Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1990, Blaðsíða 12
B M 1 L A R
Nýr og meiri
Volvo 460
Volvo 460 er í stórum dráttum tíkur 440. Afturhlutinn rís hærra og er 10 cm
lengri og bíllinn er einnig heldur hærri. Má glöggt sjá þennan mun á þessari
mynd sem sýnir alla 400-línuna.
Volvo 460 er það nýjasta sem Volvo-
umboðið, Brimborg- í Reykjavík kynnir
frá Volvo-verksmiðjunum um þessar
mundir. Hér er um að ræða eins konar
bróður 440 bílsins sem fyrst kom hingað
í fyrra og fengið hefur góðar viðtökur.
Volvo 460 er nokkru stærri en 440, er
framhjóladrifinn eins og hann og skyld-
leiki þeirra í útliti leynir sér ekki. Helsti
mismunur þeirra í útliti er að framan
og aftan. Með þessum bíl er 400-línan
hjá Volvo nú fúllmótuð en innan hennar
eru 440,460 og hinn sportlegi 480. Verð-
ið á 460 bilnum er 1.344 þúsundkrónur
sé hann staðgreiddur og beinskiptur en
kr. 1.430 þúsurjd fyrir sjálfskiptu gerð-
ina. Við skoðuin í dag 460 GLE, limm
gíra og beinskiptan.
Eins og fyrr segir er 460 líkur bróður
sínum 440 gerðinni. Báðir eru þeir rennileg~
ir og fallegir vagnar. Útlínur eru hæfilega
ávalar og svartur listi neðan til umlykur
allan bíiinn. Sá nýi ber þó enn frekar Volvo
yfirbragð - sérstaklega fyrir það að grillið
og niðurbyggður framendinn eru svipuð og
á bílunum í 700 línunni. Volvo 460 er 10
cm lengri en 440 gerðin og er lengingin öll
við afturendann. Fyrir vikið er farangursrý-
mið allmiklu meira en í 440, það er lengra
og dýpra. Um ieið má geta þess að það
opnast mjög vel. Þá er bíllinn einnig nokkru
hærri og sýnist hann allur við fyrstu sýn
vera talsvert meiri bíll en 440.
Búnaður
Helstu mál eru þessi: Lengd 4,405 m,
breidd 1,678 m og hæðin er 1.379 m. Bíliinn
vegur eitt tonn og sem fyrr segir var gerð-
in sem við kynntum okkur búin fimm gíra
beinskiptingu. Sjálfskipting er einnig fáan-
leg. Vélin er 1721 rúmsentimetra og 106
hestöfl og er hámarkshraði uppgefinn 175
km á klukkustund. Vélin er búin tölvu-
stýrðri beinni innspýtingu og rafeinda-
kveikja er tölvustýrð. Fjöðrun að framan
er sjálfstæð með McPherson gormum og
jafnvægisstöng en að aftan er gormafjöðrun
á heilum öxli. Bíllinn er búinn diskahemlum
og hjólbarðar eru 14 þumlunga á álfelgtim.
Búnaður í Volvo 460 getur verið mjög
ríkulegur og þannig eru þeir reyndar teknir
hingað. Fyrir utan það sem upp er talið
má nefna að bíllinn er búinn læsivörðum
hemlum, hann er með rafmagni í rúðum og
rafdrifnum speglum, einnig er hann búinn
aksturstölvu sem gefur upplýsingar um ben-
síneyðslu og hversu marga kílómetra má
aka á forðanum, um olíu, hitastig úti og
inni svo og hita á kælivatni.
í fyrstunni er verðið fyrir þetta allt kr.
1.344 þúsund í staðgreiðslu eins og fyrr
segir. Vilji menn sjálfskiptingu þarf að
greiða tæplega 90 þúsund krónur til viðbót-
ar. Til samanburðar má geta þess að stað-
greiðsluverð á Voivo 440 GLT er 1.277
þús. kr. með beinskiptingu en 1.362 þúsund
Bak aftursætis má leggja fram og
næst þá alllangt farangursrými.
Mælaborðið er vel útbúið og gefur
margs konar upplýsingar á skýran og
einfaldan hátt.
krónur sé hann tekinn sjálfskiptur. Má því
segja að menn fá mun meira fyrir sinn snúð
ef þeir taka 460 gerðina fram yfir 440 því
munurinn er ekki mikill eins og sjá má af
þessum tölum.
Akstur
Góðir aksturseiginleikar er aðalsmerki
þessa Volvo 460. Gott viðbragð og kraftur,
góður viðurgerningur við ökumann ef svo
má að orði komast, þægindi og lipurð við
alla meðhöndlun og það hversu sérlega
hljóðlátur bíllinn er - allt leggst þetta á eitt-
- og útkoman verður skemmtilegur bíll.
Gallar eru þó fyrir hendi. Bíllinn er fremur
síður og þess vegna þurfa bílstjórar að
gæta sín á grófum malarvegum okkar. Hér
er því spurning um notkunarhugmyndir
manna. Eigi bíllinn að þjóna sem borgar-
eða malbiksbíll eingöngu er hann í flokki
hinna bestu hvað varðar aksturseiginleika
og lipurð. Sé honum hins vegar ekið á möl
er ekki laust við að hann stijúki hryggina
(að minnsta kosti á þjóðveginum í Grafn-
ingi sem telst í grófara lagi á köflum) og
þarf því að gæta varúðar.
Serrf fyrr segir kann ökumaður vel við
sig undir stýri enda er sætið stillanlegt á
marga vegu, fram og aftur, halli á baki og
setu og stuðningur við mjóhrygginn. Raf-
magn í speglum auðveldar líka frekari að-
lögun ökumanns svo og veltistýri. Hér ætti
því hver sem er að geta komið sér fyrir
eins og hann kann best við sig. Útsýni er
mjög gott þrátt fyrir að menn sitji ekki hátt
í Volvo 460.
Volvo 460 er skemmtilega röskur í við-
bragði. Gírskiptingin er sérstaklega mjúk
og þægileg og vökvastýrið er nákvæmt og
hæfilega létt. Sem fyrr segir er útsýni gott
úr bílnum og á það einnig við um afturrúðu
og til hliðar og er lítið sem truflar þegar
ökumaður þarf að vanda sig við að leggja
í þröng stæði. Vegar- og vélarhljóð heyrast
lítið og er það raunar eftirtektarvert hversu
hljóðlátur bíllinn er.
Uppfyllir margar þarfir
Volvo 460 er ótvírætt vandaður bíll af
meðalstærð og á þokkalegu verði sem um-
boðið hefur náð fyrir fyrstu sendingarnar.
Hann er ríkulega búinn og hefur marga
kosti stórra bíla svo sem rými en lipurð og
léttleika smábílsins. Volvo 460 er áhuga-
verður kostur í Volvo úrvalinu og má nú
segja að menn geti fengið hinar ólíkustu
þarfir uppfylltar hjá Volvo. Margar þeirra
sameinast í hinum rúmgóða 460 og í lokin
er ekki síst rétt að minna á það aftur að
hann er einnig fáanlegur með sjálfskiptingu.
jt
Volvo 460 er rennilegur vagn.
ROVER 800 SI
Vandaður, brezkur millistærðarbíll, sem verðsins vegna er
talið að ekki þýði að bjóða hér.
í rumlega þijá áratugi hafa landsmenn ekið
á Land Rover og Range Rover, sem segja
má að sé konungur jeppanna og eni þó
ýmsir góðir, sem keppa um þá stöðu. Fólks-
bíllinn Rover 3000 var líka glæsilegur og
vel teiknaður bíll, en náði ekki fótfestu á
íslenzkum bílamarkaði.
Nú hefur hann verið aflagður og British
Leyland leitaði samstarfs við Honda í Japan
þegar til þess kom að endurnýja fólksbílinn.
Árangurinn af því samstarfí eru tvær harla
hvunndagslegar gerðir, Rover 214 og 216;
sú síðarnefnda með 116 hestafla vél og
kostar í Danmörku jafnt og BMW 316, eða
um 1.5 milljónir. Með öðrum orðum: Hann
er alltof dýr, en hefur samt verið fluttur til
Japan og seldur þar undir nafninu Honda
Concerto.
Stærri gerðin, sem raunverulega kemur í
stað hins gamla Rover 3500, er nú auð-
kennd með 800. Þar eru tvær hlaðbaksgerð-
ir, Rover 820 Si Fastback og 827 Vitesse
Fastback Kat, sem merkir, að hann er búinn
hvarfakút. Það er Honda sem hefur lagt til
vélar í þessa gripi; það er tveggja lítra vél-
in, sem er í Honda Accord. Stærðin er svo
til nákvæmlega sú sama og á Honda Ac-
cord, lengdin er 4.69m
Með hefðbundnu lagi eru svo gerðirnar
820 Si og spariútgáfan: Rover 827 Sterling
Kat. með 6 strokka vél, 169 hestafla, einn-
ig frá Honda. Höfundur þessa pistils skoð-
aði þessa bíla úti í Englandi í vor og undrað-
ist þá, að þeir skyldu ekki vera fluttir til
Islands ásamt jeppunum. Hlaðbakurinn er
afar vel teiknaður bíll og leynir sér ekki,
Rover 820 Si - taustlegur og vandaður
hlaðbakur, sem hvað verð snertir kepp-
ir við bíla eins og BMW 520 og Merce-
des Benz 200/300.
að hann er efnismikill og vandaður. í þeirri
útfærslu skín Roverinn í gegn; aftur á móti
þótti mér hann of séreinkennalaus og hvers-
dagsslegur í hefðbundnu útfæslunni, þ.e.a.s.
með skotti.
Eins og flestum mun kunnugt um, hefur
Hekla h/f umboð fyrir Rover, en hefur ekki
lagt í að kynna þá hér. Ástæðan er verðið.
Hjá umboðinu fengust þær upplýsingar, að
ekki væri í ráð að markaðssetja þessa bíla
hér.
Sá ódýrasti, 820 Si, er aðeins dýrari en
BMW 52oi, líklega um 2.5 milljónir og spar-
iútgáfan 827 er á svipuðu verði og sum
afbrigði af 300 línunni frá Mercedes Benz.
Þá er miðað við verðið á þessum bílum í
Danmörku. Af þessu virðist auðsætt, að
fólksbílarnir frá Rover geti átt erfitt upp-
dráttar á hinum alþjóðlega markaði.
GS.