Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1988, Blaðsíða 19
1 I
Umhverfis Le
Puy en Velay
standa einstak-
ir klettar upp
úr landslaginu.
A tveimur
þeirra eru
klaustur, en á
þeim þriðja er
risastór stytta
af Maríu með
Jesúbamið. Á
myndinni
sjáum við kap-
ellu St-Michel
d’Aiguilhe.
AUVERGNE-
Mðsælt, franskt hérað
í Auvergne birtast lítil þorp óvænt og virðast renna inn
i umhverfið.
Ferðalög eiga að vera hvíld
frá daglegu vanabundnu hvers-
dagslífi, þar sem alltaf er verið
að keppa við sekúndur og
mínútur - en fríið verður stund-
um engu minna kapphlaup,
þegar verið er að reyna að sjá
sem mest á sem skemmstum
tíma. Fyrir þá sem vi\ja hafa
rólegt og afslappað frí í nokkra
daga út frá stórborginni París,
er mælt með að reyna AU-
VERGNE, sem er hluti af mið-
hálendinu, Massif Central, fyrir
vestan Rón þar sem Clermont-
Ferrand er stærsta og þekkt-
asta borgin.
Til að komast þangað er best
að taka lest frá París til Lyon,
sem er raunar ein fremsta borg
Frakklands í matargerðarlist -
mikið sagt í landi, sem býr yfir
frægustu kokkum í heimi - og þar
er mikið úrval þekktra matsölu-
staða. En við skulum sveigja
framhjá miðborg Lyon að þessu
sinni. Bílaleigubfllinn bíður fyrir
utan Perrache-stöðina í Lyon og
stefnan er tekin á móti bylgjandi
ökrum, beitilöndum og skógivöxn-
um ásum. Við hittum franska
bændur er byggja á aldagömlum
hefðum í landbúnaði - kom- og
grænmetisrækt, en ekki síður í
húsdýrahaldi og mjólkurfram-
leiðslu.
Héraðið liggur hátt, milli 300-
1.200 metra yfir hafi, en á hæstu
landspildum em engi og beitilönd.
Frakkar sjálfir nota Auvergne
mikið sem frístunda- og afþrey-
ingarstað, en eriendir ferðamenn
sjást hér í litlum mæli miðað við
ferðamannastraum í París, Loire-
dalnum og á Rívíerunni. Það em
þess vegna möguleikar á góðu
hvfldarfríi í nýju umhverfi.
Vikuferð um svæðið gefur góða
möguleika á ríkulegri upplifun.
Stungið er upp á að taka leiðina
frá Lyon um Le Puys en Velay,
Garabit, Murol, Mont-Dore,
Clermont-Ferrand, Vichy og Mo-
ulin. Það er róleg vikuferð og
gefur góðan þverskurð af þessu
litríka, franska landsvæði. I stað
þess að lýsa Ieiðinni, er reynt að
láta myndimar tala.
Klukkuturninn í miðaldabæn-
um Moulin var byggður á miðri
12. öld og stóðst alla eldsvoða
og stríð, en eyðilagðist að lok-
um í eldsvoða 1946. En bæj-
arbúar gengust fyrir söfnun til
að endurbyggja turninn í sama
formi og með sama klukkuspil
er birtist á kortérs fresti.
(ath. láta textann yfir hvita
textann á myndinni!)
Hvað býður þýska
borgin Frankfiirt?
Um miðjan september færð-
ist þýska borgin Frankfúrt nær
íslendingum þegar tekið var
upp beint flug þangað tvisvar
í viku. Frankfurt er ein stærsta
viðskiptaborg Þýskalands og
þar eru flestir bankar. Borgin
liggur í hjarta Þýskalands og
beint flug þangað opnar nýja
markaði fyrir Islendinga í við-
skiptaerindum, en líka nýtt
sjónarsvið fyrir íslenska ferða-
menn.
Við leituðum almennra upplýs-
inga um borgina hjá Knut
Hánschke, framkvæmdastjóra
skrifstofu þýska ferðamálaráðsins
í Kaupmannahöfn. Knut segir að
auðugt menningarlíf og rólegt
andrúmsloft Frankfurt sýni, að
borgin búi yfír hinu besta i þýsku
borgarlífi. Flugvöllurinn í Frank-
furt - hliðið á milli Þýskalands
og Evrópu - sé góður tengiliður í
allar áttir og stærsta jámbrautar-
stöð Evrópu er staðsett í miðri
Frankfurt. Ferðamenn í Frankfurt
finni eitt mesta úrval af söfnum,
sem fyrirfínnst í Þýskalandi, úrval
af verslunum sé sambærilegt við
París og Mflanó og fjöldi leikhúsa
sýni litskrúðugt menningarlíf í
borginni við ána Main.
Um 1,7 milljón ferðamenn
heimsóttu Frankfurt 1987, af
þeim vora 60% útlendingar. Fleiri
eriendir ferðamenn koma til
Frankfurt en annarra þýskra
borga og borgin býður upp á
17.000 gistirúm í mörgum gæða-
flokkum. Síðasta ár komu þangað
1.850 íslendingar og dvöldu 3.500
daga í borginni, en það er sami
fjöldi og kemur frá Lúxembúrg
og írlandi.
Sögulegar byggingar við Römerberg í Frankfurt
er hótel fyrir þig
Velkominá
><!ls HÓTEL
w ÖÍ2K
HVERAGERÐI
simi 99-4700.
Þú svalar lestraiþörf dagsins
ásíöum Moggans!
'éf
HÓPFERÐABÍLAR
- ALLAR
STÆRÐIR
SÍMAR
82625
685055
v.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. SEPTEMBER 1988 19