Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.1989, Page 13
LESBOK
M O R GUNBLAÐSI N S
11. NÓVEMBER 1989
FERIHBI.tn
LESBÓKAR
Skíðasvæði Klettafjalla
heilla Evrópubúa
Breiðar brekkur, breið hattbörð og breið bros. Skíðafreyjur í
einkennisbúningi bjóða gesti velkomna til kúrekabæjarins Ste-
amboat Springs.
Það er spennandi
og “öðruvísi" að
skíða í Bandaríkjun
um. Kynnist því
hvernig sérfræð-
ingar stjörnum-
erkja svæðin og
segja í hreinskilni
frá kostum þeirra
og göllum. /J4
Það eralltaf vin-
sælt að nota
íslenska ferðaþjón-
ustu á erlendri
grund. Sigurveig
Lúðvíksdóttir segir
okkur hvernig er að
gista á gistiheimil-
inu Brautarholti í
Orlando./75
Spáð er að bresku skíðafólki
muni Qölga um helming á
amerískum skíðasvæðum í vet-
ur. Lélegur skíðasnjór í Olpun-
um, sem kom þar að auki seint,
varð til þess að fleiri Bretar
panta skíðaferðir til Banda-
ríkjanna. Skíðasérfræðingar
breska dagblaðsins The Times
gefa amerískum skíðasvæðum
mjög háa einkunn. En þeir
gagnrýna miskunnarlaust
síbyljutónlist, sem er of mikið
spiluð þar og veitingahús í íjöll-
unum, sem þeir segja að minni
á hlöður. Skíðasvæði Kletta-
Qallanna eru greinilega mjög
frábrugðin skíðasvæðum Alpa-
íjalla. Hvað flnna ferðamenn á
skíðasvæðum Klettaíjalla?
Þegar Bandaríkjamenn tala um
að fara vestur á skíði, eiga þeir
ekki við vesturströndina heldur
villta vestrið, Colorado, Wyoming
og Utah. Þar standa áður yfir-
gefnir námubæir eins og Aspen,
Breckenridge og Park City, sem
hafa öðlast nýtt líf með tilkomu
skíðafólksins. Einnig kúrekabæ-
irnir Jackson Hole og Steamboat
Springs. Þar fást hin einu sönnu
kúrekastígvél! í hlíðum Kletta-
ijalla, sem snúa að vesturströnd-
inni, eru skíðastaðir við Tahoe-
vatn, Heavenly Valley og Squaw
Valley, á fylkjamörkum Kaliforníu
og Nevada. Utsýni frá „Himneska
dalnurn", eins og íbúarnir nefna
hann, er talið guðdómlegt. í Nýja
Englandi, eins og í gamla bænum
Stowe og hinum nýtískulega bæ
Killington, eru bestu skilyrði til
að stunda skíði seinni hluta vetr-
ar, þegar fer að draga úr frost-
hörkum.
Hvernig Bandaríkjamenn fram-
kvæma hlutina, ætti að tryggja
flestum gott skíðafrí! Hið mikla
ríkidæmi Bandaríkjanna er aug-
ljóst í uppbyggingu skíðastað-
anna. Risastórir bjálkar eru not-
aðir í þjónustumiðstöðvar og veit-
ingahús í íjöllunum, sem gera
húsin mjög hlýleg (en þau minna
óneitanlega stundum á hlöður).
Snyrtingar og setustofur eru
geysistórar. Til að sýna hvað
Bandaríkjamenn hugsa í stærri
hlutföllum en Evrópubúar, má
nefna hótelið Raquet Club í Jack-
son Hole, sem býður upp á tvö
aðskilin svefnherbergi í „tveggja
manna gistingu"! Ef miðað væri
við lúxusgistingu í Val d’Isére,
væri sama gistirými ætlað fyrir
sex manns! En fæstir fara á skíði
til Bandaríkjanna, aðeins til að
sofa í konunglegum „hótelsvít-
um“! Það er fleira sem heillar.
Biðraðir eru sjaldgæfar á
bandarískum skíðastöðum. Þjón-
usta er frábær. Lyftuvörður óskar
öllum góðrar ferðar upp í fjallið
og á lyftubrún standa brosandi
skíðaverðir til að leiðbeina þér á
þær brautir sem þú óskar — gul-
ar, grænar eða svartar. Allt er
mjög vel merkt — yfirleitt kort
yfir skíðasvæðið efst á fjallinu og
næstum útilokað að villast. Braut-
irnar bera skemmtileg nöfn, sem
gera skíðasögurnar litríkari við .
arineldinn á kvöldin. Girðingar
eru á mörkum skíðasvæðanna og
svartar brautir mjög vel merktar.
Allt er gert til að viðskiptavinur-
inn njóti þess að skíða. Þeim, sem
renna sér í veg fyrir aðra, troða
sér fram fyrir í lyftum eða hegða
sér ekki eins og lög gera ráð fyr-
ir, er tafarlaust vísað af svæðinu
og skíðapassi tekinn af þeim.
Bandaríkjamenn eru fljótir að
kæra þann sem.ekki hagar sér
vel og fara fram á skaðabætur,
sem skipta oft hundruðum þús-
unda! Eins gott að gæta sín.
Öryggisatriði, sem okkur finnst
kannski benda til hins gagnstæða,
er að hafa enga hvíldarstöðu fyrir
fætur eða belti í stólalyftum. -
Þetta gera þeir til að fólk flækist
ekki í eða gleymi að losa sig og
telja að það dragi úr slysum. Arin-
eldur er ómissandi á bandarískum
skíðastöðum. Einnig ísskápar,
sem hægt er að ganga í. Auðveld-
ur aðgangur að þvottavélum og
þurrkurum, sem standa oft á
hverri hæð á hótelum. Ef við
bætum við litlu íkornunum, sem
hoppa allt í kring, elgsdýrunum,
ódýrum bílaleigubílum og góðu
vegakerfi, þar sem snjórinn er
hreinsaður burt á því augnabliki
sem hann fellur — þá er augljóst
að skíðafrí í Bandaríkjunum er
„öðruvísi"!