Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1988, Qupperneq 18

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1988, Qupperneq 18
Hótelhverfið „Royal Cliff“ á Pattaya-strönd. unna vöru á fljótinu, en Thailend- ingar þykja mjög listræn þjóð — brönugrasakransar þeirra lista- verk og útskomar melónur augna- yndi. En athyglisverðast er að sjá, hvemig lífsstíll fólksins hefur haldist um aldir. Gullin konung-shöll og Búddahof Þegar Bangkok er skoðuð er bæði hægt að fara inn í hópferð eða leigja sér bíl með eigin leið- sögumanni og ráða ferðinni sjálf- ur. Leigubíll í tvo tíma kostar um 500 krónur. Enginn hefur skoðað borgina nema að sjá konungs- höllina, áður aðsetur konunganna og helgasta hof Thailands, Vat Phra Keo, með fremsta Búdda- líkneskinu. Báðar byggingar eru skreyttar gulli og dýrum steinum og sýna vel frábæra listsköpun thailensku þjóðarinnar. Thailensk kvöldmáltíð, á meðan horft er á hefðbundna trúardansa er líka ómissandi þáttur. Heimsókn í Rósagarðinn, krókódílabúgarð, í thailenskt þorp og útreiðartúr á fílsbaki eru líka á dagskrá í skoð- unarferðum. Að hvíla sig á sólarströnd Eftir skoðunarferðir í gegnum foma og nýja menningu kjósa flestir að hvíla sig í sólarströnd. Skipta má hótelum og um leið sólarströndum í nágrenni Bang- kok í þrennt. Á Pattaya-strönd- inni er „Royal Cliff'-hótelið — vemdað svæði með einkaströnd, úrvali af verslunum, veitingahús- um, íþróttasvæðum, sundlaugum og skemmtistöðum. Allt fyrsta flokks, en gæti verið hvar sem er í heiminum — ömggt fyrir §öl- skyldur með böm. Á Pattaya er líka hægt að fá ódýrari hótelgist- ingu við almenningsströndina, sem er þá orðin eins og aðalgata með heimafólki, sem býður sölu- vaming og margs konar skemmt- an fyrir ferðamanninn — kannski hægt að koma fyrir baðhandklæði inn á milli, eitthvað í Spánar- strandastíl! Kort af Thailandi. Phuket - eyjan I suðri Klukkutíma flug er til Phuket- eyjar frá Bangkok, en þar má segja að sé þriðji valkostur um hvíld á sólarströnd eftir menning- arferð. Náttúrufegurð er mikil á Phuket-eyju, þar sem klettar, kór- alrif og nálægar smáeyjar með hvítum, óspilltum sandströndum. Kvikmyndatökur hafa verið vin- sælar í þessu fagra umhverfí og Jólagjaih-flugmiðimi Margir eru á ferð=Ág flugi um jólaleytið. Flugfélögin vilja koma til móts við þá og auðvelda þeim för. SAS er með sérfargjöld innan Norð- urlanda, svokallaðan jóla- gjafa-flugmiða. Flugleiðir bjóða líka sambærilegan miða til Kaupmannahafnar. Jólafargjald Flugleiða til Kaupmannahafnar tók gldi 17. nóvember og stendur til 31. desember. Verð á mann er 14.700 krónur, með einni gisti- nótt í tveggja manna herbergi á hótel Absalon og 15.110 krónur á hótel Admiral. Verðið er helgarverð, en í miðri viku er aukagjald. Hámarksdvöl er sjö dagar. Jólafargjald SAS er 14.800 krónur til Kaupmanna- hafnar, ein gstinótt inniíalin á hótel Palace, líka helgarverð. Fargjald SAS er í gildi frá 15. desembertil 13. janúar og dval- artími takmarkast við það tíma- bil. Að auki býður SAS jólafar- gjöld frá Kaupmannahöfn til Stokkhólms og Osló, krónur 4.100 og Kaupmanna- höfn/Helsinki, krónur 8.200 er í gildi á sama tímabili. ein lítil eyja ber nafnið „James Bond“. Óteljandi möguleikar á hverskonar vatnaíþróttum eru út frá ströndunum, meðal annars fiskveiðar og köfun niður á kóral- rif. Hvað ber helst að varast? í framandi landi, með ólíkum matarvenjum og meiri sól en fs- lendingar eiga að venjast, er aldr- ei of varlega farið. Landlæknir gerir ekki kröfu um sprautur fyr- ir Thailandsferð, en ef ferðast er út fyrir hefðbundna ferðamanna- staði, til dæmis til norðurhlutans, er sjálfsögð varúðarráðstöfun að láta sprauta sig í samráði við lækni. Helst ber að varast sól- bruna. Sólskin á hvítri sand- strönd, með endurspeglun frá blá- um haffleti er ótrúlega sterkt, bruninn getur verið svo djúpur, að hann komi ekki fram fyrr en nokkrum dögum seinna! Læknis- þjónusta er allan sólarhringinn á betri hótelum, en auðvelt að ná í lækni og lyf á ferðamannastöðum — sólaráburð og græðandi smyrsl. Thailenskt hreinlæti Alls staðar blaktir hvítur þvott- ur til þerris. Thailendingar viröast blússa hér heima og thai-siikið er í öllum regnbogans litum. Ef ein- hver ætlar áð láta sauma á sig í Thailandsferð er ágætt að vera búinn að fletta í gegnum tískublöð og vera með tilbúnar fyrirmyndir til að láta sauma eftir. Eftirlíking af dýru úri, getur gengið árum saman og verðið er um 300 til 400 krónur — svo lágt, að viðgerð borgar sig ekki! Fyrirmyndir að skartgripum sækja þeir í muster- in, en landið er ríkt af dýrum eðalsteinum og thailenskir skart- gripir eru bæði fallegir og á góðu verði. Þjónusta við einmana karlmenn Ekki verður skilið svo við ferða- þjónustu í Thailandi, að ekki sé minnst á þá tegund, sem hefur blómgast þar um árabil — þjón- ustu, sem er erfítt fyrir okkur Vesturlandabúa að skilja. Ifyrst verðum við að reyna að skilja af hveiju allt er svona ódýrt. Thai- land er láglaunaland og oft er enga vinnu að fá; lífsbaráttan oft æði vonlaus — og fólkið alið upp til að þjóna öðrum. Eina lífsvonin fyrir margar ungar stúlkur er að þjóna einmana karlmönnum, sem koma til að leita sér að félags- skap. Það er ömurleg sjón að horfa inn á hinar svokölluðu „nuddstofur", þar sem ungu stúlkumar sitja númeraðar á upp- hækkuðum bekkjum, eins og á fótboltavelli — til að láta velja sig! Þær í dýrari flokkinum taka á móti hinum „einmana karlkyns- verum“ strax á flugvelli og fylgja Bátafólkíð í Bangkok. yfírleitt vera að borða, elda eða þrífa. Þeir éru mjög hreinlátir, en hreinlæti þar er annað en hrein- læti hér heima. Við erum ekki með mótefni gegn sömu bakter- íum og þeir. Matarílát eru yfir- leitt þvegin upp úr fljótinu og þess vegna getur verið varasamt fyrir okkur £ið kaupa mat á götum úti — úr hinum hefðbundnu „núðluvögnum" þeirra, sem víða bjóða upp á freistandi, ódýra smá- rétti. Thailenskt fæði er svipað hinu kínverska og japanska, mikið af smáréttum, hrísgijónum og snöggsoðnu grænmeti. Það er hollt og gott og mjög gaman að prófa það á góðum matsölustöð- um. Gaman að fara í búðir Thailendingar eru snillingar í að búa til eftirlíkingar! Þeir líkja eftir dýrustu tískuvörum, t.d. dýr- ustu tegundum af úrum, svo að erfitt er að sjá nokkum mun, nema fyrir kunnáttufólk í faginu! Hægt er að fá dragtir, blússur, kjóla og alfatnað saumað á tveim- ur dögum á ótrúlega lágu verði (gleymið ekki að „prútta") og úr góðu efni; kannski 5-6 silkiblússur fyrir sama verð og ein bómullar- þeim um ailt. Ferðamálayfirvöld hafa miklar áhyggjur af þessari vafasömu „þjónustu", ekki síst þegar sjúkdómurinn eyðni fer eins og. eldur í sinu um nálægar slóð- ir. Vonandi er enginn íslenskur karlmaður svo skyni skroppinn, að hann taki slíka áhættu. Nokkrar verðhugmyndir Flugleiðin Keflavík/Kaup- mannahöfn/Bangkok kostar 56.740 krónur. Flugfar með 17 daga hótelgistingu og morgun- verði kostar frá 76.520 krónum. Gisting á mjög ódýrum gistiheim- ilum er líka í boði, en hana er ekki hægt að panta fyrirfram og ekki mælt með henni nema fyrir þá sem vel þekkja til. Flugleiðin, Bangkok/Phuket-eyja/Bangkok kostar 3.000 krónur. Það er vin- sælt að kaupa áframhaldandi flugfar til Singapore, sem er litlu dýrara eða 61.410 krónur — en þar er mjög hagstætt að kaupa rafmagns- og ljósmyndavörur. Áð lokum má taka fram, að það er vissara að panta og skipuleggja Thailandsferð með nokkrum fyrir- vara. 18 i

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.