Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1990, Síða 13
Chrysler Saratoga 3,0 lítra - amerískur glæsivagn á hagstæðu verði.
CHRYSLER SARATOGA
Alitlegur kostur í flokki vel búinna bfla sem kosta 1550-1860 þúsund.
Innréttingin í Saratoga, sæti, stýri og mælaborð, er allt með traustlegum svip.
ótt Cysler Corporation hafi notið for-
ystu hins fræga stjóra Lee Iacocea
um árabil, hefur reksturinn géngið
illa og Chrysler hefur farið verst út úr sam-
drætti í bandarískri bílaframleiðslu af iðnris-
unum í Detroit. Þeir bandarísku hafa ekki
staðið sig gagnvart japönsku innrásinni og
kannski er hér að verki lögmálið um öll risa-
veldi, sem að lokum fúna innan frá, ef utanað-
komandi óvinir leggja þau ekki undir sig.
Þegar litið er á línuna frá Chrysler, sést
að sumir bílarnir eru lítt spennandi, svo sem
Chrysler ES, sem telst víst smábíll á amerísk-
am mælikvarða. Flaggskipið Chrysler Fifth
Avenue er það sem þeir kalla „full size“ með
5,25m lengd, en aðeins minni er Chrysler
New Yorker, 4.92m á lengd. Þeir eru traust-
legir og virðulegir, en ekki beint vel teiknað-
ir og fremur gamaldags í útliti. Sú gerð af
Chrysler, sem að undanförnu hefur borið
heitið LeBaron Coupé, var langsamlega best
teiknaður, en hefur nú verið látinn víkja fyr-
ir nýrri útfærsiu: Chrysler Saratoga. Fyrir
okkur sætir mestum tíðindum, að umboðið,
Jöfur í Kópavogi, hefur náð sérlega hagstæð-
um samningum, sem gera þennan bíl sam-
keppnishæfan við nokkra vel búna bíla, sem
þekktir eru hér, svo sem BMW 318, Peugeot
405 SRi og sprækustu gerðirnar af Honda
Accord og Mitsubishi Galant, en um 150
þúsundum dýrari eru hinsvegar valkostir eins
og BMW 518 og Saab 9000.
Staða dollarans hefur verið þannig alllengi,
að amerískir bílar hafa vart verið nefndir í
sömu andrá og þessir fyrrnefndu frá Evrópu
og Japan.
Saratoga er ekki ætlað að keppa við al-
vöru lúxusbíla fremur en hinum, sem hér
hafa verið nefndir, en þetta er vandaður og
íburðarmikill fólksbíll engu að síður. Tvær
gerðir eru í boði: Saratoga EFI, sem er bú-
inn fjögurra strokka vél og allur talsvert
íburðarminni. Hann kostar um 1550 þús.,
kominn á götuna, en er samt svo álitlegur
bíll, að hann hlýtur að teljast fremur ódýr á
þessu verði miðað við margt annað. Sá sem
hér var reynsluekið, Chrysler Saratoga 3,0
lítra, er með sex strokka, 140 hestafla vél
og verulegum íburði. Hann kostar 1860 þús.
kominn á götuna.
Aftursætið er hægt að leggja niður
eins og hér sést.
Eins og myndimar bera með sér er þetta
vígalegur bíll og verður að teljast fremur vel
teiknaður. Hann er meira sterklegur og sam-
anrekinn en rennilegur og er sérstakur skóli
eða stefna í bílhönnun, sem leggur einmitt
áherzlu á það. Til dæmis um áhrif þessa
skóla má nefna þegar Mitsubishi fargaði
nokkuð svo rennilegu lagi á Galant fyrir
núverandi útlit, sem er bæði traustlegra og
kraftalegra. Þessi samanrekni svipur fær
aukna áherzlu á Chrysler Saratoga með
„svuntunni" að framan (sjá mynd), sverum
hornpósti við afturglugga og brattri aftur-
rúðu. Hann er stallbakur, þ.e. með skotti -
og nú viðra ég nýyrði, sem er hliðstæða við
hlaðbakur. Enska heitið sedan, sem stundum
hefur verið notað vegna vöntunar á íslenzku
heiti, er vitaskult ófært til frambúðar.
Traustleiki og styrkur er annars það fyrsta
sem manni flýgur í hug við kynni af þessum
bíl. Léttmálmsfelgurnar undirstrika það einn-
ig, svo og dekkjabreiddin. Það er svert í öllu
á gamla ameríska vísu, enda er Saratoga
1400 kg á þyngd; jafn þungur og fimman
frá BMW. Það merkir samkvæmt þumal-
puttareglunni, að eyðslan er 14 lítrar innan-
bæjar, en 8-12 í vegaakstri. Með sjálfskipt-
ingu má bæta svo sem 10% við það. En
þyngdin og efnismassinn hefur tvo kosti í
för með sér. Annar er sá, að ökumaður og
farþegar eru vel varðir, ef eitthvað ber útaf,
og í annan stað verður fjöðrunin þægilegri
og vissulega þarf ekkert að kvarta yfir
henni. Samt er hún gerólík þeirri fjöðrun,
sem einkenndi amrískar sjálfrennireiðir hér
fyrr meir. Saratoga tekur ekki djúpar dýfur
að hætti Bjúkkans frá því.um 1960. Flest i
þessum bíl hefur verið sveigt undir evrópskan
smekk og tízku og aksturseiginleikarnir eru
miklu meira evrópskir en amrískir - og þá á
ég við amríska bíla frá liðnum tíma. Ekki á
það síður við að innan. í stað dúnmjúkra,
heilla bekkja að framan, sem eitt sinn voru
NÝ TÖLVA TIL BILANA-
GREININGAR HJÁ JÖFRI
Jöfúr hf. í Kópavogi sem hefúr umboð fyrir bíla frá Chrysler, Peugeot, Skoda
og Alfa Romeo hefúr nýlega gefið út fyrsta tölublað af fréttapósti sínum. Verða
þar sagðar fréttir af nýjungum og öðru í starfsemi fyrirtækisins og í þessu fyrsta
blaði er m.a. frétt um bilanagreiningartölvu sem tekin hefur verið í notkun á
verkstæðinu, ein af fáuin slíkum í Iandinu.
Bilanágreiningartölvan kemur að
góðu gagni við bilanagreiningar á flókn-
um rafeindakerfum sem stjórna kveikju-
og eldsneytiskerfum marga nýrri bíla.
Bilanaleit í þessum kerfum er erfið en
með aðstoð tölvu verður leitin léttari.
Tölva Jöfurs er forrituð fyrir allar teg-
undir bíla og getur á örfáum mínútum
greint yfir fimm þúsund mismunandi
bilanir. I minni tölvunnar eru geymdar
lýsingar á gangtruflunum sem orðið
geta í bílvél en tölvan er einnig notuð
til almennra vélastillinga. Þá getur þjón-
ustuverkstæði Jöfurs verið í sambandi
um gervihnött við gagnabanka
Chrysler-verksmiðjanna í Detroit og
fengið þannig nýjustu upplýsingar og
hægt að leita til sérfræðinga verksmiðj-
anna eftir aðstoð.
heitir Smart Engine Analyzer og er
frá AJIen Testproducts í Banda-
ríkjunum.
Umfísvernd í verki: Saratoga er með
hvarfakút.
íj
Léttmálmsfelgur, sú til vinstri er af
dýrari gerðinni.
aðall amrísksra bíla, er Saratoga með æði
harðbólstraða, aðskilda stóla að þýzkum
hætti. Þessi eltingaleikur við þýzkan staðal
virðist næstum allsráðandi, en verst er þegar
menn fara offari að þessu leyti og ganga enn
lengra í hinni spartönsku, þýzku hörku í
bílsætum, líkt og gerst hefur á Hondu Ac-
cord og liggur við að gerzt hafi á Saratoga.
Sætin eru stillanleg á alla kanta með raf-
magni og það er þægilegt, en þau mættu
vera betur formuð og veita meiri hliðarstuðn-
ing.
Mælaborðið veitir upplýsingar um allt sem
máli skiptir; þar eru mælar í stað ljósa:
Smunnælir, hitamælir, ampermælir og að
sjálfsögðu bensínmælir - fyrir utan hraða-
og snúningshraðamæla. Þar er líka ágæt
viðvörunarmynd, sem sýnir mjög greinilega, A
ef hurðir eða skottlok hafa ekki lokast til
fulls. Allt er það tofsvert og í heild er mæla-
borðið sterklegt. En það skortir þá fágun í
hönnun og frágangi, sem einkennir bæði jap-
anska bíla og marga evrópubíla. Fágun og
frágangur innan á hurðum er samt eins og
bezt verður á kosið.
A stýrinu eru stjórnhnappar fyrir sjálfvirka
hraðastillingu (cruise control) og stýrishallan-
um má breyta að vild. Drif er á framhjólum
og Saratoga er mjög rásfastur í akstri og
góður í stýri. Þótt ekki væri búið að ryð-
veija þennan bll, var hann laus við gný frá
vegi; aftur á móti er vindgnýr í hærra lagi.
Vélin er eins hljóð og maður á að venjast
úr amrískum bílum - og hún syngur með
bassa, þegar spyrnt er. Hún er V-6, rétt um
3 lítrar að rúmtaki og 140 hestöfl. Satt að
segja veitir ekki af öliu því hrossabúi, þegar
sjálfskipting er komin í spilið. En Saratoga
er langt í frá að vera vélvana og væri áreiðan-
lega mjög sprækur með beinskiptingu. Eins
og segja má að sé regla um dýra bíla, leyn-
ir hann hraðanum svo, að á hundraðinu
mætti vel ímynda sér 60-70 km hraða.
Niðurstaðan er sú, að Chrysler Saratoga er
afar ánægjulegur bíll í akstri og telja verð-
ur, að útlitið hafi tekizt vel. Hér er sannar-
lega íburðarmikill fólksbíll og í því ljósi má
segja, að í honum séu góð kaup, enda þótt
1800 þúsund séu að sönnu mikið fé, þegar
tekið er mið af mánaðarlaunum Meðaljóns.
Væri ég Iacocca sjálfur, rnundi ég láta forma
sætin ögn betur; gera þau ögn mýkri og bjóða
uppá svo sem 20 hestöfl til viðbótar til þess
að hafa uppi sjálfskiptinguna og mengunar-
vörnina, efnahvarfakútinn, sem hér er með
og verður að teljast nauðsyn, ef við viljum
ekki vera á eftir öðrum í umhverfisvernd.
Gísli Sigurðsson
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 2. JÚNÍ 1990 13