Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1990, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1990, Blaðsíða 15
Hunkubakkar við Kirkjubæjar- klaustur Náttúrufegurð og náttúruvættir - lítil lömb í túni og góð aðstaða fyrir ferðamenn Nú er skemmtilegur tími til að heimsækja ferðaþjónustubýlin, einkum íyrir barnaQölskyklur. Ómetanleg’t fyrir börn af malbiki að fá að hlaupa frjáls í kapp við litlu lömbin í glöðum leik á túni - þó ekki sé nema yfir helgi. AUtaf svo róandi að koma í fjósið! Bærinn Hunkubakkar er með kindur, kýr, hesta og hunda - og gestgjafanir, Ragnheiður og Hörður, eru lengi búin að taka á móti ferðamönnum. Nýju sumar- húsin þeirra þijú eru vinsæl. Á Hunkubökkum hefur ferðaþjón- usta þróast eins og víða á megin- landinu: Fyrst herbergi í íbúðar- húsi, síðan orlofshús - og nú eru Hörður og Ragnheiður flutt í minna íbúðarhús, með tveimur góðum gistiherbergjum og hyggj- ast helga sig þjónustu við ferða- menn, en synir teknir við bú- rekstri. - Ferðaþjónustuskiltið, sem vísar á Hunkubakka, blasir við eftir beina vegkaflann yfir Eld- hraunið, áður en komið er að Klaustri. Brú yfir kolmórauða Skaftá, upp bratta brekku og þið eruð komin að Hunkubökkum. „Bæjarnafnið vefst oft fyrir ís- lendingum, en útlendingum er það tamt í munni,“ segir Hörður. „Enginn veit með vissu hvað „Hunka“ merkir, en við hér á Hunkubökkum tengjum nafnið við álfkonuna Hunku, sem á sér hól uppi á gamla bæjartúni. Ferða- maður sem gisti hjá okkur taldi sig meira að segja hafa séð álf- konuna! Það eru góðar vættir á sveimi í kringum okkur.“ Já, ör- nefni í nágrenni við Klaustur og náttúruvættir sýna stórbrotið umhverfi og átök bæði í náttúru og mannlífi. - Eru ferðamenn farnir að koma, Ragnheiður? „Vissulega og hafa ekki átt orð til að lýsa hrifningu sinni yfir að vera hér um sauðburðinn. Ferða- menn ættu að koma meira til okkar á vorin. Fullorðnir og börn gleðjast jafnt yfir litlu lömbunum. Annars man ég ekki eftir svona skrítnu vori. Túnin orðin hvann- græn, en snjór í öllum giljum og stórir snjóskaflar í brekkunum framan við bæinn. Veturinn var óvenju harður hjá okkur, en ég vona að Kirkjubæjarklaustur standi undir nafni með veðursæld í sumar, svo að gestir okkar njóti dvalarinnar." - Hvað una ferðamenn sér við hjá ykkur, Ragnheiður? „Við erum með hesta fyrir dval- argesti. - Reiðleiðin upp með Fjaðrárgljúfri og fram heiðina er vinsæl. Fjaðrárgljúfur er náttúru- undur hér í túnjaðrinum, sem all- ir verða að skoða. I gljúfrinu er skjólgott og á góðum dögum má baða sig í Fjaðrá. Hálftíma ganga upp á bæjarbrún veitir stórbrotið útsýni. Þaðan sjást Öræfa- og Mýrdalsjökull, bæði Ingólfs- og Hjörleifshöfði; lengst inn á afrétti og ofan á öll Síðuíjöll. - Holtsdal- ur hér rétt fyrir innan, er mjög gróðursæll og fallegur. -Holtsá rennur eftir dalnum, skógur og kjarr í dalsbotni. Þar er Seðla- bankinn með sumarhús. - Veiðiáhugamenn geta unað sér við ódýra stangveiði í Fljóts- botni (20 km) - stórt og tært vatn með vænni bleikju. Þar er gaman að veiða á góðum dögum, en umhverfis vatnið er fallegt hraun og gróðursælt. Á hveijum morgni kl.10 ekur Austurleiða- rúta um hlaðið - í skoðunarferð inn að Lakagígum. Margir hafa farið í þær ferðir. - Góður golf- völlur er á ferðaþjónustubýlinu Efri-Vík. - Gaman er að aka inn að Fagrafossi (20 km) - eða Eldgjá (67 km) - eða í Skaftafell (78 km). • - Útisundlaugin á Klaustri er opin daglega, um 10 mínútna akstur. Og ekki má gleyma Systrastapa, Systravatni og Kirkjugólfi - það eru kristileg örnefni í kringum okkur,“ segir Ragnheiður hlæjandi. „Já, það er margt við að vera. Sumir vilja alltaf vera að skoða og sjá eitt- hvað nýtt. Aðrir vilja dvelja um kyrrt í bústöðunum og hvíla sig - þeim finnst tíminn oft ekki nógu langur." - Ferðaþjónusta á Klaustri er mikið að byggjast upp og er víða til fyrirmyndar, eins og til dæmis á Hunkubökkum. Þó verður að segja það sem miður fer. Um ára- bil hafa ferðamenn heillast af að tjalda í Landbrotshólum, sem er kjörið tjaldsvæði frá hendi náttúr- unnar. Ár eftir ár aka ferðamenn framhjá mjúku grashólaröðinni, sem gæti veitt ótal tjaldbúum skjól og unað. En hvað sjá þeir? Fjúkandi pappír og plastpoka. Mannasaur undir steinum og á grasflötum. Engin salerni! Rusla- tunnur eru til staðar, en sjaldan tæmdar! Umhverfismál eru í brennidepli. ísland auglýsir sig úti í heimi sem hreint land. Hér verður að leita úrbóta. Á ferðaþjónustubæjum er uppbúið rúm á 1500 kr. Morg- unverður 550 kr. vikuleiga á 6 manna húsi 28.00 kr. - 4 manna 24.500 kr. Upplýsingamið- stöð fyrir ferðamenn er opin daglega í félagsheimilinu á Klaustri - selur veiðileyfi og vísar á gistirými. Á Efri-Vík í Landbroti eru 2 gistiherbergi, vatnableikja í Víkurflóði, hesta- leiga og golfvöllur. Geirland er næsti ferðaþjónustubær við Klaustur - með gistiherbergi og snyrtingu á sérhæð. Á Nýjabæ við Landbrotshóla er svefnpokagisting. Edduhótel er á Klaustri. Gott tjaldsvæði, ineð salernum og þvottaaðstöðu er að Kleifum. Oddný Sv. Björgvins 3-4 tíma akstur er að Kirkjubæjarklaustri. Systravatn er ofan við kauptúnið. Systrafoss sytrar nið- ur klettabeltið. Og klettastandurinn Systrastapi blasir við af þjóðvegi. Þær minna á sig nunnurn- ar, sem helguðu sér staðinn hér áður! I. K LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 2. JÚNM990 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.