Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1988, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1988, Blaðsíða 13
Þegar vegi þrýtur, hefur þarfasti þjónninn löngum komið sér vel. Myndin er tekin á leið inn í Vesturdal. nn. en síðar óbreyttir liðsmenn eins og Ragna Ragnars og Ólafur Egilsson, Hólmfríður R. Amadóttir og Oddur Benediktsson, Anna F. Björgvinsdóttir og Jóhannes L.L. Helga- son, Vilborg G. Kristjánsdóttir og Hrafn Pálsson. Eftir að lagst var að bryggju á Akranesi var ekið beint til Borgamess, þar sem stans- að var stundarkom til að ákveða hvar skyldi snæða nestisbita um hádegið. Varð Norður- árdalur fyrir valinu og fór þjóðminjavörður fyrstur, en stuttu fyrir ofan Hvamm lenti bíll hans í óhappi og var úr leik. Settist fólk þá á rökstóla í Hreðavatnsskála eftir að öllum föggum hafði verið safnað þar saman. Rýma varð til fyrir farþega og reyna að koma flutningi á einhveija á leið norður. í þann mund renndu bjargvættir í hlaðið. Þama var á ferð hljómsveitin Geimsteinn úr Keflavík með Rúnar Júlíusson og Maríu Baldursdóttur í fararbroddi og tóku þau 15 pinkla og eins og til þess að gera veg sígildr- ar tónlistar einhvem tók Katrín Ámadóttir, fiðluleikari, og ferðafélagi hennar fáeina pinkla í sinn bíl. Þannig komst farangurinn í Varmahlíð í Skagafirði. Áð var í hrauninu við Bifröst en síðan ekið á bflunum fjómm norður þangað sem föggur okkar biðu á bensínstöðinni í Varmahlíð. Á leiðinni var stoppað á Blöndu- ósi þaðan sem Þór hringdi í Kristján bónda Stefánsson í Gilhaga. Samdist þeim svo, að hinn síðamefndi kæmi með hrossaflutninga- kerru og hirti upp föggur okkar og kæmi þeim heim til sín, en á hans bæ gisti liðið um um nóttina. Þannig náðum við í Gilhaga með allt okkar hafurtask á einum degi eins og ráðgert hafði verið. Húsmóðirin Rósa Helgadóttir tók höfðinglega á móti okkur og húsbóndinn, Kristján Jóhannsson, sem annars lætur lítið yfír sér, dró upp harmon- ikkuna sína og lék nokkur lög og viðstadd- ir tóku lagið. Það var þreyttur flokkur, sem tók á sig náðir þetta kvöld. Laugardagsmorguninn rann upp og sól Þór Magnússon úrskýrir stein, sem búið er að finna. bliki var sem sumir óttuðust örlög sín, þó fólk bæri sig vel. Fyrst var yfir brekkur og vatnsfall að fara en síðan tók við þröngt gil með einstigi, sem gekk á sumum stöðum þverhnípt niður að ánni, enda er Vesturdal- ur þröngur og brattur yfírferðar allar götur að eyrunum við Hraunþúfuklaustur. Þangað komumst við um hádegisbil, sem rákum lestina, og var þá tekið til við að tjalda, en samkomu- og eldunartjaldið hafði þá þegar verið reist af þeim sem flugu inn eftir með þyrlunni. Þennan morgun kom í ljós, að Krístjáni bónda í Gilhaga, sem var leiðsögumaður okkar síðasta spölinn, var tamt að yrkja og gerði það óspart. Hann nefndi gestahópinn eftir einkennisbúningnum frá Henson. Þá urðu þessar stökur til: Hópur grafara horfir með þakklæti á eftir þeim Landhelgis- gæzlumönnum. Fomar götur gengið, riðið, geyst er stefnt í hlað. Þannig heijar Henson-liðið helgan klausturstað. Liðsmenn Landhelgisgæzlunnar með farkost sinn á túninu í Gilhaga. skein í heiði. Varla hafði fólk þvegið stírum- ar úr augunum, þegar notalegur vélardynur barst í gegnum loftið til okkar. Við þutum út á túnið á bak við háreist bæjarhúsið á. því augnabliki sem þyrla Landhelgisgæsl- unnar kom yfír næsta ás. Páll flugstjóri og áhöfn var ekki lengi að vippa helmingnum af hlutum okkar um borð og bjóða hús- freyju sæti, en hún var með í fyrri ferðinni inn að Hraunþúfuklaustri. í hinni síðari fékk Margrét að vera með. Þeir piltar í gæslunni voru snöggir að sélflytja vistir og viðleguút- búnað þessa 20 kflómetra (miðað við beina loftlínu) og vinkuðu okkur á leið í sitt hef- bundna ísflug norður fyrir land með því að fljúga yfír bflalest okkar, sem þá var á síversnandi vegi inn að eyðibýlinu Þormóðs- stöðum, þar sem Jón Hjálmarsson beið með hesta fyrir flesta. Var húsfreyjunni, sem hafði flogið á undan okkur, ætlað að koma með hestana, er fyrstir kæmu á áfanga- stað, til baka og sækja liðsmenn hestlausa. Upphófust nú miklar bollaleggingar, því sumir höfðu ekki komið á hestbak í þrjá til fjóra áratugi og aðrir aldrei. Á þessu augna- Grafari og greinarhöfundur lítur upp frá verki sinu við Hraunþúfuklaustur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11.JÚNÍ1988 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.