Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.1989, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.1989, Síða 2
Ekki á Heytorgi - heldur heima að er svali í loftinu ekki ósvipaður og á íslensku sumri. Haustið er í nánd og fuglamir eru á förum, síðbúnustu svölurnar nappa seinustu skordýrin í loftinu á leið sinni til suðrænnar álfu. En ég sit heima og ekki á mér fararsnið Ýmsar hræringar í Svíþjóð eru að koma upp á yfírborðið. Bofors-vopnasölumálið, hleranir öryggisþjónustunnar sænsku á rússneskum sendiráðsstarfsmanni. Og fleira. Hefur hið margumtalaða hlutleysi leitt Svía af leið? Eftir HAFLIÐA VILHELMSSON nema hvað mig langaði að bregða mér í Berwaldhallen á Strandveginum og hlýða á kvennakór búlgarska útvarpsins. Yfirskrift eða heiti kórsins vekur duldar þrár: Le Mystére des voix Bulgares, stendur í auglýs- ingunni. Þótt ég hafí aldrei heyrt söng þessa kórs veit ég samt að konumar hafa slegið í gegn og í Bandaríkjunum jöfnuðust vin- sældir þeirra á við bestu rokkhljómsveitir. Því miður varð aldrei úr að ég hlýddi á sönginn. Og sagt er að það eitt sé iðrunar vert sem aldrei var gert. Ef til vill mun ég að hálfri öld liðinni vakna upp úr Alzheim- er-minnisdvala og fara að bijóta heilann um þessar dularfullu búlgörsku raddir; hveijar voru þær og hvað sungu þær? í stað þess að hlýða á kvennasöng tefldi ég skák við íslenskan vin minn, byggingar- verkamann sem nýkominn er til Stokkhólms og ætlar sér að reisa ijáfur á sænsk hús. Og mér varð hugsað til þess á meðan við tefldum undir kassettutónlist gerska vísna- söngvarans Vládimír Vissoskí sem lést fyrir nokkrum árum úr fylleríi og hafði aldrei fengið útgefna plötu en varð samt þjóð- skáld, að nú myndi afrakstur vinnu vinar míns reiknast inn í brúttóþjóðarframleiðslu Svíþjóðar í næstu skýrslu frá OECD. Að vísu varla sjáanlegt pínuprómill af heildar- framleiðslu konungdæmisins en þessi bý- baggi kæmi út sem mínus fyrir BNP Islands. Manntafl er þögull leikur. Og það er hljótt í Svíþjóð um þessar mundir. Ingvar Carls- son, forsætisráðherra, þegir þunnu hljóði yfir meintri hlerun sænsku öryggisþjón- ustunnar á rússneskum sendiráðsmanni. Og Ingvar ætlar sér ekki að ijúfa þögnina. Hleranir er nokkuð sem á að fara hljóðlega og alls ekki að hafa hátt um. Enda ekki sæmandi að viðurkenna nokkuð sem alger- lega er ólöglegt og þverbrot á þjóðréttarregl- um. Og hver veit nema þessi meinta hlerun gæti orðið til að kasta rýrð á hlutleysis- stefnu Svíþjóðar, þá heilögu kú? Svíum er annt um hlutleysi sitt og ræða það ótt og títt. Tæpast til það umræðuefni að það fari ekki út í hlutleysissálmana. Svíar horfa með kvíða fram til ársins 1992. Hvemig fer fyrir iðnaðinum, Volvo, Ericson og öllum hinum risunum ef Svíþjóð nær ekki vildarsamningum við hinn opna markað Efnahagsbandalagins? Aðild kemur að sjálf- sögðu ekki til mála; Svíar eru hlutlaus þjóð. En írar? spyija þá borgaralegu meinhornin. Þeir eru hlutlausir en samt innan bandalags- ins. Þá verður fátt um svör enda írland ekki Svíþjóð. „Blessað stríðið sem gerði syni mína ríka,“ sagði Gísli Rúnar skopleikari á plötu sem hann lét frá sér fyrir einhveijum árum og allof hljótt varð um. Þar var Gísli að viðra alþýðuvisku misviturra manna sem töldu að íslandi hefði verið borgið með stríðinu, að minnsta kosti flæddu peningarn- ir inn í landið. En er ekki sálin meira verð en öll ríki heims? Flestir hefðu eflaust kosið að komast hjá því að dragast inn í stríðsátök- in sem hófust fyrir fimmtíu árum með inn- rásinni í Pólland. ísland var hlutlaust en það dugði ekki til. Svíar hafa alltaf þakkað það hlutleysi sínu að þeir sluppu að mestu undan ógnum stríðsins. Og til eru þeir sem halda því fram að velfarnaður Svíþjóðar byggist á því að Svíar komust hjá gjöreyðingu stríðsins. Á meðan allir aðrir brenndu niður, byggðu þeir upp þann grunn sem enn stendur. Þegar Svíar rifja upp stríðið minnast þeir helst á samheldni fólksins, skömmtun- arseðlana og rússneskar bombur. Og það er ekki laust við angurværan rómantískan glampa í augunum. Þeir vilja helst hafa hljótt um stjórnmálalega hlið stríðsins og þótt þeir séu iðnir við að krefjast þess af Þjóðveijum og Austurríkismönnum að þeir horfist í augu við fortíð sína, virðast þeir ekki þurfa á neinu slíku að halda sjálfir. Per Albin Hansson, þáverandi forsætis- ráðherra Svíþjóðar, var mikilsvirtur og elsk- aður leiðtogi. Hans mun ætíð minnst fyrir þau orð sín í útvarpinu að Svíþjóð væri vel undir stríð búin. Auðvitað vissu allir að það var ekki satt en þessi staðhæfing þjappaði fólkinu saman og herti upp hug þess. Per Albin Hansson hafði það að leiðar- ljósi að halda Svíþjóð utan við stríð, sama hvað það kostaði. Sú stefna var fólgin í því að halda fast í hlutleysið og taka á vanda- málunum, les: kröfum Þjóðveija, eftir því sem þau kæmu og reyna að elta þau og draga eins lengi og kostur var og ekki taka neina ákvörðun fyrr en í fulla hnefana. Og loks þegar ekki varð undan komist var látið undan Þjóðveijum. Þess vegna fengu Þjóðveijar að flytja hermenn sína í gegnum landið, allt í allt rúmlega tvær milljónir milli 1941 og 1943 þegar flutningunum var hætt. Þess vegna var Þjóðveijum gefin heimild til að hafa birgðastöð í Luleá og þess vegna voru dag- lega flutt 45 þúsund tonn af málmgrýti yfir Eystrasalt. En hefðu Þjóðveijar hemumið landið ef þeim hefði verið bannað að sigla skipum sínum í skjóli skeijagarðsins? Hefðu Þjóð- veijar gert innrás ef Svíar hefðu skotið nið- ur flugvélar þeirra sem flugu frítt eins og svölur um lofthelgi þeirra? Svona má lengi spyija og er spurt. Hvers virði er hlutleysi sem er teygt og togað á alla vegu? Er það hlutleysi? Nei, samkvæmt gildandi sáttmála sem kenndur var (er?) við Haag var hlut- leysi ríkis túlkað svo að það skyldi varið ef reynt væri að þrengja að því og Svíar gengu í berhögg við allar greinar þess sátt- mála. Per Albin Hansson viðurkenndi það fyrir sjálfum sér, fyrir ríkisstjórninni og þinginu að Svíar hefðu svikið hlutleysis- stefnu sína. Og það gerðu þeir af hræðslu við hernám Þjóðveija. Og það fór ekki hátt um viðbrögð eða mótmæli Svía við þessum brotum á hlut- leysi þeirra. Fyrst og fremst var séð til þess með ritskoðun að hljótt færi um öll andmæli og andófsraddir voru kveðnar nið- ur af ríkisstjórninni. En þar að auki hvíldi góður skilningur á milli nágrannanna og Svíar voru margir góðir vinir Þjóðverja og víluðu ekki fyrir sér að hrópa húrra fyrir þýsku hersveitunum þegar þær fóru hrað- fari yfir landið og sjálfur konungurinn, Gústav V lét ekki hjá líða að þakka Hitler fyrir að leggja til atlögu við bolsévika, þá miklu heimsógn, og sagðist vona að ríkis- stjórn sín gæti bráðlega bannlýst sænska kommúnistaflokkinn. Það má ekki gleyma að Svíar voru um- kringdir af Þjóðveijum mestöll stríðsárin og þeir urðu að eiga við þá verslun. Sam- gönguleiðirnar vestur voru ekki það opnar og auðvitað hefur sænsku ríkisstjóminni þótt affarasælast að styggja ekki sína vold- ugu vini því eiginlega var búist við því að Hitler færi með sigur af hólmi og að Þjóð- veijar myndu ráða stjórnmálum og verslun að leik loknum. En Hitler tapaði stríðinu og Svíar héldu hlutleysisstefnunni. Og sú heilaga kýr er orðin ansi þung í taumi og nú fimmtíu árum eftir stríð eru Prússar enn á ný orðnir valda- mestir í Evrópu þótt á friðsamlegri hátt sé og á borði eru Þjóðveijar í forystu Efnahags- bandalagsríkjanna tólf þótt ekki sé það svo í orði. Og Svía langar að verða ein af stjörn- unum í fána EB en þeir telja sig ekki geta orðið það, allt vegna sinnar heilögu kýr sem heitir hlutleysi. Og nú, þegar ég er að missa stöðuna í tafli mínu við byggingarverkamanninn, vin minn, sem ætlar að leggja sitt af mörkum til að auka hagvöxtinn í Svíþjóð, eru að hefjast réttarhöld í Stokkhólmi í svokölluðu Bofors-máli. Á ákærendabekknum sitja fyrrverandi stjórar í vopnaverksmiðjunni Bofors og liggja undir þeirri sök að hafa brotið lög um vopnaútflutning. Það er nefni- lega bannað að selja vopn til stríðandi þjóða því slíkt athæfi brýtur í bága við hlutleysis- stefnu Svíþjóðar. Þessir herrar eru sakaðir um aö hafa með bestu vitund selt vopn til landa við Persaflóa í gegnum Singapore og jafnvel Ítalíu og England. Skýrt brot á útflutnings- lögunum en samt finnst flestum að það sé óþarfi að hafa hátt um þetta, svona hafi alltaf viðgengist og lögin upprunalega sett að undirlagi Bandaríkjanna til að koma í veg fyrir vopnasölu til Austur-Evrópu. Þeir ákærðu hafa það sér til varnar að þeim hafi fyrst og fremst verið umhugað um ör- yggi Svíþjóðar, hlutleysisins vegna verða Svíar að eiga sjálfstæðan vopnaiðnað og til þess að iðnaðurinn beri sig verður að selja framleiðsluna til útlanda. Auk þess er þeim annt um að halda uppi fullri atvinnu í Karl- skoga þar sem vopnaverksmiðjur Böfors standa. En réttarhöldin verða víst að fara fram. Vopnasalan er meint lögbrot sem kært var til lögreglunnar árið 1984 og hefur verið til rannsóknar síðan. Það voru sænsk friðar- samtök sem gerðu ríkisstjórninni þennan óleik að vera að kæra og á sunnudaginn var (3. sept.) vildu þessi samtök fá leyfi lögreglunnar til að mótmæla pínlegri þögn ríkisstjórnarinnar í öllu þessu máli en lög- reglan synjaði samtökunum leyfis að mót- mæla fyrir utan hús utanríkisráðuneytisins. Alveg óþarfi að vera með hávaða í sam- bandi við þessi réttarhöld sem enginn eigin- lega vill að fari fram. Það er alveg augljóst að Svíar verða að eiga vopn til að geta varið hlutleysi sitt. En friðarsamtökin létu ekki deigan síga þrátt fyrir synjun lögregluyfirvalda. í stað mótmælafundar fyrir framan utanríkisráðu- neytið var efnt til sunnudagsgöngu og ekki gat lögreglan meinað borgarbúum að taka sér smá prómenað í svalri haustsólinni. Skák og mát, sagði vinur minn, bygging- arverkamaðurinn. Alltaf sárt að bíða lægri hlut í skák. En taflið gefur engin grið, þar er annaðhvort að vinna eða tapa og ekki boðið upp á neitt hálfkák, enga millivegu. Og svo kvaddi vinur minn. Hann kvaðst ætla að ganga til hvílu því það var um að gera að vera vel sofinn fyrir vinnuna ef „maður hefur einhveijar ambisjónir að meika það“ eins og hann komst svo vel að orði á sinni nútíma reykvísku. Höfundur er rithöfundur. 2

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.