Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1988, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1988, Blaðsíða 15
Guðrúa Krístánsdóttir í vinnustofu sinni. Til vinsti og að neðan eru tvær mynda hennar sem verða á sýningunni. Ég hugsa um náttúnma í landinu og manneskjunni Rætt við GUÐRUNU KRISTJÁNSDÓTTUR sem sýnir olíumálverk í listasalnum Nýhöfn í Hafnarstræti. Listamenn geta þess stund- um er þeir lýsa sköpunar- ferli verka sinna að svo virðist sem sjálft listaverk- ið taki af þeim völdin ein- hversstaðar á leiðinni og þeir verði þjónar þess. Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarkona hef- ur oftsinnis orðið fyrir þessu að eigin sögn, en það má einnig segja að myndlistin hafi tekið af henni völdin í víðtækri merkingu. Guðrún lærði hjúkrun og starfaði sem hjúkrunarkona um nokkurra ára skeið. „Þrátt fyrir að mér líkaði starf mitt mjög vel vissi ég að það ætti ekki fyrir mér að liggja að starfa við hjúkrun allt mitt líf,“ segir hún og bætir við að hún sé alin upp við myndlist og áhuginn fyrir henni hafi alltaf verið fyrir hendi. Árið 1972 hefur hún nám við Myndlistaskólann í Reykjavík í frístundum sínu. Fimm árum síðar fer hún ásamt eiginmanni og tveimur bömum til borgarinnar Aix í Frakklandi til frekara náms í myndlist. „Ég var nokkurskonar gestanemi og það var enginn sem yrti á mig eða sinnti á nokkum hátt, að einum kennara undanskildum sem reyndist mér ákaflega vel.“ Seinni veturinn var Guðrún tekin í hópinn og lauk öðm árinu með besta vitnisburði. Þegar heim var komið tóku við kennslu- störf í eitt ár og síðan hjúkmnin aftur og myndlistin í öllum frítímum. En það var ekki fyrr en árið 1984 að Guðrún helgar myndlistinni alla krafta sína: „Og þá fann ég að ég var komin á þá braut sem ég hafði alla tíð hugsað mér.“ PAPPÍROGOLÍA Guðrún hélt sýningu á Kjarvalsstöðum í október árið 1986 og sýndi þar einkum klippimyndir úr pappír. Pappírinn hafði hún gert sjálf: „Ég byrjaði að búa til pappír árið 1978 og þá vegna þess að mig vantaði pappír til að þrykkja á grafíkmyndir. Smám saman þróuðust aðferðimar sem ég notaði og ég fór að lita massann sem pappírinn er gerður úr. Að því kom svo að mér fannst hann of fallegur til að mála eða teikna á hann og þá fór ég að klippa úr honum ýmis form og raða saman." Það má auðveld- lega rekja áhrif frá klippimyndunum í olíu- málverkunum. Fyrstu olíuverkin bára þess rækilega vitni og enn er Guðrún að glíma við heila fleti: „Ég fínn mig mjög vel í þess- um heilu formum, þau virðast henta mér mjög vel.“ Sumir myndlistarmenn eyða stærstum hluta vinnu s'nnar í það að gera skyssur, eða gera frammyndir úr marglitum pappír sem þeir raða saman. Guðrán velur í raun- inni erfíðustu leiðina. Hún byijar oftast á því að skyssa með svartkrít á strigann og ræðst síðan á hann með málningunni. Þrátt fyrir að verk hennar beri einhvem keim „konkret“-mynda, þá era þau frábragðin þeim að því lejrti að mjmdir hennar byggj- ast á einhverri tilfinningu eða hugsun sem hún vill koma á strigann. Hún hugsar mynd- imar ekki í upphafi sem hreinan leik að formum og litum: „Hvatinn er alltaf einhver tilfinning, sem býr innra með mér þó svo að það gerist kannski síðar á ferlinum að myndin sjálf taki yfir.“ Maður Og NÁTTÚRA En hver er þessi tilfinning sem Guðrún vill koma til skila? Það liggur einfaldast við að líta fyrst á heiti myndanna og síðan á náttúrana fyrir utan gluggann. En þar með er ekki sagt að myndir Guðránar séu lands- lags- eða náttúramyndir. Miklu fremur er hægt að líta á þær sem tjáningu fyrir hina eilífu baráttu þeirra andstæðu afla sem gefa lífinu næringu og gildi. Og þá gildir einu hvort um er að ræða manneskjur eða náttúra: „Ég hugsa um náttúrana í landinu og manneskjunni. Það er samsvöran þar á milli. í rauninni algjör samsvöran. Ef við hugsum um græna fláka sem beijast fyrir lífi sínu á svörtum sandinum, þá er ekki erfitt að sjá samsvöran í því og lífi fólks. En ég leita samt_ ekki að algjörri kyrrð í mjmdum mínum. Ég vil hafa sveiflu, spennu í þeim eins og í lífinu sjálfu. Að lýsa þessum hugsunum í orðum er ákaflega erfitt og það er svo hætt við að það verði innantómt og lágkúralegt." Guðrán er ótrálega Iq'arkmikil myndlist- arkona. Hún skirrist ekki við að mála jrfír mjmdir sínar og það hvarflar ekki að henni að taka Ijósmjmdir af þeim áður en hún málar yfir, f því augnamiði að gejrnia hug- mjmdina. Þetta þýðir aðeins það eitt að hún efast aldrei um að hún hafi nægilegt hug- mjmdaflug til að ráðast í nýja mjmd. Rejmd- ar getur hún þess að hún hafí aldrei skilið að hlutir eins og málverk væra svona óend- anlega merkilegir. Eftir ÞORGEIR ÓLAFSSON SkilaboðEða Sjálfstjáning? Þeir heimspekingar sem einkum leggja sig eftir að greina samtímann telja sig hafa merkt hjá listamönnum okkar tíma tilhneig- ingu til sjálfstjáningar á kostnað boðskipta. Þessi hneigð er rakin til brostinnar framtíð- artráar nútímafólks, sem kýs þá frekar að loka sig inni í sjálfu sér. En hvaða augum lítur Guðrán Kristjánsdóttir mjmdir sínar: „Ef ég finn að fólk langar að eignast mjmd eftir mig, þá gleður það mig innilega. Ég verð þakklát inni í mér. Ég get ekki sagt eins og sumir málarar að þegar mjmd er búin þá sé hún ekki lengur til fyrir mér. Á þennan hátt era myndir mínar líklegast skilaboð." Höfundur er listfræðingur og dagskrárgeröar- maður hjá Ríkisútvarpinu. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11. JÚNÍ 1988 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.