Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1988, Blaðsíða 17
Moskva Husseins í Amman Séð yfir baðstrandarbæ-
inn Aqaba.
Jórdanía í vetraríríi
Hvað býður
Jórdanía
ferðamannínum?
Yfir eldin-
um í tjaldi
Bcdúínans.
Séð yfir Jerash, hringtorgið og leikhúsið.
á
Norðurlandabúar, sérstak-
lega Finnar líta í vaxandi mæli
til Jórdaníu sem áfangastaðar
að vetrarlagi. Jórdania er
áiangastaður, sem er lítt þekkt-
qr hjá íslenskum ferðamönn-
um. Margir tengja landið
eflaust við ólguna, sem ríkir í
nágrannalöndunum - aðrir sjá
fyrir sér tilbreytingarlausa
eyðimörk, en Jórdanía kemur
ferðamanninum skemmtilega á
óvart - hvað öryggi snertir -
hvað gróðursæld er víða mikil
- hvað margt er að sjá og skoða
í þessu ævafoma biblíulandi,
sem sagt er að hafi gengið í
gegnum 12 menningarstig - og
sólin er næstum ömgg.
Góður flugvélakostur
Ríkisflugfélag Jórdaníu - Royal
Jordanian Airlines - flýgur frá
Kaupmannahöfn í nokkurra mán-
aða gömlum, glæsilegum „Air-
bus“-breiðþotum. Frakkar hanna
innri búnað „Airbus" og Þjóðveij-
ar sjá um tæknibúnað, en þotan
er evrópsk og byggð til að keppa
við hina amerísku „Boeing“-þotu.
Jórdanir áætla að vera komnir
með 30 slíkar vélar í kringum
1990. Flugvélinni er skipt í þtjú
farrými: Almennt-; viðskipta- og
fyrsta farrými - öll með breið og
þægileg sæti. Þjónustan er frá-
bær, enda - eins og talsmaður
flugfélagsins sagði: „Samkeppnin
á milli flugfélaga er komin út í
það, hver er með besta matinn
og bestu þjónustuna"!
Nýja flugstöðin ber nafii
Alíu drottningar
Millilent er í Frankfurt, þar sem
vélin fyllist af sólþyrstum S-
Evrópubúum á leið í frí. Flugleið-
in er sýnd á tjaldi og skuggi vélar-
innar sést hreyfast eftir landa-
korti, en eitthvað eru hlutföllin
brengluð, þar sem litla. eyjan í
Norðrinu nær allt að helmingi
Evrópu að stærð! Sveigt er úr leið
til að fljúga ekki yfir lofthelgi
ísraels og lent mjúklega á Alía-
flugvelli í Amman, höfuðborg
Jórdaníu, en ný flugstöð ber nafn
Alíu, fyrrum drottningar Jórd-
aníu, sem fórst í flugslysi fyrir
10 árum. Áður en gengið er í
gegnum tollskoðun, þurfa allir að
fá vegabréfsáritun, sem gengur
fremur fljótt fyrir sig og kostar
smápening.