Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.1989, Blaðsíða 15
Gular brautir: 20%
Grænar brautir: 30%
Svartar brautir: 50%
Skilyrði utan brauta: Mjög góð
Lyftuijöldi: 8
Sex daga skíðapassi: 11.904 kr.
Fjarlægð á flugvöll: 45 mínútur
Upplýsingar: 801 742 2222
Squaw Valley, Kalifornía
Snjóþykkt: 8
Stórt, veðurbarið, fremur nota-
iegt en erfitt skíðasvæði. Gott fyr-
ir sterka skíðamenn og harða af
sér. Varkárir skíðamenn gætu lent
í sömu vandræðum og konan, sem
tindarnir voru skírðir eftir „KT
22“, en hún komst aðeins niður í
22 eríiðum áföngum! Stórkostlegt
útsýni yfir Tahoe-vatn, sem er ta-
lið eitt fallegasta fjallavatn í heimi.
Svæðinu er vel þjónað með lyftum,
en er í raun aðeins íjallakofaþyrp-
ing, sem skortir andrúmsloft smá-
staðar. Þjónusta er til fýrirmyndar.
Hæð skíðastaðar: 9.050 fet
Mesta hæð: 8.700 fet
Tengist ekki við önnur svæði
Skíðasvæðið: 8.300 ekrur
Gular brautir: 25%
Grænar brautir: 45%
Svartar brautir: 30%
Skilyrði utan brauta: Mjög góð
Nýjungar: 5 lyftur, snjóbretti
velkomin, nýtt svæði „Squaw
Creek“ tekið í notkun 1990
Lyftufjöldi: 32
Séx daga skíðapassi: 10.788 kr.
Fjarlægð á flugvöll: Reno 45
mínútur
Upplýsingar: 916 583 6985
Steamboat Springs,
Colorado
Snjóþykkt: 8
Sérfræðiálit: Ekki mjög krefj-
andi fyrir skíðamanninn, en dýrt
svæði. Mikið af stórum, breiðum
svigbrautum, en ekki nægilega
mikið af brunbrautum. Bærinn
skiptist í tvennt. Nýrri hlutinn nær
lyftunum, en gamli bærinn í
tveggja mílna fjarlægð, Kúreka-
land!
Hæð skíðastaðar: 6.900 fet
Mesta hæð: 10.500 fet
Tengist ekki öðrum svæðum
Skíðasvæðið: 2.500 ekrur
Gular brautir: 15%
Grænar brautir: 54%
Svartar brautir: 31%
Skilyrði utan brauta: Mjög góð
Lyftufjöldi: 21
Sex daga skíðapassi: 11.532 kr.
Fjarlægð á flugvöll: Denver
rúmlega 4 klst. r
Upplýsingar: 303 879 6111
Stowe, Vermont
Snjóþykkt: 4
Bærinn er ótrúlega snyrtilegur,
eins og myndabók af Nýja Eng-
landi — gamla Ameríka í augum
Ameríkana. Ferðamenn koma ekki
síður til að skoða bæinn en að
skíða á Mount Mandfield, sem er
í 6 mílna fjarlægð. í nægum snjó
er gott að skíða þarna, einkum
fyrir byijendur og miðlungs skíða-
fólk.
Hæð bæjarins: 1.300 fet
Mesta hæð: 3.660 fet
Tengist ekki öðru svæði
Skíðasvæðið: 370 ekrur
Gular brautir: 17%
Grænar brautir: 48%
Svartar brautir: 35%
Skilyrði utan brauta: Takmörk-
uð
Nýjungar: Svört braut og fleiri
snjóþeytarar
Lyftufjöldi: 10
Sex daga skíðapassi: 10.230 kr.
Fjarlægð á flugvöll: Burlington
45 mínútur
Upplýsingar: 802-253 7311
Sun Valley, Idaho
Snjóþykkt: 8
Sérfræðiálit: Einn af bestu
skíðastöðum í Bandaríkjunum,
með fjölmörgum löngum, bröttum
brunbrautum. Virðist ekki sérstakt
úr fjarlægð, en þegar farið er að
skíða er fallhæðin miklu meiri en
þú áttir von á. Bærinn var byggð-
ur um 1930, í stíl við austurrísk
alpaþorp. Hann lítur út eins og
kvikmyndabær, en er vel skipu-
lagður.
Hæð skíðastaðar: 5.700 fet
Mesta hæð: 9.140 fet
Tengist ekki öðrum svæðum
Skíðasvæðið: 1.300 ekrur
Gular brautir: 38%
Grænar brautir: 45%
Svartar brautir: 17%
Skilyrði utan brauta: Góð
Nýjungar: Fleiri snjóþeytarar,
breikkaðar brautir, beint flug til
staðarins með America West Airli-
nes
Lyftufjöldi:16
Sex daga skíðapassi: 11.160 kr.
Fjarlægð á flugvöll: Salt Lake
City 5 klst. Twin Falls 2 klst.
Upplýsingar: 208 622 4111
Taos, Nýja Mexíkó
Snjóþykkt: 7
Sérfræðiálit: Eitt besta skíða-
svæði í heimi. Á engan sinn líka.
Lítið, notalegt og gerir endalausar
kröfurtil skíðamannsins. Krefjandi
svæði, þó að næturlífinu sé haldið
utan við! Vonandi á það eftir að
halda sínu einstæða svipmóti, sem
Ernie Blake var höfundur að, þó
að hann hafi dáið síðastliðinn vet-
ur.
Hæð skíðastaðar: 9.200 fet.
Mesta hæð: 11.816 fet
Tengist ekki öðru svæði
Skíðasvæðið: 1.054 ekrur
Gular brautir: 25%
Grænar brautir: 25%
Svartar brautir: 50%
Skilyrði utan brauta: Einstak-
lega góð
Nýjungar: Fjögurra stóla lyfta,
skíðamiðstöð
Lyftuijöldi: 9
Sex daga skíðapassi: 10.788 kr.
Fjarlægð á flugvöll: Albuquer-
que 3 klst. Denver 6 klst.
Upplýsingar: 505 776 2291
Telluride, Colorado
Snjóþykkt: 7
Sérfræðiálit: Fagurt landslag.
Gamall, mjög snyrtilegur námu-
bær. Brekkur fyrir byijendur upp
í þjálfaða. Grænar brautir í meiri
hluta.
Hæð skíðastaðar: 8.725 fet
Mesta hæð: 11.890 fet
Tengist ekki öðru svæði
Skíðasvæðið: 761 ekra
Gular brautir: 24%
Grænar brautir: 50%
Svartar brautir: 26%
Skilyrði utan brauta: Mjög góð
Lyftufjöldi: 10
Sex daga skíðapassi: 10.788 kr.
Fjarlægð á flugvöll: Telluride
10 mínútur
Upplýsingar: 303 728 3856
Vail/Beaver Creek,
Colorado
Snjóþykkt: 8
Sérfræðiálit: Fjölbreyttasta val
brauta í Colorado. Mjög gott lyftu-
kerfi. Skíðað á milli tijáa og í opn-
um, breiðum brekkum. Bærinn er
mjög evrópskur. I Ameríku, þar
sem allt miðast við stærð, er
stærsta staka skíðasvæðið — Vail
— aðeins!4 hluti af því stærsta í
Evrópu — Trois Vallées. Skíða-
brautir í Vail gefa miðlungs-
skíðamanni ógleymanlega tilfinn-
ingu.
Hæð skíðastaðar: 8.200/8.000
fet
Mesta hæð: 11.450/11.440 fet
Tengist við: Tvö önnur svæði
með tíðum áætlunarferðum
Skíðasvæðið: 3.787/800 ekrur
Gular brautir: 32/23%
Grænar brautir: 36/43%
Svartar brautir: 32/64/34%
Skilyrði utan brauta: Mjög góð
Nýjungar: Fleiri snjóþeytarar,
stólalyfta
Lyftufjöldi: 20/10
Sex daga skíðapassi: 12.276 kr.
Fjarlægð á flugvöll: Eagle
County 30 mínútur, Denver 2 klst.
Upplýsingar: 303 476 5601
* Landsnúmer fyrir Bandaríkin og
Kanada er 0101.
* í Norður-Ameríku eru auðveldar
brautir merktar „gular", miðlungs
„grænar“ og erfiðar „svartar".
Svörtu brautirnar eru aðgreindar
með einni eða tveimur stjörnum.
Tveggja stjörnu braut er hættu-
lega erfið fyrir viðvaninga.
* Sérfræðingarnir sem gáfu álit
sitt, eru bæði áhuga-, keppnis- og
fjölmiðlafólk, eða þeir sem hafa
fylgst með skíðaþróun í Ameríku
og þekkja svæðin inn og út.
Heimild: The Times
Fyrir framan Brautarholt.
Gistiheimilið Braut-
arholt í Orlando
Sniðið fyrir foreldra o g börn í ævin-
týraleit,“ segir Signrveig- Lúðvíks-
dóttir í viðtali við Ferðablaðið
íslendingar kunna vel að
meta íslenska ferðaþjónustu á
erlendri grund. í Orlando í
Bandaríkjunum tekur íslensk
kona, Ragnheiður Jones, á móti
ferðamönnum. Hún leigir út
tvær íbúðir í einbýlishúsahverfi
miðsvæðis í borginni. Stærri
íbúðin er með tveimur svefn-
herbergjum og hentar vel fyrir
1-2 fjölskyldur eða fjóra full-
orðna og börn. Sú minni er
sniðin fyrir hjón eða einstakl-
inga.
Ragnheiður Jones er búin að
búa í Bandaríkjunum yfir 20 ár.
Kom til þangað sem „au pair“-
stúlka, en er nú gift kona með
ljölskyldu. Þau hjónin keyptu ein-
býlishúsið við hliðina á sínu húsi
og innréttuðu í því tvær íbúðir,
sem þau leigja ferðamönnum.
Ragnheiður gaf gistiheimilinu
nafnið Brautarholt. Aðstaða er öll
mjög góð í Brautarholti. Stór bak-
garður með heitum nuddpotti,
kaldri smálaug, leiktækjum fyrir
börn og góðri sólbaðsaðstöðu.
Ferðablaðið ræddi við Sigurlaugu
Lúðvíksdóttur, sem gisti hjá
Ragnheiði um síðustu páska.
„Við hjónin gistum þarna
ásamt þremur stálpuðum börnum
okkar og foreldrupi mínum. Það
fór eins vel um okkur og við vær-
um inni á heimili. Leigan á íbúð-
inni er sambærileg við ódýrt
tveggja manna hótelherbergi. Það
munar líka heilmiklu að geta
keypt í matinn og eldað sjálfur,
þegar svona margir ferðast sam-
an. Ódýrt að kaupa í matinn og
mikið um tilbúna rétti (matvöru-
verslun rétt hjá opin allan sólar-
hringinn, alla daga)! Við leyfðum
krökkunum einu sinni að kaupa
sér hamborgara. Það kostaði jafn-
mikið og að kaupa vel í matinn
fyrir okkur öll, með vínföngum!
Ferðin hefði orðið umtalsvert dýr-
ari, ef við hefðum átt að borga
fyrir hótelherbergi og fara út að
borða á hverjum degi. Það er líka
mjög þægilegt að geta stungið í
þvottavél.
í næsta nágrenni eru hinir vin-
sælu skemmtigarðar, sem börn
og fullorðnir eru jafnhrifin af. í
Disney World eru frábærar ljósa-
sýningár um páskana. Öll ævin-
týrin renna framhjá þér á upplýst-
um vögnum, með ótal pínulitlum
perum. Ævintýri, eins og Lísa í
Undralandi, Mjallhvít og Þyrnirós
öðlast lifandi mynd. Hver gleymir
til dæmis flugeldasýningu yfir
höll Öskubusku — eða sæskrímsl-
unum, sem birtast í bátnum? Auð-
vitað er þetta dýrt. Þriggja daga
kort fyrir okkur öll kostaði um
20.000 kr. En það er svo sannar-
lega þess virði — alltaf eitthvað
nýtt að sjá. Núna er komið kvik-
myndaver Disneys og „Epcot
í góðum félagsskap í Disneyl-
andi.
Centre“ og kortið er hægt að
nota jafnhliða í garðana þijá. Við
gátum leyft okkur að heimsækja
fleiri garða og oftar, þar sem gist-
ing og matur voru svona ódýr.
— Ferðalagið hafði verið lengi
á dagskrá. Við hjónin fórum til
Orlando fyrir 9 árum og urðum
þá svo hrifin af ævintýragörðun-
um, að við hétum því að fara
aðra ferð með börnunum okkar.
Mér finnst að allir foreldrar ættu
að reyna að fara með börnin sín
til Disney World. Það er stórkost-
legt að geta orðið barn aftur, í
ævintýraheimi með börnunum
sínum. Rétt hjá Brautarholti er
buslgarðurinn „Wet and Wild“,
en þar er hægt að gera allt sem
hægt er að hugsa sér í vatni!
Pabbi og mamma höfðu sérstak-
lega gaman a£. að skoða líkön af
öllum geimförunum á Kennedy-
höfða. Það kemur manni á óvart
hvað þau eru lítil.
— Á ferð með börnunum
mínum, áttaði ég mig á hvað
umgengni j Bandaríkjunum er
mjög til fyrirmyndar. Enginn
traðkar á gróðri. Hvergi er drasl.
Alls staðar er hægt að stoppa og
setjast niður. Þó að tugþúsundir
gangi um garða og á milli geim-
fara á Kennedy-höfða, er hvergi
pappírssnifsi eða plastpoka að sjá
— allt þrifið jafnóðum. Þetta hafði
mikil áhrif á börnin mín. Þau
hafa áður verið með okkur á
Kanaríeyjum, þar sem ekið er í
gegnum sorphauga strax á flug-
vellinum. Þar er ekki einu sinni
sorpeyðingarstöð og Spánveijar
eru mestu sóðar í umgengni.
Krakkarnir veittu þessu mikla
eftirtekt og núna henda þau ekki
drasli á víðavangi!" O.SV.B.
Heimilisfang Ragnheiðar er:
5865 Tomoka Drive, Orlando,
Flórída 32809. Sími: 407-859-
6827. Gistiverð í eina viku 37.200
kr. Tvær vikur 71.300 kr.
Það er gaman að skoða eld flaugarnai' á Kennedy-höfða.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11. NÓVEMBER 1989 15