er miðstöð samgangna og menn-
ingarviðburða. Gamli bæjarhlut-
inn Tinganes er varðveittur í upp-
runalegri mynd. Þar var gamla ,
þjóðþingið haldið, sem er eitt elsta
alþingi í Evrópu og færeyska
ríkisstjómin hefur ennþá aðsetur
í gömlu byggingunum. Fróðlegt
er líka að heimsækja „Skansinn"
— byggður fyrir 400 árum til
vamar gegn sjóræningjum. Heim-
sókn í Listaskálann og nýja Norð-
urlandahúsið — hannað af norsk-
um og íslenskum arkitekt, þeim
Ola Steen og Kolbrúnu Ragnars-
dóttur; með sænsku tréverki;
norskum flfsum; danskri gler og
jámvinnu; finnskum húsgögnum
og íslenskri þakgerð — er vel þess
virði. Nýtísku sundlaug er í Þórs-
höfn.
Kirkjubær — Mykines og
allar eyjarnar
Flestir ferðamenn skoða
sögubæinn Kirkjubæ, sem er 12
km frá Þórshöfn. Þar er Magnús-
ar-dómkirkjan frá 1300, sem aldr-
ei var fullgerð; miðaldakirkja
Ólavs og 900 ára bóndabær, enn-
þá í byggð en opinn fyrir ferða-
menn. Mykines, vestasta eyjan
með 35 íbúa, er draumastaður
fyrir ferðamenn og býr yfír mik-
illi náttúmfegurð og fjölbreyttu
fugialífi. Segja má að hver eyja
búi yfir einhveiju sérstöku í nátt-
úrufari, menningu og byggð. Auð-
velt er að fá veiðileyfi bæði í vötn-
um og sjó. En besta upplifun
ferðamannsins í Færeyjum er að
ganga á fjöll og virða fyrir sér
útsýnið yfir eyjar og sund.
Myndbandsupptöku-
tæki auðveld bráð
Aldrei er nægilega brýnt fyrir ferðamönnum að ferðast ekki
með of dýra hluti — að öðrum kosti að sértryggja þá. Ljósmyndar-
ar sértryggja ljósmyndavélar, skartkonur sértryggja skartgripi,
golfleikarar sértryggja golfsettið og svona mætti lengi telja. En
hvað þýðir sértrygging? Tryggir hún fullar bætur á verðmæti hlut-
ar? í sértryggingu er skráð niður fast verðmat á viðkomandi hlut
— lýsing á honum, tegund og númer, ef um framleiðslunúmer er
að ræða. Tjónhafi heldur alltaf 25% sjálfsábyrgð af raunmati hlut-
ar, sem þýðir að þú færð ekki nema 75% bætur — þó að huturinn
sé að fullur sértryggður. í bótatjóni er rétt verðmæti kannað og
miðað út frá þvi.
Ný tækniöld
Á myndbandsöld, þegar flestir
leita sér afþreyingar á skjánum —
eru nýjar myndavélar að ryðja sér
rúms — myndbandsupptökuvélar
er sífellt að verða vinsælli. Augna-
blik eru fest á myndbandsspólur
upptökuvélanna, spólunni smellt
inn í myndbandið og á næsta
augnabliki sérðu sjálfan þig á
skjánum!
Gaman er að upplifa sumarfríið
aftur, þegar heim er komið og
fleiri ög fleiri ferðamenn taka
slíkar myndavélar með sér í ferða-
lagið. Þær eru léttar og fyrirferð-
arlitlar — en um leið auðvelt bráð
fyrir þjófa á ferðamannastöðum —
sem bíða eftir því augnabliki að
þú leggir vélina frá þér. Upptöku-
vélamar geta kostað allt frá 50
upp í 120 þúsund krónur, svo að
þjófamir sjá sér Ieik á borði.
Kannski em þeir sem stunda slíka
iðju þegar famir að bjóða vélamar
til sölu á mest sóttu ferðamanna-
stöðunum — kannski bjóða þeir
þér þína eigin vél. Það er eins
gott að vera með framleiðslunúmer
skráð niður.
Tryggingafélög, sem Ferðablað-
ið raeddi við, sögðu það vera að
færast í vöxt að ferðamenn kvört-
uðu undan þjófnaði á slíkum vélum
— flestir höfðu ekki sértryggt
þær. Ef við tökum dæmi um trygg-
ingu á 100 þúsund króna vél í
hálfsmánaðar ferðalagi, kostar
tiygging rúmar 1000 krónur, en
þú færð aðeins 75 þúsund til baka
með sértryggingu, ef vélin glatast
í ferðinni. Farangurstrygging bæt-
ir ekki tjón á einstökum hlutum,
en ef þú ert með gullkort færðu
um 13 þúsund króna bætur fyrir
hvem einstakan hlut er glatast.
Sumar-
bústaða-
eigendur
í VÖRUHÚSIVESTUR-
LANDS fáið þið allt sem þarf
til að lagfæra og dytta að
bústaðnum, auk matvöru,
fatnaðar og til dægrastytting-
ar: spil, bækur, blöð og
videospólur.
Komið við hjá okkur í sumar.
VÖRUHÚS VESTUR-
LANDS
Birgðamiðstöð sumarbústaða-
eigenda
Vesturlands
Borgarnesi
sími 93-71 200
ERÐATRYGGING
Myndbandsupptökuvél
r
■N
h™bilar
SL STÆRÐIR
>ot .
Ifft SIMAR
O? 82625
v 685055
ífr
er liótel fyrir þig
^ Velkominá
ÆÍHÓTEL
OX
HVERAGERÐI
sími 99-4700.
&
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. JÚNl 1988 19