Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1988, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1988, Page 9
ég komst í slagtog með trukkabflstjórum, sem eru í einskonar langfart milli stranda í Bandaríkjunum. Þetta er yfírleitt sérstök manngerð; ekkert framúrskarandi fínleg, en góðir kallar og tóku að sér að passa þessa furðuveru frá íslandi, sem þeir nefndu „Icelady“ og var nánast helg í þeirra augum. Þegar vestur kom til Arizona, gerði ég mér far um að kynnast myndlistinni, sem olli mér nokkrum vonbrigðum, því ekki var hún að mínum smekk og æði ólík því sem ég hafði kynnst á námstímanum í Boston. Þama vesturfrá er alþýðulist hátt metin og mér þótti öll listsköpun í Suður-Arizona bera mikinn keim af mexíkanskri list, svo og alþýðulist. Þama em mjög skrautlegir staðir, sem hafa orðið tízkufyrirbæri og dregið til sín listamenn víða að; Santa Fe í Nýju Mexíkó til dæmis. Þótt ég sé opin fyrir áhrifum, þá hafði myndlist Villta Vest- ursins engin áhrif á minn eigin stíl. Það var annað þama sem heillaði mig meira, eftir að ég fór að leita fyrir mér að fomum menningarleifum í gljúfrum og klettalands- lagi Arizona. Þar rakst ég á svokolluð „pe- troglyf," sem er meira en þúsund ára gömul Indíána- og Aztekalist. Þessi merka menn- ingarþjóð úr Suður-Ameríku var víst einnig norður í Arizona. Einmitt í þessari fomu list fann ég eitthvað, sem höfðaði til mín; auk þess er landslagið mjög myndrænt þama, - grýtt eins og á íslandi. Ég held uppá gijót og er núna með heila myndröð, raunar abstrakt, en litimir eru beint úr gijót- inu; ísland er svona á litinn. Mér leið eins og ég svifí á skýjum á meðan ég var á þessum slóðum, hæfílega fjærri menningunni og skissaði þessi fomu verk á klettaveggjum. Stundum bjó ég í bflnum, en stundum fékk ég mér ígripa- Þessar myndir málað Eva eftir hinum fomu petroglyfum / Arizona. vinnu, til dæmis við að þrífa búgarð ,vegna þess að húsmóðirin þar var hálfblind. Þetta var í miðju Villta Vestrinu og vissulega eim- ir eftir af því, sem sést í kvikmyndum, en ósviknir „kowboys" eru fátíðir. Mér fannst mannlífíð allt og „mentalitetið" á lágu plani og eins gott að þegja og hafa ekki skoðan- ir. Einmitt það hefur alltaf verið erfítt fyrir mig; ég hef skoðanir á öllu, lít á mig sem sjálfstæða konu, en það hentaði ekki þama. A þessum slóðum var ótrúlega mikið af fólki, sem virtist hafa flosnað upp annars- staðar. Það er gersamlega áhugalaust um alla menningu. Indíánar eru þama einnig, slitnir frá sínu náttúrulega lífi og heldur aumkunnarverðir. í sinni uppmnalegu mynd sjást þeir helzt í málverkum. Já, það er merkilegt; þeir eru vinsælt myndefni, en öðmvísi vill fólk helzt ekki þurfa að hafa þá fyrir augunum. í hálft annað ár var ég á flakki, en seldi þá bflinn eða gaf hann næstum því; hann var búinn að lifa sitt fegursta í sambúðinni við mig og oft var ég búin að troðast á honum gegnum kaktusabreiður á ótroðnum slóðum. Ekki gat ég hugsað mér að setjast þama að til langframa, en ég var líka lengst af innanum fátækt og vanþróun uppi í fjöll- um. í borgum eins og Tucson og Scotsdale er hinsvegar mikið rikidæmi, enda vill forríkt fólk gjarnan eyða ævikvöldinu þar og sumt af því dvelst þar yfir veturinn, meðan kalt er á austurströndinni. Þesskonar fólk er kallað „snowbirds", snjófuglar. Við Hermína systir mín vomm eitt sinn boðnar heim til íslenzkrar konu, sem býr í marmarahöll í Scotsdale. Það var nú meiri íburðurinn. En hann höfðar ekki til mín; má ég þá heldur biðja um óspillta náttúm. Ævintýrið í Villta Vestrinu endaði með líkamsárás. Maður sem ég hafði verið í slag- togi með og ég vissi ekki að var haldinn bijálsemi, réðist mjög harkalega á mig. Ekki var það nauðgun, en ég var skilin eft- ir meðal kaktusanna utan vegar í bágbomu ástandi. Eftir það missti ég dálítið móðinn; fannst að þetta gæti eins gerzt aftur. Ég ákvað að vera ekkert að bíða eftir því. Svo var þess að gæta, að þetta var á köflum einmanalegt líf, - og þar að auki komið langt framyfír leyfílegan dvalartíma. Ég skrapp heim til íslands 1986, í og með til að leita mér að húsnæði - og um haustið sama ár kom ég alkomin eftir 11 ára útivist. Hvemig var svo að koma heim í heiðardal- inn? Því get ég svarað með einu orði: Kúlt- úrsjokk. Ég hafði ekki kynnst því áður, hvorki við komuna til New York né heldur við komuna vestur í Arizona. En nú sann- reyndi ég þetta fyrirbæri á sjálfri mér. Samt átti ég að þekkja allt hér og ekki hafði Reykjavík tekið neinum stakkaskiptum frá 1975; meira að segja sjónvarpið var komið þá 8 árum áður. Eg hafði alltaf haft kjark í ríkum mæli, en nú var líkt og dreginn úr mér allur máttur. Ég hélt ég gæti gengið að gömlu kunningjunum eins og áður, en þeir virtust hafa nóg með sig, eða voru al- veg týndir og mjög erfítt að ná sambandi, jafnvel við þá sem ég taldi mig þekkja. Kannski var þetta vegna þess að ég hafði sjálf breyzt og ekki verið á kafi í þessari efnishyggju og eignakapphlaupi, sem er al- mennt viðfangsefni. Auralaus manneskja er ekki vel stödd, hvorki hér né annarsstað- ar, en það var þó fjórum sinnum ódýrara að kaupa sér eitthvað að borða í Arizona og þegar maður er blankur þá munar um minna. En ég tel mig sérfræðing í að lifa af litlu og aldrei flögraði að mér í alvöru að gefast upp og snúa utan aftur. Síðan heim kom hef ég lítillega getað aflað mér tekna með myndasölu, en öðru hveiju hlaupið í ígripavinnu, sem ég tel ekki aftir mér og hef stundum gaman af. Ég hef farið í fískvinnu norður í Hrísey, unnið á sólbaðsstofu, kennt starfsmönnum í bandaríska sendiráðinu íslenzku og verið kokkur í öræfaferðum með þýzkum túrist- um, sem hljóta að hafa fengið matarást á mér, því sumt af þessu fólki hefur staðið í bréfasambandi við mig síðan og verið ein- staklega elskulegt. Ég er að reyna að kaupa íbúð að Miklu- braut 50 - með góðri aðstoð systkina minna og föður - og er nú búin að breyta henni og setja upp sérstaka lýsingu af fuilkomn- ustu gerð, þvi þama er ætlunin að reka lítið myndlistargallerí. Að sjálfsögðu heitir það Gallerí Eva. Ég er að vígja það núna með sýningu á eigin verkum; vatnslitamyndum og myndum unnum með blandaðri tækni, sem ég lærði í Boston; meðal annars bý ég stundum til pappírinn sjálf. Ég vinn mestan- part óhlutlægt, en áhrifin eru oft frá íslenzkri náttúru, þar á meðal eru myndir sem ég nefndi áður og líkjast á lit íslenzku grjóti. Sjálf hef ég vinnustofu við hliðina; að vísu er hún þrengri en æskilegt væri og mig vantar með öllu aðstöðu til að fást við skúlptúr. Það verður að bíða betri tíma. Hingað er stutt að fara frá Kjarvalsstöð- um; aðeins göngutúr þvert yfir Klambratú- nið, sem heitir víst Miklatún núna. Ætlunin er að gefa öðrum listamönnum kost á að halda smásýningar hér og einnig að taka allskonar myndlist í umboðssölu, eftir því sem húsrýmið leyfir. Ég ætla sem sagt að reyna að halda uppi menningarstarfsemi, brynjuð bjartsýninni.“ Gfsli Sigurðsson UOÐ I SJONVARPI 4. DESEMBER Til AffródítU (Saffó) Þýðing Helga Hálfdanarsonar Geislum krýnda eilífa Affródíta, ó þú bam Seifs, fjölvísa gyðja, heyr þú mína bæn: lát brennandi þjáning eigi buga mitt hjarta. heldur kom þú enn, svo sem einatt forðum, er þú heyrðir rödd mína langt úr fjarska, skildir allt, þinn iðbjarta föðurbústað óðara kvaddir og í gullnum blikandi vagni beindir báðum þínum vængstyrku fríðu svönum gegnum loftin ofanfrá himni háum hingað í skuggann. Brátt þú komst, ó, blessaða gyðja, þér skein bros í mildum augum, þú spurðir hóglát hvað mig aftur angraði, svo ég hefði enn á þig kaliað, hvaða þrá í hjarta mér ólgu vekti: „Hverrar ást skal færa þér enn að nýju? hver mun sú, er sálarkvöl þinni veldur, Saffó mín kæra? Þótt hún forðist fylgd þína, skal hún leita fundar þíns; ef hafnar hún þínum gjöfum, skal hún gefa, elska þig eins á móti, \ ástlaus þó sé hún.“ Kom þú fljótt! ó, frelsa mig nú sem áður frá svo beiskri angist, og lát mig höndla það sem sál mín þráir svo heitt! ó, styrk mig, þú, Affródíta! Eftir Sappho Þýðing Bjarna Thorarensen Goða það líkast unun er andspænis sitja á móti þér ogstjörnu sjá, þá birtu ber, á brúna himni tindra. Hefi égþá ihuga mér svo haría margt að segja þér, en orð frá vörum ekkert fer, því eitthvað málið hindrar. Mjúksár um limu logi mér Iæsir sig fast og dreifir sér, þungt fyrir bijósti æ mér er, en öndin blaktir á skari. Sem blossa nálgast flugan fer, migfæra vil égnærri þér, brátt hitinn vex en böl eiþver, ég brenn fyrr en mig varir. Eptir Sappho II. kvæði Þýðing Syein- bjarnar Egilsonar Sá gumi líkurguðum er, gullfögur augun þín ersér, og málið sætt afmunni þér ogmilda hlát’rinn nemur; því hjarta mitt á flótta fer, felmtrað í brjósti lyptirsér, þá eg þig lít, og málið mér afmunni varla kemur. Um hörund leikur loginn tær, lömuð er ímér túngan mær, grand ekki sjá mín augun skær, fýrireyrum hljómur sýður; um kroppinn svita köldum slær, af kvíða-hrolli skinnið rær, fölna ’g sem grasið, fjör og blær affeigum nösum líður. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3. DESEM8ER 1988 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.